Morgunblaðið - 23.06.1959, Síða 14
14
MORCVNfíLAÐIÐ
Mánudagur 23. júni 1959
Skrífstofa
mín og vörugeymsla verða lok'aðar vegna sumar-
leyfa írá 29. júní til 18. júlí.
Páll Þorgeirsson
Laugavegi 22.
Til sölu
er íbúð við Breiðholtsveg. Upplýsingar í síma 3-48-48
í dag eftir hádegi.
Vil kaupa
3—4 herbergja íbúð í nýlegu húsl. — Mikil útborgun.
Upplýsingar í slma 1-02-46 eftir kl. 5 e.h.
Volvo '55
Sérlega góður lítið keyrður. Hagkvæmir greiðslu-
skilmálar. Ýmis skipti hugsanleg. Til sýnis og sölu
í dag.
BIFREIÐASALAN Bókhlöðustíg 7
Smi 19168.
STLLKA
vön afgreiðslustörfum óskast vegna sumarleyfa.
Uppl. frá kl. 11—12 og 2—4.
Sæla Café
Brautarholti 22.
SÍLD
Vantar nokkrar stúlkur til Siglufjarðar og Raufar-
hafnar. Upplýsingar í síma 34580.
GUNNAR HALLDÓRSSON H.F.
Húseignin Skálholt
við Kaplaskjólsveg, ásamt tilheyrandi eignarlóð
1600 ferm., er til sölu. Tilboð sendist á skrifstofu
Sveinbjamar Jónssonar, hrl., Austurstræti 5, sem
gefur nánari upplýsingar.
5-6 herb. íbúð
óskat til kaups eða í skiptum fyrir minni búð, sem
er á hitaveitusvæðinu. Bílskúr eða bílskúrsréttindi
æskileg. Tilboð merkt: „Milligjöf — 9261“, sendist
afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld.
Rœstingarstúlka óskast
Upplýsingar í verzluninni milli kl. 6 og 7.
Verzl. Tizkuskemman hf.
Laugavegi 34A.
Á ttræður:
Egill Egilsson frá Tungu
ÞAÐ eykur að sjálfsögðu ekki
mikið á ys og þys lífsins, þótt
óbrotinn alþýðumaður þokist
yfir á níræðisaldurinn. Og ekki
verður tilefnið meira við það, að
hann er blindur einstæðingur,
sem í fjarlægð frá ástvinum og
flestum kunningjum iítur yfir
farinn veg í einsemd og aðeins
innra ljósi. Svo kann þó að vera,
að þeir séu til, sem telji sig hafa
slíkum manni skuld að gjalda og
telji óþarft að láta merk tímamót
í lífi hans með öllu liggja í þagn-
argildi. Svo veit ég að er um
frænda minn Egil Egilsson frá
Tungu við Auðkúlu í Arnarfirði,
sem 23. maí sl. náði áttræðisaldri
suður á Vífilsstöðum, þar sem
hann hefir dvalizt síðustu 6—7
árin.
Egill Egilsson er fæddur 23.
maí 1879 að Litlu-Eyri í Bíldu-
dal, sonur hjónanna Egils Jóns-
sonar og síðari konu hans, Krist-
ínar Guðlaugsdóttur, sem þar
bjuggu. Ólst hann upp hjá þeim
tii 12 ára aldurs, en hélt þá að
heiman í fyrsta sinn, að Selárdal
í Dalahreppi, í vist til séra Lárus-
ar Benediktssonar, föður Ólafs
prófessors og þeirra systkina.
Þar dvaldist Egill í 5 ár, en fór þá
aftur heim til foreldra sinna, sem
þá voru farin að búa á Krosseyri
í Suðurfjörðum. Var hann þar
heima unz Sveinbjörn bróðir
hans tók við búi 3 árum síðar.
