Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 6
e MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. april 1959 Áburðarverksmiðjan hefir framleitt 89 þús. smálestir af Kjarna Reykjafoss fullfermdur á siglingu undan Svíþjóðarströnd. Eimskip flutti 225 þús. smá- lestir síbastlibib ár 12 prósent aukning frá árinu áður Innanlandsflutningur Á ÁRINU 1958 fluttu skip Eim- skipafélagsins samtals 255.073 smálestir af varningi eða um 12% meira en árið 1957. Innflutningur var 144.474 smá- lestir 1958, en 140.499 smál. 1957, útflutningur var 101.015 smál. (79.569) og innanlandsflutningar 9.584 smál. (7.237). í nóvember 1958 bættist Sel- foss við skipastól félagsins en sjómannaverkfallið í júní dró að sjálfsögðu nokkuð úr afkasta- möguleikum skipanna. Evrópusiglingar Skip félagsins hafa hér um bil undantekningarlaust siglt full- fermd frá Evrópu og oft full- fermd af íslenzkum afurðum til Evrópulanda. Eimskipafélagið hefur ferðir frá eftirtöldum stöðum: Englandi: Leith og Hull. Belgíu: Antwerpen. Hollandi: Rotterdam. V-Þýzkalandi: Hamborg. A-Þýzkalandi: Rostock. Danmörku: Kaupmannahöfn. Svíþjóð: Gautaborg. Póllandi: Gdynia. Lettlandi: Ventspils eða Riga. Rússlandi: Leningrad (á sumrin). Finnlandi: Kotka eða Helsing- fors. íslenzkar afurðir eru affermd- ar í fyrrnefndum höfnum og þar að auki á fleiri höfnum, á ír- landi, Bretlandi, Danmörku, Sví- þjóð og Frakklandi eða samtals. á um 35 höfnum í NorðurEvrópu. Kappkostað hefur verið að nýta skipsrúm sem bezt. Erfitt er að fá upplýsingar langt fram í tímann um flutningsþörfina og þess vegna hefur verið nauðsyn- legt að ákveða ferðir skipanna, annarra en „Gullfoss", með stutt- um fyrirvara og í mörgum til- fellum breyta ferðaáætlun þeirra. Ameríkusiglingar Undanfarin ár annaðist Trölla- foss ásamt frystiskipi flutninga milli íslands og New York. Það sem af er þessu ári hefur Trölla- foss annazt fhjtning milli Evrópu landa og íslands en tvö frysti- skip siglt milli íslands og New York. Ástæðan fyrir þessari breytingu er sú, að frystiflutn- ingar hafa aukizt til New York en flutningar frá New York minnkað meðal annars sökum þess að samkvæmt amerískum lögum eiga amerísk skip kröfu á að fá 50% af vörum sem keypt- ar eru samkvæmt sérstökum sér- samningum milli íslands og Bandaríkj anna. Skip félagsins eru tíðir gestir á hinum ýmsu höfnum úti á landi til að afferma innfluttar vörur og ferma útflutningsafurð- ir. Reynt er eftir fremsta megni að fyrirbyggja umhleðslu í Reykjavík, enda er umhleðslan tafsöm og kostnaðarsöm, þó oft verði ekki hjá henni komizt. Skip félagsins koma við eftir þörfum á um 50 höfnum víðs vegar við ísland. Flutningsþörfin fer eftir árs- tíðum, verzlunarsamningum milli íslands og hinna ýmsu landa og markaðsmöguleikum fyrir ís- lenzkar afurðir. Allt þetta er miklum breytingum háð. Eins og STOKKHÓLMI, 17. apríl. — Allir helztu leiðtogar jafnaðarmanna i Vestur-Evrópu eru nú saman komnir í Stokkhólmi til að halda hátíðlegt 70 ára afmæli sænska Jafnaðarmannaflokksins. Meðal annarra eru þar staddir forsætis- ráðherrar Noregs, Danmerkur og Finnlands, Gaiskell leiðtogi brezka Verkamannaflokksins og Ollenhauer leiðtogi vestur-þýzkra jafnaðarmanna. hingað til, mun Eimskipafélagið leitast við að samræma þarfir innflutnings, útflutnings og strandflutnings, en jafnframt nýta skipsrúm sem bezt þannig að skipin sigli helzt fullfermd til og frá landinu. AÐALFUNDUR Aburðarverk smiðjunnar hf. var haldinn í Gufu nesi þriðjudaginn 14. apríl sl. Fundarstjóri var kjörinn for- maður stjórnar Áburðarverk- smiðjunnar hf. Vilhjálmur Þór, aðalbankastjóri, en fundarritari Jón ívarsson, forstjóri. Fundurinn var vel sóttur. Mættu fulltrúar fyrir um 99% af hlutafé verksmiðjunnar. Iðnaðar- málaráðherra, sem fer með mál- efni verksmiðjunnar, Gylfi Þ. Gíslason, mætti á fundinum fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Formaður verksmiðjustjórnar- innar, Vilhjálmur Þór, flutti skýrslu