Morgunblaðið - 23.06.1959, Side 13

Morgunblaðið - 23.06.1959, Side 13
Mánuðagur 23. jöní 1959 ' M MORCVNntAMÐ 13 Pétur Benediktsson: Glöggt er það enn hvað þeir vilja i. RANGLÆTI KJÖRDMA’SKIP- UNAR OG KOSNINGALGA, það eru Framsóknar ær og kýr. Það er alkunna hvernig hún hefur frá öndverðu streitzt á móti öllu, sem þar horfði í réttlætisátt, hvort sem um var að ræða fjölg- un þingmanna Reykjavíkur, upp bótarþingsæti eða hlutfallskosn- ingu í tvímeniiingskjördæmum. Aldrei hefur hún látið undan síga um rangsleitnina, fyrr en í lengstu lög. Um það bil sem ísland fékk fullveldi sitt viðurkennt, tók hin fyrri flokkaskipun milli Heima- stjórnarmanna og Sjálfstæðis- manna að riðlast. Rétt áður hafði skapazt vísir að tveim flokkum, sem ekki töldu sig fulltrúa þjóð- arinnar, heldur sérstakra stétta innan hennar. Alþýðuflokkurinn og Framsóknarfolkkurinn þóttust annar vera fulltrúi verkamanna og hinn bænda. Af samskonar frækorni spratt síðar kameleóns- jurt kommúnistaflokksins, þetta illgresi í þjóðarakrinum, sem æ skýtur upp undir nýjum nöfnum. Sjálfstæðisflokkurinn einn hef ur viljað leysa vandamálin út frá sjónarmiði heildarinnar, út frá því sjónarmiði, að í þessu landi býr ein þjóð og að þá vegni öll- um bezt, er stétt stendur með stétt, en ekki stétt gegn stétt. Nú er það að visu svo, að sú hugsjón ýmissa forvígismanna Framsóknarflokksins að gera hann að bændaflokki, er fyrir langalöngu lögð á hilluna. Hann gerðist flokkur ákveðins fyrir- tækis, sem hefur aðalstöðvar sín- ar í Reykjavík, en teygir angana um allt lar.d, en þó einkum sveit- irnar. Og þarna hefur tekizt hið ljótasta og leiðasta samspil, því að flokkurinn hefur spillt sam- vinnufélögunum og Samband ís- lenzkra Samvinnufélaga flokkn- um. Eysceinn .ónsson er sam- nefnari beggja. Meira en helmingur kjósenda i landinu hefir á undanförnum ár- um skipað sér undir merki ýmis legra hagsmunamála í alþingis- kosningum, og er þó góðs viti, að flokkur heildarinnar, samstöð unnar, — Sjálfstæðisflokkurinn, — á mjög vaxandi fylgi að fagna. En það er ekki umræðuefni þess- arar greinar, heldur hitt, hvernig hin gamla kjördæmaskipun á fs- landi, hefur ávallt verið einum þessara flokka, Framsóknar- flokknum, hliðholl, en skaðvæn- leg öllum öðrum. Barnið vex en brókin eigl, seg- ir máltækið. Ég hefi sýnt fram á það anna.s staðar, að kjör- dæmabrókin var aldrei vel sniðin fyrir íslenzku þjóðina7 en þó var það fyrst eftir að Framsókn kom til skjalanna, að úr kjördæma- skipuninni urðu skoilabrækur. II. ALLIR VIRÐAST HUGSA í VÍSITÖLUM nú .. tímum. Ég hefi fyrir framan mig töflu, sem sýnir meðalfjölda kjósenda á hvern þingmann Framsóknarflokksins annars vegar og á hvern þing- mann annarra flokka hins vegar, við þær 13 alþingiskosningar, sem fram hafa farið á tímabilinu 1919 til 1956. Taflan er birt hér í blað- inu og sýnir hlutfallið á milli talnanna vísitölu ranglætisins í öllum þessum kosningum. Til frekari glöggvunar hefur vísitala ranglætisins verið teiknuð á línu rit það, sefn menn geta séð hér á þessari síðu. Það er ljóst af vísitölunni, að frá öndverðu hefur Framsóknar- flokkurinn setið yfir rétti ann- arra flokka í landinu. Hámarki sínu náði þetta hneyksli í bili við „kosningasigur" þeirra 1931 þegar þeir fengu tvo þriðju hluta kjördæmakjörinna þingmanna án þess að ná fullum 36% atkvæða, enda