Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 21. apríl 1959 23 MORCU1VBLAÐ1Ð Þetta eru norsku skipbrotsmennirnir af selveið aranum Selfisken, sem fórst í ísnum miðja vega milli Grænlands og Jan Mayen 7. apríl. Er myndin tekin af mönnunum er þeir komu hing- að síðdegis á laugardaginn norðan frá Akureyri, og er fremsti maðurinn á myndinni Kaare Pedersen skipstjóri. Hann sagði að skip sitt hefði brotnað í spón, líkast því sem það hefði verið eldspýtustokkur, er ís lagðist að skipinu að báðum hliðum þess. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum á ' ttræðisELfmæli mínu 10. þ.m. Guð blessi ykkur öll. Júlianna Jónsdóttir, Blönduhlíð 6. Innilega þakka ég heimsóknir, heillaskeyti, gjafir og stórmannlega veizlu Keldna hióna á 60 ára afmæli mínu 18. apríl. Guðmundur Skúlason Innilegar þakkir færi ég öllum, sem minntust mín með heimsóknum, viðtölum, skeytum og gjöfum á 70 ára afmæli mínu 10. apríl 1959. Halldór Guðmundsson, Æðey Maðurinn minn kristjAn fr. jónsson frá Bræðraborg, Seyðisfirði, andaðist í St. Josefsspítala Hafnarfirði, laugardaginn 18. apríl. Fyrir mína hönd og barna okkar. Guðrún Arnþórsdóttir Eiginkona mín, dóttir og stjúpdóttir IÐA NIKULÁSDÓTTIR verði 981.5 millj. kr. Hefir þá verið fellt niður 20 millj. kr. framlag útflutningssjóðs til ríkissjóðs, en á móti kemur tekju- auki vegna nýlegra vferðhækkana áfengis og tóbaks, sem er áætl- aður 25 millj. kr. Nú hefir það að vísu verið venjan undanfarin ár að áætla tekjur ríkissjóðs í fjárlögum það lágt, að fjármálaráðherra gæti haft allrúmar hendur um um- framgreiðslur. Þann hátt er ekki hægt að hafa nú, þegar verið er að forðast nýjar skattálögur. Er því lagt til, að tekjurnar verði áætlaðar 966.5 millj. kr. og er það 68.6 millj. kr. hækkun frá frumv. Vafalaust mun því verða hald- ið fram af talsmönnum fyrrv. hæstv. fjármálaráðherra, að það nái ekki nokkurri átt að áætla aðeins 15 millj. kr. til að mæta umframgreiðslum. Þetta er vissu- lega lítil fjárhæð, miðað við umframeyðsluna undanfarin ár, en ætlunin er líka sú, að mikið hóf verði haft á þeim greiðslum, og þær því aðeins inntar af hendi, að óumflýjanlegt sé. Um innflutningsáætlun þá, sem tekjuáætlunin er byggð á, er það að segja, að hún er miðuð við 1.094 millj. kr. útflutning. Útflutningur 1958 varð 1069 millj. kr., en að auki varð birgða- aukning, sem nam 70 millj. kr. Miðað við það, að síldveiði verði svipuð og í fyrra og vetrarvertíð bregðist ekki, telur efnahagsmála ráðunautur ríkisstjórnarinnar, að gera megi ráð fyrir, að útflutn- ingur í ár geti numið allt að 1140 millj. kr. Ljóst er, að vetrar- vertíð ætlar jafnvel að verða betri nú en í fyrra, og virðist þessi áætlun því ekki óvarleg. Innflutningsáætlunin er hins vegar höfð það varleg, að miðað er við gjaldeyristekjur lítið eitt hærri en meðaltalstekjur tveggja síðustu ára, en árið 1957 var all- miklu lakara en árið 1958, sem er okkar bezta tekjuár. Er miðað við, að reynt verði að greiða á árinu þann 100 millj. kr. gjald- eyrisyfirdrátt við útlönd, sem var um síðustu áramót. Er því hér um mjög raunhæfa áætlun að ræða. Samkvæmt öllum þessum til- lögum