Morgunblaðið - 23.06.1959, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 23.06.1959, Qupperneq 10
10 MORGUNULAÐ1Ð Mánudagur 23. júní 1959 Stundar nám í teikskóla og málanám í háskóla Rabbað við hina nýkjörnu fegurðardrottningu TlttlNDAMA.ÐUR blaðsins lagði nýlega leið sína út að Mýrarhús- um á Seltjarnarnesi, á fund hmn ar nýkjörnu fegurðardrottningar, Sigríðar Geirsdóttur. Það var glampandi sólskin, og frá húsinu, sem stendur niður undir sjó, sést Akranes og allur fjaiiahringur- inn kringum Reykjavík. Fjölskyldan sat í stofu: Geir Stefánsson, lögfræðingur og Birna Hjaltested, foreldrai feg- urðardrottningarinnar, unnusti hennar, Magnús Skúlason Hall- dórssonar tónskálds, og Sigríður sjálf. Tvær yngri systur hennar voru ekki heima. Sú eldri er í Svíþjóð í sumar, en hin í fisk- vinnu hér í bænum. Báðar eru þær í skóla á veturna. Stofurnar voru fullar af blómum, sem bor- izt höfðu daginn áður, en þá hafði verið fullt hús af gesturn, sem komu til að óska til ham- ingju. — Ég fæ svona mikið af blómum á hverju ári 17. júní, sagði Sigríður. í fyrra í tilefni af stúdentsprófinu og nú vegna fegurðarsamkeppninnar Kann ekk! að meta fegurð dótturinnar Fyrstu spurningunni var beint til foreldranna og unnustans: — Hvernig leizt ykkur á það að Sigríður tæki þátt í fegurðar- samkeppni? — Við skiptum okkur aldrei af því sem telpurnar gera, og hana Afgreiðs'usfúlku vantar í sumarleyfum, aðeins vön stúlka kemur til greina. Uppl. frá kl. 1—6. ^ÁÍjá Ec ani Austurstræti 14. Fataefni Ný sending af vönduðum sumarfataefnum er komin. Vigfús Guðbrandsson & Co. Vesturgötu 4. Klæðskerar hinna. vandlátu. íbúðarhúsið Setberg við Lágholtsveg er til sölu til flutnings eða niður- rifs. Upplýsingar hjá Lýsi h.f., Grandaveg 42. Nokkrar stúlkur vantar okkur til síldverkunar á Siglufirði. Getum út- vegað pláss á Raufarhöfn síðar, þeim sem kynnu að óska þess. Kauptrygging. Fríar ferðir og húsnæði. Upplýsingar gefa Ráðningarstofa Reykjavíkurbæjar og Einar Indriðason, verkstjóri, Siglufirði. I I L S Ö L U íbúðir ■ smiðum 2ja herb. íbúðir fokheldar með miðstöð og öllu sameigin- legu múrverki úti og inni, ásamt hlutdeild í lyftu. Hagkvæmt verð. 3ja herb. íbúðir í sama ástandi. 4ra herb. íbúðir í sama ástandi. íbúðirnar eru í sambyggingu við Ljósheima sem verið er að byggja og seljast í ofannefndu ástandi eða lengra komnar eftir samkomulagi. Teikningar og allar nánari -uppl. á skrifstofunni. Nýja Fasteignasalan Bankastræti 7. Sími 24300 og kl. 7,30 til 8,30 e.h. 18546 langaði til þess, svaraði frú Birna. En pabbi hennar sagði að hún hefði ekki nokkra mögu- leika til að komast í úrslit. — Hann hefur bara ekkert vit á fegurð dótturinnar, greip Magnús fram i. Hann er víst bú- inn að hafa hana fyrir augunum of lengi. Ég hafði ekkert á móti því að hún reyndi. — En ef henni berst nú eitt- hvert freisandi atvinnutilboð í Ameríku og hún tekur þvi? — Hún er vis til þess. En þá verður maður víst að reyna að læra á sama stað. Það er ekki hægt að vera trúlofaður og ekki saman. Ég sneri mér nú að Sigríði, og spurði hana hvort hún hugsaði ekki gott til þess að korr.ast í fegurðarsamkeppnina á Langa- sandi næsta sumar. — Jú, Bryndís Schram, bekkj- arsystir mín kom hér í gær og ég spurði hana spjörunum úr um þetta allt. En þetta verður nokk- uð dýrt, þó ferðir og uppihald sé