Morgunblaðið - 23.06.1959, Side 2

Morgunblaðið - 23.06.1959, Side 2
2 MORCVWRLAÐ1Ð Mánudagur 23. júní 1959 Mikill fjöldi kennimanna sæk- ir prestastefnuna Enn vantar um milljón kr. til að fullgera Skálholtskirkju PRESTASTEFNAN var sett í Kapellu Háskólans kl. 2 í gær. Hófst athöfnin með því að lista- mennirnir dr. Páll ísólfsson og Þórarinn Guðmundsson, léku saman á fiðlu og orgel. Biskupinn yfir íslandi, herra Ásmundur Guðmundsson las niðurlag kafla Jóhannesarguðspjalls og bað bæn ar. Síðan var sunginn sálmurinn: „Vér komum saman á kirkju- fund“. Að lokinni setingarathöfninni var gengið til dagskrár í hátíða- sal Háskólans. Þar flutti biskup, herra Ásmundur Gumundsson, skýrslu um störf og hag kirkj- unnar á liðnu synodusári. Kom þar m.a. fram, að vígðir hafa ver- ið þrír guðfræðingar og af þeim hafa tveir farið til Vesturheims, en þrír prestar hafa hætt prest- skap á árinu. Alls eru 12 presta- köll óveitt. Tvær kirkjur voru vígðar, kirkja Óháða safnaðarins og kirkjan í Borgarnesi, en marg- ar eru í smíðum eða hafa fengið ágætar endurbætur. Um Skál- holt sagði biskup, að smíði kirkj- unnar þar væri skemmra á veg komin en æskilegt væri. í fyrra voru veittar til verksins 120000., en 500 þús í ár. Er áætlað að enn vanti um eina milljón kr. til að ljúka smíði kirkjunnar. Vonir standa til að hinir fögru gluggar, sem Gerður Helgadóttir hefur gert uppdrátt að, komi með haust inu, en sem kunnugt er hafa tveir danskir íslandsvinir gefið þessa glugga. Messur í þjóðkirkjunni á ár- inu voru alls 4663, en árið áður 4468. Messur fríkirkjuprestanna þriggja voru 127. Altarisgestir í þjóðkirkjunni árið sem Ieið voru 10,314, en voru 9,032 í fyrra. Biskup gat þess, að ánægjulegt væri til þess að vita, að á undan- förnum árum hefðu húsvitnanir presta stóraukizt. Að lokum flutti séra Pétur Sig- Urgeirsson, prestur á Akureyri, framsöguerindi um aðalmál prestastefnunnar, sem er „Kirkj u vika". Dr. Franklin C. Fry, forseti Lútherska heimssambandsins heimsótti prestastefnuna og flutti þar snjalla ræðu. Mikill meirihluti presta lands- ins situr prestastefnuna að þessu sinni. Prestastefnan heldur áfram í dag og hefst með bæn, sem séra Jón Thorarensen flytur í Kapellu Háskólans kl. 9,30. „Svikið heíur þoð uldrei“ j \ __ N \ „SVIKIÐ hefur það aldrei, hvorki málefni né samherjaw, sagði Í í Alfreð Gíslason um flokk sinn, „Alþýðubandalagið", á fundi í | | þessum mánuð'i. Athugum Þjóðviljann, sem út kom daginn fyrir síðustu • Alþingiskosningar. \ Þar stóð: \ ^ „En alþýðan setur sín föstu og afdráttarlausu skilyrði fyrir s myndun vinstri stjómar. I 1. Engin vinstri stjóm verðnr mynduð um stefnu Eysteins \ s Jónssonar í efnahagsmálum og skattamálum. i 2. Engin vinstri stjórn lætur viðgangast að kjör vinnandi ^ s fólks versni sífellt vegna dýrtiðar og aukinna skatta". Raunin varð sú, að engin stjórn hefur hrjáð þjóðina með | J annarri eins eysteinsku og V-stjórnin gerði. Á valdatíma hennar j ) hækkaði verðlagið um 2414% og skattarnir á þjóðinni um 1250 • • milljónir króna. Hvað voru það annað en svik við málefni og \ \ samherja? I \ I Vatnsfiaumurinn gegnum arhlíðina stöðvaður í Drátt- dag Kosningaskrifstofan í Kópavogi er að Melgerði 1. — Skrifstofan er opin frá kl. 10—22 e. h. Símar: 19708 — 24626. Kosningaskrifstofan á Seltjarnarnesi er í Útsölum. Opin daglega frá kl. 7—10 sd. Sími 14434. f DAG verður búið að gera nýj- an varnargarð og stöðva mesta flóðið gegnum Dráttarhlíðina við Efra-Sog, að því er Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, tjáði blaðinu í gærkvöldi, en hann er formaður