Morgunblaðið - 03.05.1959, Side 1
24 síðnr
íimMaMíö
46. árgangur
98. tbl. — Sunnudagur 3. maí 1959
Prentsmiðja Morgi nblaðsins
Frestun tengilína seinkar ekki
rafvæðingunni samkvæmt
10 ára áætluninni
Vanefndir vinstri stjórnarinnar
valda erfiðleikum
AÐALMÁLGAGN Framsóknar-
flokksins „Tíminn“ skýrir frá
því í fyrradag að í hinni endur
skoðuðu rafvæðaingaráætlua sé
gert ráð fyrir að fresta lagn-
ingu nokkurra tengilína milli
héraða og staðhæfir blaðið, að
hér sé fengin sönnun fyrir því
að ætlunin sé að svíkjast undan
loforðinu um rafvæðingu strjál
býlisins samkvæmt 10 ára áætl
uninni, sem ríkisstjórn Ólafs
Thors hafði forgöngu um að
lögfesta árið 1953.
Það er rétt, að raforkumála-
stjórnin leggur í hinni endur-
skoðuðu áætlun sinni til, að um
ræddum tengilínum verði frest
að, en þótt svo verði gert, dreg
ur það ekkert úr hraðanum á
framkvæmd 10 ára átælunarinn
ar fyrir sveitirnar.
Sama rafmagnsverð
frá dieselrafstöðvum.
öll kauptún og kaupstaðir,
sem ætlað var að fá rafmagn um
tengilínur þessar, munu fá eftir
spurn sinni eftir rafmagni full
nægt frá dieselstöðvum,
meðan línubyggingum er
frestað, og verður látin gilda
sama gjaldskrá um rafmagns-
verðið sem annars staðar frá
rafveitum ríkisins.
Samkvæmt hinni endur-skoð
uðu 10 ára áætlun verður rekst-
urshalli rafmagnsveitna ríkisins
og héraðsrafmagnsveitna ríkis-
ins 25 millj. kr. minni árin
1960—1964 samtals en hann
myndi verða, ef gömlu 10 ára
áætluninni yrði fylgt út í æs-
ar, og stofnkostnaður lækkar um
88 millj. kr.
Dieselstöðvarnar, sem nú
verða yfirleitt gerðar stærri en
ef gömlu áætluninni væri fylgt,
verða síðar toppafls- og vara-
stöðvar við línurnar. Eru því all
ar þessar stöðvar nauðsynlegar,
og með þessari tilhögun fæst 4
þús. kw meiri orka en eftir fyrri
áætlun.
Vanefndir
Framsóknarflokksins
Með þessari skipulagsbreyt-
ingu á stofnlínukerfi rafmagns-
veitnanna sparast 113 millj. kr.,
án þess að dregið sé úr þeirri
þjónustu við almenning, sem 10
ára áætlunin gerir ráð fyrir. Ef
þessi skipulagningsbreyting
hefði ekki verið gerð, hefði
reynzt óumflýjanlegt að hækka
rafmagnsverðið stórkostlega. —
Með breytingunni er því á engan
hátt vanefnt það loforð að raf-
væða landið á 10 árum, því að
jafnmörg býli eiga að fá raf-
magn eftir hinni endurskoðuðu
áætlun sem hinni upprunalegu.
Skipulagsbreytingin er því ekki
aðeins til mikilla hagsbóta fyrir
þjóðfélagið í heild heldur og alla
þá, sem raforkunnar eiga að
njóta.
En úr því að Tíminn telur sig
þess umkominn að tala um van-
efndir í sambandi við rafvæðing
aráætlunina o gtelur það svik
að hverfa í nokkru frá hinni upp
haflegu 10 ára áætlun, þá hefði
farið vel á því að blaðið hefði
skýrt frá því, hvernig ríkistjórn
Hermanns Jónassonar fram-
kvæmdi 10 ára áætlunina.
Þegar Rtfkisstjórn Hermanns
Jónassonar hrökklaðist frá völd-
um skömmu fyrir siðustu ára-
mót, höfðu enn ekki verið lagð-
ar 17 héraðsveitur, sem sam-
kvæmt 10 ára áætluninni átti
að leggja árunum 1957 og 1958,
og gaf forsætisráðherra bein
fyrirmæli um það á síðastliðnu
ári, að frestað skyldi lagningu 11
héraðsveitna, sem raforkuráð
gerði tillögu um, að lagðar yrðu
á því ári. Héraðsveiturnar, sem
Hermann Jónasson á máli Tím-
ans hefur svikizt um að láta
leggja, eru þessar:
Vesturveldín
summdlu
WASHINGTON, 2. maí. —
(Reuter). — Christian Herter
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna kom í dag heim úr Ev-
rópuför sinni. Segir hann við
heimkomuna, að fullt sam-
komulag hafi náðst með
Vesturveldunum um það
hvaða stefnu þau skuli taka
og hvaða starfsaðferðum
heita á hinni væntanlegu ráð-
stefnu utanríkisráðherra stór-
veldanna ,sem hefst í Genf
11. maí n. k.
