Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnu'dagur 24. maí 1959
t
Fyrir nokkru var haldið upp á
100 ára afmæli minninga- og há-
tíðasýninga á leikritum Shakes-
pears í Stratford-on-Avon. í til-
efni af þessu var „Othello" settur
á svið og fór söngvarinn Paul
Robeson með titilhlutverkið, en
brezka leikkonan Mary Ure lék
Desdemonu. Paul Robeson hefir
ekki stigið fæti sínum á leiksvið
í Englandi undanfarin 23 ár,
fögnuðu brezkir áhorfendur hon-
um ákaft í hlutvrki Othellos.
Þetta er líka í fyrsta sinn, sem
Robeson leikur í Stratford, og
í fyrsta sinn, sem tveir Banda-
ríkjamenn fara með aðalhlutverk
in í Othello. Sam Vanamaker
var í hlutverki lago.
| Þess má geta, að Robeson lét
sér vaxa skegg í tilefni af því
að hann átti að leika Othello.
j — Þegar ég lék Othello síðast,
notaði ég gerviskegg, segir Robe-
son. En skeggið vildi alltaf losna.
þegar ég byrjaði að svitna undan
þessu dramatíska hlutverki. Ég
vildi ekki eiga neitt slíkt á hættu
í þetta sinn.
★
Paula Wolf, systir Adolfs Hitl-
ers og nánasti eftirlifandi ætt-
ingi hans, lifir kyrrlátu lífi í litlu
þorpi í Þýzkalandi. Hún er 64
ára gömul. Ekki alls fyrir löngu
féllst hún á að koma fram í sjón-
varpi í I.ondon, en aðeins með
því skilyrði að heimilisfang
hennar yrði ekki látið uppi.
Ásamt henni komu fram í þætt-
inum, sem nefnist „Einræði, fyrr-
verandi einkabílstjóri Hitlers,
flugmaður hans, herbergisþjónn
hans og eiginkona þess síðast-
nefnda. Þátturinn vakti ekki
fréttunum
meiri athygli en svo, að stjórn-
andi hans fékk tvær upphring-
ingar — það var allt og sumt.
☆
Robin Douglas Home var mik-
ið umtalaður í heimspressunni
meðan hann var væntanlegur
eiginmaður Margrétar Svía-
prinsessu. Þá hætti hann að
vinna fyrir sér með því að leika
á píanó á skemmtistöðum, til að
fjölskyldu hennar mislíkaði ekki
starf hans og gerðist fulltrúi í
auglýsingastofnun. Síðan fór
samdráttur þeirra Margrétar út
um þúfur. Nýlega trúlofaðist
Robin 18 ára gamalli enskri
stúlku, Söndru Paul. Hún er
læknisdóttir frá London og ein
af kunnustu tízkusýningarstúlk-
um borgarinnar.
★
George Dawson, sem íslending
ar kannast vel við, er nú kominn
í fangelsi, þar sem hann saumar
seglpoka og fær hálft annað
pence fyrir stykkið. Það mun
hann væntanlega gera næstu sex
árin.
Dawson má muna fífil sinn
fegri, því hann hefur þrisvar
sinnum verið milljónamæringur,
en líka þrisvar orðið gjaldþrota.
15 ára gamall aflaði hann sér
fyrstu 500 pundanna með því að
kaupa og selja járnarusl og 12
árum síðar var hann orðinn
milljónamæringur. Þá varð hon-
um það á áð selja 350 þúsund
herbíla, sem hann ekki átti og
það kostaði hann 18 mánaða
fangelsi. Næst græddi hann að
sögn 200 þúsund puhd á tveim
vikum. Þá skall stríðið á, og
hann keypti búgarð, en varð
gjaldþrota á því. Árið 1954 fékk
hann 20 pund lánuð hjá dyra-
verðinum í hátelinu sínu og hélt
til Guernesey, þar sem hann
keypti einhver ósköp af járna-
rusli. Brátt átti hann einbýlishús
í Cannes, íbúð í París, skemmti-
snekkju, þrjár flugvélar og fjóra
bíla. En frönsku skattayfirvöldin
kröfðust af honum 200 þúsund
punda og þau ensku 450 þús., svo
Dawson varð að selja allt sem
hann átti. Síðasta milljónin fór !
í þorsk, pylsur og ávaxtasafa, í
segir í fréttum.
Og nú segir Dawson: „Eftir
sex ár afla ég mér aftur auðæfa“.
★
Solanis de Gupta var um dag-
inn viðstödd sýningu á kvikmynd
ítalska kvikmyndastjórans Rosso
linis „India“ á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes, en Rossolini kynnt
ist henni einmitt meðan á kvik-
myndatökunni í Indlandi stóð
fyrir tveimur árum og varð af
því mikið hneyksli og upphafið
að skilnaði Rossolinis og Ingrið-
ar Bergmann. Frændi Solanis er
einn af voldugustu kvikmynda-
framleiðendum Indlands og sjálf
starfaði hún við kvikmyndina
„India". Hún hefur lokið námi |
við listaháskólann í Beng'’1.
Solanis da Gupta er komin af
auðugri Bramafjölskyldu í Ind-
landi. Da Gupta er nafn manns
hennar, sem hún bíður nú eftir
að fá skilnað frá. Með honum
á hún tvo syni, Bria 7 ára, sem
er heima í Indlandi hjá föður sín-
um, og Gil 2Vz árs, sem er hjá
ameríska málaranum Copley í
París. Solanis er 32 ára gömul,
gengur alltaf í indverskum bún-
ingi og þykir ákaflega falleg.
Hún býr nú í einbýlishúsi í París,
ásamt 5 mán. gamalli dóttur
þeirra Rossellinis, og bíður eftir
að fá skilnað frá manni sínctm,
til að geta gifst ítalska kvik-
myndastjóranum. ,
Höfð eru ýmis skemmtileg Um-
mæli eftir páfanum, Jóhannesi
XXI. M. a. þessi: — Það eru til
tvenns konar diplomatar, sem
þegja, og þeir sem tala svo hratt
að enginn skilur hvað þeir eru
að fara.
★
Erkibiskupinn í Kantaraborg
dr. Geoffrey Fischer, er ekki sér-
lega hrifinn af stjórnmálamönn-
um, ef dæma skal eftir ummæl-
um hans í Tokío ekki alls fyrir
löngu. Hann á að hafa sagt:
— Stundum held ég, að ástand-
ið í heiminum mundi batna að
mun, ef stjórnmálamennirnir
væru ekki allveg svona önnum
kafnir, segðu heldur færra og
miklu sjaldnar, það sem þeim
liggur á hjarta.
SmurstöBin Sœtúni 4
Seljum allaur tegundir af smurolíu.
Fljót og góða afgreiðsla ,sími 16-2-27.
r
l
Kjóla
Kápuir
Dragtir
Pils
m.a.
Pacqmar efni (Poodel-cloth)
MARUDURINN
Hafnarstræti l1