Morgunblaðið - 21.04.1959, Side 16

Morgunblaðið - 21.04.1959, Side 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. april 1959 Minnzt tveggja brœðra Jóns og Kristjáns Þorsteinssona, Hólmavík Þeir sáu guðs dýrð og bárust í kaf. M.J. HÉR verður ekki rakin löng né viðburðarík lífssaga. 13 og 18 ára ungmenni, — eru á morgni kom- andi dags. • Foreldrum og vinum, sem kynntust þeim bezt, og fylgdust með þroska þeirra J bernsku, bæði hugsun og starfi var það ljóst, að þeir gáfu bjartar vonir -— fögur fyrirheit. Auk þess vaxn ir úr þeim jarðvegi, þar sem vænta mátti atgjörvis, því í ættir fram finnst þar ekki kalviður. Jón var fæddur 1. nóv. 1940. Hann dvaldist að mestu heima hjá foreldrum sínum í Hólmavík, vel látinn af jafnöldrum og skóla félögum. dugmikill og áhugasam ur í starfi. Á sl. hausti kenndi hann þess sjúkdóms er hann lézt úr þ. 16. jan. sl. eftir nokkurra vikna legu á Landsspítalanum. 1 Kristján var f. 11. apríl 1945. Hann ólst að mestu upp heima tijá foreldrum sínum, dvaldist að sumrinu í sveit hjá vinafólki þeirra, mjög skemmtilegt og elskulegt ungmenni, öllum hug- ljúfi þeim er kynntust honum. I Fyrir um það bil þremur ár um, kenndi hann augnveiki, sem þrátt fyrir læknisaðgerðir ágerð- ist svo hann varð að fara til Kaup mannahafnar, þar sem gjörður var á honum heilaskurður, er virtist hafa borið árangur, en á s.l. sumri stefndi til hins fyrra, og um s.l. áramót lagðist hann á sjúkrahús í Reykjavík án árang- urs. 1 febr. var hann sendur til hinna fyrri lækna í Kaupmanna höfn. — Munu þeir í fyrstu hafa gefið góðar vonir er þó brugðust, því þann 20. marz s.l. kom hann heim og andaðist tveim dögum síðar. Við genginn veg þessara ung- menna, er oss enn ljóst að skammt sé bilið milli fæðingar og dauða. Þetta er lögmál sem allir verða að hlýða. En þeirra skamma ævi gaf vonir, að þar væru að vaxa nýtir og góðir þegnar þjóðfélagsins, og foreldrum sínum ljúfir og ást- kærir synir. Á þessum vetri hefir þjóðin og íjölskyldur orðið að sjá bak mörg um efnilegum sonum sínum. Stundum fjölmennum flokki stundum einum og einum. En mestur og sárastur er miss- irinn hjá vandamönnunum. Og í framangreindu tilfelli hjá foreldrunum er nú hafa misst tvo af þrem sonum sínum. Kæru hjón. Ég lít í anda, er þið stóðuð við vöggu drengjanna ykkur og bros lék um varir þeirra en ást og trúnaðartraust skein úr aug- um, hve föður og móðurgléðin gagntók þá hugann. Lífið var bjart, vonirnar um sambúð og framtíð drengjanna óumræðilega fagrar. Nú er þeir eru gegnir, er það trúin sem hjálpar, trúin á þá lífs- skoðun kristindómsins, að látinn lifi. Að áfram sé haldið á starfs- braut til þroska til meiri og meiri fullkomnunar. Fornt spakmæii segir. Þeir, sem guðirnir elska deyja ungir. Guðbr. Benediktsson. Nokkrar ályktanir frá ársþingi iðnrekenda Á ÁRSÞINGI Félags íslenzkra iðnrekenda, hafa verið gerðar samþykktir varðandi fjármál og viðskiptamál. Sérstakar nefndir höfðu fjallað um þessi mál og að loknum umræðum um tillögur nefndanna gerði ársþingið m. a. þessar samþykktir. Er þá fyrst að geta tillögu frá fjármálanefnd: Samþykkt var að skora á ríkis- stjórnina að verða nú þegar við einróma áskorun Alþingis, um að hlutast til um að Seðlabankinn Eiríkur Þorsteinsson frá Cerðum — minning HINN 7. þ. m. andaðist Eiríkur Þorsteinsson, kaupmaður