Morgunblaðið - 19.06.1959, Page 18

Morgunblaðið - 19.06.1959, Page 18
18 MORCTJNBLAÐIÐ Föstudagur 19. júní 1959 Óánægja með landsþjálfun — Karl þjálfari á förum? „Pressuleikurinn" önnur tveggja æfinga landsliðsins frá hvitasunnu ÍÞRÓTTASÍÐUNNI hafa borizt þær fregnir að þjálfari KSÍ, Karl Guðmundsson sem m. a. hefur þann starfa að þjálfa landsliðið, hafi beðið um lausn frá því starfi. Ástæðan er eftir því sem blaðið frétti, að Karl telur að þær áætlanir sem hann Iagði fram um þjálfun landsliðs- íns þá er hann tók starfann að sér, hafi í engu náð fram að ganga og hann hafi ekki fengið liðið til æfinga nema 1 sinni frá þvi á hvítasunnu að það dvaldist að Laugarvatni. Þessi eina æfing er „pressuleikurinn" á dögunum. (Síðan hefur verið æfing á Suð- urnesjum). ★ • ★ Iþróttasíðan hefur árangurs- laust reynt að ná til Karls. Hins vegar náði blaðið tali af Björg- vin Schram formanni KSÍ í gær- kvöldi. Hann kvað ekki hafa kom ið til uppsagnar en sem svar við spurningu, hvort einhverjir árekstrar hefðu orðið varðandi þjálfunarmálin sagði hann, að erfiðlega hefði gengið að fá daga til æfinga. En hvernig er ástandið hjá fé- lögunum. Sum þeirra hafa eng- an þjálfara og jafnvel þó þau hafi þjálfara þá falla niður æf- ingar um lengri eða skemmri tíma vegna kappleikjanna. Þetta er hin bitra reynsla hér á landi. En fleiri þjóðir en við leikum knattspyrnu — og eiga sterk landslið. Þar er niðurröðun leikja félaganna með allt öðrum hætti og í fastari skorðum. Þar eru ákveðnir leikdagar í hverri viku og ákveðnir æfingadagar. Það er ekki eins hér, allt í einum hræri- graut, heimsóknir, utanferðir og kappmót ásamt landsleikjum o.fl. Leiktímabilið hér er orðið svo skipað að full nauðsyn er á að ákveða leikdaga og þá fari fram 2—3 leikir samdægurs en þess á milli gefst félögunum full komið tóm til æfinga, því hjá félögunum á þjálfunum fást, samkv. margendurtekinni skil- greiningu KSÍ. sem og á mikið til síns máls. Þjálfunarskorturinn á sem sagt áreiðanlega rót sína að rekja til rangrar leikjaniðurskipunar. Úr þessu verður að bæta — annars eignumst við aldrei hvorki leikmenn sem hafa gagn, ánægju og sóma af íþrótt sinni, né heldur menn sem vilja leggja fram krafta sína til að árangur náist — því í skipulagsleysi og ringlureið vill enginn taka þátt. Þórólfur Beck er skærasta stjarna landsliðsins inn þessar mundir. — Vigsluhátiðin Framh. af bls. 8 Hafstein formann Laugardals- nefndar gullmerki ÍSÍ — æðsta heiðursmerki sambandsins'— sem vott þakklætis íþróttahreyfingar- innar fyrir framgöngu um bygg- ingaríramkvæmdirnar. ★ Glæsilegar sýningar Síðan hófust hópsýningar barna og unglinga. Fyrst sýndu yfir 500 stúlkur úr barnaskól- um Reykjavíkur undir stjórn Selmu Kristiansen. Þetta var glæsileg s.'ning og setti sinn mikla svip á vígsluhátíoina. — Sýndu þær ýmsar staðæfingar og uppstillingar við mikinn fögnuð áhorfenda. — Þúsundir fólks lofuðu þetta atriði að verðleikum. , Á