Vatnsdalslína, A.-Hún 18 býli 1410 þús. kr.
Hofsóslína 1. áf. Skag býli 875 þús. kr.
Út-Blönduhlíð, Skag ... 15 býli 1270 þús. kr.
Saurbæjarhr. 2. áf. Eyjaf ... 22 býli 1930 þús. kr.
Fnjóskadalslína, S.-Þing 4 býli 1045 þús. kr.
Hallormsstaðal. S.-Múl ... 18 býli 1950 þús. kr.
Akurhólslína, Rang 4 býli 685 þús. kr.
Gnúpverjahr.lína, Árn ... 26 býli 2155 þús. kr.
Kúludalsárlína, Borg 8 býli 815 þús. kr.
Kirkjubóls- og Seldalsl. Norðf.
(mun nú lokið) 2 býli 275 þús. kr.
Hvítárholtslína, Árn 4 býli 236 þús. kr.
Svarfaðardalslína, 2. áf. Ef ... 17 býli 1490 þús. kr.
Gnúpverjahr. 2. áf., Árn ... 15 býli 1140 þús. kr.
Fram-Hegranes, Skag býli 1580 þús. kr.
Vatnsdalsl. 3. áf. A. Hún 9 býli 975 þús. kr.
Mývatnssveitarl., 1. áf. S.-Þing ... 15 býli 2900 þús. kr.
Reykhólasveitarlína, Au.-Barð ... 33 býli 4200 þús. kr.
Kjördæmamálið
STJÓRNARSKRÁRFRUMVARP
ið var tekið til 1. umræíu á fundi
efri deildar síðdegis í gær. ar
búizt við að þeirri umræðu lyki í
gær og málinu yrði visað til sér-
stakrar stjórnarskrárnefndar,
væntanlega fimm manna, sem kos-
in yrði til að fjalla um frv..
Laust fyrir kl. 4 tók torseti, Páll
Zophoníasson, málið af dagskrá
og sleit fundi, þrátt fyrir ein-
dregin tilmæli frá Gunnari Thor
oddsen og Sigurði Bjamasyni um
að fundi yrði haldið áfram og
freistað að ljúka umræðunni.
Slguiðui Bjuinuson íiumbjdð-
undi Sjúlfstæðisllokksins
í Noiðui-ísufjuiðuisýslu
BOLUNGARVÍK, 30. apríl. — Héraðsnefnd Sjálfstæðisflokksins i
Norður-ísafjarðarsýslu og fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Bol-
ungarvík hefur fyrir skömmu samþykkt með samhljóða atkvæð-
um að óska þess að Sigurður Bjarnason ritstjóri frá Vigur verði
i kjöri fyrir flokkinn í sýslunni við alþingiskosningarnar í sumar,
Hcfur hann orðið við þeirri ósk og hefur framboð hans því ver-
íð ákveðið.
Norður-ísfirðingar kusu Sig-
urð Bjarnason kornungan á þing
Talar um þróun
veðurfræðinnar
Á mánudagskvöld kl. 20,30
heldur Hið íslenzka náttúru-
fræðifélag samkomu í I. kennslu
stofu Háskólans. Flytur Páll
Bergþórsson veðurfræðingur þá
erindi, er hann nefnir Áfanga í
sögu veðurfræðinnar. Mun hann
ræða suma þýðingarmestu við-
burðina í sögu veðurfræðinnar
allt frá tímum Forn-Grikkja til
nútimans, þegar rafeindaheilar
eru orðnir mikilvæg tæki við
veðurspár. g
sumarið 1942. Vann hann þá kjör
dæmið af Alþýðuflokknum. Hef-
ur hann átt sæti á Alþingi síðan
og jafnan verið endurkjörinn
með öflugu fylgi. Hefur hann
haft ágæta og farsæla forystu um
framfaramál héraðsins, ekki
hvað sízt á sviði samgöngumála,
raforku- og hafnarmála. Er það
almenn skoðun Norður-ísfirðinga
í öllum stjórnmálaflokkum að
hann hafi reynzt héraði sínu hinn
nýtasti fulltrúi jafnhliða því
sem hann hefur beitt sér fyrir
mörgum umbótamálum á Al-
þingi, sem varða alþjóð. Er óhætt
að fullyrða að fylgi Sigurðar
Bjarnasonar standi traustum
fótum meðal Norður-ísfirðinga.