stjórnar Sogsvirkjunar- innar. Mun því ekki koma til raf- magnsskorts af völdum óhappsins 17. júní. En tafir við virkjunina við Efra-Sog eru áætlaðar hálfur annar mánuður. Skýrði Gunnar Thoroddsen svo frá, að stjórn Sogsvirkjunarinnar. hefði haldið fund í gærmorgun um óhappið við virkjunina, er varnargarðurinn brast 17. júní. Þar fluttu skýrslur um málið þeir Steingrímur Jónsson, raf- magnsstjóri, A. B. Berdal, verk- fræðingur, sem verið hefur ráðu- nautur við allar Sogsvirkjanir, og fulltrúar verktaka, þeir Kai Lang vad og Árni Snævar, verkfræðing ar. Hefur Sogsstjórnin og ráðu- nautar hennar fylgzt vel með gangi málsins frá upphafi. Hefur Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik AÐALSKRIFSTOFUR Sjáifstæðishúsið, sími 17100. Valhöll Suðurgötu 39, sími 18192 — 17100. HVERFASKRIFSTOFUR: 1. Vesturhæjarhverfi: Morgunblaðshúsinu, H. hæð, simi 23113. 2. Miðbæjarhverfi: Breiðfirðingabúð, simi 23868. 3. Nes- og Melahverfi: KR-hús, simi 23815. 4. turbæjarhverfi: -rfisgötu 42, sími 23883. 5. Norðurmýrarhverfi: Skátaheimilinu við Snorrabraut, simi 23706. (. Hlíða- og Holtahverfi: Skipholti 15, simi 10628. 7. Laugarneshverfi: Sigtún 23, simi 35343. 8. Langholts- og Vogahverfi: Langholtsveg 118, sími 35344. 9. Smáíbúða og Bústaðahverfi: Breiðagerði 13, sími 35349. Hverfaskrifstofumar eru allar opnar frá kl. 2 e. h. til 10 e. h. daglega og veita allar upplýsingar varðandi kosn- ingamar. — Stuðningsfólk D-listans er hvatt til að hafa samband við kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins. verið unnið sleitulaust að því að stöðva hinn gífurlega vatnsflaum inn göngin og gera ráðstafanir til að bæta tjónið og draga úr afleið- ingum þess. Sagði borgarstjóri í gærkvöldi, að nýi varnargarð- urinn yrði tilbúinn og flóðið að mestu stöðvað í nótt eða í síðasta lagi í dag. Þingvallavatn mun þá hætta að laekka, en lækkunin hef ur orðið samtals um 85 sm. Fer vatnið síðan aftur að hækka, um nálægt 4 sm. á sólarhring, og nær fyrra vatnsborði eftir um það bil þrjár vikur. Mun Sogið þá hafa fengið eðlilegt rennsli aftur. Hafa framkvæmdirnar gengið vonum framar. Borgarstjóri kvað engar skemmdir hafa orðið á Ljósafoss- og írafossvirkjununum. Báðar virkjanirnar hefðu enn nægilegt vatnsmagn til orkuframleiðslu og mundu hafa það framvegis, þann ig að ekki kæmi til þess að raf- magnsskortur yrði, nema að Á- burðarverksmiðjan fengi nú um skamman tíma sennilega nokkru minni næturorku en áður. Samkvæmt samningi og vinnu- áætlunum átti virkjun Efra-Sogs að vera lokið 1. nóv. og vatni þá hleypt á til reynslu, en raforku- framleiðsla hefjast 15. nóv. Telja verkfræðingar að óhappið muni valda tveggja mánaða töfum, en verkinu megi hraða með sérstök- um ráðstöfunum um hálfan mán- uð, þannig að raunveruleg töf verði hálfur annar mánuður. Er því gert ráð fyrir að stöðin geti tekið til starfa um áramót. Ó Ð U M styttist tíminn til kosninga. Eru því að verða síðustu forvöð að senda áskor- unarseðlana. Veltan er í fullum gangi. Fjárö flunamefnd Sjálfstæðisflokksins, Morgunblaöshúsinu. Kassem snýst gegn kommúnisfum Dregur til tíðinda í írak ? LONDON, 22. júní. — Fullvíst þykir, að Kassem, forsætisráð- herra Iraks, ætli nú að reyna að hreinsa til í herbúðum sínum og fjarlægja kommúnista úr mikil- vægum stöðum. Skýrt var frá því í Bagdad i dag, að A.B. Kadhem, yfir- maður lögreglu borgarinnar, hefði verið látinn víkja úr þeirri stöðu, en fengin staða eftirlits- manns í stjórn lögreglu landsins. Maður þessi er gamall kommún- isti. Honum hafði verið vikið úr hernum fyrir þær sakir fyrir