Morgunblaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 9
taugardagur 1. ágúst 1959
M OR CriTM P TH ni Ð
9
Umfer&arsíBa Morgunhlaðsins
Árlega haía farizt hér 14 manns í um-
ferðarslysum oð jafnaði á seinustu 5 árum
1 Hvor á sökina?
Arefcstur tveggja farartækja á venjulegum gatnamót-
um er mjög algengur eins og allir vita. — Til þess að
forðast slíkt, hefur löggjafinn ákveðið að sá ökumaður
skuli stanza, sem sér annað farartæki koma sér á
vinstri hönd (varúð til vinstri).
Ef allir ökumenn færu eftir þessari reglu, yrði aldrei
árekstur við gatnamót.
Fimmta hver hifreið í Reykjavík hefur lent í árekstri
síðan um áramót — og hér í bæ hafa 120 manns slasast
í umferðinni, margir alvariega, á sama tíma.
2 Hætfan liggur i leyni
Þar sem vegur er lagður um hæðardrög og dældir,
liggur hættan í leyni. Við slíkar aðstæður varð slys á
fólki, við bílaárekslur í Borgarfirði síðastl. sumar.
J Afengi og aksfur
fer aldrei saman
Einungis í Reykjavík hafa lögregluþjónar fært 170 öku-
menn til blóðrannsóknar, síðan um áramót, vegna
meintrar ölvunar við akstur. Þetta er geigvænleg tala
— og hefur aldrei áður orðið svo há.
ÞVÍ miður verða ekki öll slys
umflúin. Ýmist náttúruham-
farir eða óviðráðanleg atvik
eru því valdandi. Því er þó
ekki að neita, að langflest
umferðarslys verða vegna
óvarkárni mannanna sjálfra.
Það er hörmuleg staðreynd,
að innan okkar fámenna þjóð-
félags er 14 mannslífum
fórnað árlega fyrir vangá
vegfarenda, ýmist hinna
gangandi eða þeirra, sem
ökutækjum stjórna.
Sterkasta aflið til þess að
aftra þessum slysum, hlýtur
því að vera það, að hver ein-
staklingur geri sér ljósa þá
ábyrgð, sem á honum hvílir
gagnvart meðbræðrum sínum
í umferðinni. En fleira kem-
ur þar til greina, svo sem
fræðsla í umferðarmálum í
skólum og fyrir almenning,
svo og ströng löggæzla og
þung viðurlög þeim til
handa er afglöpunum valda.
Áhugi almennings fyrir
öryggismálum og slysavörn-
um má aldrei sljóvgast. —
Sterkt almenningsálit stuðlar
að auknum menningarbrag í
þeim málum, sem öðrum.
Þáttur blaða og útvarps er
því mikilvægur á þessu sviði,
bæði til fræðslu og til opin-
berrar gagnrýni.
Umferðarsíða þessa blaðs á
að minna oss á þá daglegu
ábyrgð, sem á oss öllum
hvílir, ekki einungis öku-
mönnum, heldur og hinum
fótgangandi — og ekki ein-
ungis um þessa helgi, verzl-
unarmannahelgina, sem þó
hefur sína sérstöðu vegna
aukinnar umferðar — held-
ur um allar helgar og alla
daga ársins. * /
Minnumst þess að hörmu-
legu slysi kann að verða af-
stýrt síðar á æviskeiði manns,
sem á barnaskólaárum sínum
fær fræðslu um reglur þær,
sem gilda í götuumferð — og
að ein góð viðvörunarmynd í
blaði, eða athygilsverð setn-
ing í útvarpi getur vakið þá
til umhugsunar, sem láta dag-
legan ávana sljóvga hug sinn
fyrir hættunum.
Myndir þær, sem hér birt-
ast, hafa ekki sést áður í ísl.
blöðum, en eiga allar erindi
til manna, sem mæta vilja
hverjum degi vakandi og við-
búnir.
Jón Oddgeir Jónsson.
Þessi utangátta lögbrjótur veldur truflun og slysahætto
á götunni. Meiri hluti gangandi vegfarenda lítur ekki
á götuljósin, en skygnist um eftir tækifærum til að skjót-
ast á milli bifreiða sem eru á ferð.
5 Hraöur akstur
Þegar ökumenn nálgast beygjur á þjóðveginum, her
þeim að draga úr hraða ökutækisins á ð u r en þeir
koma í beygjuna — annars er voðinn vís, eins og
myndin sýnir.
6 Hann leikur sér með
lif félaga sinna