frá Gerð um eftir langvinna vanheiisu. Hann var fæddur 9. júní 1886, sonur hjónanna Þórdísar Þor- bjarnardóttur og Þorsteins Ei- ríkssonar. Bjuggu þau hjón lengst af í Neðranesi í Stafholtstungum. Var faðir Þorsteins, Eiríkur bór.di í Svignaskarði Ólafsson, bónda á Lundum Þorbjarnarsonar bónda á Lundum, en Þórdís var dóttir Þorbjarnar á Helgavatni Sigurðs- sonar prests, Þorbjarnarsonar á Lundum. Voru þau hjón því frændsystkin og stóðu ættir þeirra um Borgarfjörð. Var Þor- steinn síðari maður Þórdísar. Þorsteinn var gleðimaður, ferðamaður mikill og góður bóndi. Vár búhagur þeirra hjóna góður. Þórdís í Neðranesi átti níu börn er upp komust. Þessi stóri og h.efur 5 nýja kogti í Freyðir svo fljótt — fitan hverfur samstundis . líkast gerningum. Inniheldur gerlaeyði — drepur ósýnilegar sóttkveikjur. Inniheldur bleigiefni, blettir hverfa gersamlega Mýkra, fínna duft, með inndælum, ferskum ilm, svo mjúkt, að það getur ekki rispað. Nýr, gljáandi staudur, svo að birtir í eldhúsinu. Fljóiast oð eyðo fitu og blettum! \*-V 5 2Z/IC-6445-50 ■myndarlegi systkinahópur var fyrir og eftir síðustu aldamót að hverfa úr heimilinu í Neðranesi og velja sér ævistarfið. Þau syst- kin fengu sér öll sjálfstæða stað- festu í atvinnurekstri þjóðarinn- ar eins og hann þá tíðkaðist, bú. skap og útvegi og iðnaði og farn- aðist vel í störfum. Öll eru þau nú dáin og var Eiríkur síðastur þeirra. En starfa þeirra sér stað í bættum býlum og auknum hag niðjanna og mörgum munu þau systkin minnistæð. Eiríkur lagði fyrir sig verzlun. Sextán ára gamall réðist hann til Finnboga kaupmanns Lárussonar i Gerðum í Garði er þá rak þar verzlun og útgerð og hafði mikil umsvif. Finnbdgi og kona hans Björg Bjarnadóttir frá Garðbús- um í Reykjavík héldu uppi nafn. frægu heimili og urðu þau hjón bæði mnniststæð samtíðarkyn- slóð sinni er í kynni við þau komst. Þarna varð skóli Eiríks. Er Finnbogi hvárf úr Garðin- um og fór að búa á Búðum á Snæfellsnesi varð Eiríkur eftir syðra og starfaði um skeið m. a. hjá Matthíasi Þórðarsyni í Sand- gerði og Milljónafélaginu. Árið 1916 keypti Eiríkur Gerða- eignirnar og tók að reka þar bú- skap og verzlun. Nokkuð fékkst hann við útveg og stundaði mikið fiskkaup og fiskverzlun. Hann var sýslunefndarmaður um skeið og tók þátt í opinberum héraðs- málum. Árið 1928 seldi hann atvinnu- rekstur sinn í Garðinum og flutti hingað til Reykjavíkur. Gjörðist nann þá eftirlitsmaður með mjólk urbúðum Mjólkurfélags Reykja. víkur, en með honum og Eyjólfi heitnum Jóhannssyni, hinum at- hafnasama forstjóra Mjólkurfé- lagsins, var mikil vinátta Þessu starfi gegndi hann meðan Mjólk- urfélagið rak mjólkurbúðir sínar þar til Mjólkursamsalan tók við. [ í byrjun ófriðarins gjörðist | hann starfsmaður á Úthlutunar-i skrifstofu Reykjavíkurbæjar og starfaði þar meðan heÞsa leyfði. En fyrir þremur árum hvarf hann frá þeim störfum, gjörsamlega þrotinn að heilsu. Eiríkur var maður hress í máli, glaður og reifur, átti létt með að stofna til viðkynningar og var vinmargur. Undir bjó þó rík lífs- alvara og þó nokkur áhyggju- semi. Hann var traustur starfs- maður og gekk mjög upp í störf- um sínum. Hann var ágætur heimilisfaðir. Hann kvæntist 1916, Ragnhildi Davíðsdóttur, er leng; hatð'. dval- izt með þeim Finnboga og Björgu í Gerðum. Hún bjó honum golt og