Morgunblaðið - 23.08.1959, Síða 6
6
MOnOTJlSBL AfílÐ
Sunnudagur 23. águst 1959
Mörg og míkilvæg verkeíni
bíba úrlausnar í Hafnarfiröi
Samtal við
Matthias Á.
Mathiesen, yngsta
bingmanninn
ÚRSLITANNA af talningu at-
kvæða í Hafnarfirði við síðustu
alþingiskosningar, var víðs veg-
ar um land beðið með mikilli
eftirvæntingu. f kjöri gegn for-
sætisráðherra landsins var Jjaf
hálfu Sjálfstæðisflokksins 27 ára
gamall Hafnfirðingur, Matthías
Á. Mathiesen. Eins og kunnugt
er felldi Matthías forsætisráð-
herrann og vakti sú frammistaða
mikla athygli um land allt. Matt-
hías hefur, þótt ungur sé, látið
félagsmál Hafnfirðinga til sín
taka og er mjög áhugasamur um
framfarir í fæðingarbæ sínum,
Hafnarfirði, en þár veitir hann
forstöðu Sparisjóði Hafnarfjarð-
ar. —
Með lögum frá 7. "maí 1928 var
Gullbringu- og Kjósasýslu skipt í
tvö kjördæmi: Hafnarfjarðarkaup
stað og Gullbringu- og Kjósar-
6ýslu. Þingmenn Gullbringu- og
Kjósarsýslu þá voru þeir Ólafur
Thors og Björn Kristjánsson.
Fyrstu kosningarnar í Hafnar-
firði fóru fram sumarið 1931,
og var þá kjörinn þingmaður
Hafnfirðinga Bjarni Snæbjörns-
son læknir, sem jafnan var end-
urkjörinn á þing meðan hann gaf
kost á sér til framboðs. Aðrir þing
menn Hafnfirðinga hafa verið
þeir Emil Jónsson forsætisráð-
herra, og Ingólfur Flygenring
forstjóri, sem var þingmaður
Hafnfirðinga, þegar hræðslu-
bandalagið var stofnað og nú
síðast Matthías.
Matthías hefur nýlega flutt
jómfrúrræðu sína á Alþingi eins
og kunnugt er af fréttum og í
tilefni af því hafði Mbl. af hon-
um stutt samtal um áhugamál
hans og Hafnfirðinga.
Matthías benti í upphafi sam-
talsins á vaxandi fylgi Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði en þar
bætti flokkurinn við sig 261 atkv.
frá síðustu alþingiskosningum
hlaut 1417 atkvæði en hafði 1156
áður. Hann kvaðst vera viss um
það að flokkurinn mundi enn
bæta við sig atkvæðum í haust-
kosningunum, því að hann ætti
vaxandi fylgi að fagna í Hafnar-
firði eins og annars staðar á
landinu. Sjálfstæðisflokkurinn
í Hafnarfirði hefir ætíð haft öt-
ulu og fórnfúsu baráttuliði á að
skipa og nú hefir enn fjöldi nýrra
liðsmanna skipað sér undir merki
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
en þó er það sérstaklega unga
fólkið í bænum, sem hefur í yfir-
gnæfandi meirihluta fylgt Sjálf-
stæðisflokknum að málum, og
gert hann öðrum flokki fremur,
að flokki hafnfirzkrar æsku.
Matthías lagði áherzlu á þessa
staðreynd og bætti því við að
það væri vissulega ánægjulegt
fyrir Sjálfstæðismenn að fyigjast
með þessari þróun, úrslit ný af-
staðinna alþtngtskosninga Stað-
festa að hún he’dur áfram sagði
hann.
í viðtalinu minntist Matthías
á mjög þýðingarmikið mál fyrir
Hafnfirðinga, sem hann gerði að
umtalsefni i jómfrúrræðu sinni,
hagnýtingu jarðhitans — og þá
sérstaklega með tilliti til þess að
í Hafnarfirði ríkir mikill áhugi
á því, að bærinn fái hitaveitu
af hverasvæði sínu og athugað
verði á hvern hátt annan væri
hægt að hagnýta jarðhitann og
þá sérstaklega með tilliti til efna-
iðnaðar. Þá gat hann þess í við-
talinu, að hagnýting jarðhitans
í landinu yfirleitt væri eitt af
þeim stóru málum, sem úrlaúsn-
ar bíði með þjóðinni á nálægum
tíma. Jarðhitasvæðið á Reykja-
nesi, sagði Matthías, bíður t.d.
alveg rannsóknar, en hinni sívax
andi byggð á Reykjanesskagan-
um er hins vegar nauðsynlegt að
fá þann varma, sem á Reykja-
nesi er til upphitunar. Þannig
mætti lengi telja upp verkefni í
sambandi við nýtngu jarðhitans
t.d. munu Húsvíkingar hafa hft-
ann svo að segja við bæjardyr
sínar.