eftir fylgdi sýning rúmlega 200 drengja úr barnaskólum Reykjavíkur undir stjórn Hann- esar Ingibergssonar. Hvarf sú sýning nokkuð í skugga hinnar fyrri, sem var helmingi fjöl- mennari, en drengirnir unnu og hjörtu áhorfendanna. Loks sýndu um 250 stúlkur úr gagnfræðaskólunum og Kvenna- skólanum auk Menntaskóla- stúlkna undir stjórn Guðlaugar Guðjónsdóttur. Sýndu þær fagr- ar uppstillingar og æfingar við hljóðfæraslátt. Lokaatriði sýn- ingar þeirrar mun seint gleym- ast viðstöddum. Án þess nokkur yrði var við undirbúning mynd- uðu stúlkurnar með röðum sín- um orðið ÍSLAND á grasfletin- um. Þarna var hámark hátíð- legrar vígslu. Loks sýndi hópur barna úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur Bera þau ummæli að sama brunni og hin óstaðfesta frétt um uppsögn Karls. Virðist full þörf á að þessi vandi KSÍ komi fram í dagsljósið og verði ræddur til hlítar. ★ • ★ „Landsliðið" mætir „blaða- liði" í Laugardalnum í kvöld Það er örlagarík ákvörðun hjá þjálfara áð tala um að láta af störfum vegna áhugleysis liðs- mnna eða forystumanna liðs þess er hann á að hugsa um. Til slíks kemur ekki nema þjálfarinn sjái flestar eða allar vonir sínar bresta. Eftir því sem við vitum bezt gengu áætlanir Karis út á það, að ein æfing yrði hjá landsliðinu vikulega og auk þess kæmu til einstaklingsæfingar eða æfingar landsliðsmanna í smærri hópum. Það er skiljan- legt að þjálfari grípi til örþrifa- ráða þegar áhugaleysi hjá liðs- mönnum og forráðamönnum — öðrum hvorum eða báðum — kemur fram. Nái landslið góðum árangri er það oft mikið þjálfar- anum að þakka, nái það slæm- um árangri má oft rekja það til þjálfarans að meira eða minna leyti. Samvizkusamur og ábyrg- ur þjálfari vill ekki láta nafn sitt verða bundið illa eða vanþjálfuðu liði. ★ • ★ Hvort sem fréttin um uppsögn Karls Guðmundssonar sem lands- liðsþjálfara er sönn eða ekki, gefur hún kærkomið tækifæri til umræðu um mál sem oft er lítill gaumur gefinn.Þjálfun landsliðs er mikið atriði, enginn grein íþrótta — og allra sízt knatt- spyrnan — getur átt góðu lands- liði fram að tefla, nema alvar- lega sé hugsað um þjálfun. ★ • ★ KSÍ á erfitt um vik. Það er fé- lítið samband en æfingar manna dreifðar þó ekki sé um stærra svæði en Faxaflóa eru kostnaðar samar ,ekki þó sízt vegna þess að margir þátttakenda í slíkum æfingum vilja litlu til fórna oft á tíðum. KSÍ hefur því oft tekið fram að það geti ekki byggt upp þjálfun landsliðsins — hana verði piitarnir að fá í félögum sínum í KVÖLD kl. 8,30 fer fram knattspyrnukappleikur á Laugardals- vellinum — sá fyrsti á þeim fagra velli á þessu ári. — Liðin sem mætast eru landsliðið (tilraunalið landsliðsnefndar) og lið er félagar í Samtökum íþróttafréttamanna hafa valið. Þetta er ein s'ðasta „æfingin" eða „tilraunin" fyrir landsleikinn við Dani sem verður að viku liðinni og er ekki að efa að marga fýsir að sjá hvemig til tekst. Liðin eru þannig skipuð. LANDSLIÐ: