Morgunblaðið - 23.06.1959, Qupperneq 22
22
MOTtCVVntlAÐIÐ
Mánudagur 23. júnl 1959
Danir setja þrjá nýliða
í landsliðið gegn íslandi
m * * • • Æ mm m G ..... —--
Breyfa vörn sinni effir
ófarirnar við Svía
DANSKA knattspyrnusambandið hefur valið lið það, sem leika á
1 landsleiknum í knattspyrnu gégn íslandi nk. föstudagskvöld á
Laugardalsvellinum. Danska liðið er þannig skipað:
Henry From
(AGF)
Börge Bastholm Poul Jensen
(Köge) (Vejle)
Flemming Nielsen Willy Kragh Erik Jensen
(AB) (Bröndshöj) (AB)
Ole Madsen Tommy Troelsen
(HIK) (Vejle)
Poul Petersen Henning Enoksen Jens Peter Hansen
(AIA) (Vejle) (Esbjerg)
Varamenn eru valdir: Per Funk Jensen (KB), Poul Basset (B
1909), Bent Hansen (B 1903) og John Danielsen (B 1909).
S1 sunnudag léku Danir gegn Svíum í Kaupmannahöfn. Voru
Danir mjög sigurvissir fyrir þann leik og básúnuðu knattspyrnu-
rnenn, forystumenn knattspyrnumála o. fl. þá sigurvissu opinber-
lega. En sigurvissan hefndi sín, því Svíar unnu stórsigur, skoruðu
6 mörk gegn 0. Er langt síðan Danir hafa fengið slíkt „burst“ í
Kristleifur sigraði í
3000 m hlaupi
FYRRI hluti KR-mótsins fór
fram á íþróttavellinum á Melun-
um í gærkvöldi. Helztu úrslit:
100 metra hlaup:
1. Valbjörn Þorláksson ÍR 11,4
2. Grétar Þorsteinsson Á 11,6
3. Þorkell St. Ellertsson Á 11,8
RR. míótinu lýkur í kvöld
Keppt m.a. í
hástökki og
5 km. hlaupi
sleggjukasfi
í KVÖLD er síðari dagur af-
mælismóts KR í frjálsíþrótt-
um á Melavellinum, en meðal
keppenda eru sem kunnugt er
fjórir kunnir frjálsíþrótta-
menn frá Danmörku og Sví-
þjóð. Auk þeirra keppa allir
okkar beztu frjálsíþróttamenn
sem heima eru.
Ekki er að efa að ein helzta
keppnin í kvöld verður 5 km
hlaupið. Þar eigast þeir við Dan-
inn Thögersen og Svíinn Kelle-
v&g að ógleymdum okkar unga
og efnilega Kristleifi Guðbjörns-
syni. Keppnin í gærkvöldi milli
þeirra í 3 km hlaupinu var ein
mest spennandi keppnisgrein
kvöldsins.
Þá mætast þeir aftur í hástökki
Jón Pétursson og Svíinn Stig
Anderson og í sleggjukasti Dan-
inn Cederquist og Þórður Sig-
urðsson.
Ekki er að efa að bæjarbúar
fjölmenna á völlinn á þetta mót.
KR vann Keflavík 3:0
400 metra hlaup:
1. Hörður Haraldsson Á 49,9 sek.
2. Þorkell Ellertsson 54,7 sek,
3000 metra hlaup:
1. Kristl. Guðbjörnss. KR 8:27,6
2. Bertil Kallevagh, Svíþj. 8:28,2
3. Thyge Tögersen, Danm. 8:30,6
110 metra grindahlaup:
1. Valbjörn Þorláksson ÍR 16,7
1500 metra hlaup unglinga:
1. Helgi Hólm ÍR _ 4:40,6
Í. Friðrik Friðriksson ÍR 4:42,2
4x100 metra boðhlaup:
Sveit ÍR 45,5 sek.
Langstökk:
1. Einar Frímannsson KR 6,83
2. Helgi Björnsson ÍR 6,54
3. Ingvar Þorvaldsson KR 6,37
Hástökk:
1. Stig Anderson Svíþjóð 1,95 m
2. Jón Pétursson KR 1,90 —
3. Jón Ólafsson ÍR 1,70 —
Sleggjukast:
1. Poul Cederquist Danm. 53,51
2. Þórður Sigurðsson KR 49,95
3. Friðrik Guðmundss. KR 47,40
Kringlukast:
1. Þorsteinn Löve ÍR 48,60
2. Friðrik Guðmundss. KR 46,13
3. Poul Cederquist Danm. 41,70
— Biskupsvigsla
landsleik.
