Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 21. apríl 1951 MORCUNBLAÐIÐ 15 Hlustað á útvarp HENDRIK BERNDSEN hefur flutt þrjá þætti um blóm. Þetta voru vel fróðlegir þættir, og þyk ist ég vita að margir hafi lært mikið af þeim. Berndsen, sem er blómasali er mjög fróður um blóm og allt sem ræktun blóma við kemur. Slíkir þættir sem þess ir eru þarflegir og geta komið að góðum notum. Auk þess eru þeir skemmtilegir, eins og Bernd sen flutti þá. Tíminn, sem þeim var valinn í útvarpinu, var ekki vel heppilegur hefði gjarna mátt flytja þau á betri hlustunartíma en sleppa einhverju öðru sem minna gildi hafði. ★ Leikritið Caroline eftir Somm- erset Maugham í þýðingu Þor- steins Ö. Stephensen er langt og fjörlega ritað. Ágætlega var með það farið af færustu leikurum, leikstjóri var Lárus Pálsson. Ég hef ekki heyrt né séð þetta leik- rit áður og skemmti mér ágæt- lega að hlusta á það, skáldið lýsir þar vissri tegund af fólki, sjálf- sagt allfjölmennri víða um heim, skopast, góðlátlega þó, að þvi. — ★ Vogum vinnur — vogun tap- ar, síðasti þáttur var á sunnudag 12. þ.m. Þátturinn endaði ágæt- lega með því að þrír keppendur unnu 10 þús. krónur hver með heiðri og sóma. Þáttur þessi hef- ur verið skemmtilegur og yfir höfuð, farið ágætlega fram. Sveinn Ásgeirsson, hagfræðing- ur, hefur jafnan skemmt útvarps hlustendum manna bezt með þátt um þeim er hann hefur stjórnað og ekki verið á annað meira hlustað. Annars hefur Velvakandi tekið af mér ómakið að skrifa meira um Vogun vinnur — Vog- un tapar. Jónas Sveinsson læknir talaði Um daginn og veginn 13. þ.m. Var ræða hans, að mínum dómi ágæt. Fyrst talaði hann um Torfa Bjarnason í Ólafsdal. Sagði hann að Torfi hefði verið töfrandi mað ur í umgengni, brennandi af á- huga fyrir öllum framförum. Hann flutti inn og smíðaði mörg hin þarflegustu verkfæri, eink- um til jarðabóta og landbúnaðar, svo sem hin þekktu ljái, sem nefndir voru Torfa-ljáir, og voru notaðir mjög lengi. Hann breytti kotjörð í höfuðból og skólasetur, þar kenndi hann fjölda mörgum ungum mönnum búfræði og margt fleira, svo sem smíðar verkfæra auk bóklegra fræða. Ullarverksmiðju kom hann upp er gekk fyrir vatnsafli. Þau hjón- in i Ólafsdal voru framúrskarandi í ráðdeild, dugnaði og framfara- hug. Torfi í Ólafsdal skaraði fram úr flestum eða öllum samtíðar- mönnum sínum að mörgu leyti. Hann var einn í hópi þess einvala liðs er upp kom á 19. öldinni, skáld, stjórnmálamenn og fram- faramenn á heimsmælikvarða. — Því miður virðist meðalmennsk an meira áberandi á vorri öld að vísu margt af góðum mönnum og gegnum en fátt af afreksmönnum. — Jónas lækir gat þess í máli sínu, að Danir hefðu nú á 1—2 árum komist úr kreppunni (þ.e. gjaldeyrisleysi) með því að auka iðnað sinn og þar með útflutning af iðnaðarvörum, þegar sala land búnaðarafurða brást. Það er greinilegt, að við íslendingar get um aldrei flutt út mjólk eða mjólkurduft, við verðum að breyta mjólkinni í önnur útgengi- leg efni. Sama er að segja um kjöt. Það verður aldrei samkeppn isfært á erlendum markaði. — Stóriðnaður ei>.sjálfsagður hér, því fiskveiðar borga sig heldur ekki nú orðið. Við þurfum ó- hemju mikið erlent fjármagn til þess að virkja stórárnar, fyrst Þjórsá, svo Hvítárnar í Árnes- sýslu og Borgarfirði og loks norð lenzku fljótin. Svíar og síðar Norðmenn notuðu erlent fjár- magn til virkjana og urðu ríkir af því. Við íslendingar getum ekki haldið sjálfstæði okkar með því að hanga í úreltum atvinnu greinum eingöngu. Það er aug- ljóst. Smávirkjanir, eins og Andakílsverið og Grímsárverið eystra eru kák eitt, nærri verra en ekkert. — Viðtöl vikunnar, sem Sigurð- ur Benediktsson sér um, eru með betri þáttum útvarpsins. Hann talar ætíð við merka menn og flesta er komnir eru á efri ár og hafa mikla lífsreynslu. — 16. þ. m. talaði hann við Skúla Skúla- son frá Odda, sem er þjóðkunnur maður fyrir