Morgunblaðið - 27.05.1959, Side 19
'i'Svik'údagur 27. maí 1959
MORClllKfíLAÐlÐ
19
82 Hollywood-myndir ekki
taldar sýningarhæfar í 12
löndum
WASHINGTON, 26. maí UPI. —
Upplýsingáþjónusta bandaríska
utanríkisráðuney tisins hefur najög
gegn vilja sinum lagt fyrir fjár-
veitinganefnd fulltrúadeildar
Bandarikjaþings „svartan lista“
yfir 82 Hollywood-kvikmyndir,
sem ekki sé æskilegt að sýndar
verði í' ákveðnum löndum, vegna
þess að þær gefi ranga hugmynd
um ástandið í Bandaríkjunum.
Upplýsingaþjónustan (USIA)
féllst ekki á að leggja fram list-
ann, fyrr en formaður fjárveit-
inganefndarinnar, John Rooney,
hafði gefið í skyn, að fram-
lögin til upplýsingaþjónustunnar
kynnu að verða minnkuð, ef ekki
væri orðið við tilmælum nefnd-
arinnar.
12 lönd
Á „svarta listanum" eru kvik-
myndir eins og „All the King’s
Men“, „All Quiet on the Western
Front“, „The James Dean 'Story“,
„Somebody up There Likes Me“,
„The Strange One“ og „The
Sweet Smell of Success". Þær
kvikmyndir sem eru á „svarta
listanum" koma ekki undir laga-
greinina, sem heimilar bandarísk
um kvikmyndafélögum að fá inni
stæður sínar í ákveðnum lönd-
um greiddar í dollurum heima
í Bandaríkjunum. Lögin um þessi
dollaraskipti taka til 12 landa, og
þau eru Burma, Ohile, Indónesía,
ísrael, Pakistan, Pólland, Filipps-
eyjar, Formósa, Spánn, Júgóslav-
ía, Tyrkland og Vietnam.
Meðan á umræðunum stóð í
fjárveitinganefndinni, tjáði upp-
lýsingaþjónustan nefndarmönn-
um að ákveðnar bandariskar
kvikmyndir sköpuðu ýmiss konar
erfiðleika, þegar þær væru sýnd-
ar í öðrum löndum. Meðal þeirra
væru kvikmyndirnar „Black-
board Jungle", „Salt of the
Earth“ og „House of Bamboo".
Rangar hugmyndir
Einn nefndarmanna, Frank
Bow (repúblikani frá Ohio) sagði
að kvikmyndir af þessu tagi gæfu
rangar hugmyndir um ástandið í
Bandaríkjunum, og þess vegna
bæri að takmarka dreifingu
þeirra. Kvikmyndafélögin bentu
hins vegar á, að um 40% af tekj-
um þeirra væru frá öðrum lönd-
um, og að það væri óverjanlegt
frá efnahagslegu sjónarmiði að
banna sýningar á kvikmyndum
í nokkru landi.
Bow svaraði: „Ef allir vreru
föðurlandsvinir mundu þeir láta
það ógert að leggja út í gróða-
fyrirtæki, ef þeir með því skaða
orðstír Bandarikjanna í öðrum
löndum og eyðileggja það sem
upplýsingaþjónustan (USIA) er
að reyna að byggja upp“.
Yfirmaður upplýsingaþjónust-
unnar, Turner Shelton, sagði að
kvikmynd eins og „High School
Confidential“ gæfi alranga hug-
mynd um bandarískan æskulýð.
í Líbanon hefði hann t. d. heyrt
harða gagnrýni vegna þess að
kvikmyndin var sýnd þar, en
hann hefði ekki getað komið í
veg fyrir sýningu hennar, þar
sem upplýsingaþjónustan hefði
engin áhrif á dreifingu kvik-
mynda í því landi. Shelton hélt
því fram, að bandarísk yfirvöld
ættu að ákveða, hvaða kvik-
myndir væru hæfar til sýninga
í öðrum löndum.
Krafðist listans
Þegar hér var komið, krafðist
Rooney þess að fá nákvæmar
upplýsingar um hvaða kvikmynd
ir upplýsingaþjónustan væri ó-
ánægð með. Fulltrúar upplýsinga
þjónustunnar neituðu í fyrstu að
leggja fram listann, þar sem slík-
ur verknaður gæti skoðazt sem
„kvikmyndaeftirlit". Hins vegar
lofuðu þeir að taka málið til 'yinf
samlegrar athugunar.
Rooney sagði: „Þið gerið rétt
í því að vera mjög vinsamlegir,
ef ykkur langar til að haida á-
fram kvikmyndaþjónustn ykk-
ar“. Þá var listinn lagður fram.
