Morgunblaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 3
taugardagur 1. ágúst 1959 'IIORC.UNBLAÐIÐ 3 Stóri borinn enn stórvirkari en áður Nýr útbúnaður gerir kleift oð bora 2500 mtr. djúpar holur — og að beita bornum á ská FENGIN hafa verið ný tæki .við hinn stóra jarðbor ríkis- ins og Reykjavíkurbæjar, sem gera það að verkum, að bor- inn er nú miklum mun stórvirkari en áður. Er hér um að ræða nýja og öfluga vindu til þess að lyfta borstöngunum, en með tilkomu hennar mun verða hægt að bora allt að 2500 mtr. djúpar holur, í stað um 750 mtr. áður. Auk þess cr fenginn útbúnaður, sem gerir kleift að bora, ekki aðeins beint niður, heldur einnig á ská í hvaða átt sem er. Mbl. hefir spurzt fyrir um þetta hjá Gunnari Böðvarssyni, forstöðumanni jarðhitadeildar raforkumálastjórnar. Kvað hann hér 'um mikla framför að ræða, og væri þess að vænta ,að bor- anir gætu nú orðið enn árangurs- ríkari en áður. — Það væri ekki sízt mikilvægt, sagði Gunnar, að 52 ísl. bækur á alþjóðlegri bókasýningu TJM ÞESSAR mundir stendur yf- ir alþjóðleg bókasýning í Lund- únum með þátttöku 25 þjóða, þar á meðal íslendinga. Að sýning- unni standa samtökin „National Book League" þar í borg og er hún haldin í salarkynnum þeirra. Sams konar sýningar hafa verið haldnar þar annað hvert ár að undanförnu, og tóku íslendingar þátt í þeirri, sem haldin var 1955. Ætlazt er til, að á sýningum þess um komi fram það bezta í bóka- gerð þátttökulandanna, en þess einnig gætt, að bækurnar séu af ýmsum efnisflokkum. Héðan voru að þessu sinni send alls 52 bindi til sýningarinnar, og voru það bækur, sem komlð höfðu út á árunum 1957 og 58. Bókafulltrúi, Guðmundar G. Hagalín, rithöfundur, annaðist val bókanna fyrir hönd menrta- málaráðuneytisins, en sendiráð Framh. á bls. 14. nú væri hægt að bora á ská nið- ur í jarðlögin. Bæri þar einkum tvennt til. í fyrsta lagi væru þá meiri líkur en ella til að hitta á heitar æðar, þar sem sumar æðanna a. m. k. eru lóðréttar sprungur í jarðlögunum. í öðru lagi væru hugsanlega nokkrir staðir hér í bæjarlandinu, þar sem líkindi væru til, að^ árang- ur næðist við borun ,en borinn hefði hins vegar ekki komizt að hingað til vegna byggðarinnar. Væru nú að sjálfsögðu meiri möguleikar fyrir hendi að þessu leyti, þar sem ekki þyrfti lengur að setja borinn niður nákvæm- lega á þeim stað, þar sem bora skal. — Rétt er að taka það fram, að þótt byrjað sé að bora holu beint niður, er hægt, með lítilli fyrirhöfn að bora út úr henni á ská síðar. Stóri borinn hefir undanfarið verið hjá Undralandi milli Sig- túns og Suðurlandsbrautar. Þeg- ar hlé var gert á boruninni þar fyrir nokkru til þess að koma hinum nýju tækjum fyrir, var holan orðin 760 mtr. djúp. Nú er borinn aftur kominn í gang þarna, og sagði Gunnar Böðvars- son, að hugsanlegt væri að bor- að yrði þar allt niður í 2000 mtr., og þá e. t. v. líka gerð tilraun með að bora út úr holunni eins og áður er lýst. Aúk fyrrgreinds útbúnaðar voru keyptar nýjar borstangir — 1200 metrar, í viðbót við þá 1200 mtr., sem til voru fyrir. — Sagði Gunnar Böðvarsson, að allur þessi útbúnaður hefði kostað rúmlega 100 þúsund dollara. Ellý Vilhjálms stolið frá Fák INNBROT hefur verið framið í „veðbankahús“ Fáks á skeiðvell- inum við Elliðaár. Þar inni voru geymdar peysur á knapa sem not aðar eru á kappreiðum, einnig á- breiður á hesta, með númerum 1—6. Eru