bylt inguna í júlí s.l. ár. Engin sér- stök ástæða var gefin fyrir brott vikningu Kadhem. Mikill straumur fólks að Efra Sogi um helgina MIKILL fjöldi fólks brá sér á sunnudaginn austur að EfraSogi, til þess að sjá með eigin augum skemmdir þær er þar urðu á þjóð hátiðardaginn. Allan daginn var mikill bílastraumur um Þing- velli, þangað austur. Á vegin- um inn undir Vellnajökul, varð mjög harður árekstur milli tveggja fólksbíla. Stórskemmdist annar þeirra, nýlegur Volvo. Þessi árekstur hafði í för með sér að vegurinn lokaðist og varð ferðafólk í öðrum bílum að bíða upp undir tvær klukkustundir þar til lögreglan kom og tók skýrslur varðandi óhappið. Volvo bílinn varð að bera til út af veginum eftir áreksturinn og Biskuparnir heiðraðir HINN 19. þ.m. sæmdi forseti ís- lands, að tillögu orðunefndar, biskup Ásmund Guðmundsson stórkrossi hinnar íslenzku fálka- orðu, fyrir embættisstörf. Sama dag sæmdi forseti próf- essor Sigurbjöm Einarsson, stór- riddarakrossi fálkaorðunnar, fyr- “iir embættisstörL ökumaður og farþegar yfirgáfu hinn stórskemmda bíl. Ótrúlega margir virtust ekki skeyta neinu um stöðubann bíla á veginum. Lögreglumenn voru þar, m.a. á bifhjóli, til þess að halda veginum greiðfærum fyrir hinum stóru og þungu flutninga- bílum og vögnum. Virtust öku- menn þó eiga fullt í fangi með að forða árekstrum við ferða- mannabíla. Grjótflutningarnir í garðinn gengu greiðlegaog verkið við byggingu nýja varnargarðs ins virtist sækjast vel. Nýtt flugfélag stofnað f NÝJU Lögbirtingablaði er skýrt frá því í „Tilkynningum um hlutafélagsskrá", að stofnað hafi verið nýtt flugfélag, Flug- leiðir h.f., North Atlantic Avia- tion á ensku. Heimili þess og var narþing er Hafnahreppur í Gullbringusýslu, innan Kefla- víkurflugvallar. Það er tilgangur félagsins að reka alhliða flugstarf semi. Hlutafé félagsins er 100,000,00 krónur. Formaður fé- lagsstjórnar Flugleiða h.f. er Skafti Þóroddsson, framkvæmda- stjóri, F-götu Silfurtúni. Kairo-útvarpið skýrðl þá svo frá, að Kassem hefði sjálfur gert rannsókn á hegðun einkaritara sins, sem talinn er kommúnisti. Þá sagði útvarpið, að Kassem hefði látið setja T.A. Ahmed, þann kommúnista, sem situr í einu æðsta embætti hersins, í stofufangelsi. ★ • ★ Egypzk blöð flytja og þær fregnir, að kommúnistar hefðu ætlað að koma Kassem fyrir kattarnef fyrir nokkrum dögum, en Kasem hefði séð við þeim. Minnt er á það, að kommúnistar kröfðust fyrir skemmstu margra ráðherraembætta, en hurfu í bili frá þeim kröfum, þegar þeir fundu hvað Kassem var harður í horn að taka. ★ • ★ í Kairo eru stjórnmálafregn- ritarar þeirrar skoðunar, að nú geti e.t.r. dregið til tíðinda I írak, en Kassem hefur haft æðstu stjórn þar á hendi síðan herinn gerði uppreisn gegn konungin- um og drap hann í júlí i fyrra. Söngskemmtiin Gamla Bíói ÁRNI Jónsson efndi til söng- skemmtunar í Gamla Bíói fyrir skömmu og söng þar aríur og Ijóðræn lög. Ámi er einn af okkar beztu tenórsöngvurum, og hefur hann tekið stöðugum fram- förum í list sinni upp á síðkastið. Að vísu vottaði fyrir þreytu I röddinni að þessu sinni, víst vegna inflúenzunar, en þrátt fyr- ir það var söngur hans öruggur, þýður og einkar geðþekktur, t.d. í íslenzku lögunum, sem hann túlkaði framúrskarandi vel. Þrótt ur raddarinnar hefir og aukist mikið og kemur það bezt í Ijóst í aríunum eftir Giordani, Bizet, Donizetti og Puccini, sem voru glæsilega sungnar. Fritz Weiss- happel var söngvaranum örugg stoð og stytta, og varð hann að endurtaka mörg af lögunum og syngja aukalög. p. f.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.