Að vonum orsakaði þetta breytingar á liðinu. Koma þrír ný-
l'ðar með danska landsliðinu nú, bakvörðurinn Poul Jensen, mið-
vörðurinn Willy Kragh og innherjinn Tommy Troelsen.
Það má fullvíst telja, að Danir hætti nú ekki á neitt í leiknum
gegn íslandi eftir ófarirnar við Svía. Hafa Danir fullan hug á að
komast til Rómar til úrslitakeppni Ólympíuleikanna, sem leikurinn
á föstudaginn er „forleikur" að. Þeir gera sér vissulega grein fyrir
því, að íslenzka landsliðið er óútreikanlegt og telja það alltaf hættu-
legt á heimavelli sínum, þó aldrei hafi til þessa verið minni miínur
á íslenzku og dönsku landsliði en 3:0 — fyrir 13 árum er Island lék
s?nn fyrsta landsleik.
Akranes vann Val 3:1
f»AÐ var suðaustan stinnings-1
kaldi og byrjað að rigna þegar
Valur og Akranes mættust í ís-
landsmótinu á malarvellinum á
Akranesi á sunnudaginn kl. 4.
Völlurinn er malarvöllur í þess
orðs eiginlegu merkingu, aisett-
ur smásteinum, en undir laus
sandur. Myndast fljótt miklar
mishæðir á vellinum og er hann
sannast sagna varla boðlegur til
keppni í 1. deild. Verða Akurnes-
ingar að róa að því öllum ár-
um að taka nýja grasvöllinn í
notkun. Vonandi verður það fyrir
næsta leik á Akranesi, 19. júlL
Akurnesingar hófu leikinn 10
talsins, því að Ríkharður mætti
of seint, þar sem hann þurfi að
lagfæra merkingu vallarins, sem
upphaflega var ranglega krítað-
ur. Valsmenn hófu þegar sókn og
héldu henni framan af hálfleikn-
um. Er 5 mínútur voru af leik,
gaf Björgvin fyrir frá hægri við
endamörk og Gunnar Gunnars-
son, sem kominn var upp að
marki, fékk skorað á stuttu en
þröngu færi. Þegar Ríkharður
kom til leiks, færðist meira fjör
í Akranesliðið, og smám saman
breyttu þeir vörn í sókn. Á 17.
mínútu gefur Donni fyrir og
fram. Magnús miðvörður var
bundinn við miðherja Akurnes-
inga til hliðar og vörnin opnað-
ist gersamlega, Ríkharður brunar
upp óhindraður og skorar.
Stuttu síðar eru Akurnesingar
enn í upphlaupi. Sveinn Teitsson
er kominn upp að endamörkum,
gefur vel fyrir og vinstri inn-
herji skallar fallega í mark, enda
var hann óhindraður af Valsvörn
inni.
Rétt fyrir lok hálfleiksins
skora Akurnesingar þriðja mark-
ið ,næstum á sama hátt og hið
fyrsta, Donni gefur fyrir og
Ríkarður brunar óhindraður upp.
Hálfleik lauk 3:1 og fleiri urðu
I mörkin ekki þrátt fyrir góð tæki-
færi á báða bóga.
Akranes-liðið vann verðskuld-
aðan sigur, en 3:1 gefa ekki rétta
hugmynd um mótstöðu Vals-
manna. 3:2 gæfi réttari mynd af
leiknum. Ríkarður var sem fyrr
stoð og stytta Akranes-liðsins. Og
„nýliðarnir", Gísli og Skúli, áttu
nú sinn bezta leik í sumar. Sveinn
aðstoðaði vel bæði í sókn og
vörn, en fékk af hálfu dómarans
— óáreittur — að leika nokkuð
gróflega.
Vals-liðið slitnaði nokkuð sund
ur í þessum leik. Bergsteinn og
Björgvin voru dauðir punktar í
framlínunni, og Magnús miðvörð-
ur batt sig um of við miðherj-
ann, svo að eyður opnuðust. Ofan
á bættist, að hliðarframverðirnir
misstu tökin á mönnum sínum.
Gunnlaugur varði vel í markinu,
m. a. þrívegis er sóknarleikmenn
Akurnesinga voru konmir inn
fyrir Valsvörnina. — A. St.
