Morgunblaðið - 23.08.1959, Page 9
Sunnudagur 23. ágúst 1959
MORCVNBLAÐIÐ
e
hverfingum árnaðaróskir með hið
nýja og glæsilega félagsheimili
frá forseta íslands og frú hans en
þau höfðu verið á ferð og skoðað
húsið daginn áður en það var
vígt. Þá flutti hann og kveðju
Þorsteins Einarssonar íþróttafull
trúa er staddur var erlendis er
vígslan fór fram og gat því ekki
verið þar mættur. Ræddi hann
að nokkru um sambyggingu fé-
lagshelmilis og skólabyggingar
er hó l.n taldi að ýmsir forráða-
menn menntamála væru ekki
hlynntir, en eftir að hafa skoðað
þessa byggingu kvaðst hann ekki
kvíða því samstarfi. Vitnaði
hann til orða brezka rithöfundar-
ins Bertrand Russels, þar sem
hann segir: „Þekking og mann-
gæði er það sem heimurinn
þarfnast“. Kvað hann það hlut-
verk þessarar byggingar að auka
þekki^jgu manna og gera þá að
betri mönnum. Bar hann að síð-
ustu fram þá ósk að menn mættu
ganga góðir inn í þessa byggingu
en betri út.
Síðastur ræðumanna á hinni
eiginlegu vígsluhátíð var Stefán
Jónsson námstjóri. Sagði hann að
hér settu menn að fræðast og hér
ættu menn að gleðjast. Þá ræddi
hann um það mikla vandaverk
er fælist í stjórn og rekstri heima
vistarskóla þar sem saman yrði
að fara hið bezta úr íslenzku
heimilislífi til forna og upp-
fræðsla unglinga í nútima þjóðfé
lagi. Óskaði hann forráðamönn-
um skólans og þá fyrst og fremst
skólastjóra til hamingju með hið
nýja skólahús svo og héraðsmönn
um með bæði skóla og félags-
heimili. Stefán vitnaði til sænsks
orðtaks er hljóðar á þessa leið:
„Hlustið á þytinn í laufkrónum
trjánna; rætur stofnsins liggja
djúpt, þar átt þú líka rætur“. —
Vildi hann með þessu undirstrika
það menningargildi er þessi skóla
stofnun hefði. Að síðustu sagði
hann að þar sem gagnið samein-
aðist gleðinni væri lífið leikur.
sínu til þess að elta hillingar
hins ókomna. Hún biði tjón á
sálu sinni, hún mundi missa fót-
festu í lífinu og verða sem rót-
slitið strá. Saga og þjóðieg menn
ing eru þeir hyrningarsteinar
sem öll ný þekking verður að
byggjast á. H*ð gamla og nýja
verður að vera samofið ef vel á
að fara. Svo kvað skáldið:
Menningin í minningunni
manntakið í nútíðinni
framtíð skulu hefja hæst,
fslendingar viljum vér allir
vera. Saga og þjóðmenning vor á
því að vera grundvöllur þeirrar
fræðslu og þekkingar sem skól-
arnir veita. Þess vegna verðum
vér ætið að minnast þeirra manna
er beztir íslendingar hafa verið,
þar sem öllum öðrum mundi hafa
fallist hugur.
Enginn maður hefur fyrr né síð
ar brotizt í jafn miklu fyrir fs-
lands hönd eins og Skúli fógeti.
Barátta hans fyrir endurreisn Is-
lenzkra atvinnuvega og barátta
hans gegn einokunarverzluninni')
á að vera fræg meðan ísland er [
byggt. Vér vonum að á honuml
rætist orð skáldsins:
Aldrei deyr þótt allt um þrotni J
endurminning þess sem var.
Enginn fslendingur á það frem-
ur skilið en hann, að honum sé
reist minnismerki og um engan
mann verður með meira sanni
sagt en Skúla að hann eigi skilið
minnlsmerki I öllum byggðum
landsins.
SHÚt.a««88U8
Hið nýja félags- og skólaheimili.