friðsælt heimilt með hlýjurn blæ. Hún annaðist martn sinn í hinum áralöngu veÍKir.dum hans af frábæru þreki og mikilli nær- gætni. Þau áttu einn son barna, Ólaf, kaupmann hér í bæ, sem kvæntur er Lovísu Rögnvalds- dóttur. Útför Eiríks fer fram í dag frá Fossvogskapellu. I R. J. endurkaupi hráefna- og fram- leiðsluvíxla iðnaðarins, eftir svipuðum reglum og reglur þær, sem nú gilda um endurkaup framleiðsluvíxla sjávarútvegs og landbúnaðar. Væntir þingið þess að mál þetta hljóti ekki sömu afgreiðslu hjá ríkisstjórninni og heimild Alþingis um 15 millj. kr. lán til Iðnaðarbankans. Þingið skoraði einnig á iðn- rekéndur og iðnaðarmenn, að efla Iðnaðarbankann og lagði þingið áherzlu á þýðingu hans í þágu íslenzks iðnaðar. Þá var gerð ítarleg samþykkt varðandi Iðnlánasjóð. Telur árs- þingið að sjóður þessi hafi hvergi nærri fullnægt hlutverki sínu, og telur nauðsynlegt að stórauka framlögin til sjóðsins. Því samþykkti ársþingið að mæla eindregið með samþykkt frumvarps þess er nú liggur fyr- ir Alþingi um að helmingur gjalds af innlendum tollvöruteg- undum renni til Iðnlánasjóðsins. Fari svo, segir í áliti fjármála- nefndar, að frumvarp þetta nái ekki fram að ganga, er skorað á Alþingi að leysa fjárþörf sjóðs- ins á annan hátt. í fjármálanefnd áttu sæti Kristján Jóh. Kristjánsson, Ás- geir Bjarnason, Ásbjörn Sigur- jónsson, Magnús Víglundsson, Ólafur F. Ólafsson, Þorsteinn Guðbrandsson og Einar Ásgeirs- son. Tillögur þær er viðskipta- nefnd lagði fram og samþykktar voru á ársþinginu eru þessar helztar: Þingið skorar á ríkisstjórn og Alþingi að gefa frjálsar bygging- ar til iðnaöarframleiðslu, þar sem það er ein af öruggustu leið- unum til að tryggja áframhald- andi þróun iðnaðarins í landinu og þar með efnahagslegt öryggi vaxandi þjóðfélags. Ársþingið telur að innflutning- ur á iðnaðarhráefnum eigi að vera algjörlega frjáls. Á meðan það verður eigi talið fært, þá verði innflutningur hráefna fram kvæmdur eftir fyrirfram gerðum áætlunum, er tryggi sem hag- kvæmastan rekstur fyrirtækj- anna og þar með bætta sam- keppnisaðstöðu við erlendar iðn- aðarvörur. Gerð var og samþykkt varð- andi innflutning véla og vara- hluta. Hefur skortur á nýjum vélum mjög staðið í vegi fyrir þróun iðnaðarins. Skorar ársþingið á innflutnings yfirvöldin að taka nú þegar upp breytta stefnu í innflutningi iðn- aðarvéla og varahluta til þeirra. Skorað var á ríkisstjórnina að hlutast til um að lækka nú þegar verulega fyrirframgreiðslur til bankanna vegna innflutnings hráefna. Ennfremur að umsóknir um ábyrgðir og greiðsluheimildir til hráefnakaupa fyrir verk- smiðjuiðnaðinn verði ekki látn- ar liggja óafgreiddar í gjaldeyris- bönkunum um lengri tíma. Ársþingið samþykkti að skora á ríkisstjórnina að lóta hið fyrsta fara fram endurskoðun á toll- skránni í því skyni að tollflokk- um verði fjölgað með tilliti til hráefnainnflutnings iðnaðarins. Jafnframt skorar ársþingið á ríkisstjórnina að afnema það mis- rétti, sem nú er ríkjandi í ýms- um tilfellum, þegar hráefni til iðnaðar eru hærra tolluð, en full- unnar innfluttar vörur. I viðskiptamálanefnd ársþings- ins áttu sæti Axel Kristjánsson, Haukur Eggertsson, Gunnar Jón- asson, Bjarni Kristinsson, Hannes Pálsson, Oddur Thorarensen og Ólafur Magnússon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.