var ranglætisvísitalan þá 250. Þetta má segja með öðrum orðum þannig, að hver Fram- sóknarhjón réðu jafnmiklu um þjóðmál og hverjir 5 kjósendur aðrir. Almenningsálitið heimtaði, að hneykslinu væri eytt, og það var gert að nokkru með breytingum kosningalaganna 1934 og 1942. En alþingismenn voru nýtnir og vildu ekki kasta hinu gamla fati á glæ, þótt þar ætti það he'ima. Nýjar bætur áttu að gera það nothæft. framkvæmd, og móðurskipinu gamla, „kútter Haraldi", var siglt í naust í Noregi. III FÁTT ER SVO MEÐ ÖLLU ILLT, að ekki boði nokkuð gott. Kosningahneykslið 1931 varð til þess að hrinda af stað stórfelld- um réttarbótum á sínum tíma. Framsókn svelgdist þá illilega á af því að gína yfir of miklu, en kokviddin við kosningarnar 1956 var þó ennþá meiri. Með Hræðslu bandalaginu svelgdi ofurvald hennar sinn bar.ibita. Alþýðuflokkurinn telur sig á- reiðanlega leystan úr tröllahönd- máli. Stjc Tag: 'ræðingur flokks ins, sérfræðingurinn í meðferð stjómarskrár og kosningalaga, annar reiknimeistaranna, sem undirbjuggu Hræðslubandalagið sællar minningar, hefir oft látið til sín heyra um málið, og ekki allt með einum hætti. Ef mann- legur skilningur fær túlkað niður stöður hans rétt, þc. eru þær á þá leið, að halda eigi kjördæmaskip- aninni svipaðri því sem nú er, þó þannig, að komið sé á einmenn- ingskjördæmum að mestu eða öllu leyti. Uppbótarþingsætin eigi að hverfa, enda telur hann höfuðnauðsyn að fækka þing- mönnum til muna. VISITALA RANSLÆTIStNS Það var kannske nokkur ástæða til bjartsýni í þessu efni um stund eftir réttarbótina 1942, því að við síðari kosningarnar það ár og kosningar 1946 var vísitala ranglætisi 3 ekki nema 111. En síðan tók að færast nokkuð í gamla horfið aftur. Við tvennar næstu kosningar varð vísitalan 150 og 158. Það var að vísu ekkert svipað því sem verst hafði verið áður, en tc.laði þó sínu máli. En nú kom það í ljós, að var- naglarnir við ofríki Framsóknar voru illa reknir. Uppbótarþing- sætin áttu að tryggja flokkunum eitthvað í áttina við jöfnuð og réttlæti, þótt þau væri fjarri því að ná því marki til fulls, eins og vísitalan sýnir. En sá böggull fylgdi skammrifi, að sá floklcur, sem engui - manni kom að í kjör- ' dæmi, átti ekl. heldur rétt til uppbótarþingsætis, hvað sem at- kvæðatölu hans með þjóðinni leið. í kosningunum 1953 hafði „kútt er Haraldur“ einn náð landi í Reykjavík og fleytt 5 uppbótar- þingmönnum Alþýðuflokksins með sér inn í þingsalina. Kemp- urnar gerðust nú deigar til sjó- fara og harðræða. Framsókn las svipinn í augum þeirra og sá sér leik á borði til nýrra ranginda. Þannig varð Hræðslubandalagið til. Alþýðuflokkurinn féllst á að hafa rangt við, svikja þau ákvæði stjórnarskrárinnar, sem honum átti að vera mest annt um að vernda og styrkja í þróuninni til fyllra réttlætis. Tiiræðið tókst. Með þjófalykl- inum að stjórnarskránni var 8 Alþýðuflokksmönnum og 17 Framsóknarmönnum smyglað inn á Alþingi. Þeir sem mest áttu undir fullum jöfnuði flokkanna gerðust sekir um hlutdeild í því að vísitala ranglætisins, Fram- sókn í vil, varð hærri en nokkru sinni fyrr eða 262. Samt tókst til- ræðið ekki til fulls, þótt mjóu munaði, því að 2 þingmenn skorti á hreinan meirihluta á þingi með samanlögð 33% atkvæða að baki. Hermann kom fram áformi sínu ,um samvinnu við kommúnista í um að þurfa nú ekki lengur að una