Morgunblaðið - 03.09.1959, Side 9

Morgunblaðið - 03.09.1959, Side 9
Fimmtudagur 3. sept. 1959 Moxcrnvnr 4ðið 9 # fáum orðum sagt Framhald af bls. 8. að hugsa um að lenda strax í Landeyjum. En mér hefur verið bent á, að við lentum ekki þar heldur fyrir vestan bæinn á Fljótshólum. Ég man það núna, að við Halldór Jónasson fórum ríðandi heim úr Landeyjunum eftir Vestmannaeyja-förina og á leiðinni fundum við ágætan bala neðan við Hólma, en ég gat ekki greint hann frá mýrlendinu í kring, þegar við flugum frá Vest- mannaeyjum. Þess vegna héldum við áfram vestur, þó benzinið væri orðið lítið, og treysti ég á sandinn ef ben2Ínið þryti. Þegar við vorum yfir Þjórsárósum í 3000 feta hæð, rann síðasti drop- inn úr benzíngeymnum og vél- in stöðvaðist. Þá höfðum við nokkurn mótvind, en samt tókst mér að lenda á sandinum, eins og ég sagði áðan.^Ég þorði ekki að lenda á grasinu, því það var allþýft, að mér sýndist, og ekki á það treystandi, að vélin skemmdist ekki í lendingu. Þeg- ar þetta gerðist hafði nóttin lagzt yfir landið og við ákváðum að reyna að sofna undir vélinni. En kuldinn var svo mikill, að við héldumst ekki við úti, heldur sofnuðum nokkra stund í sæt- um okkar og var þar einnig mjög kalt. Við áttum dálitinn afgang af benzini vestur á Eyrarbakka. Sturla Jónsson, bóndi á Fljóts- hólum, sendi menn og hesta að sækja þennan dreitil og einnig nokkra viðbót sem við fengum frá Reykjavík. Þegar við höfðum fengið benzínið, reyndum við að koma vélinni á loft af sandinum, en það mistókst. Við létum karl- ana halda í vængstangirnar og svo veifaði ég þeim, þegar þeir máttu sleppa, en með þessu móti átti vélin að komast á fulla ferð strax. Þessi fyrsta tilraun okkar mistókst. Þá fengum við okkur hesta og spenntum fyrir flug- vélina og létum þá draga hana upp á grasbalann. Svo létum við karlana enn halda í stangirnar og heppnaðist okkur nú að kom- ast á loft, þó þýft væri. Við héld- um sem leið lá til Reykjavíkur en komum þó við á Stóra-Hrauni hjá séra Gísla og fagnaði hann okkur vel. Við flugum í 9000 feta hæð yfir Hellisheiði til þess að hafa sem bezt svigrúm, ef eitt- hvað kæmi fyrir. En þá munaði litlu, að ég yrði áttaviltur, því kompásinn var vitlaus, ef svo mætti segja, og ekki gátum við tekið stefnu af neinu nema sól- inni og smáblettum af landi, sem grillti í annað veifið. Þegar loksins rofaði til, sá- um við land og sjó, en Reykja- vík hvergi. Ég þóttist þó vita, að við værum yfir sundunum og að litilli stundu liðinni móaði fyrir Reykjavík í fjarska og hef ég aldrei verið neinni sjón fegn- ari. Þar lá hún eins og klettur á ströndinni og beið okkar. Turton hafði aldrei verið neitt sériega hrifinn af Reykjavík, en ég held ekki hann hafi brosað fallegar í annan tíma. — Við lent- um svo klukkan 10 á mánu- dagskvöldið 26. og hafði ég þá orðið af söngskemmtun Péturs Á. Jónssonar. En ég man við sáum stórbruna í Reykjavík, þegar við flugum yfir bæinn. Þá brann hús Jónatans Þorsteinsson- ar, stórkauþmanns, við Laugaveg 31, til kaldra kola og var það mikill eldsvoði. Mig minnir tjón- ið hafi verið metið á hálfa millj- ón og var það ekki lítill peningur í þá daga. — Var þetta sæmileg flugvél sem þið höfðuð yfir að ráða? — Ja, flugvélin var ágæt og einkargóð kennsluvél, en tók að- eins einn farþega. Við hefðum t.d. getað flogið á henni til Ak- ureyrar en það var ekki áhættu- laust eins og þá var um hnútana búið. — Þið hafið auðvitað bundið miklar vonir við innanlandsflug- ið á íslandi. Já, það gerðum við, og marg- ir ágætismenn voru þess fullviss- ir, að flugið mundi bæta úr sam- gönguleysinu hér á landi og einn- ig færa ísland nær umheimin- um. En fæstum okkar datt í hug, að flugvélarnar yrðu eins fullkomnar og raun ber vitni. Við héldum að loftskipin mundu t.d. fljúa yfir Atlantshaf- ið og Kyrrahafið, en ekki flug- vélarnar, en þróunin hefur orð- ið önnur. Á þessum árum var álit sérfræðinga, að ómögulegt væri að fljúga flugvél heimsálfa á milli. En enskt máltæki segir, að „það taki aðeins lengri tíma að gera hið ómögulega en það sem mögulegt er“. — Þið hafið auðvitað flogið með farþega hér í Reykjavík. — Já, við fórum með marga farþega í hringflug yfir bæinn. Ég man t.d. eftir séra Friðriki Friðrikssyni. Hann fermdi bróður minn, þegar hann var prestur vestur í Winnipeg nokkrum árum áður og við þekktumst vel. Hann sagði við