Morgunblaðið - 03.05.1959, Side 13

Morgunblaðið - 03.05.1959, Side 13
Sunnudagur 3. maí 1959 MORGVNBLAÐIÐ 13 REYKJAVIKURBREF Laugard. 2. mai Einhugur í landhelgismálinu Stefna Islendinga í landhelgis- málinu var mörkuð með lögun- um frá 1948 um vísindalega verndun fiskimiða landgrunns- ins. Þau lög byggjast á því, að íslendingar eigi einir rétt til landgrunnsins umhverfis landið og hagnýtingar fiskimiða á þeim slóðum, þó að sá réttur hafi enn ekki fengið fulla viðurkenningu. Auðvitað var mönnum þá ljóst, að sú viðurkenning yrði seinsótt. En markið var ákveðið og allar framkvæmdir við það miðaðar. Útfærsla fiskveiðitakmarkanna fyrir Norðurlandi 1950 og um- hverfis aðra hluta landsins 1952, var gerð með heimild í þessum lögum. Svo var og um stækkun- ina, er gildi tók 1. septemtaer sl. Allt voru þetta mikilsverðir áfangar en ekki lokatakmark. Einmitt þess vegna ríður þeim mun meira á, að sókninni að hverjum einstökum áfanga sé ekki hagað svo, að áframhald verði erfiðara eða með öllu hindrað. Sjálfstæðismenn hafa aldrei efazt um, að allir landsmenn vildu ná settu marki og hafa fisk veiðilandhelgina sem allra víð- asta. Hins vegar telja þeir, að V- stjórnin hafi haldið miður á mál- inu en skyldi, m. a. vegna þess að annarleg sjónarmið blönduð- ust inn í. Undanhald kcrnur ekki til mála Mistök V-flokkanna hafa t. d. birzt í rætnisskrifum Tímans og Þjóðviljans, þar sem ýmist hefur verið berum orðum sagt, eða gef- ið í skyn, að ýmsir væru óheilir í málinu. Ekkert var betur til þess lagað en slíkur söguburður, að egna útlendinga til sem harð- astrar sóknar gegn ákvörðunum okkar. Sjálfsagt eru þó fyrst og fremst aðrar orsakir, tilkomnar á alþjóðavettvangi, til þess að Bretar hafa haft í frammi of- beldi sitt hér við land. Tilgang- ur ofbeldisins hefur aldrei leynt sér. Hann var sá að knýja íslend- inga til undanhalds. Af þeim sök- um, og ekki sízt þegar Bretar, hvað eftir annað, fremja yfir- troðslur sínar innan fjögurra mílna landhelginnar, er vel til fundið, að Alþingi samþykki nú þingsályktun þá, sem utanrikis- málanefnd hefur borið fram. Til- lagan er ávöxtur samstarfs manna, sem hafa misjafnar skoð- anir á, hversu vel hafi til tekizt um undirbúning málsins og framkvæmd þess að undanförnu, en allir eru þeir sammála um, að undanhald komi ekki til greina. Sú ályktun er mjög í samræmi við það, sem Sjálfstæðismenn samþykktu á landsfundi sínum um miðjan marz. En þar kem- ur meira til samþykkt einsflokks, allir flokkar og landsmenn í heild eru sammála um að halda fast við rétt þjóðarinnar. Ráð Breta á rciki Þó að Bretar segist vera ein- dregnir í ofbeldisaðgerðum sín- um hér, þá fer ekki hjá því, að ráð þeirra í þeim efnum virðist vera mjög á reiki. Þeir hafa ekki látið sér nægja að „vernda“ og raunar skipa togurum sínum að vera í landhelgi á milli 4—12 mílna, heldur hafa þeir í einu tilfelli farið inn fyrir 3 mílur, nokkrum sinnum inn fyrir 4 til að hafa þar valdbeitingu í frammi. Stundum hefur þeirri valdbeitingu lyktað með því, að hinn brotlegi togari hefur verið tekinn til íslenzkrar hafnar, en í öðrum hefur brezkt herskip hjálpað honum til undankomu. Hefur þá verið borið fyrir, að mælingar íslenzku varðskips- mannanna væru rangar, sem vit- anlega heyrir ekki undir úrskurð brezkra sjóliða, heldur réttra dómstóla. Svo virðist sem hér hafi meira verið komið undir dómgreind og háttvísi þeirra skip herra, sem við var að eiga hverju sinni, en glöggum fyrirmælum yfirmanna þeirra í London. Ekki sízt þegar hugleitt er, að sam- kvæmt orðsendingu brezku stjórnarinnar er fjögurra mílna landhelginni enn mótmælt, en raunveruleg ákvörðun þess, að skip eru látin fara til íslenzkrar unar um, hversu líklegir þeir séu til forystu í alþjóðamálum. Rétt er það, að þeir hafa langa