Morgunblaðið - 01.08.1959, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 1. águst 1959
íslenzka liðið vann úrval
Þórshafnar með 5 gegn 7
Fœreyingar áttu betri leik nú en
í landsleiknum á dögunum
Þórshöfn í Fœreyjum 31. júlí — frá Axel Sigurðssyni,
, fréttamanni Mbl. meö B-landsliðinu. —
1 D A G lék ísl. liðið annan kappleik sinn í Færeyjaförinni
og fór hann fram í Þórshöfn sem hinn fyrsti. Var nú leikið
gegn úrvalsliði Þórshafnar og fóru leikar svo að íslenzka
liðið sigraði með 5 mörkum gegn 1. í hálfleik stóðu leikar
svo að ísl. liðið hafði skorað 4 mörk gegn engu.
Helgason frá ísafirði fjórða
mark íslands og voru falleg-
ar stöðuskiptingar undirbún-
-jr Færeyingar betri en síðast
Færeyska liðið var í þessum
leik betra en í landsleiknum á
dögunum. Sóttu Færeyingarnir
fast í upphafi leiksins þó þeir
fengu ekki skorað. Misstu þeir
smám saman tökin á leiknum og
ekki bætti það úr skák fyrir Fær
eyingunum að þeir skoruðu
snemma mark hjá sjálfum sér.
Framherjarnir skiptast á
, að skora
En þá komust framherjarn-
ir íslenzku „í gang“ og skor-
aði Högni Gunnlaugsson Kefla
vík á 23. mín., Guðmundur
Óskarsson á 35. mín. eftir að
Högni hafði sent fallega fyr-
ir færeyska markið. Tveim
mín. fyrir hlé skoraði Björn
ingur þess marks.
Er um stundarfjórðungur var
af síðari hálfleik skoraði Baldur
Scheving fimmta mark Islands
og stóð lengi 5 gegn 0. En rétt
fyrir leikslok tókst h. útherja
Færeyinga Torstein Magnussyni
að koma knettinum í mark ís-
lands. Hann var nú sem í lands-
leiknum áberandi bezti maður
færeyska liðsins.
í liði íslands áttu beztan leik
Helgi Hannesson, Björn Helga-
son og Baldur Scheving.
Síðasti leikurinn í förinni fer
fram á morgun, laugardag. Leik-
menn biðja allir fyrir kveðjur
heim og eru við beztu lieilsu.
— Kormákr.
M eisíaramótiö
í frjálsum íþróttum
MEISTARAMÓT íslands (aðal-
hluti) og Kvennameistaramót ís-
lands í frjálsum íþróttum fer
fram dagana 9. til 11. ágúst 1959.
Allar keppnisgreinar fara fram
á Laugardalsvellinum í Reykja-
vik, en óráðið er þó enn hvort
sleggjukast fari þar fram eða
ekki.
★
Þátttökutilkynningar skulu
vera komnar í hendur fram-
kvæmdarnefndar mótsins, póst-
hólfi 1099, í síðasta lagi þriðju-
daginn 4. ágúst kl. 18.00. Jafn-
framt skal fyrir sama tíma til-
kynna hver sé fyrirliði hvers
keppendahóps félags eða héraðs-
sambands).
★
Laugardaginn 8. ágúst kl. 14.00
skulu fyrirliðar, stjómendur
keppnisgreina og aðrir helstu
Starfsmenn mótsins, mæta á fund
arstað Frjálsíþróttasambandsins
Grundarstíg 2. Mun þeim þar
verða skýrt nánar frá fram-
kvæmd mótsins í einstökum at-
riðum. Þá verður þar og dregið
um riðla, um brautir, stökk- og
kastraðir fyrir keppnina á sunnu-
dag.
★
Nafnakall fer fram 10 mín. fyr-
ir auglýstan.keppnistíma. Kepp-
endur verða ekki boðaðir til
keppni um hátalarakerfi. Nafna-
kallið fer fram við miðdyr gengt
leikvelli. Skulu keppendur ávalt
ganga tun þær dyr, að og frá
leikvelli. Á gaddaskóm er bann-
að að ganga innanhúss.
★
Sex menn eru í öllum úrslitum,
nema grindahlaupum fimm
(vegna vöntunar á grindum), og
jafnvel fjórir í sleggjukastH af
óviðráðanlegum ástæðum. í
öllum riðlahlaupum (ncma
grindahl.) flytjast þrir fyrstu
menn úr hverjum riðli upp í
næsta hlaup á eftir. Þrir fyrstu
menn í hverri grein hljóta verð-
laun. Skulu þeir mæta hjá leik-
stjórn þegar að aflokinni hverri
úrslitakeppni.
Keppnisgreinar fyrir hvern dag
eru þannig:
9. ágúst: Hlaup, 200 m, 800 m,
5000 m, 400 m gr.hl. hástökk,
langstökk, kúluvarp og spjót-
kast. Fyrir konur: 100 m hlaup,
hástökk og kúluvarp.