Ég undirritaður þakka innilega öllum þeim mörgu,
sem glöcldu mig með skeytum, dýrum gjöfum og góðum
hug á 75 ára afmæli mínu þann 22. þ.m. Eitt af því dýr-
mæta, sem lífið veitir manni er,ef manni tekst að vinna
til viöurkénningar og þakklætis frá góðum mönnum og
réttvísum.
Reykjavík, 25, maí 1959.
Sig. A. Björnsson frá Veðramóti.
Þakka hjartanlega öllum þeim, sem glöddu mig með
heimsóknum, góðum gjöfum, skeytum og upþhringing-
um á 50 ára afmæli mínu 18. maí 1959.
Guð blessi ykkur öll.
Guðlaug Guðmundsdóttir, Bjarnarnesi.
JÖHANNES LÁRUSSON
Lögfræðistörf — Fasteignasala
Kirkjuhvoli — Sími 13842
Málarastofan Barónsstíg 3.
Sími 15281.
Gerum gömul húsgögn, sem ný.
« KVIKMYNDIR *■
AUSTURBÆ J ARBÍÓ:
Helena fagra frá Tróju
ÞESSI ameríska kvikmynd frá
Warner Bros, er sannkölluð
„stórmynd", því þar er allt stórt
í brotum, sviðsbúnaður allur,
stórhýsi í ævafornum stíl og her-
skari leikenda og „statista", enda
eru háðar þarna miklar orrustur,
eins og greinir frá í Illionskviðu
Hómers, en myndin er byggð á
atburðum, sem þar er lýst, þ. e.
átökunum milli Spartverja í
Grikklandi og Trójumanna, er
gerðust um 11 öldum fyrir
Kristburð og lauk með því að
Trjóumenn voru gersigraðir
fyrir svik og kænskubragð
Spartverja — „tréhestinn“ — svo
sem frægt er. — En tilefni her-
ferðar Spartverja á hendur Trjóu
búum var það, sem kunnugt er,
að Paris sonur Priams konungs
í Trjóu, nam á brott Helenu
hina fögru, drottningu Menelaus-
ar Spartverjakonungs. Margir
aðrir frægir menn úr Illions-
kviðu koma þarna fram, svo sem
Achilles, Agamemnon, Ulyssas,
Hector og Casandra o. fl. o fl.
Er mynd þessi stórfróðleg ekki
sízt fyrir það, að hún gefur góða
hugmynd um menningu tveggja
öndvegisríkja á þessu tímabih, og
hversu háttað var hernaði hirina
sögufræðu þjóða. Hefur ekkert
verið til sparað að gera allt úr
garði þannig að það nálgist sem
mest hið rétta eftir því, sem heim
ildir greina. Auk þess fara þarna
margir ágætir leikarar með hlut
verk, svo sem hin fagra leik-
kona Rossana Podesta, er leikur
Helenu fögru og kafnar ekki
undir nafni, Jack Sernas, er leik-
ur Paris og Sir Cedric Hard-
wicke, er fer með hluverk Pri-
ams Trójukonungs.
Sem sagt: Stórbrotin mynd og
eftir því fróðleg. -—Ego.
STJÖRNUBÍÓ:
Hefnd Indíánans
ÞES'SI ameríska kvikmynd, sem
Steíán Haraldsson
ver doktorsritgerð
FYRIR nokkrum dögum, þann 15.
maí varði íslenzkur læknir dokt-
orsritgerð við háskólann í Lundi
í Suður-Svíþjóð. Hinn nýbakaði
doktor er Stefán Haraldsson, son
ur Haraldar Björnssonar leikara.
Andmælendur við doktorsvörn-
ina voru Torsten Jerra dósent og
dr. Per-Ingvar Brámemark.
Doktorsritgerð Stefáns nefnist:
„On Osteochondrosis deformans
juvenilis capituli humeri includ
ing investigation of intra-osseous
vasculature in distal humerus“.
Fjallar þetta efni um óeðlilegan
beinvöxt, sem verður stundum
í upphandleggs- og olnbogabeini
í börnum og hefur einnig þýð-
ingu fyrir rannsóknir á óeðlileg-
um beinvexti annars staðar í lík-
amanum. Liggur mikið starf að
baki ritgerðinni, bæði í rann-
sóknum á sjúkrahúsum og til-
raunum á rannsóknarstofum. Til-
raunir Stefáns hafa m.a. beinzt
að því hvernig beinvefir myndast
og hvernig blóðrás er um vaxandi
og fullvaxin bein. Þykir ritgerð
hans og athuganir bera vott um
vísindahæfileika.
— Bridge
Framhald af bls. 3
sveit Stefáns J. Guðjohn-
sen ............. 45:43
tekin er í litum, er gerð eftir. Sveit Sigurhjartar Péturs-
skáldsögu eftir Arthur Gordon.
