Morgunblaðið - 03.05.1959, Síða 3

Morgunblaðið - 03.05.1959, Síða 3
Sunnudagur 3. maí 1959 aORGVNBLAÐlÐ 3 Úr verinu Eftir Einar Sigurðsson- Xogararnir. Tíðin hefur verið ágæt á heima miðum. Við Austur-Grænland gerði hins vegar stormhrinu um miðja vikuna, en lægði fljótt aft- ur. Rétt eitt og eitt skip er nú á heimamiðum, en fjöldinn er við Austur-Grænland og eitt skip Askur, er farið á Nýfundnalands mið. Menn eru þó að búast við að fiskur gangi upp að landinu eins og í fyrra um þetta leyti, en þá hófst ágæt veiði fyrir Vest ur- og Norðurlandi. Afli hefur verið ágætur við Austur-Grænland, en þó glopp- óttur. Er þarna mikið veiðarfæra slit, og hafa margir rifið illa og fengið við það miklar frátafir. Ekki gera menn ráð fyrir, að fiskurinn standi þarna lengi. Hann er horaður, og hefur sumt af honum ekki verið hæft til fryst ingar. Frá Aski hefur það frétzt, að enginn ís sé á Nýfundnalands- miðum, gott veður og sólskin. Afli er ágætur, fékk hann við 100 lestir af karfa fyrsta sólarhring- inn og lagði af stað heimleiðis í gær með fullfermi. Var hann 3 sólarhringa að fá aflann. Byrj- aði hann veiðarnar á nyrztu miðunum, sem nefnd eru Sund- áll, en flutti sig af þeim, þar sem karfinn var smár, á Ritu- bankanum. Fisklandanir sl. vikn: Jón Þorlákss. .. 220 t. 16 dagar Austfirðingur .... 33 - 2 — Hvalfell.....251-10 — Jón foi'seti .. .. 231 •• 13 — Fylkir....... 305 - 12 — Skúli Magnúss. .. 179 - 13 — saltfiskur 45 - Geir......... 270 - 11 — Egill Skallagr. ..250 - 14 — Reykjavík Tíðin var hagstæð til sjósókn ar s.l. viku, há átt og kalt veðri. — Afli var yfirleitt góður hjá stærri bátunum eins og áður, en orðinn mjög tregur hjá minni bátunum, sem hafa haldið sig á grunnmiðum inni í Faxaflóa. Aflinn hefur oft verið hjá stærri bátunum 20—30 lestir í lögn og þeim minni 2—4 lestir. Mjög tregt hefur verið hjá handfærabátunum og má eitt- hvað kenna það kuldanum, a. m. k. kemur þá sílið síður upp og fuglinn gefur þá ekki bendingu um, hvar líklegast sé að renna, því að fæstir eru minnstu bát- arnir með dýptármæla. Um 40 handfærabátar smærri og stærri stunda nú veiðar, fjöldinn allur er „sunnudagsveiðimenn". Hæstu bátarnir fram að 1. Stærri bátarnir: Hafiþór ...... 906 t. ósl. og sl. Helga ........ 770 t. ósl. og sl. Guðm. Þórðars 709 t. ósl. og sl. Smærri bátarnir: Svanur ................. 651 t. ósl. Barði .................. 572 t. ósl. Ásgeir ................. 512 t. ósl. Keflavík. S.l. viku fylgdist að góð tíð og ógæt aflabrögð. Það var þó nokkuð algengt, að netabátarnir væru með 20—30 lestir í lögn. Einn af minni bátunum kom í fyrradag með 23 lestir. Það hef- ur verið lélegt hjá þeim í vetur, því að fiskur hefur staðið djúpt, en virðist nú hafa grynnt á sér. Menn þakka nýju landhelginni mikið, hvað aflabrögðin þó eru, því að togararnir hafa þó stöðv azt við 12 mílurnar, annars hefðu þeir fylgt göngunum áfram inn að gömlu línunni og þá trúlega urgað allt upp. En bátarnir hafa yfirleitt haldið sig við 12 mílurnar. Afli hjá línubátunum hefur verið 6—12 lestir í róðri. Handfærabátar hafa aflað heldur lítið. 