okkar í 1. minnihl. nefnd- arinnar skortir því aðeins nú tæpar 10 millj. kr. til þess að auðið sé að brúa hið breiða bil gjalda og tekna, án þess að hækka þurfi hina almennu skatta og tolla á þjóðinni. Munu við 3. umr. frv. gerðar tillögur um hversu sá vandi verði leystur, þannig að auðið verði að af- greiða fjárlög greiðsluhallalaus. Varnargarður gegn dýrtíðar- flóði. Eins og ég áður gat um, er með þessari afgreiðslu fjárlaga og efnahagsráðstöfunum um sl. áramót reynt að byggja lífsnauð- synlegan varnargarð gegn því verðbólguflóði, sem fyrrv. hæstv. forsætisráðherra sagði að væri að steypast yfir þjóðina, þegar hann gafst upp í baráttunni fyr- ir síðustu áramót. Takist þessar stöðvunarráðstafanir, þá er grundvöllur fenginn undir frek- ari aðgerðir, sem nauðsynlegar eru til þess að koma á jafnvægi í fjármálum og efnahagsmálum þjóðarinnar. Við verðum að gera okkur ljósa grein fyrir því, að enn erum við á gjárbarminum og verðum því að gæta okkar vel. Ef undan er skilið, hversu vel var séð fyrir ríkissjóði með „bjargráðunum“ svokölluðu í fyrra, hefir efnahagsmálaráðu- nautur ríkisstjórnarinnar tjáð fjárveitinganefnd, að ljóst hafi verið þá þegar, að rekstur út- flutningssjóðs gæti því aðeins staðizt, að gjalaeyristekjur væru mjög háar og notkun erlends láns fjár mikil og þar af leiðandi hægt að halda uppi miklum inn- flutningi hátollavöru. Árið 1958 er langhagstæðasta tekjuár okk- ar. Engu að síður var þá auk mjög mikils erlends lánsfjár eytt öllum gjaldeyristekjunum og er- lendar lausaskuldir um sl. ára- mót 100 millj. kr. Því er ekki að leyna, að enn er djarft spilað, þótt að vísu sé nú reiknað með að reyna að grynna á lausaskuld- unum. Leggja verður áherzlu á að koma skipan efnahagsmálanna í það horf, að hægt sé í fram- tíðinni að eiga einhvern gjald- eyrisvarasjóð, því að fjarstætt er að treysta því, að alltaf verði góðæri. Áður en fyrrverandi rík- isstjórn fór frá völdum hafði hún lagt drög fyrir að fá nýtt gjaldeyrislán í Bandaríkjunum. Voru allar áætlanir um afkomu ríkissjóðs og útflutningssjóðs á þessu ári við það miðaðar, að þetta lán fengist. Er því í öllum þeim áætlunum, sem nú eru lagð- ar til grundvallar fjárlagaaf- greiðslunni reiknað með að svo verði og byggt á upplýsingum ríkisstjórnarinnar um það efni. Er ætlunin að verja lánsfé þessu til raforkuframkvæmda, hafnar- framkvæmdá og til þess að leysa fjárhagsörðugleika stofnlána- sjóða landbúnaðar og sjávarút- vegs. Því er hins vegar ekki að leyna, að erlend skuldasöfnun á undanförnum árum hefir verið svo mikil, að varlega verður að fara í frekari erlendar lántökur. Afborganir og vextir af erlend- um lánum verða nær 130 millj., kr. á þessu ári og erlendar skuld- ir þjóðarinnar hlutfallslega hærri en í flestum öðrum löndum og er nú hlutfallið að verða svipað og fyrir 1940, þótt aðstaða landsins til að standa undir skuldunum sé raunar miklu betri nú. Segja verður þjóðinni sannleikann. Þá má heldur ekki loka augum fyrir því, að dýrtíðarvandamálið er ekki leyst, þótt visitölu sé haldið niðri með stórfelldum fjárframlögum, heldur er hér að- eins um óhjákvæmilega neyðar- ráðstöfun