Morgunblaðið - 23.06.1959, Blaðsíða 1
24 síðuR
Olíuhneykslið á Keflavíkurflugvelli — og
„slysaskotið", sem hanaði V-stjórninni
ÞjóBviljinn viðurkennir Ólögleg „abatasöm viB-
skipti", sem Hermann lét ekki rannsaka vegna
kröfu kommúnista
FYLGISMENN V-stjórnar-
innar keppast nú við að gefa
upplýsingar um hver hafi ver-
ið orsök hins „sviplega og
dularfulla dauða hennar“,
eins og Skúli Guðjónsson á
Ljótunarstöðum kemst að orði
í Þjóðviljanum sl. sunnudag.
Skúli játar, að „heilsufar
stjórnarinnar“ hafi ekki verið
„sem ákjósanlegast á ofan-
verðum ævidögum hennar“,
en telur dauðann þó hafa ver-
ið sér „ráðgátu“. Nú segir
hann sig hafa fundið lausn-
ina:
„Skelkur“ og „ofmat
eigin verðleika“ veldur
„slysaskoti“
„Sjálfur er ég þeirrar skoðun-
ar, að hér hafi að vísu ekki verið
um vísvitandi sjálfsmorð að
ræða, heldur nokkurskonar
slysaskot ,að forsætisráðherrann
hafi í rauninni ekki ætlað að
stytta stjórnininni aldur, heldur
hafi hann gjört það í ógáti, farið
óvarlega með hættulegt voþn,
þannig að slys hlauzt af“.
Skúli gerir síðan grein fyrir
„hvert hið hættulega vopn hafi
verið“ og eru þær hugleiðingar
hans raktar í Staksteinum í dag.
Niðurstaða Skúla skiptir hér máli
sú, að þarna hafi ráðið ofmat
Framsóknar á „eigin verðleik-
um“.
Slysaskot verða ekki síst, ef
skelkur grípur þann, sem á byss-
unni heldur. í Alþýðublaðinu
H e r m a n n
fyrirskipaði ekki rannsókn
„hinna ábatasömu við-
skipta“ kommúnista,
fyrirskipaffi ekki rannsókn á
fjáröflun Alþýðublaffsins,
vildi affgerffarleysi í olíu-
hneykslinu.
hinn 23. maí er frá því skýrt, að
skelkur hafi gripið foringja Fram
sóknar um þessar mundir. Rit-
stjóri Alþbl. er Benedikt Grön-
dal, alþingismaður, og fyrrum rit
stjóri Samvinnunnar og þar með
upplýsingastjóri SÍS. Skýring
Alþýðublaðsins á hinni „dular-
fullu“ dánarorsök er þess vegna
hin merkilegasta en hún er þessi:
„Nú höfðu þau tíðindi gerzt
suður á Keflavíkurflugvelli, sem
höfðu megináhrif á viðhorf Fram
sóknarmanna, að hafin var rann-
sókn á starfsemi Olíufélagsins og
HÍS á flugvellinum. Mundu for-
ustumenn Framsóknar vel fyrri
olíumál og voru alvarlega skelk-
aðir við fleiri slík skakkaföll".
Þessi og aðrar uppljóstranir
V-stjórnarblaðanna fyrrverandi
um hin og þessi afbrotamál, sem
;nr mannsæmandi leikreglur
Jóhann
Hafstein
„ÞAÐ er einlæg sannfæring mín, aff nái
nú fram aff ganga kjördæmabreyting í
meginatriðum eins og stjórnmáiaflokkarn-
ir þrír hafa tjáff sig samþykka, — sé þess
aff vænta, aff framundan séu þáttaskii í ís-
lenzkum stjórnmálum. Viff þurfum nýjar,
mannsæmandi leikreglur í stjórnmálabar-
áttunni, sem tryggja, aff á þeim vettvangi
þjóðlífsins sé að minnsta kosti sæmilega
hátt til Iofts og vítt til veggja".
) tír ræffu á fundi Stúdentafélags Reykjavíkur þ. 13. jan. 1959.
þögguð voru niður stjórnarflokk-
unum til hagsmuna á víxl, gefa
ömurlega mynd af réttarástand-
inu, sem V-stjórnin leiddi yfir
þjóðina, ásamt því, sem þær
skýra „slysaskotið“.
