Morgunblaðið - 26.04.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 26.04.1959, Blaðsíða 22
22 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 26. april 1959 Eitt bezta handknattleikslið Þýzkalands kemur i dag Leikur hér 6 leikkvöld á vegum Armanns í DAG kemur hingað til landsins hópur lögreglumanna frá Ham- borg. Lögreglumennimir koma ekki í embættiserindum — ekki beint, en munu hér verja heiður félagsskapar síns í handknattleik. Þessi hópur er eitt af beztu hand- knattleiksliðum Þýzkalands en ber heitið „Sportvereinigung Folizein Hamburg“. Liðið kemur hingað á vegum Ármanns og leik ur hér í tilefni 70 ára afmælis Ár- manns. Alls leika Þjóðverjarnir 6 leikkvöld að Hálogalandi. Eitt bezta lið Þýzkalands Þetta þýzka lið sem upphaf- lega var einungis skipað lögreglu mönnum, en hefur nú blandast nokkuð annara greina mönnum, sigraði í keppninni á Hamborg- arsvæðinu og komst þar með í úrslitakeppni um Þýzkalandstit- ilinn. Þar tapaði liðið en í þeirri keppni tóku þátt 4 lið frá 4 svæð- um í Þýzkalandi. Árni Árnason fyrrv. form. HKRR hafði milligöngu um út- vegun þessa liðs til Ármanns. Er svo um samið að Ármann fari síðan út til Hamborgar. Hvort það verður í haust eða vor er ó- ákveðið. Árni kvaðst mundu ætla að þetta lið væri eitt af 5—7 sterkustu liðum Þýzkalands. Frægasti leikmaður þjóðverja Meðal manna í liðinu er Otto Maychrzak einhver fræg- asti handknattlelksmaður Þýzkalands fyrr og síðar. Hann gengur undir nafninu „Atomottó“ og liefur leikið yfir 30 landsleiki fyrir Þjóð- verja. Hann lék m.a. með Iandsliði Þjóðverja á heims- meistarakeppninni í A- Þýzka landi. Auk hans eru í liðinu 2 aðr- ir er leikið hafa í landsliði og „Atómótto" frægasti leikmaður Þýzkalands. 4 sem Ieikið hafa í úrvals- liði Hamborgar. Leikir Þjóðverjanna hér Leikir Þjóðverjanna verða n.k. þriðjudag gegn Ármanni sem styrkir lið sitt með Gunnlaugi Hjálmarssyni og Hermanni Sam- úelssyni báðum úr ÍR og e.t.v. fleirum. Á fimmtudag leika þeir gegn íslandsmeisturum KR og það sama kvöld hefst hraðkeppni í kvennahandknattleik (2x7 mín). Á laugardag hefst hraðkeppn- ismót karla, sem er opið öllum liðum (2x10 mín á mark) og báð- um hraðkeppnunum lýkur á sunnudaginn. Á miðvikudag 6. maí leika Þjóðverjarnir við FH og á föstu- dag leika þeir sinn síðasta leik hér gegn úrvalsliði Reykjavíkur. Sundmeistaramót Islands á morgun og þriðjudag Firmakeppni i Bridge FYRSTA umferð firmakeppni Bridgesambands fslands fór fram í Skátaheimilinu við Snorrabraut s. 1. þriðjudagskvöld. 160 fyrir- tæki taka þátt í keppninni. Eftir fyrstu umferð stendur keppnin þannig: 1. Trygging h.f. — Eiríkur Baldvinsson 118 st. 2. Þjóðviljinn — Marbjörn Björnsson 117 st. 3. Málaflutningsskrifst. Einars B. Guðmundssonar o. fl. — Laufey Þorgeirsdóttir 112 st 4. Mjólkursamsalan — Jóhann Jónsson 112 st. 5. Þóroddur E. Jónsson — Benedikt Jóhannsson 112 st. 6. Síld & Fiskur — Ósk Kristjánsdóttir 111 st. 7. Markaðurinn — Marinó Erlendsson 111 st. 8. Steindórsprent — Ásgerður Einarsdóttir 111 st. 9. Helgafell — Þorbjörn Þórð- arson 110 st. 10. Útvegsbankinn — Gunnar Guðmundsson 110 st. 11. Kr. Þorvaldsson & Co. — Kristinn Bergþórsson 110 st. Keppnin heldur áfram n. k. þriðjudagskvöld kl. 8,00 í Skáta- heimilinu