2. deildar keppnin
HAFNARFIRÐI — Á laugardag-
inn fóru hér fram tveir knatt-
spyrnukappleikir í 2. deild. Fyrri
leikurinn var milli Reynis og
Aftureldingar, og lauk honum
með sigri hins fyrrnefnda, 5:2.
Hinn leikurinn var milli Knatt-
spyrnráðs Hafnarfjarðar (KRH)
og Ungmennasambandsins Skarp-
héðins. Unnu Hafnfirðingar þann
leik með 11 mörkum gegn 4. —
I kvöld kl. 8 keppir svo KRH við
Reyni — og í 4. flokki eigast við
Þróttur og ÍBK. — G. E.
AUSTAN stinningskaldi og rign-
ingarsúld var, þegar KR og
Keflavík mættust á grasvellinum
í Njarðvík. KR-ingar léku undan
vindi í fyrri hálfleik og voru
lengstum í sókn. Þrátt fyrir það
vildu mörkin ekki koma. Ellert
átti þrívegis skalla framhjá
stöng, Sveinn skaut yfir úr góðu
færi og markmaður varði skot
Þórólfs í horn. Keflvíkingar náðu
nokkrum upphlaupum, sem engin
voru þó hættuleg nema skot Þór-
halls Stígssonar á 19. mínútu,
sem Heimir varði í horn.
Hálfleiknum lauk þannig, að
hvorugur hafði skorað. Maður
heyrði í hléinu að keflvískir
áhorfendur voru vongóðir um sig-
ur fyrst KR tókst ekki að skora
undan vindi.
En KR-ingar voru ekki af baki
dottnir. Þeir byrjuðu síðari hálf-
leik með samleik, sem þegar gaf
góðan árangur. Á þriðju mínútu
gefur Þórólfur fyrir markið og
Ellert skallar í stöngina. Á 8. mín.
skorar svo Þóróifur og Sveinn
Jónsson bætir öðru marki við 10
mínútum síðar. Garðar Árnason
skoraði 3. markið á 23. mínútu.
Enda þótt mörkin yrðu ekki
fleiri þá voru yfirburðir KR í
þessum hálfleik, að helzt er hægt
að bera saman við leikinn gegn
Fram á dögunum. Léku þeir vörn
Keflvíkinga sundur og saman og
markatalan hefði eins vel getað
orðið 7 eða 8. T. d. komst Sveinn
Jónsson framhjá markmanni á 44.
mínútu en skaut í stöngina og
markamður náði knettinum á út-
leið.
ÍBK var nálægt því að skora
er Heimir markvörður missti
knöttinn á 40. mínútu. Knöttur-
inn féll niður á marklínu út við
stöng þar sem Heimir náði hon-
um aftur. Vildu margir áhorf-
Island vann
Noreg
ÍSLENZKA landsliðið í kvenna-
handknattleik keppti sl. laugar-
dag við Noreg í Norðurlanda-
mótinu. ísland sigraði með 7:5.
Þetta er annar landsleikssigur ís-
lenzkra kvenna í handknattleik.
Ásiunnudaginn átti mótinu að
ljúka. ísland átti þá að keppa við
Danmörku. Fréttir af þeim leik
og nánari fréttir af leiknum við
Noreg hafa ekki borizt.
endur telja þetta mark, en línu-
vörðurinn var vel staðsettur og
KR-ingar héldu heim með hreint
mark.
Liðin
Tvær breytingar voru á liði
ÍBK frá leiknum gegn Akranesi.
Þórhallur Helgasn lék bakvörð í
stað Gunnars Albertssonar, sem
er meiddur, og Þórhallur Stígsson
stöðu vinstri útherja í stað Skúla
Skúlasonar, sem nú var varamað-
ur. Hvorugur þessara manna var
til að styrkja liðið. Leikur ÍBK
var að þessu ólíkt lélegri heldur
en gegn Akranesi á sunnudaginn
var. Hafsteinn í vörninni og Heim
ir Stígsson í markinu voru einu
mennirnir er skiluðu jafngóðum
leik og þá.
Ein breyting var á KR-liðinu
frá Fram-leiknum. Þorsteinn
Kristjánsson lék vinstri útherja
í stað Gunnars Guðmannssonar
og var hann nokkuð þungur.