Hin „ábatasömu við-
skipti“ ekki rannsökuð
Gjaldeyrissvindl kommúnista
í sambandi við æskulýðsmótið í
Moskvu 1957 er berum orðum
játað í Þjóðviljanum í fyrradag
með svofelldum orðum:
„-------er ekki að efa að ein-
hverjir þátttakendur í mótinu
Deila Adenauers og Erhards
hlossar upp á ný
Bonn, 22. júní.
MARGT bendir nú til þess, að
á morgun muni slá í brýnu
með þeim Adenauer kanslara
og Erhard, efnahagsmálaráð-
herra, en þá kemur fram-
kvæmdanefnd þingflokks
Kristilegra demókrata saman
í Bonn til þess að gera út um
deilu þeirra. Nokkrir forystu-
menn úr hópi þingmanna
Kristilegar demókrata rædd-
ust við í dag til þess að undir-
búa fundinn á morgun.
★
Sem kunnugt er reis mikil
deila með þeim Adenauer og Er-
hard, þegar Adenauer, sem
ákveðið hafði að láta af kanslara-
embætti og bjóða sig fram til for-
setakjörs, hætti skyndilega við að
gefa kost á sér sem forsetaefni
Fi amh. á bls. 23.
L ú ff v í k
vildi enga rannsókn hinna
„ábatasömu viffskipta“,
sætti sig viff enga rannsókn á
fjáröflun Alþýffublaffsins,
samdi um olíuokrið 1956.
hafa útvegað sér gjaldeyri á svört
um markaði; slík viðskipti hafa
verið altíð um langt skeið — og
ábatasÖm fyrir ýmsa auðmenn
Sjálfstæðisflokksins, hermangara
og heildsala.
Hins vegar er gjaldeyrissala í
sambandi við ferðalög smá-
mál-----------“.
Trúi hver sem vill, að það hafi
verið af hlífð við „auðmenn" úr
Sjálfstæðisflokknum, að komm-
únistar heimtuðu á sínum tíma,
að þessi ,,ábatasömu“ viðskipti
yrðu ekki rannsökuð.
Fyrir kommúnista var auðvitað
mikilsvert að tryggja sér að þeir
yrðu ekki truflaðir í neyzlu
„ábatans". Hitt var þó enn þýð-
ingameira, að allar líkur eru til,
að með skeleggri rannsókn þessa
máls hefði verið unnt, að varpa
Ijósi yfir fjáröflunarleið komm-
únistadeildarinnar hér frá höfuð
stöðvunum í Moskvu. Ef svo
hefði farið, þá gat sjálfri lífæð
flokksins verið hætt. Skiljanlegt
er þess vegna, að kommúnistar
vildu mikið til vinna og legðu
hart að Hermanni Jónassyni að
fyrirskipa enga rannsókn á þess-
um „ábatasömu viðskiptum“.
Þakklætið fyrir það hefur hjálp-
að til að sætta kommúnistaráð-
herrana við olíuokur SÍS vetur-
inn 1956—57 og ýmislegt fleira,
sem með ólíkindum þótti, að þeir
léðu stuðning sinn við.
Fjáröflun Alþýðublaðs-
ins ekki rannsökuð
Hermann varð við kröfu komm
únista. Engin rannsókn á hin-
um „ábatasömu viðskiptum" var
fyrir skipuð. Eftir að hafa gert
öðrum samstarfsflokknum slíkan
stórgreiða, hefur Hermanni ekki
fundizt nema sanngjarnt, að
hann sýndi hinum samstarfs-
flokknum svipaða greiðasemi.
Ekki síst, ef hún gat einnig kom
ið vinum hans á meðal kommún-
ista vel.
Þjóðviljinn býsnast nú dag
hvern yfir því, að ekki skuli hafa
verið fyrirskipuð rannsókn út af
fé því, sem runnið hafi fyrir
milligöngu séra Ingimars Jóns-
sonar úr sjóðum Gagnfræðaskóla
Austurbæjar til Alþýðublaðsins.
Guffmundur 1.
sætti sig viff enga rannsókn á
„ábatasömum viffskiptum“
kommúnista,
vildi enga rannsókn á fjáröflun
Alþýffublaffsins,
vanþakkaffi „verffleika“ Fram-
sóknar.