Matthías minntist á fjölmörg
fleiri áhugamál Hafnfirðinga,
hann sagði:
Eins og kunnugt er hefur það
verið frá öndverðu eitt af baráttu
málum Sjálfstæðismanna í Hafn-
arfirði að þar verði komið upp
fullkomnum hafnarmannvirkjum
bæði fyrir smábáta og togara svo
og alls konar flutningaskip. Um
1920 var farið að hyggja að bygg-
ingu hafnarmannvirkja í Hafn-
arfirði, og 1929 flutti þáverandi
þingmaður kjördæmisins Ólafur
Thors frumvarp til laga um
hafnarlög fyrir Hafnarfjörð. Sjálf
stæðismenn hafa sí og æ
haldið þessu máli vakandi,
en því miður hafa framkvæmdir
við þetta mjög svo þýðingarmikla
mannvirki dregist úr hömlu. Það
hlýtur öllum hugsandi mönnum
að vera ljóst að bygging slíkra
mannvirkja verður að vera mjög
skipuleg og vel undirbúin og hafa
fulltrúar Sjálfstæðiflokksins í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar og
hafnarnefnd gert tillögur um að
nú þegar verði gert fullnaðar
skipulag af hafnarsvæðinu.
Varðandi málefni æskunnar vil
ég segja þetta:
í vaxandi bæ sem Hafnarfirði
eru að sjálfsögðu mörg og harla
mikilvæg verkefni I félagsmál
um, sem ástæða er til að leggja
áherzlu á og nauðsynlegt að al-
manna valdið styðji að.-Má þar
ekki hvað sízt nefna líkamsrækt
og önnur félagsmál æskulýðsins.
Framundan er mikið átak í sam-
bandi við byggingu íþróttahúss,
sem væntanlega verður ekki
dregið lengur — nóg hefur það
dregizt samt.
Ennfremur má benda á nauðsyn
þess að skapa frjálsíþróttamönn-
um góð skilyrði til þjálfunar og
keppni á góðum útileikvangi.
Og aldrei megum við gleyma
því,.sagði Mathías að lokum, að
„það sem ungur nemur, gamall
temur“. Þess vegna verðum við
að hlúa vel að þeim gróðri sem
þjóð okkar á í hinni uppvaxandi
æsku.
Ferðamennirnir kvörtuðu
ekki undan móttökunum
á íslandi
Forstjórar erlendra ferðaskrifstofa
hér í boði F.í.
I FYRRAKVÖLD komu hingað
til lands sex forstöðumenn er-
lendra ferðaskrifstofa í boði Flug
félags íslands. Eru fjórir þeirra
franskir, einn frá Belgíu og einn
frá Hollandi. Vilja menn þéssir
líta á staðhætti hér á landi með
það fyrir augum að beina hingað
ferðamönnum, sem til þeirra
leita.
Erlendu gestirnir eru Wi!-
helm Barth frá Bennetts ferða-
skrifstofunni, Roger Gemin
frá Havas, Albert Leboucher frá
Wagon-Lits/Cook og Mme M. P.
Labranque frá Riss & Cie Voya-
ges, en allar þessar ferðaskrifstof
ur eru í París. Frá Hollandi er
J. Oderkerk frá Lissone-Lude-
men í Hag og frá Belgíu Leon
Shcreurs frá Voyages Brooke í
Genf. í fylgd með ferðaskrifstofu
mönnunum að utan var Jóhann
Sigurðsson, fulltrúi Flugfélags ís-
lands í London.