faðmlögum Framsóknar, og heldur er það ónærgætnislegt af henni eftir slíka sambúð, að vera alltaf að hrópa að honum: „Laun syndarinnar er dauðinn". En illa situr á Framsókn að bregða öðrum um feigð. Brynja gefur ei feigum fjör, segir hið fornkveðna, og þótt hún megi Þetta er nú tillaga lásasmiðs ins, sem smíðaó. þjófalykilinn að stjórnarskránni 1956. Stefnu yfirlýsingin á flokksþingi Fram- sóknar í vetur var mjög í sama anda um flest, en talsvert greini- legri, þótt sumt dyljist við fyrstu sýn: „Flokksþingið telur að stefna beri að þvi að skipta landinu í einmenningskjördæmi utan Reykjavíkur og þeirra kaupstaða í • j annarra, sem rétt þykir og þykja Því að þarna voru og erv höfuð- | Meðalatkvæðaf jöldi á þing- S ' kann að kjósi fleiri en einn þing- virkin, fjármálaráðuneytið, SÍS, en einn þingmann með hlutfalht* 1 kosningu eru þeir, þar sem Fram- sókn teldi sig haf:. líkur til ai | fá síðari þingmanninn. kosinn. Hvílíkt dásamlegt tækifæri til að sýna það svart á hvítu, að Framsókn vilji ekki láta staði eins og Reykjavík og Akureyri fara varhluta af umhyggjunni ! t Vérst var, að ekki skyldi tekið fram, hvort Seyðisfjörður ætti að fá tvo þingmenn líka. IV EN ÞAÐ VORU EKKI TIL- LÖGUR FLOKKSÞINGSINS, er Framsóknarmenn á Alþingi báru fram um afgreiðslu málsins. Helzt vildu þeir vísa því til svo- kallaðrar stjórnarskrárnefndar frá 1947, ’ sem þeir sjálfir hafa fyrir ævalöngu gert óstarfhæfa. Þaðan átti það að fara fyrir skringilegt stjórnlagaþing, en til þeirrar samkundu mega sam- kvæmt tillögu þeirra „stjórnmála flokkar, sem fulltrúar eiga á Al- þingi eða hafa haft fulltrúa í kjöri til Alþingis .... ekki bjóða fram menn“. (Þetta er hvorki prentvilla né gamansemi, tillagan var svona). Þvílik afgreiðsla er kölluð að drepa máli á dreif. Þingheimur vildi ekki fallast þessa afgreiðslu, og þá kom önnur tillaga fram, heldur óvænt. Reykjavík átti að fá 12 þingmenn, Akranes átti að verða sérstakt kjördæmi, og á Gull- bringu- og Kjósarsýslu átti að gera meiri háttar skurðaðgerð, hún átti að v.— x að fjórum ein- menningskjördæmum í stað eins. Uppbótarþingsætin áttu að vera 10, þingmannatalan 60, eins og eftir frumvarpi hinna flokkanna. Hvernig stendur á þessu ein- kennilega heljarstökki hjá Fram- sókn? Það má geta sér þess til, að hún teldi sig hafa meiri líkur til að koma að manni í Borgar- fjarðarsýslu, ef hún kvistaði Akranes frá sýslunni. Það væri og mjög í hennar anda, að skapa þar nýtt misrétti, því að íbúa- tala Akraness er vaxandi og þeg ar tvöföld á við það sem eftir yrði í Borgarfjarðarkjördæmi, eftir skiptinguna. En hvers vegna 12 þin^me. n í . lykjavík? Ætla má af atkvæðatölur.i síðustu bæj- arstjórnarkosninga að setuliðið sé nægilega fjölmc nt til þess að ná 9. þingmanni Reykvíkinga. Ekki á að vera vandi að telja það, því að obbinn af því var á mála hjá Eysteini og kemur enn til vinnu á sama hektaranum kringum skrifstofu hans í Skuggasundi, s mana og vísitala ranglætisins ■ s s s s S 1919 Fram- sókn 1923 346 672 561 659 609 759 766 í 1942 júlí 801 j 1942 okt. 1058 1187 1039 1060 760 s i 1927 5 1931 ( 1933 ) 1934 J 1937 | 1946 ) 1949 | 1953 S 1956 Allir aórir fl. 683 1062 1183 1647 1234 1193 1462 1452 1184 1320 1559 1679 1993 Vísit, 197 158 211 250 203 157 191 181 111 111 150 158 262 enn vænta nokkurrar hlífðar af skollabuxunum í þessum