Morgunblaðið - 11.07.1959, Side 6

Morgunblaðið - 11.07.1959, Side 6
e MORGUIVBLAÐIÐ Laugardagur 11. júlí 1959 Mynd þcssi kom í danska blaðinu Jyíiandsposten 7. 6. 1959 ogf er af 12 íslenzkum stúlkum, sem eru við nám í Als-husholdningsskole, Vollerup við Sönderborg. Stúlkurnar fóru nýlega í skemmti ferð yfir landamærin til Þýzkalands, og sungu þar á þremur skemmtunum, sem haldnar voru í Flensborg og öðrum smábæjum þar í grennd. Er myndin tekin við það tækifæri. 42 námsmeyfar í hús mœðraskólanum á Laugalandi sl. vefur Rúmlega 95 þús. gestir í Þjóðleikhúsinu s.l. leikár HÚSMÆÐRASKÓLANUM á Laugalandi var slitið sunnudag- inn 14. júní s. 1. Hófst athöfnin með því að sóknarpresturinn síra Benjamín Kristjánsson, formaður skólanefndar, flutti guðsþjón- ustu, en að henni lokinni ávarp- aði forstöðukonan, ungfrú Lena Hallgrímsdóttir, námsmeyjar og afhenti þeim skírteini sín. Alls stunduðu 42 stúlkur nám í skól anum undanfarandi vetur, en af þeim luku 35 burtfararprófi. Hæsta aðaleinkun við prófið: 9,00 hlaut Þóra Angantýsdóttir frá Hauganesí við Eyjafjörð. Forstöðukonan gat þess í ræðu sinni, að heilsufar hefði verið hið bezta í skólanum, og hefði hann sloppið undra vel við ýmsar farsóttir, sem víða hefðu gert usla í skólunum. Handavinna nemenda, sem bæði væri mikil og góð, sýndi það að vel hefði verið unnið í skólanum. Var sýning á handavinnu námsmeyja laugardaginn 13. júní, fjölsótt að venju. Svo sem ávallt hefur tíðk azt voru boð milli Menntaskólans á Akureyri og Laugalandsskóla. Heimavistarkostnaður yfir 9 mánuði var kr. 4750,00. Náms- meyjar og kennslukonur fóru skemmtiferð til Ásbyrgis. Að skólaslitum loknum var sezt að kaffiborði og kvaddi þar ein af námsmeyjum skólans, ung frú Heiðdís Norðfjörð, sér hljóðs og ávarpaði kennara og árnaði skólanum allrar blessunar. Joanne Wilson. Sú nýlunda var í starfi skólans á síðastliðnu ári, að hann bauð til námsdvalar ungri mennta- konu af vestur-íslenzkum ætt- um, ungfrú Joanne Wilson frá Winnipeg. Amma hennar í móður ætt er frú Guðrún Skaptason, nafnkunn merkiskona í Vestur- heimi, systir dr. Valtýs Guð- mundssonar. Ungfrú Wilson dvaldi hér á landi frá því í júní 1958 og þang- að til um miðjan desember, og var þá orðin altalandi á íslenzka tungu, enda þótt hún hefði ekki reynt að tala hana fyrr. Vildi skóiinn með þessu hafa forgöngu um, að sem flestir íslenzkir skól- ar byðu vestur-íslenzlcum ungl- ingum til slíkra námsdvala, ef það mætti verða til þess að enn um sinn að viðhalda og efla kynn ingu og vináttu ungs fólks af íslenzkum stofni austan nafs og vestan. Þessi unga og gáfaða stúlka varð öllum kær, sem kynntust henni, og væntir skólinn þess, að hún hafi einnig haft nokkra ánægju af dvöl sinni á íslandi. Heimsóknir Laugardaginn 23. maí komu tuttugu ára nemendur í heimsókn til skólans og færðu honum veg- legar gjafir: Vandaðan borðbún- að og kaffisamstæðu úr silfri. Frú Anna Magnúsdóttir frá Siglu firði afhenti gjafirnar með hlý- legri ræðu, rakti gamlar minn- ingar og árnaði skólanum heilla. Alls mætti 21 námsmær af 29, sem voru í skóanum veturinn 1938—39. Drukkið var síðdegis- kaffi hjá prestshjónunum á Laugalandi, en síðan dvöldu eldri námsmeyj arnar í skólanum langt fram á kvöld og skemmtu sér hið bezta með þeim yngri, Við hádegisverð í skólanum á- varpaði forstöðukonan og formað ur skólanefndar gestina og þökk- uðu hiýhug þeirra og góðar gjaf- ir til skólans. Sérstaklega ávarp aði formaður skólanefndar frú Valgerði Halldórsdóttur, sem var Úðun garða LVAKANDA hefir borizt eftirfarandi bréf frá gróðra- stöðinni Alaska: Velvakandi góður! „Það var gott og þarft að sjá hjá þér greinina um skrúðgarða- úðun miðvikudaginn 8. júlí. Því er ekki að neita, að það eru hrein ustu vandræði, þegar nágrannar láta garðyrkjumenn úða garðá sína, gegn skordýrum sitt