Það var Hermann Jónasson, sem
fyrirskipaði að þau „viðskipti"
skyldu ekki rannsökuð nánar.
Þjóðviljinn fer ekki dult með,
að þar hafi ráðið hlífð við for-
ystumenn Alþýðuflokksins.
„Hannibal
er með plöggin“
Alþýðublaðið telur aftur á
móti, að rannsóknin mundi ekki
sízt hafa beinzt gegn Hannibal
Valdimarssyni. Hann hafi plögg-
in og megi manna bezt um þetta
vita. Hannibal sjálfur viður-
kennir, að hafa verið for-
maður Alþýðuflokksins og Al-
þýðublaðsins á því tímabili
sem hið heimildarlausa fé hafi
runnið til fyrirtækja flokksins.
Þrátt fyrir viðurkenningu sína á
þessum staðreyndum, er Hanni-
bal hinn reiðasti yfir, að þær
skuli hafa verið dregnar fram
og hótar því, að hefja mál gegn
Alþýðublaðinu vegna 20—40 þús.
króna, sem hann telúr áskorta
svo að hann hafi fengið allan
sinn hlut af því fé, sem blaðið
hafði yfir að ráða á þessum árum.
Ein af skýringum Alfreðs
Gíslasonar í Þjóðviljanum hinn
16. júní á því, af hverju þeir fé-
lagar hafi 1956 snúizt gegn sín-
um fyrra flokki ,er „versnandi
/járhagur" hans. Þetta var 2 ar-
um eftir að „fjárútvegun" úr
sjóðum Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar lauk.
Foringjar Alþýðuflokksins hafa
þess vegna talið, að fyrirskipun
Hermanns um, að engin rann-
sókn væri gerð í þessum efnum
væri ekki einhliða fyrir sig, held-
ur ekki síður fyrir Hannibal. Um
hitt er ekki deilt, að þeir höfðu
ekkert út á aðgerðarleysi Her-
manns í þessu að setja. En komm
únistar sættu sig einnig á meðan
þeir voru í stjórn við aðgerða-
leysi Hermanns í þessu máli.
Sennilega hefur tillitið til Hanni
bals ráðið þar nokkru um ásamt
endurminningunni um samskon-
ar framkomu Hermanns við þá
út af hinum „ábtasömu við-
skiptum" 1957.
Vanþökkuðu
„verðleika“ Framsóknar
Frásögn Alþýðublaðsins hinn
23. maí s.l. sýnir hins vegar, að
Alþýðuflokksmönnum hefur ver-
ið meira en nóg boðið, þegar
upp komst um síðasta olíu-
hneykslið : Keflavíkurflugvelli.
Þar heyrði ákvörðunin undir
Guðmund í. Guðmundsson.
Hermann Jónasson hefur aftur á
móti talið sig eiga það inni hjá
samstarfsmönnum sínum, að þeir
gerðu honum þarna greiða í stað
þess, sem hann hafði fyrir þá
gert. Þar „ofrnat" hann „verð-
leika“ Framsóknar ,eða þakklæti
samstarfsmanna sinna og „slysa-
skotið“ reið af.
Víst er þetta ófögur saga og
líkari, að hún hafi gerzt í saka-
mannanýlendu en Stjórnarráði
íslands. En hún er rakin eftir
blöðum V-stjórnarflokkanna að
undanförnu. Af þeim verður ekki
annað séð en V-stjórnarherrarn-
ir hafi haldið að Stjórnarráðið
væri enn ætlað fyrir samskonar
fólk og það var í upphafi reist
fyrir.
Þriðjudagur 23. júní
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Sjálfstæðisflokkurinn einn kem
ur konu á þing. Frásögn af
Hvatarfundi.
— 6: Hitaþörf Hvergerðinga.
— 8: Frásögn af biskupsvígslu.
—- 10: Stundar nám í leikskóla og
málanám í háskóla. Samtal við
Sigríði Geirsdóttur.
— 11: Samvinna og samstaða er tfl
bóta fyrir héröðin. Fjórir Ey-
firðingar ræða um kosninga-
mál
— 12: Ritstjórnargreinarnar: Minna
fé og færri íbúðir. — Framsókn
hækkaði skuldir sjóða bænda
um 45 millj. kr.
— 13: Pétur Benediktsson: Glöggt or
það enn hvað þeir vilja.
— 22: íþróttir.