Morgunblaðið - 19.06.1959, Qupperneq 8
8
MÓRCTnvnr. AÐ1Ð
Fösfudagur 19. Júní 1959
Frá vígslu íþrótfaleikvangsins 17. júní
•k Brunnur hreysti og h^ilbrigði
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, kvað völlinn hafa kostað
mörg handtök og margar millj-
ónir. Hann þakkaði Laugardals-
nefnd, sem frá upphafi hefur
haft forystu um framgang vall-
arbygginganna, og bæjarfulltrú-
um öllum og fyrrverandi borgar
stjóra, Bjarna Benediktssyni.
Hann þakkaði og ríkisvaldinu
fyrir fulltingi við málið.
Borgarstjóri óskaði reykvísk-
um æskumönnum til hamingju
með leikvanginn og óskaði þess
að leikvangurinn mætti um
langan aldur efla íþróttir,
hreysti og heilbrigði. Gæfa og
gengi fylgi öllum þeim þúsund-
um íþróttamanna, sem hér munu
þjálfa og þreyta heilbrigðar og
drengilegar íþróttir um ókomin
ár.
ií íþróttavöllur er góður skóli
Gylfi Þ. Gíslason menntamála-
ráðherra óskaði reykvískri
íþróttahreyfingu og æsku höfuð-
borgarinnar til hamingju með að
hafa eignast fegursta og fullkomn
asta leikvang landsins. Hann
kvað iðkun góðra íþrótta mikils
virði. Þær ykju heilbrigði, efldu
þrótt, glæddu bjartsýni. Ráðherr
ann fagnaði því hve ótrúlega
marga afreksmenn ísland hefði
eignast á sviði íþrótta, glæsi-
menni sem orpið hefðu frægðar-
ljóma á nafn eyjunnar norður við
íshaf suður í sólríkum löndum.
En gildi íþróttanna væri enn
meira en það eitt að eignast af-
reksmenn. Sá hópur sem íþróttir
stundar til að auka heilbrigði sína
vinnur þjóðinni og framtíð henn-
ar jafnvel enn meira en afburða
mennirnir. Ráðherrann kvað
íþróttavöll vera ákjósanlegan
skóla til að nema þann lærdóm,
sem hvað nauðsynlegastur er i
lífinu að kunna að sigra og kunna
að tapa, að ofmetnast hvorki af
sigri sínum né heldur láta hug-
fallast af ósigri. Kvaðst hann
vona að sérhver sem til leiks
gengi á þessum velli mætti sækja
þangað trú á sjálfan sig og traust
á landið.
★ Gullmerki ÍSÍ
Benedikt G. Waage forseti ÍSÍ
minnti á það hve mikill hátíð-
isdagur 17. júní hefði um áratuga
skeið verið í hugum íþrótta-
manna. Sá dagur hefði siðar orð-
ið hátíðisdagur allrar þjóðarinn-
.ar og minnti ræðumaður á að sá
dagur ætti að vera lögskipaður
hátíðisdagur. Ben. G. Waage
þakkaði fyrir hönd íþróttahreyf-
ingarinnar fyrir þau glæsilegu
mannvirki sem nú væru vígð í
Laugardal. Forsetinn tilkynnti
að stjórn ÍSÍ hefði sæmt Jóhann
Framn. á bls. 18.
ÞÚSUNDIR manna komu
saman á hinum glæsilega j
leikvangi í Laugardal á þjóð-
hátíöardaginn, en vígsla hans
var einn a£ aðalliðum í há-
tíðahöldum dags'ns. Vígslan
hófst kl. 16,15 og voru þá á-
horfendasvæði leikvangsins
mikið til þétt se in. Meðal
viðstaddra voru fcr. ítahjón-
in, ráðherrar, ser.'l.-errar er-
greinum íþrótta og svo margt að
það myndaði óslitinn hring á 400
m hlaupabraut vallarins. Þannig
heilsaði íþróttafólkið þennan há-
tíðlega dag.
Ávarp forseta
Forseti íslands gekk að hljóð-
nema í heiðursstúkunni og flutti
ávarp. Drap hann á að hið veg-
lega íþróttasvæði væri nefnt eft-
ir Laugunum, sem sjálf Reykja-
vík drægi nafn sitt af. Forsetinn
kvað þéttsetin áhorfendasvæðin
og fylkingar íþróttafólksins á
glæsilegu íþróttasvæði hina feg-
urstu sýn og mætti í anda sjá
æskulýð framtíðarinnar, sem ætti
eftir að helga þennan völl með
mörgum afrekum við hrifning og
fagnaðaróp alþjóðar. Ávarp for-
setans er birt í heild á bls. 11.