1. maí var aflinn orðinn orðinn 21.960 lestir á móti 19.527 lestum í fyrra, eða við 12% meiri nú. Síðasti hálfur mánuður hefur lagað mikið vertíðina hjá mönnum, því að þá komu á land 6.840 lestir eða tæpur þriðjung- ur af öllum vertíðaraflanum. — Sama hálfa mánuð í fyrra bárust á land 2.940 lestir, svo mikill er munurinn þennan hálfa mánuð þá og nú. Bátafjöldinn er svip aður. 6 aflahæstu bátarnir til 1. maí eru: Ól. Magnússon ...... 774 t. ósl. Hilmir ............. 689 t. ósl. Erlingur V.......... 684 t. ósl. Jón Finnsson ....... 665 t. ósl. Bjarmi ............. 636 t. ósl. Von II.............. 627 t. ósl. þeim eru engar fréttir enn. Handfærabátar hafa lítið feng ið undanfarið. Lifrarsamlag Vestmannaeyja hafði tekið á móti 3700 lestum af lifur fram að mánaðamótum á móti 3350 lestum á sama tíma í fyrra. Hér eru taldir upp þeir bátar, sem hafa fengið yfir 800 lestir: Gullborg ........... 1096 t. ósl. Stígandi ........... 1020 t. ósl. Ófeigur III.......... 885 t. ósl. Kristbjörg .......... 884 t. ósl. Reynir .............. 880 t. ósl. Gjafar .............. 858 t. ósl. Hannes lóðs ......... 857 t. ósl. Gullfaxi ............ 829 t. ósl. Kári ................ 826 t. ósl. Sigurður Pétur .... 825 t. ósl. Hafnir Gerður er út einn 10 lesta vélbátur og 7 trillur, og eru all ir með handfæri. Afli hefur ver ið ágætur, einkum veiðist vel stór ufsi og nokkuð af þorski. — Hefur aflinn verið þetta 1—2 lestir á færi yfir daginn. Stutt er að sækja, aðeins við hálf tíma sigling. Sr. Óskar J. Þorláksson: Kenn oss að biðja „En svo bar við, er hann var á stað nokkrum að biðjast fyrir, að einn af lærisvein- um hans sagði við hann. þá er hann var hættur: herra kenn þú oss að biðja“. (Lúk: 11.1). f DAG er hinn almenni bæna- dagur þjóðar vorrar. Um allt land kemur fólk saman í kirkjum landsins, til þess að þakka Guði fyrir handleiðslu hans og leita styrks hjá honum í störfum og vandamálum hins daglega lífs. Hvað er bænin? Hún er samtal vort við Guð, vér opnum hug vorn fyrir áhrifum frá honum, og kraftur hans steymir í sálir vorr- ar. Líf vort verður hamingjurík- ara og vér verðum færari í bar- áttu lífsins. Lærisveinar Jesú báðu hann að Akranes Róið var alla vikuna, en afli var mjög misjafn, þannig fékk t, d. Sigrún í vikunni 68 lestir, í einum róðri. En aflinn komst líka hjá sumum allt niður í 2 lest- ir. Algengasti aflinn var 5—15 lestir í róðri. 2 bátar eru hættir með netin og búnir að taka reknet, en hafa enn ekkert fengið. Handfærabátarnir afla vel, þegar þeir komast út. 3 hæstu bátarnir fram að 1. maí: Sigrún ............ 892 t. ósl. Sigurvon .......... 852 t. ósl. Sæfari ............. 