Heimir Guðjónsson KR > Hreiðar Ársælsson Rúnar Guðmannsson KR Garðar Árnason Hörður Felixson KR KR Ríkharður Jónsson Fram Sveinn Teitsson ÍA Ellert Schram ÍA Örn Steinsen KR Þórólfur Beck KR KR Þórður Jónsson ÍA © Gunnar Guðmannsson KR Sveinn Jónsson KR Ragnar Jónsson Gunnar Gunnarsson IBH Val Guðjón Jónsson Fram Helgi Jónsson Jón Leósson Guðm. Guðmundsson KR IA IBK Einar Sigurðsson Ámi Njálsson IBH Val Gunnlaugur Hjálmarsson Val Landsliðsnefnd gerir aðeins |síðasta „pressuleik", setur Hörð tvær breytingar á liði sínu frá Felixson í vörnina í stað Hall- 17. iúní mót irjálsíþróttamenna 17. JÚNÍ-MÓT frjálsíþrótta- manna hófst á Laugardalsleik- vanginum á vígsluhátíðinni, en lauk í gærkvöldi. Veður spillti keppninni mjög fyrri daginn en í gærkvöldi var veður gott. — Keppt var í 10 greinum fyrri daginn en 8 í gærkvöldi. Stórafrek voru engin unnin á þessu fyrsta móti á nýjum og I glæsilegum leikvangi. Frásögn af heildarárangri á mótinu verð- ur að bíða, en helztu afrek unnu Kristleifur Guðbjörnsson KR í 5 km hlaupi 15:43,6 mín., Val- björn Þorláksson og Guðjón Guðmundsson í 100 m hlaupi 11,0, Svavar Markússon í 1500 m hlaupi 3:57,4 mín., Jón Ólafsson í hástökki 1,80 m., Þórður B. Sigurðsson í sleggjukasti 49,36 m og Hallgrímur Jónsson í kúlu- varpi 14,42 m. dórs Halldórssonar og Ellert í innherjastöðu í stað Guðjóns. — Landsliðið virðist því vera orðið nokkuð ákveðið í augum nefnd- arinnar. Blaðamennimir hjálpa hins vegar upp á sakirnar. Þeir gefa tækifæri ýmsum sem em á „næstu grösum við“ landsxiðið, t. d. eins og Gunnar Guðmanns- son, Sveinn Jónsson, Guðjón Jónsson o. fl. Þá eru og gerðar athyglisverðar tilraunir t. d. með markvörð og v. bakvörð en Ein- ar reyndist traustur í þeirri stöðu í leik Suðurnesja við landsliðið á þriðjudagskvöldið. Takist þess- ar tilraunir með nýja menn í nýj- ijm stöðum vel, þó má búast við góðum leik. I framlínu „pressu- liðsins" er góðir einstaklingar, sem vel geta orðið landsliðsvörn- inni hættulegir — og sem sagt knattspyrnan er þannig að allt getur skeð og væntanlega verður völlurinn fullskipaður, og það er vonast eftir góðum leik, hvernig sem úrslitin verða. Víðavangshlaup meistaramótsins VÍÐAVANGSHLAUP Meistara- mótsins var háð í Borgarnesi 10. maí sl. og fór fram é vegum Ung mennasambands Borgarfjarðar. Var framkvæmd hlaupsins öll með hinum mesta myndarbrag. Vegalengdin var. um 4,2 km og urðu úrslit sem hér segir: 1. Haukur Engilbertsson, Umf. Reykdæla 13:08,4 mín. 2. Kristján Jóhannsson ÍR, 13:29,8 mín. 3. Hafsteinn Sveinsson, Selfossi, 14:00,6 mín. Kristján varð íslandsmeistari í þessu hlaupi sl. ár. nokkra þjóðdansa við góðar undirtektir. Að þessu loknu hófst íþrótta- mótið með keppni í hlaupum og stökkum. Verður nánar sagt frá því á íþróttasíðu blaðsins. —Sr. Jóhann Briem Framh. af bls. 6 hjón öllum, sem komu að Mel- stað, kunngum og ókunnugum og hvernig sem á stóð. Og allir áttu leið „heim að