borgað. Maður fær aðeins tvo kjóla og einn sundbol, en þarf að sjálfsögðu talsvert mikið af fatn- aði til að geta komið svona víða fram. En ég hlakka til þess. Þá verð ég búin að vera tvo vetur í leikskóla hjá Ævari Kvaran. Ætlunin er svo að reyna að kom- ast í leikskóla Þjóðleikhússins, en ef einhver tækifæri bjóðast til að leika þarna úti, þá tek ég því auðvitað. Allt getur komið fyrir, þó maður geri ekki ráð fyrir þvi. Það lá við að ég færi út í fyrra. Þanmg er mál með vexti að ég var á ferðalagi kring- um land með foreldrum mínum. Við hittum þá bandarískan auð- Sigríður Geirsdóttir kífing, sem á hlut í ýmsum kvik- myndafyrirtækjum í Bandaríkj- unum, og hann vildi endilega senda mig þangað og gefa mér meðmæli, og dró mig meira að segja upp í bandaríska sendiráð til að sækja vegabréfsáritun. En svo trúlofaði ég mig í vetur og Einbýlishús við Hverfisgötu, ásamt litlu iðnaðarplássi, til sölu. Upplýsingar gefnar á skrifstofu minni (ekki í síma). kristjAn guðlaugsson, hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 1. Nú eru síðustu íorvöð að gera góð kaup SUMARPEYSUR kvenna kr. 98, og 129. — FLAUELISBUXUR kvenna kr. 115. — BABY DOLL NATTFÖT úr perlon kr. 145. — ULLARVESTI drengja kr. 50, og 70. — UL^ARVESTI Karlmanna kr. 139. ☆ Gefum aðeins afslátt til fimmtudags. hætti við allt saman. En ég var búin að fá nauðsynleg skilríki til Bandaríkjanna og meðmælabréf- in á ég. — Vertu nú ekki að gorta af þessu, skaut unnustinn inn L — Ég er ekkert að því. Hann var sjötugur og var mest hrifinn af henni mömmu. Fegurðarsamkeppnin truflaði próflesturinn Og svo snerum við okkur að hinu eiginlega blaðaviðtali og byrjuðum á æviatriðum fegurð- ardrottningarinnar. Hún varð ný» lega myndug, og bauð þá kunn- ingjum að dansa í kringum bál í garðinum niðri við sjóinn. Sjö ára gömul fluttist hún með for- eldrum sínum til 'Svíþjóðar, og byrjaði í sænskum skóla. Frá því hún var 10 ára gömul var hún efst í sænsku í skólanum, en eftir að hún kom heim, 15 ára gömul, reyndist henni erfitt að eiga að nema á íslenzku. Guðrún Helga- dóttir tók hana í íslenzkutíma um sumarið, og um haustið byrj- aði hún í 3. bekk Menntaskólans í Reykjavík og stóðst öll próf þar. í vetur hefur hún svo stund- að málanám í Háskólanum, auk leiklistarnámsins, og tók annars stigs próf í sænsku í vor. — Það truflaði mig mikið i próflestrinum, þegar ég ákvað að taka þátt í fegurðarsamkeppn- inni. Um líkt leyti var ég líka að taka próf í leikskólanum. En nú verð ég að snúa mér að því að fá mér vinnu, sagði Sigríður, er þetta bar á góma. — Og hver eru áhugamálin, fyrir utan námið? •— Mér þykir gaman að syngja og teikna, en ég hefi haft lítinn tíma til að sinna því, þar sem ég hefi alltaf verið í skóla. Ég var líka í balletskóla í Svíþjóð, en varð að hætta því, eftir að ég kom heim. Auk þess þykir mér gaman að synda. Við syndum oft á sumrin í sjónum hérna fyrir framan. Það er ágæt sandströnd hérna rétt fyrir innan. — Hún hafði svo gott af að vera í Svíþjóð, sagði móðir henn- ar. Þar er lögð mikil áherzla á líkamsrækt í skólunum, útileik- fimi á vorin og skautadans á vet- urna, auk þess sem unglingarnir eru mikið á reiðhjólum. Þar fara börnin lika fyrr að hátta en hér og það hefur sitt að segja fyrir útlitið. Þannig lauk samtali okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.