Ferðaskrifstofur þær, er menn
þessir veita forstöðu reka starf-
semi um alla Evrópu og er því
mikið í húfi, að þeim geðjist
dvölin hér svo vel að þeir geti
hvatt ferðamenn til að leita hing-
að. Er fréttamenn áttu tal við þá
í gær höfðu þeir verið á Þing-
völlum og voru mjög hrifnir af
því, sem þeir höfðu séð af land-
inu. í dag fara þeir til Akureyrar
og þaðan til Mývatns, en á morg-
un að Gullfossi og Geysi.
Wilhelm Barth hefur áður
stuðlað að því að nokkrir ferða-
menn hafa haldið til íslands og
hafa þeir gefið skýrslu um för
sína og sagt álit sitt á viðtök-
unum. Kvað hann ekki hafa ver-
ið kvartað undan neinu, nema
einhverjir þeirra höfðu ekki
fengið að koma á hestbak eins
og þeir höfðu vænzt.
Roger Gemin skýrði frá þvi
að ferðaskrifstofan, sem hann
veitir forstöðu, mundi á næsta
ári gefa út ferðamannabækling,
þar sem m.a. yrði áætlun um ís-
landsferð. Eru bæklingar þessir
gefnir út í 160 þús. eintökum
og dreift frá 65 ferðaskrifstofum
í Frakklandi einu. Má því gera
ráð fyrir auknum ferðamanna-
straumi hingað til lands þegar
á næsta ári, en nú virðist einnig
farið að undirbúa móttöku ferða
manna í stórum stíl, er veitt hef-
ur verið leyfi fyrir fullkomnu
gistihúsi.
Úrslit á kappreiðum
Harðar í Kjósarsýslu
REYKJUM, 21. ágúst. — Kapp-
reiðar hestamannafélagsins Harð
ar 1 Kjósarsýslu voru háðar á
vellinum við Arnarhamar í bezta
veðri. Áhorfendur voru margir,
enda þátttaka ágæt, einkum í
skeiði og viðvaningahlaupi á
stökki. Þeir • bræður, Þorgeir og
Jón Jónssynir frá Varmadal,
voru mættir með sína ágætu
hesta og settu þeir mikinn svip
á kappreiðarnar.
Helztu úrslit voru þessi: 250 m
skeið nýliða, fyrstur Glæsir, eig-
andi Guðbjartur Hólm, Króki, á
30.0, og annar Blesi, eig. Krist-
ján Finnsson, Meðalfelli, á 33.0.
Aðrir hlupu upp.
Á 250 m skeiði með 50 m for-
hlaupi varð fyrstur Logi, eigandi
Jón Jónssor>, Varmadal, á 26.8,
annar Óðinn, eig. Þorgeir Jóns-
son, Gufunesi, á 27.0 og þriðji
skrifar
daglega íífinu
úr
f,
]
Verkamannabuxur
enginn spariklæðnaður.
Iþessum dálkum í gær var at-
hugasemd um ósnyrtilegan
klæðnaö karlmannanna, og nú
vill einn kunningi minn líka
finna að smekkleysu í klæða-
burði íslenzkra kvenna, þó hann
hafi enga mynd máli sínu til
stuðnings.
Þessi kunningi minn býr í
þorpi úti á landi, og segir hann
að það sé sífellt að færast meira
og meira í vöxt að stúlkur komi
klæddar verkamannabuxum á
mannamót. Honum finnast verka
mannabuxur langt frá því að vera
ljótur klæðnaður í frystihúsi eða
á síldarplani, en þegar fjölmarg-
ar stúlkur koma á skemmtisam-
komur í slíkum vinnufötum,
þykir honum varla með góðu
móti vera hægt að halda því fram
að íslenzkt kvenfólk sé vel eða
smekklega klætt.
Velvakandi er þessu alveg sam-
mála. Það setur óttalega drasl-
aralegan svip á skemmtisam-
komur, ef gestir eru klæddir eins
og þeir séu að fara í skítverk. —
Því er haldið fram, að umhverfið
hafi áhrif á hegðun fólks, og það
hefur stundum sannazt, að þar
sem umhverfið og aðbúnaður er
lélegt og draslaralegt, þar vill
fólk sljófgast fyrir því, hvað sé
því sæmandi. Skyldi það ekki
vera eitthvað svipað með klæðn-.
aðinn? Ætli fclk verði ekki ósjálf
rátt kærulausara um alla hegðun
sír.a á skemmtisamkomum, ef
danssalurinn er yfir að líta eins
og síldarplan, allir í verkafötun-
um? Hvernig sem því er nú varið,
verður því varla mótmælt, að
verkamannabuxur eru enginn
spariklæðnaður, og það er srnekk
leysi að halda að svo sé.