mig, þegar við komum úr fluginu: — Þetta er það næsta sem ég hef komist himninum. Hér hefur margt verið að ger- ast, þegar þú varst hér? — Já, hér gerðist margt, sumt skemmtilegt, annað miður skemmtilegt. Eitt sinn var hald- ið iþróttamót á Melavellinum, Friðþjófur Thorsteinsson hafði heyrt, að ég hefði tekið þátt í frjálsiþróttamóti, meðan ég stund aði nám við Manitobaháskóla, og þess vegna var ég beðinn um að taka þátt í keppninni. Meðal þátttakenda í kúluvarpi var sænskur maður. Allir voru þess fullvissir, að hann mundi sigra Kúluvarpið Var ekki min sterk- asta hlið, en samt tók ég þátt í því, ög áður en ég vissi af, hafði ég sett nýtt ísiandsmel í keppninni — og sigraði Svíann! Þá voru íslendingarnir montnir. — Við vorum að tala um fiug- ið. Segðu mér eitt, var ekki dýrt að fljúga? — Fyrst voru ferðirnar ódýrar, en svo hækkuðum við fargjaldið upp í 100 kr. fyrir 10 minútur. Einn farþegi fékk þó alltaf frítt far. Það var Jakob Kristjánsson, nú prentari á Akureyri. Hann var okkur mjög hjálplegur og ætiaði að læra að fljúga hjá mér, en ég fór, áður en hann varð fullnuma í þeirri list. — En af hverju hækkuðuð þið fargjaldið? — Ja, ætli okkur hafi ekki bara farið fram í „bissness“? Þegar Frank Fredérickson hugs aði um þetta mál frekar, mintist hann þess, að Flugfélaginu hafði brugðizt benzín sem það átti von á frá Bretlandi og var ástæðan sú, að brezka stjórnin bannaði útflutning á því. Flugfélagið átti þá benzín í aðeins tveggja klukkustunda flug og var ákveðið að selja tíu farmiða sem giltu í tíu mín. hver. Vegna benzín- og fjárskorts varð félagið að hætta starfsemi sinni þetta sumar og Frank Fredrickson pakkaði vél- inni niður í kassa, kvaddi kóng og prest og hélt til Englands í því skyni að fá brezkt flugfélag til að veita aðstoð sína við innan- landsflug á fslandi, en gekk bón- leiður til búðar. Aftur á móti fór hann flugferð sem fræg er orðin, með kapt. Hoare frá Martelsham Heath til Felixstowe. Það var í fyrsta skipti sem flugvél fór á loft af flugvelli, en lenti á sjó. Þótti það afar merkilegt og fehgu flugvélaverksmiðjurnar 10 þús. punda verðlaun. Frank hugðist kaupa slíka flugvél fyrir íslands- flug, þvi hann var þeirrar skoð- unar, að flugbátur hæfði íslands- flugi bezt, en af ýmsum ástæðum varð ekki af kaupum í Bretlandi. Hélt hann þá heim til Kanada aftur. M. Félagslíf Farfuglar — Ferðafólk Nú er siðasta tækifærið að fara skemmtiferðalag með Far- fuglum á þessu ári, því um næstu helgi 5.—6. september er ráðgerð síðasta ferðin á áætlun, en það er ferð í Hítardal og að Hítar- vatni. Lagt verður af stað kl. 2 e. h. úr Reykjavík og síðan ekið til Borgarness og drukkið kaffi þar, en haldið siðan upp í Hítar- dal og tjaldað þar við Stekká, rétt fyrir neðan bæinn Hítardal, sem er innsta býlið í dalnum. Á sunnudag verður gengið inn að Hítarvatni og m. a. gengið á fell- ið Hólmur, en útsýni þaðan er mjög gott niður eftir dalnum og út á Mýrar, sem og yíir vatnið sjálft. Leitið uppl. ískrifst., Lind- argötu 50, sem er opin á mið- vikudags- og föstudagskvöldum kl. 8,30—10. — Sími 15937. — Nefndin. Söngkonan Stella Felix Iíljómsveit Felix Velverts og Neo-quartettinn skemmta frá kl. 7. Sími 35936. Aiv'.nna Stúlka, helzt vön afgreiðslustörfum óskast í vefnað- arvöruverzlun í miðbænum. Umsókn er tilgreini aldur og fyrri atvinnu sendist afgr. Mbl. merkt: „Lipur — 4197“. Útge.oarmenn — Háseigendur Tökum að okkur að annast sölu fasteigna, báta og skipa. Málflutningsskrifstofa LtJÐVlK GIZURARSON, hrl. Klapparstíg 29 — Sími 17677. AðstoSarlœknístaða Staða aðstoðarlæknis á lyfjadeild Landsspítalans er laus til umsóknar frá 1 .janúar 1960 að telja. Staðan er veitt til tveggja ára. Laun samkvæmt launalögum. Úmsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, Reykjavík fyrir 15. okt næstkom- andi. SKRIFSTOFA RlKISSPlTALANNA. iveU -- Suðurnes Höfum fengið mikið úrval af skólavörum og rit- föngum. Skóla og ferðaritvélar margar gerðir fyrirliggjandi. Útvegum allar gerðir af Rhinemetal og Astra skrifstofu- og bókhaldsvélum. VERZLUIMIIM KYIMDILL Hringbraut 96 — Sími 790. Siwa Savoy þvottavélarnar sjóða, þvo, skola og þurr- vinda þvottinn á skömmum tíma. Væntanlegar í þess- um mánuði. Tökum á móti pönt- unum. Reildverzlun ÓLAFSSON & LORANGE Xlapparstíg 10 Sími 17223.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.