702 t. ósl. Vestmannaeyjar Gott sjóveður hélzt alla vik- una og alltaf einhverjir á sjó, þó misjafnlega margir. Afli hefur farið hraðminnkandi síðustu daga og er nú orðinn mjög treg- ur, eru þá margir, sem ekki róa nema annan hvern dag. Fyrstu daga vikunnar fengu nokkrir bátar góðan afla á Heimabankanum, en nú virðist einnig þar vera að þorna upp. Nokkrir bátar eru nú komnir með net sín austur í Meðallands bugt, en undanfarin ár hefur aflazt þar vel á þessum tíma. Nú virðist það ætla að bregðast því að enginn hefur fengið þar neitt að ráði, mest um 12 lestir og það niður í 2—3 lestir í lögn. Síðustu daga hafa nokkrir bátar leitað vestur á Selvogs- banka eða jafnvel enn lengra vestur, en um aflabrögð hjá Nú er tími skreiðarinnar Stórt átak hefur verið gert í hafnarmálum undanfarin ár, þegar tillit er tekið til fámennis. Hreppurinn lagði t. d. á s.l. ári fram til hafnarbóta 500 þúsund krónur án lántöku. Bryggjan, sem er um leið sjóvarnargarð- ur, er nú orðin 110 m. á lengd. Enn vantar 40 m. upp á fyrirhug aða lengd með bryggjuhausnum, en þ áeiga 5—6 bátar að geta los- að við hana samtímis. Fáir hafa gert sér grein fyrir, hve góða aðstöðu þarna er hægt að fá fyrir bátaútgerð. — í Ósabotnunum, þar sem víða er það djúpt, að togarar flytu þar, gæti vafalaust verið rúm fyrir fleiri hundruð báta, aðeins þyrfti að dýpka rásina inn í þá. Innsiglingin í sjálfa höfnina er ekki talin verri en í Sandgerði. Verstöðin liggur miðsvæðis á nesinu og jafnhagstætt að sækja út, suður eða norður. Ef sótt er að Eldeyjarskerjum, þar sem bezt fiskaðist á línuna í vetur, munar það 3 klukkustundum á siglingu eða frá Keflavík. Krafa um 12—14 mílur í Skotlandi. Skozkir þjóðernissinnar hafa krafizt þess, að Bretar færi land- helgislínuna út í 14 mílur, sem er þar gömul hefðbundin land- helgi eins og 16 mílurnar voru hér, eða 12, ef það kynni að verða ákveðið af alþjóðaráðstefnu. Vertíðin er að fjara út. Síðustu dagana hafa aflabrögð- in verið mjög misjöfn, einstaka bátur hefir hitt á góðan afla, en fjöldinn hefur fengið lítið. Nú er helzt reitt sig á fisk austur í bugtum, hvað Vestmannaeying- ana áhrærir og við Jökulinn, hvað Faxaflóaflotann snertir. Sennilega munu flestir reyna að halda út til loka 11. maí, en þó mun þegar vera farið að losna um aðkomubáta. Töluvert los er komið á ve tíðarfólk í verstöðvunum. Það, sem við tekur. Sjómenn segja óvenjumikið af síld hér í Faxaflóa, eftir því sem ióðningar segja þeim. Spáir það góðu um, að eitthvað kunni að veiðast í net að lokinni vetr- arvertíðinni. Þessi veiði hefur lítið verið stunduð þar til síðustu tvö árin, að markaður fékkst fyr- ir vorsíldina frysta. Sumir hafa fengið uppgripaafla, 150—170 tn. að meðaltali i lögn, fram að þvi, að þeir fóru norður á síld. Síldveiðin 1 sumar. Flestir munu að lokmni vetr- arvertíð snúa sér að því að und- irbúa síldveiðina í sumar. Enda þótt fært hafi verið fram árlega síðustu árin, hvenær farið væ"i, er viðbúið, að í vor verði farið enn fyrr norður en nokkru sinni áður, eða um mánaðamótin maí júní. í fyrra fóru leitarskip yfir vest ursvæðið, áður en flotinn kom á miðin, og var þá lítið látið yfir síld. En strax og skipin komu á miðin og fóru að kasta, fengu þau góða veiði. Það er eins og þessar djúpu nætur, sem geta tek ið síld, þótt hún sé jafnvel allt niður á 25 faðma dýpi, ætli að Framih. á bls. 14. kenna sér að biðja og hann kenndi þeim bænina „Faðir vor“. Sú bæn er fyrirmynd allra vorra bæna og bænalífs. Guðspjöllin