stjórnarinnar um rekstur og afkomu fyrirtækisins fyrir ér- ið 1958. Framleiðsla Kjarnaáburðar á árinu nam 17646 smálestum, og var það 2325 smálestum minna en næsta ár á undan. Ljóst var þegar á árunum 1955—56, að til verulegrar framleiðsluskerðing- ar mundi koma á árunum 1958 og Svona var það og er það enn ÞEGAR ég var að hlusta á út- varpsræðu Jóns frá Reynistað um þær hörðu og persónulegu deilur, sem oft fylgdu alþingis- kosningum í einmenningskjör- dæmum, þá kom mér í hug löngu liðið atvik, sem styður það mál. Ég var leiðsögumaður fjöl- skyldu frá Vesturheimi, sem aldrei hafði áður ísland séð, þótt hún væri af alíslenzkum ættum. Oft var staðar numið, þar sem útsýni var gott. Á einum bænum, þar sem við komum, var óvenju- lega gott útsýni rétt við túnið. Ég þekkti hvern bæ, sem sást frá þessari hæð, og sagði meðal ann- ars við bóndann, sem með oss var: „Þarna býr þingmaðurinn ykkar“, og benti um leið á heim- ili hans. En þá brá svo við að bóndinn fór að formæla þing- manninum og flokki hans. Hjón- in að vestan litu forviða hvort á annað og sögðu við mig á ensku: „Nú þykir okkur vænt um að börnin okkar skilja ekki ís- lenzku1. Ég sagði við bóndann að mig furðaði á, hvað hann væri ill- yrtur. Ég hefði heyrt margt gott um þingmanninn, enda þótt ég teldi mig ekki í sama stjórnmála- flokki og hann. Svarið, sem ég fékk, var á þessa leið: „Þið Reyk- víkingar vitið lítið um hvernig vér, sem erum í minnihluta við kosningar í sveitunum, erum sví- virtir og ofsóttir í smáu og stóru, í hreppsmálum, verzlunarmálum og almennum héraðsmálum. Ef þið byggjuð við svipuð kjör, mynduð þið líklega verða jafn- stórorðir og ég um forgöngumann meiri hlutans“. Þarna gat ég engu svarað, því þessi hlið málanna var mér alveg ókunn. — Enn seinna hef ég rek- ið mig á mér til leiðinda, að það voru fleiri en gestgjafi okkar, sem höfðu svipaða sögu að segja. Þess vegna er ég þeim sammála, sem telja einmenningskjördæmin enga þjóðarheill. Gamall ferðamaður. skrifar úr daglega iifinu mu; Ferðalangur í borginni NIÐ þið eftir litlu hagamús- inni, sem trítlaði inn í bæ- inn ekki alls fyrir löngu? Síðan hefur hún verið að skoða sig um í höfuðborginni, enda var leik- urinn til þess gerður. f fyrstu átti hún í ýmsum erfið- leikum, enda voru sum ráðin hennar músamömmu nokkuð gam aldags, því margt hefur breyzt í höfuðborginni síðan hún var þar. Það var t. d. þetta með mat- föngin. Hér áður fyrr gat hvert nagdýr spásserað niður í Iðnó og fengið fylli sína af gómsætasta „sminki“. Nú hafa aftur á móti orðið þar þvílíkar framfarir, að því er leikararnir segja stundum í afmælisviðtölum að búnings- klefarnir eru orðnir alveg músar- heldir og meira að segja vatns- heldir. þar er nú aðeins andlegt fóður að fá. Þá voru öskuhaugarnir á Eiðs- granda öruggt forðabúr ekki alls fyrir löngu. Nú eru þeir úr sög- unni, að sögn, og lítil mús á það bara á hættu að verða að Skarna og vera borin á Austurvöll, ef hún leggur 1 að elta matarleyí- u* arnar úr öskutunnunum á sinn áfangastað. Ef svo færi mundi sennilega spretta upp af henni á einhverjum grasfletinum. En það er engin hætta á því. Mýsla litla veit um þá hættu, því hún les blöðin um leið og hún trítlar yfir þau. Sárfætt, ung og siðsöm M þetta var hagamúsin að hugsa, þegar hún trítlaði eft- ir Austurstræti eitt góðviðris- kvöld í síðustu viku. Hún var orðin sárfætt af öllum þessu trítli á steyptum gangstéttum, og hún einblindi niður á asfaltið, því síð- an þessi stuttu, víðu pils með gjörðunum innan í komu í tízku hjá ungu stúlkunum á rúntinum, getur ung og siðsöm mús ekki verið þekkt fyrir að líta upp. Það var einmitt ástæðan til þess að hún kynntist alveg nýjum lið í bæjarmenningunni. Hún var einmitt stödd á gömlu dagblaði, sem lá þarna fyrir allra fótum, þegar hún rak augun í það. Þar stóð stórum stöfum: Gæðasmjör. Það hlaut að vera einhver munur á þessu fína kaupstaðasmjöri eða heimastrokkaða smjörinu hennar Önnu á Bakka. Og svo las hún um