peysurnar með merki Fáks. Rannsóknarlögreglan hefur ver ið beðin að rannsaka mál þetta. Eru það tilmæli hennar til þeirra er kynnu að geta gefið upplýs- ingar um hinar stolnu peysur eða ábreiður, að gera sér aðvart. — Vinlandssigling Framh. af bl. 1. leggja af stað frá Orkneyjum, ráðlögðu gamlir sjómenn þeim að hætta við förina. — Sögðu þeir ,að báturinn væri of lítill og of síðla sumars lagt upp í förina. Vildi heldur syngja með KK — sveitinni HIN vinsæla dans- og dægurlaga- söngkona, Elly Vilhjálms, sem sungið hefur með hinum ágæta .sextett, Kristjáns Kristjánssonar KK-sextettinn,er nýkominn heim úr nokkra vikna ferð til Banda- ríkjanna, þar sem hún var hjá vinum sínum, sér til skemmtun- ar í sumarleyfi sínu. Þau voru að fara á æfingu með hljómsveV- inni. Nú er sumarleyfið bú’ð, sagði KK og þá verður maður að láta hendur standa framúr erm- unum. Við spilum og syngjum í Þórskaffi eins og áður og nú um helgina bregðum við okkur aust- ur í Gaulverjabæ og ætlum að leika þar og syngja á dansskemmt un í félagsheimilinu þar. Það er alltaf gaman að bregða sér um helgar upp í sveit til að spila, sagði KK. Elly kvaðst hafa sungið lítils háttar í leyfinu vestur í Ameríku. Það var á sumarskemmtistað ain- um, að ég var beðin um að syngja með hljómsveitinni, sem allt voru blökkumenn músxk- kalskir með afbrigðum. Nú, það var eins og maður heyrir svo oft um að gerist þar vestra, að mér var boðið upp á samning, um að syngja á þessum skemmtistað með hljómsveitinni þar til í haust að honum verður lokað. — En það hvarflaði ekki að Elly að taka þessu boði. Hún hefði vafa- laust getað sagt sitthvað fleira frá Ameríkuförinni, en eins og allir aðrir hafði hún ekki tíma og KK ekki heldur, því það dug- ar ekki annað en að láta hendur standa framúr ermum, eins og KK komst áðan svo réttilega að orði. Fœr Sigríður Ceirsdóttir ekki að fara til Langasands? FEGURÐARKEPPNIN á Langa- ekki haldin oftar. Þessu valda sandi í Kaliforníu verður líklega deilur milli stjórnenda keppn- Iiéraðsmót Sjálfstæðismanna & Austurlandi verður haldið í Egilsstaðaskógi á morgun og hefst kl. 2 síðd. — Bjarni Benediktsson flytur aðalræðu mótsins. Auk þess verða ýmis skemmti- atriði, svo sem einsöngur, upplestur, skemmtiþættir og fimleikasýning (áhaldaleikfimi). i lok mótsins verður flugeldum skotið. Dansleikur verður bæði í kvöld og annað kvöld. — Héraðsmót Sjálfstæðismanna í Egilsstaðaskógi hafa jafnan verið fjölsótt, og sýnir myndin að o'an nokkurn hluta mannfjöldans á einu slíku mótl- innar og fyrirtækjanna, sem hafa kostað keppnina. Saman við það blandast sú staðreynd að vin- sældum fegurðarkeppninnar hef- ur hrakað. Athuganir sýna, að miklu minna var skrifað um hana í heimsblöðin nú en áður og hefur sú þróun staðið í nokk- ur ár. Hin mikla fegurðarkeppni hef- ur verið haldin á Langasandi síðustu 8 ár. Aðallega eru það tvö fyrirtæki, sem hafa kostað keppnina, baðfatafyrirtæki eitt og snyrtivöruverksmiðjan Max Factor. Nú er baðfatafyrirtækið óánægt með það að þurfa að leggja meira fé fram en Max Factor, sem það telur að hafi hrifsað til sín mest auglýsinga- gildi keppninnar. Blöð bæði í Bandaríkjunum og í öðrum löndum hafa á ýmsan hátt látið í ljósi óánægju sína með framkvæmd keppninnar. — Mörgum blöðum virðist ekki búið nógu tryggilega um að dóms úrskurður sé réttlátur og uppi er orðrómur um að annarleg