Gerist myndin í Ameríku á síðari
hluta aldarinnar sem leið, í litlu
þorpi, þar sem Indíánar eru á
næstu grösum og árekstrar milli
hvítra manna og Rauðskinna eru
ærið tíðir. í þessum þorpum voru
vínknæpurnar aðalsamkomustað
ir manna, og óðu þar uppi alls
konar ævintýramenn og bófar,
sem jafnan tóku „réttvísina“ í
sínar eigin hendur ef þeir áttu í
útistöðum við menn og var þá
venjulega skammbyssan laus í
beltinu. Það er slíkum átökum,
sem mynd þessi greinir frá og
koma þar einkum við sögu þrír
bræður, sem vaða uppi í þorpinu
og öllum stendur ógn af. Og svo
koma þarna auðvitað konur við
sögu að ógleymdri „hetjunni",
sem er sjálfsögð í svona myndum
og ber vitanlega sigur af hólmi.
Ekki er hvíta kynstofninum lýst
svo í þessari mynd að sé honum
til sóma því að hann er heltekinn
kynþáttahatri og drýgir hvert ó-
dæðið öðru verra í skjóli þess. —
Annars er efni myndarinnar ó-
merkilegt og leikararnir leiðin-
legir.
Ego.
sonar vann sveit Sophus-
ar Guðmundssonar .... 57:47
Sveit Ásbjörns Jónssonar
vann sveit Halls Símon-
arsonar................ 54:29
Sveit Svavars Jóhannsson-
ar vann sveit Eggrúnar
Arnórsdóttur .......... 72:59
Sveit Vigdísar Guðjóns-
dóttur vann sveit Ragn-
ars Þorsteinssonar..... 59:41
Sveit Óla Kristinssonar
vann sveit Mikaels Jóns-
sonar ................. 67:49
Að loknum þrem umferðum er
röð sveitanna þessi:
St.
1. Sveit Sigurhjartar Péturss. 6
2. Sveit Hjalta Elíassonar .. 5
3. Sveit Stefáns J. Guðjohn-
sen..................... 5
4. Sveit Asbjörns Jónssonar 4
5. Sveit Óla Kristjánssonar 4
6. Sveit Vigdísar Guðjónsd. 3
7. Sveit Zophusar Guðmunds
sonar.................... 2
8. Sveit Halls Símonarsonar 2
9. Sveit Mikaels Jónssonar .. 2
10. Sveit Svavars Jóhanness. 2
11. Sveit Eggrúnar Arnórsd. 1
12. Sveit Ragnars Þorsteinss. 0
METCSALEM sigfússon
frá Seyðisfirði,
andaðist að Elliheimilinu Grund mánudaginn 25. maí
1959. Jarðarförin ákveðin síðar.
Börn, tengdabörn, barnaböra
Maðurinn minn
ARNI SIGURÐSSON
trésmiður, Hverfisgötu 38 Hafnarfirði,
andaðist á St. Jósepsspítala þriðjudaginn 26. þ.m.
Sylvia Isaksdóttir.
Móðir okkar
JÓIIANNA EINARSDÓTTIR
frá Giljum, Njálsgötu 71,
andaðist í Landsspítalanum að morgni 26. maí.
Börnin.
Elsku sonur okkar og bróðir
BIRGIR JÓNSSON
andaðist að heimili okkar Álfhólsvegi 47 Kópavogi sunnu-
daginn 24. þ.m. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 1. júní kl. 1,30.
Jóna Sigurðardóttir, Jón Andrésson og systur.
Útför
ARA GUÐMUNDSSONAR,
verkstjóra,
fer fram frá Borgarnesi, föstudaginn 29. maí, og hefst
að heimili hans kl. 2. Blóm og kransar afbeðin, en þeim
sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Bílferð
frá Bifreiðastöð Islands kl. 9 um morguninn. Til baka
um Akranes um kvöldið.
Óiöf Sigvaldadóttir og börn.
Innilegar þakkir til allra nær og fjær, sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför systur
okkar og mágkonu
VIGDÍSAR HAULDÓRSDÓTTUR
Litla-Fljóti.
Vandamenn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför
VALDIMARS ÞÓRÐARSONAR
verkstjóra, frá Brekkuholti.
Fyrir hönd barna og systkina.
Sigríður Þorgrímsdóttir.
Innilegar þakkir til allra þeirra, er aýndu samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför eiginkonu minnar og
móður okkar
SÓLVEIGAR ASMUNDSDÖTTUR
Sérstaklega þökkum við Þorsteini Árnasyni veitta
hjálp í veikindum hennar.
Jakob Jakobsson, Þórunn Jakobsdóttir
Asmundur Jakobsson, Auðbjörg Jakobsdóttir,
Jakob Jakobsson.