á hverjum tíma. Úðunin gerir þá ekki nema hálft gagn og er miklu kostnaðarsamari, heldur en ef garðar í heilu hverfi eru úðaðir samtímis. Frá þvi að ég hóf rekstur fyrir- tækis míns fyrir rúmlega sex ár- um, hefi ég stöðugt hvatt fólk til samvinnu um skrúðgarðaúðun. Hér á árunum fékk ég jafnvel Velvakanda í lið með mér, ásamt því að eyða talsverðu fé í auglýs- ingar, þar sem að ég hvatti fólk til þess að láta úða garða sína í sama hverfi samtímis. Þegar um hverfisúðun er að ræða höfum við ávalt boðið afslátt á úðunar- gjaldinu. Sá garðeigandi, sem hefur tekið á sig það ómak að safna saman tíu görðum í sínu hverfi, hefur fengið allt niður í 50% afslátt af úðunargjaldinu á sinn garð. Þessi aðferð hefur gef- ist vel, af framkvæmum við á gestur skólans þennan dag, en hún var forstöðukona á Lauga- landi fyrstu þrjú árin, eftir að skólinn var endurreistur, við miklar ástsældir nemenda sinna. f ræðu sinni þakkaði frú Val- gerður boð skólans og lýsti á- nægju sinni yfir öllum þeim framkvæmdum og umbótum, sem gerðar hefðu verið á skól- anum síðan hún var skólastjóri þar fyrir 20 árum. hverju ári margar hverfisúðanir. Þú Velvakandi góður getur að- stoðað okkur mikið um milli- göngu við skiptavinina. Samvinna nauðsynleg SK um úðun frá garðeigend- um verður að koma frá garðeigendum verður að koma frá þeim sjálfum. Við megum ekki og getum ekki þvingað þjón ustu okkar upp á garðeigendur, og áreiðanlega er það miklu heppilegra að hafa ofurlitla sam- vinnu um skrúðgarðaúðun, held- ur en ef til þess kæmi að hið opinbera lögskipao, úðun. Hvort sem að um hverfisúðun eða úðun einstakra garða er að ræða, þá erum við ávallt til reiðu að þjóna fólki, þegar það þarf á okkur i ð halda. VL höfum völ á þaulæfðum og varkárum mönn- um, sem áreiðanlega rækja starf sitt á öiuggan og hættulausan máta. Geti ekki orðið um samvinnu að ræða milli garðeigenda um úðun á görðum þeirra, er það tillaga mín að garðeigandi, sem ætlar að láta úða garð sinn, láti næstu nágranna sína vita hvað í vændum sé með slíkum fyrir- vara, að nágrannarnir geti gert viðhiítandi ráðstafanir. Að endingu, fyrst að ég fór að TÍUNDA leikári Þjóðleikhússins lauk síðastliðinn sunnudag, 5. júlí, með sýningu leikflokksins frá Det Norske Teatret í Osló á leikritinu „Kristin Lavransdatt- er“. Sýningar á leikárinu urðu alls 214, þar af 193 í Reykjavík og 21 utan Reykjavíkur. Á leikárinu voru sýnd 16 verk- efni, þar af 1 gestaleikur. Leikrit voru 14, söngleikir 2. Leik- flokkur frá Det Norske Teatret í Osló sýndi norskt leikrit. Flestar sýningar voru á óperunni „Rak- arinn í Sevilla“ eða 31, sýningar- gestir 17.685. Hér fer á eftir skrá yfir sýn- ingar og tölu leikhúsgesta á leik- árinu: 1. „Horft af brúnni“ eftir Art- hur Miller. Leikstjóri: Lárus Pálsson. Sýningar 6 úti á landi, 2 í Reykjavík. Sýningargestir 1722 úti á landi, 824 í Reykjavík. — Tekið upp aftur frá fyrra ári. 2. „Haust“ eftir Kristján Al- bertsson. Leikstjóri: Einar Páls- son. 7. sýningar. Sýningargestir 1893. 3. „Faðirinn“ eftir August Strindberg. Leikstjóri: Lárus Pálsson. 5 sýningar í Reykjavík, 11 úti á landi. Sýningargestir í Reykjavík 1455, 1792 úti á landi. — Tekið upp aftur frá fyrri ári. 4. „Horðu reiður um öxl“ eftir John Osborne. Leikstjóri: Bald- vin Halldórsson. Sýningar 23 í Reykjavík, 4 utan Reykjavíkur. Sýningargestir 9597 í Reykjavík, stinga niður penna, langar mig að biðja þig Velvakandi að biðja fólk að hafa gát á grenitrjám í görðum sínum um þessar mundir. Aidrei þessu vant, þá er lúsar- tegund, stór og ljót, farin að leggjast á greni í görðum og gæti því verið, að fólk óskaði enn einu sinni eftir þessum leiðindar úð- unarmönnum." Virðingarfyllst, Alaska gróðrastöðinni 8. júlí, 1959 Jón H. Björnsson. Rangt símanúmer? DVARD Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar, hringdi