reynslu í meðferð þeirra, en hef- ur sannazt að segja tekizt mis- jafnlega. Nýlega voru brezk blöð t. d. mjög full umvöndunar yfir því, að bandarískar flugvél- ar hefðu flogið of hátt á leiðinni til Berlínar, hærra en Rússum líkaði, og mætti ekki hafa slíkar ögranir í frammi við þá. Óneitan lega gætir þar meiri varfærni en gagnvart okkur, enda er aflsmun ur á andstæðingunum. Engir óska fremur en við íslendingar, að spennunni í alþjóðamálum létti. En alveg eins og við erum þó aldrei sleppa augum af aðal- atriðinu, því, að takast megi að halda friði í heiminum og smám saman eyða þeim ofbeldishug, sem stórveldin frá fornu fari hafa verið haldin. Ráðherrar Vestur- víkingar hafa lengi kvartað und- an því, að ekki skuli fást send mjólk heim, svipað því, sem áður var gert og víðast hvar tíðkast erlendis í hliðstæðum borgum. Fyrir nokkru var einn af helztu veldanna hafa undanfarið verið valdamönnum Mjólkursamsöl- á fundi. Sennilega hefur vanda- málið við Island ekki verið á dagskrá þeirra. Okkur hefur enn ekki tekizt að gera umheiminum nógu ljóst, hversu mikið er hér í húfi. Vonandi vinnst það nú þó áður en um seinan er. Fyrst og fremst er nauðsynlegt, að vitað sé að undanhald af okkar hálfu kemur ekki til greina. En við megum ekkert tækifæri láta ó- notað til þess að koma valda- mönnum heimsins í skilning um, að ofbeldi Breta hér er óhæfa. I sjálfum heimsmálunum verð- hafnar hefur verið undir því komin, hvort mælingarnar hafa verið taldar réttar eða ekki. í öllu þessu er ósamræmi, er lýsir veikleika hins brezka málstaðar. Réttarríki Sumir tala nú svo sem hinir brezku skipstjórar, sem dæmdir hafa verið fyrir brot sín hér á landi, hafi sloppið of vel. Þeir hafa verið dæmdir með venju- legum hætti að íslenzkum lögum og mál þeirra munu áður en lýk- ur koma fyrir Hæstarétt íslands. Allir þeir, sem vilja, að með mál þessi sé farið öðru vísi en títt er og harðari refsingum beitt eða sökunautar látnir þola aðra með- ferð en áður hefur verið beitt í sambærilegum tilfellum, gera ís- landi lítið gagn. Land okkar er réttarríki og við megum ekki setja neinn blett á heiður okkar með því að láta ofbeldisfum Breta færa okkur af réttri braut. Herhlaup Brcta og forusta í alþjóðamálum Herhlaup Breta inn í íslenzka fiskveiðilandhelgi hlýtur að vekja okkur, þó fámennir séum og lítils megnugir, til umhugs- Æskan hefur tekið upp vorleik staðráðnir í að láta ekki ofbeldi Breta knýja okkur til undan- halds, eins horfir það sízt til góðs á alþjóðavettvangi að hopa fyrir hótunum og ofbeldi ein- ræðisherra. Dean Acheson, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur nýlega ritað mjög eftir- tektarverða grein til aðvörunar gegn því, að á ný verði tekin upp Miinchen-stefnan frá 1938, og minnir á hversu mjög framkoma Macmillans nú sé svipuð því, sem Chamberlain gerði þá. Mac- millan var einn af eindregnustu gagnrýnendum Chamberlains á sínum tíma, en sú aðferð að hefna þess í héraði sem hallaðist á Alþingi hefur aldrei þótt heilla vænleg á Islandi og er það ekki fremur annars staðar. Bretar mundu óneitanlega gera sig mun forystuhæfari, ef þeir létu af valdbeitingunni hér við strend- ur, samtímis því sem þeir pré- dika að finna þurfi aðrar leiðir en hótanir um gagnkvæma vald- beitingu í alþjóðamálum. Utanríkis- ráðherrafundur Vesturveldanna Óneitanlega hljóta öll þessi mál að tvinnast saman í hugum okkar íslendinga. Þar megum við um við að vona, að fulltrúar Vesturveldanna geti komið sér saman, svo mikið sem þar er húfi. Nú reynir mjög á hinn nýja utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, Herter. I bandarískum fregnum kemur fram, að mönn- um þar í landi þótti Eisenhower forseti tilnefna hann með hang- andi hendi og töldu ýmsir, að af því yrði að álykta, að hann nyti takmarkaðs