Erfitt er að dæma getu einstakra
leikmanna KR, því yfirleitt áttu
allir mjög góðan leik í síðari hálf-
leik. Þó held ég að Garðar Árna-
son hafi notið mestrar hylli
áhorfenda fyrir frábæran leik.
Lítið reyndi á Heimi í markinu.
Dómari var Magnús Pétursson
og leyfði hann leikmönnum full
grófan leik, einkum í síðari hálf-
leik. — B. Þ.
— Glöggt er t>að
Framhald af bls. 13.
ins að öðru leyti. Kannske var
það ekki annað en tilraun til að
fela aðalatriðið, en Finnbogi er
skrýtinn og kafar oft djúpt til
fanga. Ekki kæmi mér á óvart,
þótt það sannaðist síðar, að til-
gangurinn hafi verið að sjá um
það, að Guðmundur I. Guðmunds
son kæmist hvergi að. Finnbogi
hefði sjálfsagt viljað skapa Sjálf-
stæðisflokknum tvö ný þingsæti
í því skyni.
Kjördæmafrumvarp Framsókn
ar var mútan, sem Finnbogi og
„bræðralagið“ (Hannibal og
bróðir Alfreð) áttu að fá fyrir að
bregða fæti fyrir réttarbótina.
Þar kemur skýringin á því, að
kommúnistar voru svo lengi að
átta sig á því, hvort þeir ættu að
gerast meðflutningsmenn að
frumvarpinu. Enginn efast um að
Finnbogi var reiðubúinn. En það
fór svo að lokum, að almenn-
ingsálitið neyddi flokkinn til þess
að fylgja réttum málstað að
þcssu sinnL
Framh. af bls. 8
sá grunntónn í barmi altilver-
unnar, að vér séum þá og þvi að-
eins í samræmi við eðli hennar,
ef vér erum miskunnsamir.
Orð guðspjallsins hljóma sem
boðorð. En þau eru fyrst og
fremst boðskapur. Hvað tjóar að
segja þér, hvernig þú eigir að
vera, nema þér sé sagt um leið
og fyrst, hver séu rökin í grunni
þeirrar tilveru, sem þú ert hluti
af?
Hér talar Jesús frá Nazaret. Og
hann segir blátt áfram: Vertu
líkur Guði, föður þínum. Hvern-
ig? Þú færð ekki líkst honum að
valdi né viti. En þú getur líkst
honum um atferli í einni grein,
þú getur verið miskunnsamur í
líkingu viC hann, þú getur líkst
honum að hjartalagi. Og það
skiptir öllu. Því að valdið er ekki
vera hans. vizkan er ekki vera
hans. Hvort tveggja það og allt
annað, sem hann er, lýtur því,
sem er innst og dýpst í barmi
hans, og það er miskunn. Ef
strengur hjarta þíns stillist til
samræmis við þann frumtón, þá
ertu Guði líkur“.
Síðar í ræðunni sagði Sigur-
björn Einarsson biskup á þessa
leið:
„Ríkið eilífa og eina sanna er
miskunn. Mannheimur afneitar
þessum veruleika og er viðskila
við gleðina, lífið, föðurinn og riki
hans. En þú átt það samt, mann-
heimur, mannsbarn, þér er gefið
ríkið, án verðskuldunar, af misk-
unn: Vertu ekki hrædd, litla
hjörð, því að föður yðar hefur
þóknazt að gefa yður ríkið. Þú
ert ósannur, þú falsar tilveru
þina, þegar þú ert miskunnar-
laus. Þú ert sannur, þú ert með
sjálfum þér, ef þú ert miskunn-
samur, þú ert þá barn þess föður,
sem þú átt, berð mynd þess Guðs,
sem hefur skapað þig og misk-
unnar þér.“
Að prédikun Sigurbjarnar Ein-
arssonar biskups lokinni hófst
altarisganga og þjónuðu fycir
altari þeir séra Jón Auðuns dóm-
prófastur, og sé.a Sigurbjörn Ást
valdur Gíslason. Til altaris voru
hinn nývígði biskup og biskups-
frú Magnea Þorkelsdóttir og þeir
sem aðstoðað höfðu við vigsluna.
Þessari virðulegu og hátíðlegu
vígsluathöfn í Dómkirkjunni
lauk með því að sunginn var
þjóðsöngurinn.
Á sunnudagskvöldið hélt kirkju
málaráðherra veizlu að Hótel
Borg til hciðurs hinum nývigða
biskupi