— Fréttaritari.
Finnst mönnum ekki fara eink
ar vel vel á því, að þeir, sem
þannig hafa á málum haldið,
taki sér orðið „svik“ í munn,
þegar um það er rætt að gera
þær skipulagsbreytingar á 10
ára áætluninni, að unnt verði að
ljúka lagningu allra dreifiveitna
á 10 árum, þrátt fyrir þessar van
efndir Framsóknarflokksins,
sem auðvitað hljóta að auka álag
ið í sambandi við lagningu dreifi
veitna þau ár, se meftir eru af
10 ára tímabilinu.
JttorðstttMaftifc
Sunnudagur 3. maí.
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Kenn oss að biðja (Kirkjuþ.).
Úr verinu.
— 6: Sitt af hverju tagi.
— 10: Fólk í fréttunum.
— 12: Forystugreinin: Fjörbrot henti
stefnuflokksins.
Margrét prinsessa í hjóna-
bandshugleiöingum (Utan úr
heimi).
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 14: Til Miðjarðarhafs.
— 15: Skákþáttur.
— 15—16: Barnalesbókin.
^HðrBtwbUtsíu
fylgir blaðinu ekki um þessa helgi.
Bretar vilja að færeyski
samningurinn verði fordæmi
Og danskur ráðherra segist
meta skilning Breta"!
//1
DANSKA blaðið Dagens Nyhe-
der skýrir frá því, að brezki
sendiherrann í Kaupmannahöfn
Sir Roderick Barclay, hafi lýsl
því yfir, er hann undirritaði
samninginn um fiskveiðar við
Færeyjar, að Bretar væru ánægð
ir með þennan samning og vildu
að hann yrði fordæmi að lausn
fiskveiðideilunnar við fsland.
En eins og kunnugt er felur
samningurinn það í sér að Bret-
um er leyfilegt að veiða inn að
6 mílna takmarkalínu við Fær-
eyjar.
í frásögn Dagens Nyheder af
undirritun samningsins segir, að
Jens Otto Krag utanríkisráð-
herra Danmerkur hafi flutt
stutta ræðu,þar sem hann lagði
áherzlu á það, að samningsum-
leitanir hefðu verið langar og
erfiðar, þar sem sjónarmið ríkis
stjórnanna hefðu í byrjun verið
mjög ólík. En ráðherrann sagði
að frá byrjun hefðu þrjú at-
riði verið skýr og augljós. Deilu
aðiljar hafi verið sammála um
að endanleg lausn yrði að fást
með venjulegum milliríkjasamn
ingi. Þá hafi menn verið sam-
mála um að veita yrði Færeying-
um bráðabirgðalausn til að auka
vernd heimaveiða þeirra og loks
hafi samningsaðiljar verið sam-
mála um að veita yrði Færeying-
um bráðabirgðalausn til að auka
vernd heimaveiða þeirra og loks
hafi samningsaðiljar verið sam-
mála um að reyna að finna lausn
sem báðir aðiljar gætu sætt sig
við. Og þetta tókst.
Krag utanríkisráðherra sagði
Framh. á bls. 23.
Afríka sameinast
Yfirlýsing tveggja forustumanna
svertingja um stofnun sambandsrikis
COMAKRI í Guineu 2. maí. —
(Reuter). — Forsætisráðherrar
Ghana og Guineu, þeir Kwame
Nkrumah og Sekou Touré hafa
gefið út sameiginlega yfirlýsingu
um stofnun Afríkusambandsins.
Tilkynningin var gefin út eftir
tveggja daga fund þessara af-
ríksku forustumanna og vekur
hún miklu athygli.
í yfirlýsingunni leggja þeir til
að ríkjasamband Ghana og
Guineu verði undirstaða að ríkja
sambandi Afríku. Bjóða þeir öll-
um sjálfstæðum ríkjum Afríku
inngöngu í það og sömuleiðis
þeim ríkjum svertingja, sem eru
að öðlast sjálfstæði á næstunni.
Þeir leggja til að hvert það
ríki sem gerist aðili að samband-
inu fái að halda sinum sérein-
kennum og því þjóðskipulagi,
sem þar tíðkast. Hins vegar feli
þau sambandsríkinu meðferð
ýmissa sameiginlegra mála, svo
sem hermála.
Ætlunin er að hvert sambands
ríki haldi áfram stjórnmálasam-
bandi sínu við önnur ríki og er
Framh. á bls. 23.