Aí lokum söng kirkjukór stað
arins og síðan varð hlé á há-
tiðahöldum, en því næst fór fram
efhjúpun minnismerkis Skúla
Magnússonar landfógeta, er Þing
eyingarfélagið í Reykjavík hafði
gefið. — Við það tækifæri flutti
Árni Óla blaðamaður ræðu, en
hann afhenti minnisvarðann fyrir
hönd Þingeyingafélagsins. Árni
er borinn og barnfæddur Keld-
hverfingur og því vel til þess
fallinn að afhenda þetta minnis-
merki. Hann hóf mál sitt með
því að geta í fáum orðum þeirra
umræðna er farið höfðu fram í
sveitinni um síðustu aldamót um
byggingu samkomuhúss og skóla
fyrir héraðið. Þá ræddi hann um
menningarmiðstöð sveitarinnar
og komst m. a. að orði á þessa
leið:
„Menningin er margþætt.
Gáfaður maður hefur sagt: þess
minna sem vér vitum þess meira
þurfum vér að læra, en þessmeira
sem vér lærum, þess minna vit-
um vér.
Sumum kann að virðast að hér
sé þverbrestur í hugsun en svo er
ekki. Hér er átt við það að eftir
því sem þekking manna eykst,
þeim mun ljósar verður þeim
hvað margt er ólært. Þess íleiri
viðfangsefni sem vísindin ieysa,
þess fleiri óleyst v.iðfangsefni
blasa við.
Ýmsir óttast að i kapphlaupinu
um að vita sem mest, muni þjóð-
irnar glata sjálfum sér og fortíð
sinni.
En það væri hverri þjóð óbæt-
anlegt tjón, ef hún hlypi frá öllu
og hér viljum vér þá minnast
þess að einn af höfuðskörungum
þessarar þjóðar var Þingeying-
ur og fæddur í Kelduhverfi
Það var Skúli Magnússon land
fágeti. Hann fæddist í Keldunesi
12. des. 1711. Þá var þar gamall
torfbær og inni í rislágri baðstofu
með skjágluggum ól Oddný Jóns-
dóttir sveininn. En um leið settist
stór örn á baðstofumænirinn þar
uppi yfir. Það töldu menn ótví-
rætt tákn þess að hér væri stór-
menni fætt. Sú sjá rættist og full-
komlega síðar. „Stór að gáfum,
skörungur af framkvæmd, föð-
urlands elskari og íslands kúgara
hatari“, sagði Jón sýslumaður
Jakobsson um Skúla látinn.
Einhver fyrsta framkvæmd
Skúla til almenningsheilla snerti
þetta hérað. Hann hafði þá tekið
við Skagafjarðarsýslu og þurfti
að skreppa austur í Skaftafells-
sýslu til að skila henni af sér.
Fór hann sem leið lá til Mývatns
og ætlaði að fara yfir Jökulsá á
Hólsfjöllum. En í Mývatnssveit
frétti hann, að engin ferja hefði
verið á ánni þarna seinustu þrjá-
tíu árin og þessa leið kæmist
hann því ekki. En Skúli var ekki
ráðalaus. Hann keypti pramma í
Mývatnssveit og lét draga hann
austur að ánni og ferjaðist svo
yfir. Síðan gaf hann bóndanum
á Grímsstöðum prammann með
því skilyrði að hann ferjaði
ferðamenn jafnan yfir ána. Þessi
smásaga lýsir Skúla vei, mann-
inum sem engir erfiðleikar ægðu,
hafði þor og þrek til að berjasí
f hverjum kaupstað og hverju
kauptúni mætti minnismerki
hans standa til minningar um
verzlunarfrelsið. Hjá hverri verk
smiðju og hverju fyrirtæki mætti
það standa til minningar um end-
urreisnarstarf hans. En samt
finnst Þingeyingum að hvergi sé
sjálfsagðara að minnisvarði hans
standi en í því héraði er ól hann
og í þeirri sveit þar sem hann var
fæddur.
Þingeyingafélagið í Reykjavík
hófst því handa um að reisa hon-
um minnisvarða og fói listamann
inum Guðmundi Einarssyni frá
Miðdal að gera mmnisvarðann
eftir fyrirsögn félagsins. Og með
ágætri aðstoð Keldhverfinga er
hann nú kominn á þennan stað.
Hvergi þótti hann betur kominn
en hér í þessari menningarmið-
stöð sveitarinnar. Hér á hann að
minna æskuna og komandi kyn-
slóðir á það, að til vorra eigin
þjóðskörunga og forvígismanna
eigum vér að sækja kjark og
þrek til þess að efla þjóðlega
menningu og byggja hana upp úr
efniviði nýrrar þekkingar.