löngu. Skúli er rit- stjóri og hefur verið blaðamaður frá því að hann var ungur mað- ur. Hann býr í Noregi síðan árið Framh. á bls. 17. Allsherjarnefnd. — Sitjandi (frá v.): Bjarni Bentsson, flugvallarstarfsm., Rvík, Árni Helga- son, símstjóri, Stykkishólmi, Ásgeir Pétursson, deiidarstjóri, Rvík, Axel Guðmundsson, skrif- stofum., Rvík, Guðmundur Guðmundsson, slökkviliðsstj., Rvík. — Standandi (frá v.): Pétur Björnsson, erindreki, Siglufirði, Bergur Ólafsson, bifreiðastj., Rvík, Sverrir Jónsson, skrif- stofum., Rvík, Gunnar Árnason, kaupm., Akureyri, Guðjón Hansson, bifreiðastj., Rvík, Kristó- fer Þorgeirsson, Varmalandi, Mýr., Jósafat Arngrímsson, fulltrúi, Njarðvík. Ályktanir landsfundar Sjálfstæðisflokksins um kirkjumál og áfengismá/: Áherzla lögð á eflingu og sjálfstæði kirkjunnar Stuðlað verði að áfengislausu skemmt- ana- og félagslifi æskunnar 1. Fundurinn lýsir yfir eindregnum stuðningi sínum við kirkju og kristindóm og telur höfuðnauðsyn að efla kirkjuna að því marki, að hún ráði sjálf öllum sínum málum. Fundurinn telur kristna lífsskoðun örugga undirstöðu lýðræðis, frelsis og mannhelgi og vörn gegn ofheldisstcfn- um og kúgun. Fundurinn lætur í ljós ánægju yfir endurreisn Skálholts- ttaðar, og væntir þess, að hún verði kirkjulífinu til heilla. Fundurinn fagnar því, að kirkju Islands hefir eignazt sitt kirkjuþing, skipað prestum og leikmönnum og vonar, að sú stofnun styðji að sjálfstæði kirkjunnar. KRISTINDÓMSFRÆÐSLAN 2. Fundurinn leggur áherzlu á það, að sem hezt verði vandað til uppeldis æskulýðsins og að kristin fræði verði ætíð meðal höfuðnámsgreina í barnaskólum og unglinga- skólum. Fagnar hann kristilegu æskulýðsstarfi, sem nú fer í vöxt með þjóðinni. Fundurinn telur rétt að stefna að sem nánustu samstarfi ineð prestum og kennurum að skapgerðarþroska uppvax- andi kynslóðar. ÁFENGISMÁL 1. Lundsfundurinn leggur áherzlu á nauðsyn þess, að unn- ið sé gegn ofnautn áfengis og tóbaks í landinu og hvetur iil aukinnar bindindisstarfsemi. Fundurinn bendir á nauð- syn bindindisfræðslu í skólum, jafnframt því sem hann hvetur æskulýðs- og menningarfélög, sem láta sig bindindi varða, til að halda uppi fræðslu um skaðsemi áfengis og tóbaks fyrir andlega og líkamlega heilbrigði manna. HEIMILI FYRIR ÁFENGISSJÚKLINGA 2. Fundurinn þakkar þeim aðilum, sem unnið hafa að því að koma á fót tómstundaiðju fyrir unglinga og stuðlað hafa að áfengislausu félags- og skemmtanalífi ungs fólks. Hvetur fundurinn eindregið til, að þessi starfsemi sé aukin. 3. Fundurinn lýsir stuðningi við þá stefnu að koma upp heimilum fyrir áfengissjúklinga. Fundurinn leggur áherzlu á, að þessum heimilum verði fjölgað, eftir því sem við verður komið og vill í því efni sérstaklega benda á nauðsyn á vistheimili fyrir áfengissjúkar konur. Fundurinn telur eðlilegt, að ríkissjóður styrki eða standi undir kostnaði við rekstur slíkra heimila. VINNUHEIMILI 4. Fundurinn telur, að nauðsynlegt sé að stofna og starf- rækja vinnuheimili fyrir drykkjusjúkt fólk því til athvarfs eftir sjúkrahúsvist. 5. Fundurinn samþykkir, að athugað sé, hvort ekki só rímabært að endurskoða núverandi áfcngislöggjöf og reglu- gerðir um áfengismál með hliðsjón af þeirri reynslu, sem íengizt hefur síðan áfengislögin voru sett. nýir ítœgurfagaAöncývcircir Á hljómleikum í Austurbœjarbíói í kvöld kl. 11.15 e. h. Mjöll Hóhrt - Garöar Guómundsson Ásbjörn Egilsson - Kristín Teitsdóttir Sandra Róberlsdóttir - Hilmar Hilmarsson Stefán Jónsson - SigríGur Kristófersdóttir Donald Rader - Jónina Krislófersdóttir Geröur Benediktsdóttir - Erlendur Svavarsson Siguröur Elísson - Sturla Már Jónsson Sigríöur Anna Þorgrímsdótlir Soffía Árnadóttir Hljómsveit Ártia fsleifs aöstoöar Kynnir: Svavar Gests Aögöngumiöar og miöapantanir i ■ Austurbæjarbíói frá kt. 2 í dag, sími 1 13 8» £ *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.