Morgunblaðið - 23.08.1959, Side 1
20 siður
Tíu arna-
hjón verpa
á íslandi
MYNDINA af arnarunganum
tók Björn Björnsson vestur á
Snæfellsnesi nú í ágúst. Ung-
inn er fullbúinn og fleygur
og mun því vera minnst tíu
vikna gamall. Ernir eru ekki
margir hér á landi sem kunn-
ugt er, en lifnaQarháttum
þeirra og útbreiðslu hefur
ekki verið - mikill gaumur
gefinn til skamms tíma. Von-
andi tekst nú að friða örninn
svo þessum fallega fugli verði
ekki útrýmt eins og geir-
fuglinum á sínum tíma.
Fyrir um það bil tuttugu árum,
ferðuðust tveir enskir vísinda-
menn þó um vesturhluta landsins
til að kynna sér islenzka örninn
og einnig hafa ljósmyndararnir
Björn Björnsson og Magnús Jó-
hannsson kynnt sér lifnaðar-
hætti hans nokkuð og tekið af
honum myndir.
Nú í sumar var þó fyrst hafizt
handa um að rannsaka vísinda-
lega útbreiðslu og lifnaðar-
hætti arnarins. Er það ungur
* stúdent Agnar Ingólfsson, sem
vann að þessum rannsóknum í
sumar og fékk til þeirra styrk
frá menntamálaráðuneytinu. Hóf
hann rannóknir sínar 16. júlí og
vann að þeim í mánaðartíma.
Blaðið átti tal við Agnar í fyrra
dag og spurði hann hvers hann
hefði orðið vísari um lifnaðar-
hætti arnarins. Kvaðst hann ekki
enn hafa unnið úr athugunum
sínum, en lét oss þó góðfúslega
1 té eftirfarandi:
— Nú munu vera rúmlega tíu
varppör ama á öllu landinu og
halda þeir sig í kringum Breiða-
fjörð og á Vestfjörðum. Þeim
virðist hvorki hafa fjölgað né
fækkað á undanförnum árum.
Örninn verpir snemma í maí,
tveimur eggjum, og líður vika
Ný neðan-
jarbar-
hreyfing á
Kýpur
AÞENU, 22. ágúst. — (Reuter).
Grivas, fyrrverandi leiðtogi
EOKA á Kýpur, kom hingað í
dag eftir 10 daga dvöl í eyjunni
Korfu. — Nokkur hópur fylgis-
manna hans tók á móti honum
með hyllingarópinu: „Dighenis,
bjargaðu Grikklandi.“ En Grivas
notaði þetta nafn, Dighenis, þeg-
ar hann var leiðtogi EOKA.
★
Meðan hann dvaldist á Korfu,
átti hann m. a. viðræður við Pál,
Grikkjakonung. Áður en hann
fór þaðan lét hann boð út ganga
til íbúa eyjarinnar, þar sem sagði
m. a.: „Grikkland þarfnast nýrra
leiðtoga. Þessir leiðtogar munu
finnast, og þá mun verða hreins-
að til. — Hvað mér viðkemur,
hefi ég helgað líf mitt þjónustu
við þjóðina — og svo mun á-
fram verða.“
Grivas lýsti því yfir við frétta-
menn í dag, að sér væri alls
ókunnugt um hina nýju neðan-
jarðarhreyfingu á Kýpur, sem
nefnist K.E.M. og hefir tekið upp
baráttu EOKA fyrir samein-
ingu við Grikkland. Þess má
geta, að E.D.M.A.-hreyfingin á
Kýpur, sem hefir svipaða stefnu
í stjórnmálum og EOKA fylgdi,
gaf í gær út yfirlýsingu, þar sem
fordæmd er starfsemi K.E.M.
félagsskaparins og annarra
þeirra manna, sem koma vilja
í veg fyrir, að Lundúnasam-
komulagið um framtíð Kýpur
komist í framkvæmd. Var í þessu
sambandi m. a. minnt á yfirlýs-
ingu Grivasar á sínum tíma, þar
sem hann hvatti menn til að
fylkja sér um stefnu Makaríosar
erkibiskups í þessu máli.
Grivas sagði við fréttamenn-
ina, að gríska stjórnin stæði að
baki flugufregnum um, að fylg-
ismenn hans hefðu sent vopn til
Kýpur — og bað stjórnina að
leggja fram sannanir fyrir þess-
um áburði.
eða meira á milli. Kemur annar
unginn því nokkru fyrr úr eggi'
og mun hann einn komast upp.
