Morgunblaðið - 23.06.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.06.1959, Blaðsíða 23
Mánudagur 23. júní 1959 MORGUNBLAÐIÐ 23 // Uppreisn44 í Tjarnarbíó SÁ ATBUHÐUR gerðist á sunnu- dagskvöldið að sjösýningargestir í Tjarnarbíói neituðu að fara heim og rýma húsið fyrir gest- um á níusýningu, sem biðu frammi í anddyrinu. Var ekki foúið að rýma húsið fyrr en á seinni hálftímanum í tíu og hófst „níusýning“ um tíu leytið. Tildrög þessa kynlega atburðar eru þau, að sýningarmenn bíós- ins voru í fríi og leysti þá af ut- anaðkomandi maður, sem þó hef- ur full réttindi til að sýna kvik- myndir. Er á sýninguna leið tókst honum heldur óhönduglega, spólan sliL.aði hvað eftir annað. Er sýningunni loks var lokið, neitaði helmingur bíógesta að fara fyrr en þeir hefðu séð seinni hluta myndarinnar aftur. Voru lögregluþjónar kvaddir á vett- vang, en þeir vissu ekki hvað þeir áttu í málinu að gera. Sátu bíógestir sem fastast, þrátt fyrir áskoranir —- að víkja, og fóru V öruf Ititningabíll valt út í sjó í KVÖLD voru tveir starfsmenn Vöku með öflugan kranabíl upp hjá Þyrli, og biðu eftir því að út fjaraði í firðinum. Þá skyldi hefjast björgunarstarf, við að ná upp á veginn vöruflutningabíl, sem oltið hafði 30—40 m. um há- degisbilið og lent út í sjó. Einn maður hafði verið í bíln- um og hafði hann komizt hjálp- arlaust út úr og alveg óskadd- aður. Búizt var við að kranabíllinn kæmi til Reykjavíkur með vöru- bílinn í nótt. — Minning Framh. af bls. 15. samfelldur kliður gamla og nýja tímans undir handleiðslu prúð- mennisins, sem nú er látinn. Starfsfólk Bæjarútgerðar Reykjavíkur, æðri sem lægri, þakka Friðfinni Gíslasyni, aðal- verkstjóra, samstarfið. Það minn- ist ljúfmennsku hans í samstarf- inu, leiðbeininga hans og sam- vizkusemi, sem kom fram í öllu því, sem hann tók sér fyrir hend- ur meðan heilsa entist. Það sendir eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum, inni- legar samúðarkveðjur og biður þeim blessunar. Hvíl í friði, látni samstarfs- maður, þökk fyrir samfylgdina. Jón Axel Pétursson. ekki fyrr en miðum á mánudags- sýningar hafði verið dreift til þeirra. Hófst þá níusýningin kl. 10 eins og áður er getið. í gær komu svo hinir óánægðu bíógestir á sýningar kvikmynda- hússins eða fengu nýju miðana endurgreidda — ánægðir með ár- angurinn af uppreisninni. Vanguard III CANAVERAL-höfða, 22. júní. — Bandaríkjamenn skutu í kvöld Vanguard III út í geiminn. Hlut- verk þessa nýja „gervihnattar" er að mæla hitaútgeislun jarðar og sólar — og á hann að ganga um- hcerfis jörðu 12 sinnum á sólar- hring. Ef allt gengur samkvæmt áætlun munu upplýsingar þær, sem Vanguard veitir verða mjög mikilsverðar vísindamönnum. Sjálft „gervitunglið“ vegur lið- lega tíu kíló — og í hnettinum eru margbrotin mæli- og sendi- tækl. — Féll niður af vinnu pöllura og slasaðist UM hádegisbilið í gær varð það slys við hina nýju Langholts- kirkju, að annar verkstjórinn við bygginguna, Bergþór Theó- dórsson, féll niður af vinnupöll- um og var fluttur á Slysavarð- stofuna. Leið honum í gærkvöldi vel eftir atvinkum. Slysið vildi til með þeim hætti, að Bergþór var að ganga niður stiga er hann fékk aðsvif og féll