¥
10. ágúst: Hlaup: 100 m, 400 m,
1500 m, 110 m gr.hl., kringlu-
■kast, sleggjukast, þrístclkk og
stangarstökk. Fyrir konur: 80 m
gr.hl., kringlukast og 4x100 m
boðhlaup.
11. ágúst: Fimmtarþraut, 4x100
m og 4x400 m boðhlaup og 3000
m hindrunarhlaup. Fyrir konur:
200 m hlaup, langstökk og spjót-
kast.
Reykjavík, 17. júlí 1959
f framkvæmdanefnd mótsins,
Guðmundur Sigurjónsson, Einar
Kristjánsson, Jóhannes Sölva-
son.
— Krúsjeff
Framhald af bls. 1.
ríkast af öllu væri þó að efna
til fundar með þeim Krúsjeff og
Eisenhower einum saman. Er hér
um gamalt herbragð Rússa að
ræða, sem hafa reynt að koma
tortryggni inn hjá Bretum og
Frökkum um að Bandaríkjamenn
muni leysa vandamál heimsins
án þeirrar íhlutunar.
Von Brentano utanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands átti
í morgun fund með Christian
Herter. Hann skoraði á *Hert-
er að varast það á síðustu dög-
um Genfarráðstefnunnar, að
láta nokkuð undan Russum í
Berlínarmálinu. Lagði Brent-
ano áherzlu á það, að allur
réttur og sanngirni væri með
Vesturveldunum í þessari
deilu. Varast yrði stöðuga
árásarhyggju Rússa og Vest-
urveldin mætti ekki láta
neinn bilbug á sér finna. Sér-
staklega bað von Brentano
Herter um að hafna tillögu
Rússa um fækkun í hernáms-
liði Vesturveldanna í Berlín.
Józkt úrvol
vann KR 5:1
KR-INGAR léku sinn fyrsta
leik í Danmörku í fyrradag.
Fór leikurinn fram í Frederiks
havn og mættu KR-ingar þá
úrvalsliði Jótlands en í því
voru m.a. 7 af landsliðsmönn-
um Dana. Leikar fóru svo að
Jótarnir unnu með 5 gegn 1.
Berlingske Tidende segir að
KR-ingarnir hafi leikið betur
en búizt var við. Hrósar blað-
ið þeim fyrir stuttan samleik
en segir að hann hafi liðið
yfirdrifið og með því misst
af marktækifærum.
— Bókasýning
Frh. af bls. 3
íslands í Lundúnum kom þeim á
framfæri á staðnum.
Sýningin var opnuð almenn-
ingi 15. júl sl. og mun standa til
13. ágúst.
í bréfi frá sendiráðinu í Lund-
únum, þar sem skýrt er frá opn-
un sýningarinnar, segir að ís-
lenzku bókunum hafi verið /al-
inn góður staður, og hafi þess
orðið vart, að þær vektu tals-
verða athygli sýningargesta.
Menntamálaráðuneytið,
Hraun i Oxnaúai.
Konungur austfirzkra
tjalla heimsóttur
10 daga ferð Ferðafélagsins á Snœfetl
og á hreindýraslóðir
FERÐAFÉLAG Islands ráðgerir
10 daga ferð austur á Brúarör-
Grálúða veiddist út
af Krísuvíkurbergi
EINN af blaðamönnum Mbl. átti
í fyrradag leið um Stokkseyri.
Þá var vélbáturinn Hásteinn I.
nýlega kominn úr róðri. Var búið
að landa aflanum og byrjað að
vinna úr honum í frystihúsinu.
— Guðni Guðnason, sem verið
hefur bátaformaður í 26 ár, sýndi
blaðamanninum sjaldséðan fisk,
sem veiðzt hafði í þessari veiði-
för bátsins. Það var grálúða, eða
svartspraka, eins og hún er köll-
uð í „Fiskum“ Bjarna Sæmunds-
sonar. Ennfremur sýndi Guðni
blaðamanninum löngu, sem Svíar
borða og heitir þá „Lútfisk“, enn-
fremur talsvert af blálöngu, sem
ekki er hægt að nýta og að sjálf-
sögðu þorsk, einnig þykkvalúru
og skarkola, sem Bretar eru svo
sólgnir í, stórkjöftu eða öfug-
kjöftu, eins og hún er stundum
kölluð og þá var nokkuð af lang-
lúru. — „Þetta var kallað óæti
í 'mínu ungdæmi, en mér þykir
hún bezti flatfiskurinn", sagði
Guðni formaður.
Grálúðan er afar sjaldgæfur
fiskur við suðurströnd landsins
og í „Fiskum" Bjarna, er þess
getið að hún hafi einu sinni
veiðzt í Faxaflóa. Þetta er djúp-
Akranestrilhir
AKRANESI, 31. júlí. — Þrír
trillubátar reru í gær. Aflahæst-
ur þeirra var Hagsæll, sem fékk
1000 kg. Ægir fékk 600 kg. afla
og Björg 500 kg.