Veldur aldursmunurinn því, að
yngri unginn verður útundan
með fæðu, eða fellur fyrir eldri
unganum.
Sama arnaparið verpir alltaf
á sama svæði, en skiptir oft um
hreiður innan þess svæðis, og
verpir í sama hreiðrið með nokk-
urra ára bili. Ekki er vitað hvort
ernirnir verpa á hverju ári, en
annað hvort gera þeir það ekki,
eða mikið misferst, því ella
mundi þeim fjölga. Þeir munu
ná um 40 til 50 ára aldri.
Sfeve og Anne Marie voru
gefin saman í gœrdag
— Munu setjast oð i Bandar'ikjunum
LUNDE, 22. ágúst — Þúsundir
Norðmanna söfnuðust saman hér
í þessum litla sjávarþorpi í morg-
un til þess að vera viðstaddir
merkasta atburð í sögu þess —
brúðkaup auðkýfingssonarins
★------------------------*
JlterðmtMiibUÞ
Sunnudagur 23. ágúst.
Efni blaðsins m.a.:
Efni blaðsins m. a.:
Bis. 2: Griðarsáttmáli Hitlers og Stal-
íns undanfari heimsstyrjaldar.
— 3: Fyrirgefnin og fórnarlund, eftir
séra Óskar J. Þorláksson.
Hver er orsök kalda stríðsins?
— 6: Mörg og mikilvæg verkefni
bíða úrlausnar í Hafnarfirði.
Samtal við Matthías A. Mathie-
sen, alþingismann.
— 8: Frá vígslu skóla- og félags-
heimilis í Kelduhverfi.
— 10: Ritstjórnargreinin: Sjálfsbjarg-
arhvöt og framleiðsluafköst.
— 11: Reykjavíkurbréf.
— 12: Bridge.
«— 13: Fólk í fréttunum.
— 18: Kvennadálkar.
*------------------------*
Steven Rockefeller og stúlkunn-
ar Anne Marie Rasmussen.
Mikill fjöldi fólks tók sér
stöðu við kirkjuna, þar sem brúð
kaupið fór fram, strax síðast-
liðna nótt og biðu rólegir eftir
því að athöfnin byrjaði eftir há-
degið. Fjörutíu lögreglumenn
voru á staðnum, til þess að
stjórna umferðinni. Veður var
bjart framan af og hlýtt.
Fyrirmyndarhjón
Faðir brúðgumans, Nelson
Rockefeller, fylkisstjóri New
York, lét svo ummælt á blaða-
mannafundi í morgun, að hjóna-
efnin væru „dásamleg, mesta
greindarfólk, glæsileg — fyrir-
myndar hjón“. Ekki fékkst fylkis
stjórinn til þess að láta neitt uppi
um stjórnmálaáform sín við þetta
tækifæri. Hann skýrði hins veg-
ar frá því, að brúðinni mundi
hann gefa gullúr og Steven syni
sínum skyrtuhnappa með anker-
mynstri.
Þegar leið á daginn þykknaði
Framh. á bls. 19
Orlagadagur
fyrir 20 árum
Á DAG eru 20 ár síðan und-
irritaður var í Moskvu þann
23. ágúst 1939 griðasáttmáli
milli Þýzkalands og Rúss-
Iands.
Með þessum samningi tryggði
Hitler sér að þurfa ekki að berj-
ast á tveimur vígstöðvum í
austri og vestri. Leiðin var naz-
istum opin til landvinninga. Átta
dögum síðar brauzt heimsstyrj-
öldin út.
Aftan' við griðasáttmálann var
skeytt leynilegum viðbótar-
samningi, þar sem Rússar og
Þjóðverjar skiptu smáríkjunum
í Austur-Evrópu á milli sín.
Póllandi skiptu þeir í miðju
milli sín. Rússar fengu Finn-
land og Eystrasaltsríkin. Þjóð-
verjar fengu Ungverjaland og
Ralkanríkin, en Rússar sneiðar
af Tékkóslóvakíu og Rúmeníu.
Þannig skiptu ræningjarnir
ránsfengnum fyrirfram á milli
sín. —
Stalin og Ribbentrop takast í hendur. Þeir hafa lokið við að
skipta smáríkjum á milli sín. SJÁ BLS. 2.