niður. Fór hann gegnum tvo vinnupalla og braut þá, en þeir munu samt hafa tekið af honum mesta fallið. Ekki var í gærkvöldi búið að ganga úr skugga um meiðsli hans, en hann var óbrot- Maðiir á reiðlijóli slasast SÍÐDEGIS á sunnudagskvöldið varð slys hér í Miðbænum á horni Vesturgötu og Grófarinnar. Vörubíll ók á mann á reiðhjóli, Óskát Pétursson Barmahlíð 15. Er það maður um fimmtugt. Fékk hann mjög slæma byltu og höfuðhögg svo mikið, að hann var rænulaus í nær sólarhring. Kom töluverður áverki á höfuð hans. Þá hlaut hann opið bein- brot um ökla. Óskar var fluttur í Landsspítalann. Gangið í Heimdall EINS og áður hefur verið skýrt frá, er hafin víðtæk söfnun nýrra félaga í Heimdall, félag ungra Sjálfstæðismanna. Er gert ráð fyrir, að þessari söfnun Ijúki á kjördag. Skv. 4. gr. félagslaga geta allir Sjálfstæðismenn á aldrinum 16—35 ára orðið meðlimir í félaginu. Sjálfstæðisflokknum er að sjálfsögðu mikill styrkur í, að sem flestir fylgismanna hans gangi í eitthvert sjálfstæðisfélag. Þess vegna hvetur Heimdallur allt reykvískt æskufólk, sem stuðla vill að sigri Sjálfstæðisflokksins, að ganga í félagið. Það er hægt að gera með því að klippa út meðfylgjandi seðil og senda hann útfylltan til skrifstofu Heimdallar, Valhöll, Suður- götu 39. — Ég undirritaður(uð) óska að ganga í Heimdall, félag ungra Sj álf stæðismanna. NAFN: .............................. F.d. HEIMILI: ............................... SÍMI: VINNUSTAÐUR: ..............SKÓLI: Tögarinn Ágúst í árekstri HAFNARFIRÐI — Fyrir helgina komu hingað tveir togarar af Nýfundnalandsmiðum: Röðull seint á föstudagskvöld með full- fermi og talsvert á dekki, Agúst á laugardag og var lokið við að landa úr honum um miðnætti þann dag. Varð hann að leggja af stað heimleiðis áður en hann hafði náð fullfermi, vegna þess að hann lenti í árekstri við tog- arann Svalbak frá Akureyri, þar sem þeir voru að toga á miðun um. Mun stjórnborðssíða Ágústs hafa skemmzt talsvert, en þó ekki það mikið að hann þyrfti á að- stoð að halda til að komast heim. Var farið með togarann í slipp þegar að löndun lokinni sl. laugar dag, og er talið að það taki a. m. k. hálfan mánuð að gera við skemmdirnar. Síldarbátarnir eru nú farnir norður, en þeir eru um 10 tals- ins, og hafa þrír þeirra þegar fengið síld. Tveir bátar stunda héðan reknetjaveiðar og hafa stundum fengið dágóða veiði. — G. E, — Deila Adenauers Framhald af bls. 1. flokks síns. Dró hann enga dul á það, að hann óttaðist að eftirmað ur hans mundi ekki fær um að halda dyggilega á stjórnartaum- unum. Þá var orðið ljóst, að meiri hluti þingflokks Kristilegra demó krata hafði skipað sér undir merki Erhards — og ákveðið að kjósa hann í kanslaraembættið. Og Erhard brást þunglega við. Formælandi þingflokks Kristi- legra demókrata, Heinrich Krone, lét svo um mælt að afloknum fundinum í dag, að hann hefði nýverið flutt Erhard bréf frá Adenauer — og var á honum að skilja, að hér væri um mikilvæga orðsendingu að ræða. Ekki vildi hann þó ræða efni hennar. Krone sagði hins vegar, að ekki yrði auðvelt að leysa deilu þeirra. ★ Orðrómur er á kreiki þess efnis, að nokkrir þingmenn Krstilegra demókrata hyggist taka höndum saman