að ræða til að forða frá því, sem verra er. Allar þessar staðreyndir, sem ég hefi hér dregið fram, er nauð- synlegt ,að þjóðin íhugi rækilega. Það er kominn tími til að segja þjóðinni umbúðalaust sannleik- ann, því að vandamál efnahags- lífsins verða ekki leyst nema þjóðin öll geri sér grein fyrir eðli vandamálanna og sætti sig við þær ráðstafanir, sem óum- flýjanlegar eru. Það getur tekið langan tíma að koma á jafnvægi í fjárhagsmálunum, ef nauðsyn- legar ráðstafanir eiga ekki að valda tilfinnanlegri kjaraskerð- ingu, en þetta jafnvægi verður að nást til þess að fjármálaþró- unnin í landinu geti verið með eðlilegum hætti. Það er engin ástæða til svartsýni, því að fram- leiðslumöguleikar þjóðarinnar eru miklir og vaxandi. Ef kostað er kapps um að hagnýta sem bezt auðlindir landsins og hafsins um- hverfis það, á þjóðin örugglega að geta búið við góða afkomu — ef hún ekki lætur villa sér sýn j um eðli þeirra vandamála, sem hún á nú við að glíma, og nægi- leg samstaða fæst um skynsam- lega lausn þessara vandamála. Einn þáttur þess vanda er af- greiðsla þess fjárlagafrv., sem hér liggur nú fyrir til 2. umr. Eg hefi nú, herra forseti, gert | grein fyrir þeim röksemdum, sem tillögur okkar í 1. minnihl.' nefndarinnar byggjast á og leyfi mér að vænta þess, að háttvirtir alþingismenn geti á þær fallizt. Grænuhlíð, Reyðarfirði, lézt í Farsóttarsjúkrahúsi, Reykjavík, laugardaginn 18. apríl s.l. Jarðarförin auglýst síðar. Jóhann Björgvinsson, Ragnheiður Sölvadóttir, Jóhann Halldórsson. Móðir mín. NIELSlNA KRISTJANSDÓTTIR andaðist í Sjúkrahúsi Sauðárkróks þann 19. þ.m. Kristján Jónsson, Óslandi. Okkar hjartkæra systir, mágkona og frænka Asta pAlína KOLBEINSDÓTTIR andaðist á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn, laugardaginn 18. þ.m. Hulda Sigrún Snæbjörnsdóttir, Eyjólfur Kolbeinsson og börn • Maðurinn minn og faðir okkar ERNEST FRIDOLF BACKMANN (eldri) andaðist að heimili sínu Háaleitisveg 23 19. apríl. Jónína Helgadóttir og bÖrn Móðir okkar VILBORG ÓLAFSDÓTTIR lézt að Héraðshælinu á Blönduósi 18. þ.m. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þórhildur Sveinsdóttir, Torfi Sveinsson Jarðarför móður minnar INGUNNAR BJÖRNSDÓTTUR Ljótarstöðum Austur-Landeyjum, fer fram miðvikudagin 22. þ.m. kl. 1 e.h. Jarðað verður að Krossi. Arsæll Jóhannsson Bróðir okkar ÓLAFUR A. GUÐJÓNSSON sem lézt 13. þ.m. verður jarðsunginn frá Fosvogskirkju á morgun 22. þ.m. kl. 1,30. Guðbjörg Guðjónsdóttir og bræður Stykkishólmur STYKKISHÓLMI, 18. apríl. — Afli Stykkishólmsbáta var nokk- uð jafn í gær, frá 10—14 lestir. ' Fiskurinn var tveggja nátta. —■ Einn báturinn fékk 2 lestir, en1 hann tapaði 10 netjum og gat því ekki dregið þau. Ánnars hefur verið heldur kalsasamt leiðinda- ! veður, og erfitt um alla netja-! veiði, en nú í dag er hér gott i veður og allir bátar á sjó. —Arni. Innilegt þaklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför KRISTÓFERS HELGASONAR frá Heggsstöðum Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarliði Bæjarspitalans, hjúkrun og aðhlynningu í veikindum hans. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.