Hélt Egill þá, árið 1898. yfir fjörð
inn og út að Álftamýri í þjónustu
hins kunna sægarps Gísla Ás-
gerissonar, sem þá bjó þar, og
lengi síðan. Var hann hjá honum
í tvö ár. Telur Egill för sína til
Álftamýrar ótvírætt mestu happa
ferð lífs síns, því þar kynntist
hann þeirri konU, sem átti eftir
að verða Ijúfur og trúfast'.'.r föru-
nautur hans um fullrar hálfrar
aldar skeið, Petrínu Marthíasdótt
ur. Hafði hún komið þangað
tveimur árum fyrr. Þau voru gef
in saman í Álftamýrarkirkju dag
inn fyrir gamlársdag 1901.
I upphafi búskapar síns hófu
þau Egill húsmennsku hjá Njáli
Sighvatssyni, Borgfirðings, og
Jónínu Sigurðardóttur konu
hans, að Tjaldanesi í Auðkúlu-
hreppi, en voru þar aðeins eitt
ár. Fluttust þau þá í vist að hálfu
hjá séra Bövari Bjarnasyni að
Rafnseyri, 1903, árið eftir komu
klerks þangað, og voru þar til
Loflpressur
með krana, til ieigu.
GUSTUR h.f.
Sími 23956 og 1242'».
vors 1907. byrjuðu þau hjón þá
sjálfstæðan búskap að Karisstöð-
um í sömu sveit og bjuggu þar
í 18 ár. Var þetta hið mesta rýrð-
arkot og hafði ekki um hríð Ver-
ið setið í eiginlegri merkingu,
aðeins nýtt frá öðrum bæjum.
Aðkoman var því ekki glæsileg,
en með eljusemi og dugnaði
byggðu þau upp bæinn á fyrsta
búskaparári og juku brátt hey-
feng af túnskæklinum, sem
í fyrstu gaf þeim aðeins 15—16
hesta, og segir sig sjáift, að það
dugði ekki til stórræða í skepnu
haldi.
Þarna á Karlsstöðum veiktist
svo Egill veturinn 1910, á þriðja
búskaparári. af sjúkdómi þeim,
er lengi átti eftir að hrjá hann.
Lá hann þá heima rúmfastur í
samfellt 42 vikur, en var algjör-
lega frá vinnu í tvö ár — „gekk
þá bara um eins og greifi og
gerði ekki neitt“, segir hann sjálf
ur, og dregur þannig upp þá
æðrulausu lífsmynd, sem honum
er svo eiginleg.
Þrátt fyrir óbliða aðstöðu
bjuggu þau Petrína og Egill á
Karlsstöðum til arsins 1925, að
þau fluttu að Tungu. Þar bjuggu
þau það sem eftir var sjálfstæðr-
ar starfsæfi, eða í full 26 ár, og
áttu þar saman súrt og sætt. Það-
an fluttust þau hjón vegna elli-
lasleika 1951, og voru þá til að
byrja með eitt ár saman í Tjalda-
nesi. En þá hlutu, fyrir aliharðan
örlagadóm, leiðir þessara sam-
rýmdu lifsförunauta að skilja
eftir rúml. 50 ára samveru í blíðu
og stríðu. Er mér kunnugt um,
ilum harla sár, þótt harmur væri
í hljóði borinn. Hún fluttist þá að
Rafnseyri til sæmdarhjónanna
Guðnýjar ljósmóður og Jóns
Waage, og dó hjá þeim 4. maí í
fyrra, og hafði þá náð 93ja ára
aldri — en hann varð að fara
suður að Vífilsstöðum, m. a.
vegna aðkenningar af sínum
gamla sjúkdómi, sem þó læknað-
ist brátt. Egill hefir þó dvalið
þar síðan við bezta atlæti lækna
og hjúkrunarliðs, vinsæll og vel
látinn af öllum.
Egill missti sjónina algjörlega
fyrir ári síðan, en hafði lengi áð-
ur búið við mjög þreytandi sjón-
depru. og var svo á sig kominn
í því efni, að 1933 varð hann fyrir
slysi á vinstra auga, sem varð þá
að taka, en 10 árum síðar var
hægra augað skorið upp vegna
blindu. Þannig hefir Egill verið
með biluð lungu og brákaða sjón
mikinn hluta ævinnar, en — samt
ekki látið það hindra sig frá lifs-
baráttunni á sjó og landi um-
fram það, sem með engu móu
varð við ráðið.