Togarinn Akurey kemur hing-
að í nótt af Nýfundnalandsmið-
um. — Oldur.
fiskur, eins og karfinn, sem lifir
í köldum sjó á miklu dýpi.
★ Söltuð
Hásteinn hafði verið með veið-
arfæri sín undan Krísuvíkur-
bergi. Það var búið að skera grá-
lúðuna í tvennt og salta. Ekki
var vitað hver yrði þess aðnjót-
andi í plássinu að fá lúðuna til
suðu í hádegismatinn, en eina
leiðin til þess að nýta fiskinn er
að salta hann, vegna þess hve
feitur hann er. I hraðfrystihús-
inu hitti blaðamaðurinn Zóphoní-
as pétursson. Hann er búinn að
eiga heima á Stokkseyri í tvo ára-
tugi. Hann kvaðst einu sinni áð-
ur hafa séð grálúðu sem veiðzt
hafði á bát þaðan úr plássinu.
Aftur á móti væri sér minnis-
stæð grálúðan, sem veiddist á
bát, sem kaupmenn áttu norður
á Þórshöfn fyrir mörgum árum.
Þeir voru gráðugir í hana, sagði
Zóphonías, og hló við, en þegar
þeir voru búnir að bragða á
henni hafði glansinn fljótlega
farið af, því svo feit var hún, að
hún var eins og bræðingur á
bragðið!
Þessi grálúða sem Hásteinn
veiddi út af Krísuvíkurbjargi vóg
8 kg. Hún var svo feit í sárið
að það stirndi á það, og það var
líkast því, sem horft væri ofan í
fulla dós af vasilíni.
Risakarfinn var ferleg skepna.
I frystihúsinu sögðust þeir aldrei
hafa séð annan eins og sögðu að
hann hefði vegið nær 10 kg. —
Þeir kváðust ekki hafa heyrt um
svo stóran karfa fyrr, og spurðu
blaðamanninn, sem sagðist ekki
heldur vita þess dæmi. — Það
mun líklega vera eins dæmi, að
svo þungur karfi hafi veiðzt.
Humarveiðin er sæmileg. —
Höfðu hraðfrystihúeinu borizt
um 90 tonn á fjórum dögum.
æf: og um sérkennllegustu ó-
byggðasvæði norðan lands. Lagt
verður af stað 8. ágúst og ekið
um byggðir norður — og farið
hratt yfir. Að kvöldi þess 9.
verður komið að Brú á efri Jök-
uldal. Næsta dag haldið inn á
Krafnkelsdal og síðan ekið um
hálendið í átt að Snæfelli — tigo
arlegasta og hæsta fjalli Austur-
lands. Gengið verður á fjallið,
ef veður leyfir. Á þessum slóð-
um eru heimkynni hreindýranna.
Verður dvalizt þar í 2—3 daga,
Þaðan verður síðan haldið vest-
ur á Mývatnsöræfi, ekið norður
með Jökulsá á Fjöllum, að Detti
fossi, síðan gegnum endilangar
Hólmatungur — eitt yndislegasta
svæði^ íslands og tjaldað við
Hljóðakletta eða í Vesturdal, í
töfralundum bjarka og blóma,
en engin heiði á landinu er svo
fagurgróin. Síðan haldið vestur
sveitir um sinn, þar til komið
er vestur fyrir Blöndu. Þá er
lagt inn á hálendið á ný og
stefna tekin suður Kúluheiði og
á Kjalveg.
Hér gefst fólki kostur á að sjá
og kynnast öræfum Austurlands,
víðlendum og svipmiklum og svo
óbyggðunum um r iðbik Islands
kringum tvo stærstu jökla á því
svæði. Auk þess flestum fegurstu
stöðum í Þingeyjarsýslum.
Þetta verður fyrsta ökuferð
Ferðafélags íslands inn á Aust-
urlandsöræfin og mun ýmsa fýsa
að tryggja sér þátttöku í henni
í tíma.
Kjalvegur — Kúluheiði —
fyrir Skarð
Þá hefst sama dag, 8. ágúst,
önnur ferð Ferðafélags íslands.
Er það fimm daga ferð norður
í Skagafjörð, þvert ýfir hálendið.
Fyrsta dag verður farið á Hvera
velli með viðkomu í Hvítárnesi.
2. dag ekið um Kúluheiði, norður
í Svínadal, um Vatnsskarð og
Skagafjörð til Sauðárkróks. Gist
í tjöldum í Sævarlandsvík bak
við Tindastól. 3. dag ekið norður
Skaga — um Ketubjörg og um-
hverfis nesið inn Skagaströnd um
Blönduós. Gist inn í VatnsdaL
4. dag ekið vestur á Miðfjarðar-
háls og umhverfis Vatnsnes. Gist
í Hindisvík. 5. dag um Holtavörðu
heiði og Kaldadal til Reykjavík-