Bunga á aðalgötu.
OG svo kemur bréf frá „Bíl-
stjóra":
„Á Suðurlandsbraut, nokkru
austan við Grensásveginn er
bunga, sem allir verða áþreifan-
lega ^arir við, sem aka um göt-
una, einkum í vesturátt.
Bílstjórar hafa tilhneigingu til
að aka allgreitt á þessum stað,
en jafnvel þótt hraðinn sé inn-
an við 40 km. lyftast bílarnir
upp á bungunni og detta svo nið-
ur, en þetta getur valdið miklum
óþægindum og jafnvel skemmd-
um á fjöðrum bílanna.
Nú er rúmt ár liðið síðan þessi
bunga stækkaði verulega og hlýt
ur missigi vera að kenna. Eru
það eindregin tilmæli mín til
þeirra, sem stjóma gatnagerð
bæjarins, að þetta verði lagað,
enda ætti það ekki að vera mjög
erfitt verk“.
Gulltoppur, eig. Jón Jónsson,
Varmadal, á 27.0.
1 250 m stökki viðvaninga varð
fyrstur Hringur, eig. Guðm. Ól-
afsson, Rvík, á 20.0, annar
Skotti, eig. Ernir Snorrason,
Rvík, á 20.2 og þriðji Reykjadals
bleikur, eig. Jón M. Guðmunds-
son, Reykjum, á 21.0.
1 300 m stökki varð fyrstur
Kirkjubæjarblesi, eig. Jón M.
Guðmundsson, Reykjum, á 24.2
og annar Spori, eig. Gísli Ellerts-
son, Meðalfelli, á 24.4.
Á 350 m stökki varð fyrstur
Blesi, eig. Þorgeir Jónsson, Gufu-
nesi, á 26.0 og annar Garpur, eig.
Jóhann Kr. Jónsson, Dalsgarði á
26.1. —
Þá fór einnig fram góðhesta-
keppni og var vandi á höndum,
enda mikið hestaval. Að lokum
urðu úrslit svofelld: Fyrstur varð
Logi Jóns í Varmadal, annar
Hringur Guðmundar Ólafssonar,
Reykjavík og þriðji Blesi Ólafs
á Ökrum.
í dómnefndinni störfuðu þeir
Bogi Eggertsson, Rvík, Kristinn
Hákonarson, Hafnarfirði, og Jón
Bjarnason, Selfossi, og lýsti hann
dómum.
Fóru happreiðarnar vel fram,
enda veður gott og staðurinn
einkar skemmtilegur.
K
Af hverju ekki síma-
númerin líka?
AUPAHÉÆ>INN“ kom að
máli við Velvakanda um
daginn, og vakti athygli á því,
hve mörg fyrirtæki auglýstu
hluti, sem þægilegt getur verið
að spyrjast fyrir um í síma, en
geta ekki um símanúmer sín um
leið. Kveðst hann vera heldur
latur við að leita að símanúm-
erum og finnst fyrirhöfnin oft
ekki svara kostnaði, og verða
fyrirtækin því e. t. v. stundum
af sölunni fyrir bragðið. Telur
hann, að það sé flestum fyrir-
tækjum í hag að auglýsa síma-
númer sín um leið og vörurnar.
í auglýsingaverði munar það
engu, en getur aukið viðskiptin.
Von Manteuffel
dæmdur
Dússeldorf, 21. ágúst.
(NTB/Reuter). —
HASSO von Manteuffel, mar-
skálkur, var í dag de-mdur í átján
mánaða fangelsi fyrir að hafa
látið taka ungan þýzkan liðsfor-
ingja af lífi á asturvígstöðvunum
veturinn 1944—45.
Von Mateuffel hafði neitað að
virða dóm herréttarins og gefið
fyrirskipun um að skjóta unga
liðsforingjann. Hann krafðist
sýknu fyrir dómi, á þeim forsend-
um, að hann hefði í þessu efni að-
eins farið eftir beinum fyrirskip-
unum foringjans sjálfs — Hitlers.