Melstað“. Verk- hraða og myndarskap frúarinnar við að búa gestunum beina var við brugðið. Og þó var heilsan löngum ekki sterk. Ágætustu prestkonur eru einhver mesta prýði kirkju þjóðarinnar, og þeg- ar ég hitti einhverja slíka, hugsa ég ætíð til frúarinnar okkar á Melstað. Nafnið Eyrarbakki fékk þegar á bernskuárum mínum sér lega fallegan hljóm, þar eð ég vissi, að hin góða og glæsilega prestsfrú, Ingibjörg ísaksdóttir Briem, var þaðan ættuð. Þar var og séra Jóhann í nokkur ár kenn- ari barna og unglinga eftir að hann varð kandidat 1907. Fór þann þannig þá leið, sem Lúther taldi æskilegasta, að prestar stunduðu almenna barnakennslu um skeið, til undirbúnings og stuðnings kennimannsstarfi sínu. Á Eyrarbakka mun hafa verið lagður grundvöllurinn að hinní farsælu og löngu sambúð prests- hjónanna á Melstað. Séra Jóhann Briem var einn af þeim prestum, sem eru á þann veg í innstu gerð og ytri sniðum, að hver maður hlýtur að segja við fyrstu sýn, livar sem þeim bregður fyrir augu: Þarna fer áreiðanlega kennimaður krist- innar kirkju; engin önnur starfs- stétt kemur til greina! Þannig gekk séra Jóhann sína beinu braut 42 ára prestþjónustu á sama stað, mjúkum og hljóðlát- um, st fnuföstum skrefum, horfði hvorki til hægri né vinstri til íhlutunar og afskipta af þeim málum, sem ekki voru í tengslum við aðalhlutverk hans. Sæmdur var hann heiðursmerki hinnar ís- lenzku fálkaorðu seint á starfs- tíma hans. Skyldurækni séra Jó- hanns í öllum embættisstörfum var eins og bezt verður á kosið. Oft þjónaði hann einnig nágranna prestaköllum um tíma. Veður og færð og líðan hans sjálfs öftruðu ekki áætlun hans. Reglumaður var hann í alla staði og kenndi gott frá sér í þeim efnum. Ekki er ofmælt, að hann átti traust og hylli allra í prestakallinu, og er hann varð sjötugur 1952, báðu þeir hann að vera lengur. Var hann því 2 ár í viðbót. Síðan fluttu þau hjón til Rvíkur. Þar hafa synir þeirra búið alllengi, Steindór, skrifstofumaður og Sig- urður fulltrúi í Stjórnarráðinu. Camilla dóttir þeirra hefur verið með foreldrum sínum, en Ólöf er hjúkrunarkona í Danmörku. Þegar minningar frá Melstað eru raktar, er ánægjulegt að minnast þessara fjögurra prúðu og mynd- arlegu barna, sem voru að vaxa þar upp. Við biðjum þeim og móður þeirra allrar blessunar nú og um alla framtíð. Að lokum hugsa ég um kveðju handtak séra Jóhanns Briem, sem ég held að öllum sé minnisstætt, svo óviðjafnanlega persónulegt, traust og þó dúnmjúkt og milt og með þeirri umfaðmandi hlýju, sem hinum fáu eru gefin. Ég kveð þig þá, vinur, og man þegar þú fólst litla barnshönd í sterkri hendi, — man allar þínar kveðjur síðan. Ég mun aftur mæta hand- taki þínu á landi lifenda. Helgi Tryggvason. AKRANESI, 18. júní. — Þrír bátar fóru héðan norður á síld í dag. Eru það Skipaskagi, Ólafur Magnússon og Bjarni Jóhannes- son. Þetta eru fyrstu bátarnir, sem fara norður. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.