trausts forsetans. Öldungadeildin svaraði þeirri hálfvelgju með því að staðfesta skipun Herters í embættið á einni dagstund og í einu hljóði, þó að þingsköp ætlist til þess, að slík ákvörðun sé ekki tekin fyrr en eftir viku umhugsun. Með þessu vildu öldungadeildarþing- menn sýna, að þeir bæru fullt traust til Herters og Bandaríkja- þjóðin stæði einhuga á bak við hann. Mjólkursending og barnagæ/la Ekki má vegna umsugsunar- innar um hin meiriháttar vanda- mál, gleyma viðfangsefnum dag- legs lífs. Þá kemur manni í hug, hversu ólíkt hafast að tveir að- ilar, sem stjórna málum, er snerta hvert einasta heimili bæj- arins dag hvern. Annars vegar Mjólkursamsalan og hins vegar bæjarstjórn Reykjavíkur. Reyk- unnar spurður að því, af hverju þessu væri ekki kippt í lag. Hann svaraði eitthvað á þessa leið: Þær hafa bara gott af því að sækja mjólkina. Hinum háa herra, sem sjálfur hefur-þjón á hverjum fingri, hugkvæmdust ekki erfiðleikar húsmæðra, oft með smábörn, sem þurfa í mis- jöfnu veðri að fara langa leið í mjólkurbúð og standa þar í kös til að bíða afgreiðslu. Hvað á að gera við börnin á meðan? Og hvað um húsverkin, sem ekki mega dragast? Auðvitað væri fyrir löngu búið að bæta úr þessu, ef Mjólkursamsalan hefði ekki einokun á mjólkursölunni. Neytendur eiga ekki að láta bjóða sér stirfni valdamannanna í þessu, enda er í henni áreiðan- lega sízt að vilja bænda farið. Það eru milliliðirnir, sem sitja á Selfossi og víðar, er þessu ráða. Berum framkomu þeirra sam- an við þá ráðstöfun Reykjavíkur bæjar að koma upp barnagæzlu á leikvöllum víðs vegar um bæ- inn. Þar geta mæður komið börn um sínum fyrir í örugga gæzlu meðan þær eru önnum kafnar við húsverk eða þurfa að sinna erindum úti í bæ. I þessu lýsir sér skilningur á þörfum almenn- ings og eiga þeir, sem þessu ráða, allra góðra manna þakkir skilið. Sérgrein Framsóknar Á Alþingi og í blöðum hafa umræður um kjördæmamálið haldið áfram. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á grein, sem Skúli Guðjónsson á Ljótunar- stöðum í Strandasýslu, skrifaði um málið nýlega í Þjóðviljann. Hann segir m. a.: „Hitt er þó ef til vill enn und- arlegra, hvernig hin fyrirhugaða breyting á kjördæmaskipan og kosingum til Alþingis, verkar á bændurna sjálfa, eftir því í hvaða pólitíska flokki þeir eru staðsettir. Sjálfstæðisbændur lifa nú sem í sæluvímu við tilhugsunina eina um hið breytta skipulag. Margir spámenn vekjast nú upp í þeirra hópi og vitna um paradís þá, er sveitirnar breytist í, þegar kjör- dæmaskipan hafi verið breytt. En á hinum bænum er öllu ömurlegra um að litast. Framsóknarbændurnir eru slegnir slíkum felmtri við tilhugs unina um það sem í vændum er, að slíks eru engin dæmi frá lið- inni tíð, og hefur þó forusta Fram sóknarflokksins stundað það sem sérgrein að hræða fylgismenn sína í bændastétt með hrakspá- dómum um hag þeirra og þjóð- arinnar yfirleitt“. MyndMrting í Tímanum Þarna lýsir Skúli viðbrögðum fólksins úti um land. Framsókn- armenn láta svo sem þeir lifi í þeirri trú, að um einhvers konar þjóðarvakningu í kjördæmamál- inu þeim til hags sé að ræða. —• Sannleikurinn er sá, að öllum fregnum ber saman um, að við- horf manna til málsins fari mjög eftir flokkum. Framsóknarmönn- um tekst ekki að blekkja neina með því að láta fylgismenn sína, þar sem þeir hvort eð er eru í meiri hluta, samþykkja í öllum mögulegum félögum, ályktanir til stuðnings afturhaldinu. Með því telja þeir í mesta lagi kjark í sitt eigið lið og reyna að fá það til að gleyma hinni hörmulegu frammistöðu flokksins í V-stjórn- inni, sem nú hefur leitt til ömur- legrar einangrunar flokksins. Er þó vitað, að margir Framsóknar- menn eru mjög uggandi um sinn hag og býsnast yfir því í sinn Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.