Eins og flestir Vestfirðingar,
stundaði Egill sjósókn jafnframt
búskapnum, meira og minna í 18
Verzlunar- og
iðnaðarhús
Egill og Fetrina í Tungu
ár, eða frá 1899 til 1917. Var hann
þá oftast á útgerð Péturs Thorst-
einssonar á Bíldudal, og eftir-
manns hans, Hannesar E. Step-
hensen.
Þeim Petrinu og AgJi varð
ekki barna auðið, en ólu upp tvö
bróðurbörn hennar, sem þau
urðu að sjá á bak báðum i blóma
lifsins, 21 árs pilti og 18 ára
stúlku.
Framanskráð er aðeins fáar út-
línur um ævi óbreytts alþýðu-
manns — ekki svo frábrugðnar
þeim, sem margir eiga. Innan við
þær er þó falin hetjusaga; bar-
átta við fátækt og umkomuleysi,
sjúkdóma og sorgir, þar sem fá-
ir eða engir vissu „hins innra önn
því að fyrir mönnum dýpst sár
drjúgum eru duld und mestci
huldu".
Egill Egilsson var fyrstur
frændfólks mins í Arnarfirði,
sem ég hitti í lifandi lífi. Annan
föðurbróður minn, Jóhannes,
hafði ég mörgum árum áður litið
liðinn norður á ísafirði. Það var
fyrir ábendingu Hannibals Valdi-
marssonar, sem ungur hafði róið
með honum vestur í Bakkadal,
og bar hlýjar kenndir til æ síð-
an. Mér er í fersku minni, þegar
ég í fyrsta sinn, með Þórði Njáls-
syni, kom að Tungu til þeirra
hjóna, Petrínu og Egils. Það var
hvorki hátt til lofts né vítt til
veggja í pínulitla bænum þeirra,
en þar var þrungið loft af kær-
leiksyl milli þeirra sjálfra, til
mín, til ættingja og vina, til allra
manna — svo það snart mig
djúpt og varanlega .... Er ekki
að orðlengja það, að mér hefir
óvíða fundist léttar um andar-
drátt — heimurinn sjaidan betri
né fegurri .... Síðan þakka ég
hrærðum huga þá lexíu að hafa
kynnzt þessum einstæðu og
elskulegu manneskjum, sem
bæði tvö bjuggu í ríkum mæli
yfir því bezta, er einkennt hefir
lífið í þessu landi allt fram á
atómöld, og verið kjölfestan á
siglingu þjóðarinnar gegnum
brim og boða liðins tíma.
Ég hefi oft dáðst að því, hversu
Agli hefir jafnan og allt fram
til þessa, tekist að geta gamall,
einmana og úr leik, með tærri
glaðværð sinni, hagmælsku og
andlegu fjöri, glatt og hresst sam
fundi fleygra og færra - og blind-
ur opnað augu sumra, sem þó
sjáandi eru. Að vera fær um
þetta er mikil guðgjöf.
rétt við miðbæinn er til sölu. í húsinu, sem er nýlegt
steinhús, eru nokkrar íbúðir. Upplýsingar gefnar í skrif-
stofu minni, en ekki í síma.
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON,
hæstaréttarlögmaður, Austurstræti 1.
C eymsl uhúsnœði
Gott geymsluhúsnæði, 200 til 300 fermetrar, óskast
til leigu sem fyrst. Tilboð merkt: „Vörugeymsla —
9262“ sendist MbL fyrir 30. júní n.k.
Við, sem þekkjum þig, frændi,
þökkum þér nú ógleymanlega
kynningu, sem varð áhrifameiri
prédikun, þótt hún væri ekki,
frekar en ræða prestsins á Mos-
felli, „rituð“, en — eins og hans
— „rist ii.n í fáein hjörtu". Jafn
framt hugsa ég mér til hennar,
sem þú unnir heitast og saknar
sárast .. . Guð blessi ykkur tvö 1
bráð og lengd. Vegir iiggja nú
senn saman á ný. Ég veit þú
hlakkar til.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Gólfslípunin
Barmahlíð 33. — Sími 13657
Sigurgeir Sigurjónsson
liæsmréttarlöemaður.
AöalstræU 8. — Sími 11043.