kosning um, þá er það nú feigðin, sem að Framsókn kallar. Meðal margra sönnunargagna fyrir því, að svo sé, eru viðbrögð hennar við samtökum fulltrúa yfirgnæfandi meirihluta íslenzku þjóðarinnar i kjördæmamálinu. Ég sleppi að þessu sinni ham- förum fakírsins frá Indlandi og þeim veitingum, sem regluboðinn fyrrverandi ber fram fyrir kjós- endur í Kjördæmablaðinu og ut- an þess. Ilitt kyn;:i að vera nokk- urs vert að líta á það, hvaða til- lögur Fra: :sókn hefir fram að færa í kjördæmamálinu. Eins og titt er um þá, sem hafa vonda samvizku, hefir Framsókn þyrlað upp hinu mesta moldviðri um það, hver stefna hennar sé í raun og veru í þessu mikilvæga mann. Með hæfilegri fjölgun kjör dæmakjörinna þingmanna falli niður uppbótar landkjörið. Telur flokksþingið, að einmenn ingskjördæmi sem aðalregla sé öruggastur grundvöllur að traustu stjórnarfari“. Flokksþingið sýnist ekki vera eins ákaft í fæl.kun þingmanna og sérfræðingurinn, en þó er erf- itt að vita, við hvað er átt með „hæfilegri fjölgun", eftir að upp- bótarþingsætin hafi verið afnum- in. Og hvað er Framsókn að fara með tillögunni um hlutfallskosn- ingu í Reykjavík og öðrum kaup- stöðum, „sem rétt þykir og þykja kann að kjósi fleiri en einn þing- mann“? I grein minr' um kjördæma- málið í Nýju Helgafelli túlkaðiég þetta svo, að þarna kæmi þó fram visst stolt hjá Framsóknarmadd- ömunni. Hún teldi sig ekki eiga heima innan um „ómenntaðan ruslaralýð og skríl“ bæjanna og „sjávarlýðinn“, og vildi láta öðr- um eftir að berjast með hlutfalls- kosningum um þingsætin fyrir Sódómu og Gómorru, sem hinn klerklærði skólastjóri á Eiðum hefir síðan lýst svo átakanlega. En þarna var ég of hrekklaus. Ég hafði ekki varað mig á því, hvað orðin „hæfileg fjölgun“ og „rétt þykir og þykja kann“ þýða í orðabók Framsóknar. „Hæfileg fjölgun“ þingmanna í Reykjavík er á hennar máli sú fjölgun sem tryggði setuliði Framsóknar hér í bænum einn þingmann. Og þeir kaupstaðir, sem „rétt þykir og þykja kann“ að fái að kjósa fleiri höfuðstöðvar Tímans og flokks- stjórnarinnar, — að ógleymdu sjálfu Olíufélaginu. Og hvers vegna var hætt viS að afnema hinn mikla bölvald, uppbótarþingsætin? Og síðast en ekki sízt, af hverju stafaði þessi skyndilega umhyggja fyrir Gullbringu og Kjósarsýslu, sem aldrei hefir vilj- að líta við Framsókn? Varð gamla konan svona sanngjöm, þegar feigðin kallaði að henni? Nei, því miður var skýringin ekki sú, að forhertur syndari væri að iðrast á banastundinni, eins og sagt er að stundum komi fyrir. Skýringin er miklu verald- legri, og raunar auðsæ hverjum manni, þegar á hana er bent. Kenna mun sitt mark á þér mannafaðirinn eini: Stofn af vígtönn enn þar er og ögn af rófubeini. Það var nefnilega Finnhogl Rútur Valdimarsson, sem hélt um hendina á Hermanni-------eins og oftar — þegar hann var að semja frumvarpið. Frá honum var þing- sætafjöldinn í Reykjavík og upp bótarþingmennirnir. En fyrst og fremst átti að styrkja afstöðu Finnboga með því að gera Kópa- vog að sérstöku kjördæmi handa honum. Þá var hann ekki lengur upp á það kominn að þiggja upp- bótarþingsæti af kommúnistum og frjálsari í brallinu með Her- manni, og gat það komið sér vel fyrir báða. Ý: sum getum má leiða að því, hvað bjó undir til- lögunni u: . ciptingu kjördæmis- Framhald á bls. 22.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.