við stjórnar- andstöðuna til þess að koma Adenauer úr kanslaraembættinu — og gangast síðan fyrir því að Erhard verði falið embættið. ★ Erhard á miklu fylgi að fagna meðal forystumanna flokksins um allt landið. Jafnframt nýtur hann stuðnings fjársterlcari afla flokksins að því að talið er, en Erhard er manna mest þökkuð hin blómlega efnahagsþróun í V- Þýzkalands síðan í styrjaldar- lokin. Enda þótt Erhard eigi hauka í horni í þingflokknum á Adenauer að því er virðist öflugra fylgi þar — og meðal hinna almennu kjósenda flokksins hefur Aden- auer hingað til átt öflugu fylgi að fagna. Fullvíst er talið, að sambands- nefnd Kristilega demókrata- flokksins komi saman til þess að ræða deilu þeirra Adenauers og Erhards. Svo virtist sem þeir hefðu sætzt að fullu eftir heimkomu Erhards, en í viðtali við frétta- mann New York Times gekk Adenauer svo langt að vefengja stjórnmálahæfileika Erhards. — Þótti Erhard þá nóg komið — og hafði jafnvel á orði að segja af sér, ef hann fengi ekki leiðrétt- ingu mála sinna. ★ Um helgina sagði Adenauer svo í viðtali: Ég er formaður flokksins — og það verð ég. Dró hann enga dul á það, að hann mundi ekki láta hlut sinn fyrir Erhard fyrr en í fulla hnefana. Kvaðst Adenauer mundu gegna embætti til næstu þingkosninga, sem fram eiga að fara 1961 — og ef flokkur hans ynni þær kosn- ingar mundi hann sjá til þess að áhrifa hans gætti enn um skeið ' í stjórn V-Þýzkalands. Við þökkum auðsýnda vináttu á 60 ára afmæluni okkar 29. maí og 5. júní s.L Lárus Halldórsson, Kristín Magnúsdóttir. Alúðar þakkir til ættingja, vina og samherja erlendra og innlendra, sem á margvíslegan hátt heiðruðu mig á sjötugs-afmæli mínu 14. júní s.L Ben. G. Waage. Lokað vegna jarðarfarar kl. 1—íVi- Matardeildin Hafnarstræti 5. Faðir okkar ÞÖIÍÐI K GEIRSSON Suðurgötu 26, andaðist í Landakotsspítala 22. júní. Börnin. Hjartkær eiginkona mín, móðir og dóttir ALGA EGILSDÓTTIR lézt í Landsspítalanum að kvöldi 21. júní. Marteinn Jónasson, Agla Marta Marteinsdóttir, Jóhanna Lárusdóttir. Systir mín ^ SIGRlÐUR JAKOBSDÓTTIR andáðist 20. þessa mánaðar. Guðrún Jakobsdóttir. GUÐRON jónsdóttir Veltusundi 3B, andaðist á Landakotsspítala þ. 21. þ.m. Jarðarförin tilkynnt síðar. F. h. aðstandenda. Ingvar Ingvarsson. Jarðarför mannsins míns EGGERTS JÓNSSONAR kaupmanns, Óðinsgötu 30, sem andaðist 17. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. júní kl. 2 e.h. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Sigurbjörg Pálsdóttir. Móðir okkar MJRÍÐUR HELGADÓTTIR frá Borgarnesi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 24. þ.m. kl. 10,30 f.h. Bömin. Faðir okkar MAGNtS MAGNUSSON verkstjóri, Melshúsum, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. júní kl. 2 e.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Böra hins látna. Eiginmaður minn SVERRIR ÁSKELLSSON málarameistri, se mandaðist 18. þ.m. verður jarðsungin fimmtudaginn 25. júní kl. 2 e.h. frá heimili sínu Vesturgötu 129 Akra- nesi. Halldóra Oiafsdóttir. Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinsemd við fráfall systur okkar KRISTlNAR BLÖNDAL Systkinin frá Gilsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.