og vill keppnisstjórinn biðja spilafólk að mæta ekki síðar en kl. 7,45. SUNDMEISTARAMÓT íslands verður að þessu sinni haldið í Sundhöll Reykjavíkur dagana 27. og 29. apríl. Þátttakendur verða Glímufélagið Ármann, íþróttafélag Rvíkur, Knattspyrnu fél. Rvíkur, Sundfélagið ■>Í£.ir, fþróttabandalag Akraness, fþrótta bandalag Keflavíkur, Sundfél. Hafnarfj. og Sundráð Akureyrar. Leikstjóri er Einar Hjartarson og yfirdómari Erlingur Pálsson. Fyrri daginn (á mánudag) verð ur keppt í þessum greinum: 100 m skriðsundi karla, 400 m bringu sundi karla, 50 m bringusundi telpna, 100 m skriðsundi drengja, 100 m baksundi kvenna, 200 m baksundi karla, 100 m bringu- sundi drengja, 200 m bringu- sundi kvenna 4x100 m fjórsundi karla. ☆ ■Seinni daginn verða þessar greinar: 400 m skriðsund karla, 50 m skriðsund telpna, 100 m baksund karla, 100 m baksund drengja, 100 m skriðsund kvenna, 200 m bringusund karla, 3x50 m þrísund kvenna og 4x200 m skrið sund karla. Að sjálfstögðu taka þátt í mót inu allir beztu sundmenn lands- ins, svo sem Helga Haraldsdótt- ir, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, 307 á knattleikja- námskeiði á Sel- fossi AXEL Andrésson sendikennari f.S.Í. og fræðslumálaskrifstofunn ar, hefur lokið 3 vikna námskeiði hér á Selfossi frá 1. til 20. apríl. Þátttakendur voru úr barna- og miðskólanum og ennfremur frá U.m.f. Selfoss. Piltar voru 160 og stúlkur 147. Síðustu daga námskeiðsins fóru fram 6 sýningar í íþróttahúsinu á Axelskerfinu. Voru sýningarn- ar vel sóttar. Tókust þær allar prýðilega. Skemmtu áhorfendur sér með ágætum. Áhugi nemenda og árangur var góður á námskeiðinu. Það er ósk nemenda, að Axel komi sem fyrst aftur hingað. Hrafnhildur 'Guðmundsdóttir ÍR hefur vakið athygli fyrir góð sundafrek í vetur. Ágústa Þorsteinsdóttir, Guðm. Gíslason, Pétur Kristjánsson, Helgi Sigurðsson og Sig. Sigurðs- Reykjavíkurmótið: Valur og Víkingur leika í dag REYKJAVÍKURMÓTINU verður haldið áfram i dag og eigast þá við Valur og Víkingur. Leikur- inn fer fram á Melavellinum og hefst kl. 14.00. í æfingaleikjum þeim, sem háð ir hafa verið milli félaganna und anfarið, hefur liði Vals gengið vel, sigrað Víking með 4—0, Fram með 1—0 og K.R. 2—0. Víkingur hefur teflt fram mörgum ungum leikmönnum, sem lofa góðu, en hafa ekki öðl- ast næga reynslu. Á undanförn- um Reykjavíkurmótum hefur Víking gengið bezt í fyrsta leik, m. a. tvívegis sigrað Val. Hvernig fer í dag? „Maðurinn með þúsund raddirnar" í Camla bíói BOB VINCENT stælir raddir margra fremstu dægurlagasöng- vara heims svo vel, að hann hefur verið nefndur „Maðurinn með þúsund raddirnar“. Er hann tal- inn einn hinn fremsti á sínu sviði í Evrópu og hefur farið víða um lönd og sungið. Stælir hann m.a. Perry Como, Franky Lane, Pat Boone, Jhonny Ray, Fats Dom- ino og Elvis Prestley svo nokkrir séu nefndir. Bob Vincent mun koma hing- að til lands í vikunni á vegum Skemmtikrafta — og syngja í Gamla Bíói. Fyrstu skemmtan- irnar verða kl. 7,15 og 11,30 á föstudagskvöldið og mun hljóm- sveit Árna Elfars aðstoða, en kynnir verður Hulda Emilsdóttir. Forsala aðgöngumiða hefst á sama stað á þriðjudag. — Úr verinu Framhald af bls. 3 Grænl. og þannig til Nýfundnal,- miða og V-Grænlands. Þetta nær til svæðis, sem árlega er aflað á 2 millj. lesta af fiski eða fjórum sinnum meira en ársafli íslend- inga. ísland er aðili að þessu sam- komulagi. 