það hvernig þessu fína gæða- smjöri væri pakkað í fínar um- búðir í nýtízku húsakynnum þar sem sérfræðingar gættu þess að allt það smjör sem ekki hefði hið löglega 16% vatnsmagn væri hnoðað upp. 16% vatn — nei, nú leizt litlu mýslu ekki á blikuna. Annað eins smjörgutl mundi hún Anna á Bakka aldrei láta í sitt búr, handa sínum hagamúsum að narta í. En þetta skilyrði varð smjör líklega að uppfylla, til að geta fengið hið virðulega heiti gæðasmjör. Litla hagamúsin var svo niður- sokkin í þessar vangaveltur, að nærri lá að hún fengi einn af þessum nýmóðins mjóu stálhæl- um í gegnum sig. Hún hrökk við. Þetta var þá líka staðurinn til að gleyma sér — hér á miðju hættu- svæðinu innan um frumskóg af oddhvössum hælum. Síðan þessar mjóu gæjabuxur komu í tízku, mundi ekki vera nokkra holu að finna hér, hversu mikið sem á lægi. Henni væri nær að ná sér í lögreglusamþykktina og reyna að kynna sér svolítið umferðar- reglurnar í bænum. 1959 vegna raforkuskorts, þar sem verksmiðjan fær enga af- gangsorku nema fullnægt hafi verið áður orkuþörf hinna al- mennu orkunotenda, eftir því sem orkuframleiðsla Sogsins frek ast leyfir. Fékk verksmiðjan því 11,7% minni orku á árinu en 1957. Von er þó, að afkastageta verk- smiðjunnar batni á árinu 1960, eftir að hin nýja virkjun Sogsins hefir verið tekin í notkun. Rekstrarútkoma fyrirtækisins varð því sú, að kr. 81.277,00 skorti á, að fullum, lögskipuðum af- skriftum yrði náð, en afskriftir námu 9,1 milljón króna. Ekki var unnt að leggja tilskilda upphæð í varasjóð. Frá því að verksmiðjan tók til starfa og til ársloka 1958 hefir hún framleitt 89.408 smálestir Kjarna. Verðmæti seldrar fram- leiðslu fyrirtækisins til síðustu áramóta nam kr. 151,8 milljón. Gjaldeyrislega hefði þjóðinni sparazt og áunnizt tvöföld sú upp- hæð, sem til verksmiðjunnar þurfti í upphafi í erlendum gjald- eyri, en það vóru 75 milljónir króna. Þá minnist formaður á þær at- huganir, sem fram hefðu farið á undanförnum árum, varðandi framleiðslu fosfóráburðar eða blandaðs áburðar. Hefðu tveir sérfræðingar komið til landsins í því skyni. Einnig hefði verk- smiðjustjórinn kannað fram- leiðsluaðferðir og ý.nsar gerðir verksmiðja erlendis, og að í fram- haldi af þeim athugunum og fengnum upplýsingum hefði verið gerð áætiun um framleiðslu blandaðs áburðar, sem allir verk- fræðingar, sem við fyrirtækið starfa, væru sammála um, að und angengnum athugunum, að væri góð og hagkvæm framkvæmd. Sagði hann, að mál þetta væri nú til frekari athugana, en áætlanir bentu eindregið til þess, að 'kostn. aðarlega og gjaldeyrislega væri þjóðarheildinni hagkvæmt, að málefni þessu yrði hrundið í fram kvæmd. Því næst skýrði Hjálmar Finnsson, framkvæmdastjóri, frá niðurstöðum ársreikninga fyrir- tækisins og veitti fundinum upp- lýsingar um einstök atriði, er snerta starfsemi fyrirtækisins. Voru reikningarnir samþykktir í einu hljóði. Þá fór fram kosning tveggja manna í stjórn, og voru endur- kjörnir þeir Ingólfur Jónsson, al- þingismaður, og Jón ívarsson, forstjóri. Halldór H. Jónsson, arkitekt, var kjörinn varamaður Ingólfs Jónssonar, og Hjörtur Hjartar, framkvæmdastjóri, end- urkjörinn varamaður Jóns ívars- sonar. I fundarlok kvaddi iðnaðar- málaráðherra hr. Gylfi Þ. Gísla- son sér hljóðs. Flutti hann fyrir- tækinu sínar beztu árnaðaróskir fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og þakkir fyrir þanri árangur, sem fyrirtækið hefði þegar sýnt á skömmum starfstima fyrir þjóð- ina í heild. Taldi hann, að með stofnun og upphafi á starfsemi þessa fyrirtækis, sem hefði verið upphaf stóriðju á íslandi, hefði verið brotið blað í efnahagsþróun landsins og muni þessa merka á- fanga ávallt minnzt í efnahags- sögu þjóðarinnar. Stjórn Áburðarverksmiðjunnar hf. skipa nú: Vilhjálmur Þór, formaður Ingólfur Jónsson, alþingismaður Jón ívarsson, forstjóri Kjartan Ólafsson frá Hafnarfirði Pétur Gunnarsson, tilraunastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.