tii Vel- vakanda vegna kvörtunar manns nokkurs um ógreið svör á skrif- stofu Dagsbrúnar. Var kvörtun þessari komið á framfæri í dálk- um Velvakanda á fimmtudag. Sagði Edvard, að þar hlyti að gæta einhvers misskilnings. Þann ig væri ekki svarað í símann hjá Dagsbrún. Hann hefði reynt að rannsaka málið, hvort einhver óviðkomandi hefði kunnað að taka upp símann á skrifstofunni og svarað þannig, en ekki getað haft upp á neinum slíkum. Hefur honum helzt dottið í hug, að við- komandi maður hafi fengið rangt númer og einhver verið að gera að gamni sínu. Það sé eina skýr- ingin, sem hugsanleg sé. 966 utan Reykjavíkur. 5. „Sá hlær bezt“ eftir Howard Teichmann og George Kaufman. Leikstjóri: Ævar R. Kvaran. Sýa ingar 15. Sýningargestir 6388. 6. „Dagbók Önnu Frank“ eftir Frances Goodrich og Albert Hai- kett. Leikstjóri: Baldvin Hali- dórsson. 9 sýningar. Sýningar- gestir 4071. — Tekið upp aftur frá fyrra ári. 7. „Rakarinn í Sevilla“, ópera eftir G. Rossini. Leikstjóri: Thyge Thygesen. Hljómsveitarstjóri: Róbert A. Ottósson. 31. sýning. Sýningargestir 17.685. 8. „Dómarinn“ eftir Vilhelm Moberg. Leikstjóri: Lárus Páls- son. 9 sýningar. Sýningargestir 2232. 9. „Á yztu nöf“ eftir Thorton Wilder. Leikstjóri: Gunnar Eyj- ólfsson. 16. sýningar. Sýningar- gestir 6915. 10. „Undraglerin" leikrit fyrir börn, eftir Óskar Kjartansson. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. 22 sýningar. Sýningargestir 12902. 11. —12. „Fjárhættuspilarar" eftir Nikolaj Gogol, og „Kvöld- verður kardinálanna" eftir Julio Dantas. Leikstjóri: Lárus Páls- son. 4 sýningar. Sýningargestir 816. 13. „Húmar hægt að kveldi" eftir Eugene O’Neill. Leikstjóri: Einar Pálsson. 11 sýningar. Sýn- ingargestir 3151. 14. „Tengdasonur óskast" eftir William Douglas Home. Leik- stjóri: Gunnar Eyjólfsson. 11 sýn ingar. Sýningargestir 5526. 15. „Betlistúdentinn'V óperetta eftir Karl Millöcker. Leikstjóri: Prófessor Adolf Rott. Hljómsveit arstjóri: Hans Antolitsch. 24 sýn- ingar. Sýningargestir 15.073. 16. „Kristin Lavransdatter", leikrit eftir Tormod Skagestad, gert eftir samnefndri sögu Sigrid Undset. Gestaleikur frá Det Norske Teatret í Osló. Leikstjóri: Tormod Skagestad. 4 sýningar. Sýningargestir 2365. Sýningar á leikárinu alls 214. Sýningargestir í Reykjavík 90893. Sýningargestir úti á landi 4480. Samtals 95.373. 109 hlutu fram- haldscinkunn GAGNFRÆÐASKÓLANUM við Vonarstæti var slitið 10. júní. í skólanum voru eins og undanfar- in ár eingöngu nemendur, sem bjuggu sig undir landspróf mið- skóla. Skólastjóri Ástráður Sigur- steindórsson lýsti skólastafinu og úrslitum prófsins. Prófinu hafa þegar lokið 160 nemendur, en nokkrir eiga enn eftir að ljúka prófi vegna veik- inda. Af þeim stóðust 151 nem- andi prófið og 109 nemendur fengu framhaldseinkunn eða yfir 6,00 í landsprófsgreinum. Eru það rúm 68% þeirra, sem prófinu hafa lokið. Einkunnir skiptast að öðru leyti þannig: I. ágætiseinkunn hlau 1 nemandi, I. einkunn hlutu 36 nemendur, II. einkunn 72 nem- endur og III. einkun 42 nemend- ur. Þrír utanskólanemendur gengu undir próf við skólann. Aðeina einn þeirra hefur lokið prófinu og hlaut hann framhaldseinkunn. Hæstu einkunn í skólanura hlaut Gísli H. Friðgeirsson 1. ág. eink. 9,00. Að lokum afhenti skólastjóri bókaverðlaun fyrir góða frammi- stöðu í prófinu svo og hringjurum skólans og umsjónarmönnum. Þá þakkaði hann kennurum og nemendum skólans ánægjulegt samstarf og árnaði þeim heilla. Císli Einarsaon héraðsdómslögmaóur. Máiflulningsskrifstofa. Laugavegi 20B. — Sími 19631. ' ' ÍI I » ! ‘ ~ í gær opnaði Jón Geir Árnason, sem er ungur rakarameistari, og hefur rekið rakarastofu á Baldursgötunni, nýja rakarastofu að Álfheimum 38 og er þessi mynd tekin þar. skrifar úr daqleQq hfínu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.