Fóstbræður sungu þjóðsönginn,
fánaberar á leikvanginum heils-
Hluti telpnahópsins
Jóhann Hafstein
Iendra ríkja, borgarstjóri,
bæjarstjórn, forystumenn í-
þróttamála o. fl. Vígsluathöfn
in var hin hátíðlegasta og fór
mjög vel fram. Um eða yfir
2000 manns komu þar fram
sem þátttakendur í hópsýn-
ingum, skrúðgöngu íþrótta-
manna eða keppni.
Skrúðgangan
Vígsluathöfnin hófst með skrúð
göngu íþróttamanna. Fyrir henni
gengu fánaberar skáta með
fagra fánaborg 60 fána. Þeir tóku
sér stöðu við langhlið vallarins
en á miðjum leikvangi stóð fána-
beri íþróttamanna. í göngunni
tóku þátt velflest félög innan vé-
banda fþróttabandalags Reykja-
víkur og voru fánar félaganna
bornir í göngunni. íþróttafólkið
var á öllum aldri og úr öllum
Gunnar Thoroddsen
uðu fánakveðju og fylking íþrótta
manna gekk af vellinum.
Síðan hófust ræður og ávörp
og töluðu Jóhann Hafstein for-
maður Laugardalsnefndar, Gunn
ar Thoroddsen borgarstjóri, Gylfi
Þ. Gíslason, menntamálaráðherra
og Ben. G. Waage forseti ÍSÍ.
Á milli ávarpanna sungu Fóst-
bræður ættjarðarlög.
•Á Uppfyllir fyllstu skilyrði
í ræðu sinni skýrði Jóhann
Frá skrúðgöngu íþróttafólksins
Hafstein i stuttu máli starf Laug-
ardalsnefndar sem skipuð var 1.
apríl 1943. Kvað hann nefndina
nú skila af sér fyrsta hluta verk-
efnis síns sem verið hefði þrí-
þætt; umsjón með byggingu
íþróttaleikvangsins, undirbúning
ur byggingar sundlauga norður
af leikvanginum, en bygging
þeirra er hafin og í þriðja lagi
að undirbúa skipulagningu úti-
vistarsvæðis almennings í Laug-
ardalnum.
Jóhann sagði að undir iðja-
og framræslu hefði þurft og væri
holræsagerðin í Laugardal sú
stærsta sinnar tegundar á íslandi.
Jóhann gat helztu verktaka og
verkfræðinga og gat sérstaklega
Gísla Halldórssonar arkitekts
sem teiknaði mannvirki leik-
vangsins. Kvað Jóhann á engan
hallað þó fram kæmi að á eng-
um einum hefði meira mætt hið
mikla verk sem í Laugardal hef-
ur verið unnið en honum.
Jóhann kvað leikvanginn upp-
fylla allar fyllstu kröfur til
írþóttaiðkana. Hann rúmar nú
12—13 þús. áhorfendur en full-
gerður í framtíðinni um 30 þús-
und. í stúkunni væru vistarver-
ur íþróttafólksins og síðar yrði
það aðstaða til inniæfinga á vetr-
um. Heildarkostnað við verkið
kvað Jóhann vera um 16,5 millj.
og hefði Bæjarsjóður Reykjavík-
ur lagt fram meginhluta þess
Gylfi Þ. Gíslason
grænum feldi leikvangsins væru
mörg og kostnaðarsöm dagsverk
hulin því geysilega landþurrkun
Benedikt G. Waage
fjár. Jóhann kvað álagið á bæj-
arsjóð hafa orðið langt umfram
áætlun m.a. vegna þess að íþrótta
sjóður ríkisins ætti ógoldnar 4,7
millj. kr. til vallarbyggingarinn-
ar eins og hún væri nú miðað við
áætlaða þátttöku í framkvæmd-
unum. Þakkaði Jóhann bæjar-
stjórn Reykjavíkur sérstaklega
stuðning hennar.
Jóhann sagði að framkvæmd-
um við sundlaugarnar yrði nú
hraðað og væri hægt að verja
meginhluta áætlaðs framlags bæj
arsjóðs á þessu ári, 1,6 millj. til
þeirra framikvæmda.
Að svo mæltu afhenti Jóhann
f.h. nefndarinnar borgarstjóra f.
h. bæjarstjórnar völlinn og kvað
lþað von nefndarinnar að þessi
íþróttavöllur mætti verða grund-
völlur vaxandi menningar kom-
andi kynslóða Reykjavíkur og
landsins alls.
Megi Laugardalsleikvangur verða grund-
völlur vaxandi menningar komandi kyn-
slóða Rvíkur og
landsins alls