sjón- armið ráði meiru um hver sigrar en fegurðin. Sé þessar fregnir frá Los Angeles réttar, þá er miður far- ið að hin fagra nýja fegurðar- drottning Islands fær ekki að fara út á Langasand. Hún kemst þá aldrei þangað. STAKSTEIAIáR Einstæð sýndarmennska Framsóknarmenn hafa nú enn gerzt berir að einstæðri sýndar- mennsku og yfirborðsliætti í sam- bandi við afgreiðslu kjördæma- málsins. Nú hafa þeir flutt tillögu um að stjórnarskrárbreytingin verði að nýju lögð undir almenna þjóðaratkvæðagreiðslu, sem fram fari 23. ágúst nk., en Alþingi skuli á meðan frestað ásamt afgreiðslu stjórnarskrárfrumvarpsins! Þessi fáránlega tillaga hefur að sjálfsögðu verið felld, af full- trúum allra þeirra flokka, sem fluttu stjórnarskrárfrumvarpið á sl. vori og nær 73% íslenzkra kjósenda fólu í almennum alþing iskosningum að framkvæma loka afgreiðslu málsins. Þrátt fyrir þennan skýlausa dóm þjóðarinn- ar koma Framsóknarmenn, sem hlutu aðeins rúmlega 27% at- kvæða, með þá tillögu að ó- merkja hinn skýlausa vilja þjóð- arinnar í alþingiskosningunum og krefjast nýrrar þjóðaratkvæða greiðslu um málið!! Slíkar tillögur flytja ekki nema örvinglaðir menn. Næstu stórvirkjanir Undir forystu Sjálfstæðismanna hefur verið unnið að því sl. þrjá áratugi að hagnýta vatnsaflið til orkuframleiðslu, sköpunar auk- inna lífsþæginda og atvinnuör- yggis. Segja má að höfuðborgin hafi haft forystu í þessu merki- lega uppbyggingarstarfi. Undir forystu Sjálfstæðism- ,..ia í Reykjavík var baráttan tekin upp fyrir virkjun Sogsins, árið 1931. Framsóknarmenn rufu þá Alþingi til þess að hindra þá þjóð nytjaframkvæmd. En málið náði fram að ganga fáum árum síðar og síðan hefur hver stórvirkjunin rekið aðra í Sogsfossum. Er full- virkjun Sogsins nú að verða lok- ið. En þörfin fyrir raforku, bæði á Suðurlandi og annars staðar held ur áfram að aukast. Þess vegna er fyrir nokkru farið að bolla- leggja um það, hvar næstu stór- virkjanir muni rísa. Hefur helzt verið rætt um Þjórsá, Hvítá og Tungnaá. Ekki skal fullyrt um það hér hver niðurstaðan verður, og hvar næsta stórvirkjun fyrir Suðurland og Reykjavík verður framkvæmd. En engum blandast hugur um, að hér er um að ræða eitt merkilegasta framfaramál þessa landshluta. En einnig í öðrum landslilutum er nauðsynlegt að unnið sé að því af festu og framsýni að ákveða nýja virkjunarstaði. Bæði á Vest- fjörðum og Austfjörðum hefur skv. rafvæðingaráætlun Sjálf- stæðismanna verið komið upp nýjum orkuverum. En þar eins og hér syðra éykst þörfin stöðugt fyrir raforku til atvinnurekstrar og heimilisnotkunar. Ný atvinnugrein í grein, sem dr. Jakob Sigurðs- son skrifaði fyrir nokkrum dög- um hér í blaðið, ræddi hann m. a. um framtíð niðursuðuiðnaðar hér á Iandi. Skýrði hann frá starf- semi Fiskiðjuvers ríkisins á þessu sviði. Kvað hann horfur á sölu niðursoðins fiskjar og síldar goð- ar. Enginn vafi er á því að niður- suðuiðnaðurinn á mikla framtið fyrir sér hér á landi. Margt bend- ir til þess að við höfum á ui.dan- förnum árum verið helzt til tóm- látir um uppbyggingu hans. Vitað er að aðrar fiskveiðiþjóðir Evr- ópu, eins og t. d. Norðmenn, Þjóð verjar og Danir hafa stórkostleg- ar tekjur af niðursuðu fiskjai og síldarafurða. Ætti aðstaða okkar íslendinga til þess að framleiða góðar niðursuðuvörur úr þessu hráefni sízt að vera verri en þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.