60 skip til Grænlands Um 60 norsk fiskiskip eru nú við það að leggja af stað til Vest- ur-Grænlands. Einstaka skip, sem eru vön að fara vestur, ætla nú fyrst á snurpuveiði við ísland og sigla með síldina í bræðslu í Noregi. Er ætlunin að fara svo seinna til Grænlands. Sama vandamálið hjá Englendingum Englendingar leitast nú við að fá danska sjómenn á dragnóta- flota sinn, sem hefur aukizt mjög seinni árin. Fyrst og fremst er mikill skortur á brezkum sjó- mönnum, og í öðru lagi hefur það komið í ljós, að danskir sjó- menn, sem starfað hafa á brezk- um dragnótabátum, hafa borið af Bretunum með aflabrögð. Bretar fá 60 nýja dragnótabáta í ár, svo að ekki er smár vaxtar- broddurinn hjá Bretum í þessari útgerð. Hér er keppzt við að friða kolann, líklega sem agn fyrir Bretann! Hér er haldið uppi áróðri gegn því, að útgerðin fái erlenda sjó- menn, enda þótt þeir skili marg- földu kaupi sínu í erlendum gjald eyri, sem allir njóta góðs af, en Englendingar og margar aðrar þjóðir veigra sér ekki við slíku. Hitt er svo annað mál að búa þarf þannig að útgerðinni, að hún geti gre!V laun, svo að sjó- mennska sé eftirsóttari en land- vinna. Gimsteinar atvinnulífsins Ekki er sama, hvar veiðiskap- ur er stundaður á vissum tímum árs. Þorskurinn gengur t.d. upp að suður og suðvesturströndinni til þess að hrygna á hinni svo- kölluðu vetrarvertíð. Þá getur verið landburður af fiski í ver- stöðvum á þessu svæði dag eftir dag. Bátarnir komið með 25—50 lesta afla eftir daginn, minna eða meira eftir ástæðum. Alveg það sama er að segja um síldina að sumrinu, er hún gengur í stórum göngum upp að norður og aust- urströnd landsins. Þetta eru stað reyndir, sem erfitt er að breyta, hversu gjarnan sem menn vildu. Það er því skiljanlegt, að atvinnu vegur, sem byggir sitt á sjávar- útveginum, hvort heldur útgerð eða fiskvinnslu, eigi erfitt og lít- ið sé um atvinnu þann tíma, sem sjórinn er svo til þurr. Ekkert er eins heppilegt til að brúa bil dauða tímans og togarar. Þeir eru ekki jafnbundnir við verstöðvarnar, þar sem fiskurinn er hverju sinni, eins og bátarn- ir. Kemur þar til meiri hraði og betra rúm til að geyma aflann. Þau byggðarlög, sem hafa tog- ara og sæmilega aðstöðu til fisk- vinnslu, hafa tryggt sig nokkuð fyrir böli atvinnuleysisins, þegar fiskur er ekki á heimamiðum. Þetta er ómetanlegt, og það er vafasamt, að á næstunni fáist aðstaða til að ná aftur í togara, ef þeir eru látnir af hendi. Togar arnir eru gimsteinar fyrir hvaða bæjarfélag sem er, og ekki einu sinni þau meðal þeirra ríkustu, eins og Vestmannaeyjar og Kefla vík, hafa efni á að missa þá úr efnahags- og atvinnulífinu. Það er ekki þar með sagt að halda eigi dauðahaldi í bæjarrekstur á þeim, þvert á móti. Ársháfíð NEMENDASAMBAND VERZLUNARSKÖLA ISLANDS verður haklin á skólaslitadaginn 30. apríl 1959, þ.e. n.k. fimmtudag í LIDO og hefst hún með borðhaldi kl. 18,30. Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofu V.R. Vonarstræti 4, fram til 30. apríl á venju- legum skrifstofutíma, 9—12 og 1—5. STJÖRNIN ~~

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.