Þessu næst fór fram afhjúpun
á minnisvarða þeim er hér hefur
að fram verið getið. Gerði það
húsfrú Guðrún Hallgrímsdóttir á
'Víkingavatni, því næst mælti
Árni: „Eins og þér sjáið er minn-
ismerki þetta táknrænt. Það sýn-
ir fylgju Skúla, örninn sem birt-
ist á baðstofumæninum í Keldu-
nesi fyrir tæpum 250 árum og
boðaði fæðingu hins íslenzka
mikilmennis. Skúli var í eðli sinu
erninum líkur. Hann stefndi hæst
og hann hafði hvassastar sjónir.
Megi andi hans jafnan lýsa sem
viti yfir þessum stað, héraðinu
öllu og i hjörtum allra þeirra, er
þar eiga heima“.
Afhenti Árni síðan sýslumanni
Þingeyinga, Jóhanni Skaftasyni,
minnismerkið, sem gjöf til héraðs
ins frá Þingeyingafélaginu, og fól
sveitarstjórn Kelduhverfis það
til ævarandi varðveizlu. Sýsiu-
maður tók á móti gjöfinni og
flutti við það tækifæri ræðu, en
að henni lokinni talaði oddviti
Kelduneshrepps og þakkaði þann
heiður sem hreppnum hefði ver-
ið sýndur með gjöf þessari. Þá
söng kirkjukórinn og þar með
var lokið athöfn þeirri, er fram
fór við minnismerki Skúla.
Samsæti og dans.
Þessu næst var haldið heim að
hinu nýja félagsheimili og þar
sezt að kaffidrykkju og fluttu þar
ýmsir héraðsbúar ræður og var
þar fagnaður hinn bezti. Stóð
samsæti þetta fram eftir kvöldi
en að því loknu var stigimi dans
fram eftir nóttu. Mikill fjöldi
héraðsbúa svo og gestir víða ann
ars staðar að af landinu, burt
fluttir Keldhverfingar, er allir
voru boðnir til hófs þessa, sátu
þessa hátíð.
Félagsheimili þetta og skóla-
bygging er í einu og öllu vandað
að frágangi og glæsilegt að úíliti.
Er það þeim er fyrir byggingunni
hafa staðið, svo og Keldhverfing-
um öllum, til hins mesta sóma.
— Vig.
Sníðadama óskast
helzt vön. Uppl. í síma 13472
og 13953
Prjónastofan Anna Þórðardóttir
Grundarstíg 12
Tveir trésmiðir
óskast til starfa sem fyrst að Bifröst í Borgarfirði.
Upplýsingar á Teiknistofu SÍS, sími 17080.
Orðsending
til útsvarsskattgreiðenda í Kópavogskaupstað.
Dagana 22. ágúst til 4. september liggja eftirtaldar
gjaldskrár frammi, almenningi til sýnis í skrifstofu
bæjarstjóra og Skattstofo Kópavogs:
Skrá um útsvör til bæjarsjóðs Kópavogskaupstaðar,
skrá um tekjuskatt og eignaskatt, kirkjugjald,
kirkjugarðsgjalds og almannatryggingagjöld. Enn
fremur skrá um tryggingaiðgjöld sbr. 1. nr. 24/1956
og gjöld til atvinnuleysistryggingasjóðs sbr. 1. nr.
29/1956 og gjaldskrá sbr. 18. gr. reglugerðar nr.
184/1957 um skyldusparnað.
Kærur vegna framangreindra gjalda þurfa að hafa
borist í síðastalagi, fyrir kl. 12 að kvöldi þess 4.
september n.k.
Kópavogi 21. ágúst 1959.
BÆJABSTJÓRINN I KÓPAVOGI
SKATTSTJÓRINN 1 KÓPAVOGI
ELECTROLUX
Hrærivélar með berjapressu
Electrolux
tryggir fullkomna
nýtingu berjanna.
Snarar tíma
Sparar vinnu
Hrærivélar — Ryksugur — Bónvélar
Loftbónarar — Varahlutir
Kaupið það bezta — kaupið
ELECTROLUX
2Vz árs ábyrgð.
Einkaumboðsmenn:
Hannes Þorseinsson & Co*