bregða upp myndum af bænalífi Jesú. Ógleymanleg verður öllum bænastund hans í Getsemane, og síðustu orðin, sem hann mælti á krossinum voru bænarorð. Um þetta hugsum vér, þegar vér komum fram fyrir Guð í bæn. Kærleikur og traust til Guðs á að móta hugsanir vorar og bæna- líf. Vér reynum að forðast að láta bænalíf vort mótast af eig- ingjörnum hvötum, en takmark alls bænalífs er að Guðs vilji verði, bæði í einkalífi vor mann- anna og samfélagi heildarinnar. Það hefur verið sagt um bænina, að hún væri andardrátt- ur trúarlífsing, og eitt hið fyrsta sem vér lærum er að biðja sem börn við föður eða móðurkné. Bænastund kvölds og morgna er blessun fyrir mannshjartað. „Lykill að Drottins náð“, eins og Hallgr. Pétursson orðaði það. Mörg fögur og áþreyfanleg dæmi eru til úr lífi trúaðara manna, um dásamlegu bænheyrslu og hand- leiðslu Guðs, en þó má enginn ætla að Guð uppfylli alla duttl- unga mannshjartans, því oft vit- um vér ekki sjálf, hvað oss er fyyrir beztu. Að biðja sem mér bæri, mig brestur stórum á. Minn herra Kristur kæri, æ, kenn mér íþrótt þá. Gef yndi mitt og iðja, það alla daga sé, með bljúgum hug að biðja sem barn við föðurkné. II. Hinn almenni bænadagur á að vekja þjóð vora til umhugsunar um gildi bænalífsins, og beina hugum vorum að þeirri stað- reynd, að vandamál lífsins verða ekki leyst, nema í samfélaginu við Guð og í samræmi við hans vilja. í bréfi þvi sem biskup lands ins hefur sent prestunum, varð- andi bænarefni dagsins, hefur hann ákveðið að það skuli vera: „Vöxtur og efling kristninnar í landi voru, til blessunar allri þjóðinni“. Um það erum vér öll sammála, að því betur væri þjóð vorri borgið, því betur, sem hún tileinkaði sér sannindi kristin- dómsins, en trúarþroskinn ligg ur um hjörtu einstaklinganna. Víst er það, að framtíð og far- sæld smáþjóða byggist ekki á kjarnorkusprengjum eða öðrum vígvélum, heldur á sigri þeirra hugsjóna sannleika, réttlætis og kærleika sem er kjarninn í boð- skap Jesú Krists. Lífsgildi krist- indómsins er því ekkert vafamál, en hitt hefur jafnan reynst erfitt að ná með þennan boðskap til mannshjartans, og svo er enn í dag. Þegar þú, lesandi góður, hugs- ar um bænadaginn og bænarefni hans, að þessu sinni, þá skaltu hugsa um líf þitt í ljósi þeirra sanninda sem felstíboðskap Frels ara vors. Ég vil hvetja þig til þess að taka þátt í einhverri af guðsþjónustum bænadagsins, svo að þér sé það Ijósara, að þú átt að vera í samfélagi þeirra, sem vilja sameiginlega lofa Guð og þakka honum. Og í einrúmi leitar þú þér styrks í bæninni, svo að líf þitt megi bera fegurri ávexti Guði til dýrðar, því að vissulega er það takmark lífs vors, að elska Guð og þjóna honum. „Verði þinn vilji“, er bæn þjóð ar vorrar í dag. Og Guðs vilji fyrir mannlífið hefur sömu áhrif og hækkandi sól í ríki náttúr- unnar. Virzztu Guð að vernda og styrkja vora þjóð og gef oss frið, þeim, sem vel þinn víngarð yrkja veit þú blessun þrótt og lið. Gef, að blómgist Guð þín kirkja, Guð, oss alla leið og styð Ó.J.Þ.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.