Morgunblaðið - 03.09.1959, Qupperneq 10
10
MOKCVTVV T 4ÐIÐ
Fimmtudagur 3. sept. 1959
jfttMðMfr
Utg.: H.t. /vrvakur Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsscn.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áhm.)
Bjarni Benediktsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
1 lausasðlu kr. 2.00 eintakið.
EINS OG RISAVAXINN FUGL
IDAG er minnzt 40 ára af-
mælis flugsins á íslandi.
Hinn 3. september 1919
lyfti flugvél sér í fyrsta skipti
upp af íslenzkri grund. Daginn
eftir komst Morgunblaðið m.a.
að orði á þessa leið:
„Um kl. 5 í gær gerðist óvænt-
ur atburður suður á Flugvelli.
Reynsluflugið var ákveðið þá
strax, og án þess að nokkur vissi
ók Faber vélinni út á vðil, sett-
ist við stýrið og renndi aí stað.
Vélin rann nokkra „ugi faðma
niður eftir túninu, eins og álft,
sem flýgur upp af vatni og loks
losnaði hún frá jðrðu og smá-
hækkaði. Hljóðið frá mótornum
heyrðist yfir bæinn og menn fóru
að skima í kringum sig. Og allir,
sem skimuðu, ráku augun í það
sama: Vélin leið áfram um loftið,
eins og risavaxinn fugl, stöðugri
en nokkur vagn á rennisléttum
vegi, sneri sér krappar beygjur
og tyllti sér eftir dálitla stund
aftur á grassvörðinn".
Aðdáunin á hinu nýja sam-
göngutæki leynir sér ekki í þess-
ari lýsingu á hinu fyrsta flugi
hér á landi. Fólkið fann, að einn
af elztu draumum mannkynsins
hafði rætzt, draumurinn um að
geta flogið um loftin eins og
fuglarnir.
Nýr tími var kominn til þessa
fjarlæga og afskekkta lands.
Mikil verkefni
framundan
í dag er flugið msrkur þátt-
ur í atvinnulífi þjóðarinnar og
flugvélarnar eitt þýðingarmesta
samgöngutæki hennar. Tvö ís-
lenzk flugfélög halda uppi reglu-
bundnum áætlunarferðum milli
íslands og tveggja heimsálfa. Og
innanlands nýtur öll þjóðin stór
kostlegs hagræðis af flugsamgöng
Það er vissulega ástæða til
þess að fagna hinni öru þró-
un í íslenzkum flugmálum og
þakka brautryðjendum flugs-
ins hér á landi fyrir dugnað
þeirra og framsýni.
En mikil verkefni eru ennþá
framundan á sviði flugmála okk-
ar. Okkúr vantar flugvelli víðs-
vegar um land til þess að tryggja
einstökum landshlutum öruggari
flugsamgöngur. Ný og fullkomin
öryggistæki þarf að setja upp og
bæta flugvélakost þjóðarinnar.
Mjög þýðingarmikið er að forystu
menn flugmálanna fylgist vel
með öllum nýjungum, sem gerast
á sviði þeirra í heiminum. Mun
óhætt að fullyrða ,að á næstu
árum muni gerast margvíslegar
breytingar, sem gera flugið ör-
uggara og þægilegra.
ÞEGAR FRAMSOKNARFRAMBJOÐ-
ANDINN TALAÐI AF SÉR
AÐ vakti mikla athygli í
sumar, þegar einn af fram
bjóðendum Framsóknar-
flokksins lýsti því yfir á fjöl-
mennum fundi norður í Skaga-
firði, að það væri skoðun sín, að
fólki myndi á næstu árum fækka
stórkostlega í Skagafjarðar- og
Húnavatnssýslum. Þetta þótti
ekki hvað sízt athyglisvert, þar
sem maðurinn, sem yfirlýsinguna
gaf, var enginn annar en skóla-
stjóri Búnaðarskólans á Hólum,
setn gegnir því hlutverki að
mennta ung bændaefni og glæða
áihuga þeirra á landbúnaði og
sveitastörfum.
Heimskuleg hrakspá
í þessum ummælum Framsókn-
arframbjóðandans í Skagafirði
kom greinilega fram svartsýni
Framsóknuarmanna á framtíð
sveitanna. Þeir þykjast sífellt
vera hinir einu sönnu unnendur
landbúnaðarins, og reyna að telja
fólki trú um, að þeir hafi haffc
forystu um allt það sem til heilla
horfir fyrir íslenzkar sveitir.
En undir niðri trúa þeir ekki
á framtíð þeirra. Þess vegna
gloppast það upp úr frambjóð-
anda þeirra i Skagafirði, að
fólki muni stórfækka á næstu
árum í einum blómlegustu
landbúnaðarhéruðum Norður-
lands.
Nú er það hinsvega’’ faðreynd
að fólki hefur undanfarin ár ekki
fækkað í þessum sveitum, heldur
fjolgað. Þar hefur verið unnið
stórkostlegt uppbyggingarstarf,
bæði á sviði ræktunar- og húsa-
bóta. Hrakspá bændaskólastj Ir-
ans er þess vegna heimskuleg i
fullyrðing, sem ekki á við
minnstu rök að styðjast. En Fram
sóknarmenn skammast sín fyrir
hana, eins og greinilega kemur
fram í forystugrein Tímans í gær.
Framsóknarafturhaidið
í raforkumálunum
Sama máli gegnir um afstöðu
Framsóknarmanna til hinna
fyrstu tillagna Sjálfstæðisflokks-
ins um rafvæðingu sveitanna.
Framsóknarmenn fyrirverða sig
nú fyrir það, að hafa snúizt gegn
þessum tillögum árið 1929, þegar
þeir Jón Þorláksson og Jón á
Reynistað fluttu þær í fyrsta
skipti. Formaður • Framsóknar-
flokksins sagði þá, að stórvirkj-
anir fyrir strjálbýlið myndu
„setja landið á hausinn“, og
tveimur árum síðar rufu F'ram-
sóknarmenn Alþingi til þess að
hindra fyrstu virkjun Sogsins,
sem Tíminn kaliaði þá „samsæri
andstæðinga Framsóknarflokks-
ins.“! í gær kallar Tíminn raf-
væðingatillögu Jóns Þorláksson-
ar „hið falska raforkuplan íhalds
ins“.!
En þetta „raforkuplan" var
ekki falskara en svo, að nú er
verið að hrinda því í fram-
kvæmd fyrir frumkvæði Sjálf-
stæðismanna, sem tókst árið
1953 að neyða Framsóknar-
menn tii þess að ganga inn á
það.
Það er vissulega von að Tím
inn sé skömmustuleguir á svip-
inn í gær.
UTAN UR HEIMI
Konungurí55 ár
L A O S hefir mjög komið
við sögu í heimsfréttunum
undanfarið vegna átaka
þeirra, er orðið hafa í land-
inu. — Hinn aldni konungur
Laos, Sisavang Vong, hefir
nú afsalað sér völdum í hend-
ur syni sínum, Savang krón-
prins, sem tók formlega við
völdum sl. mánudag, 31.
ágúst. — Það er ekki vegna
þess alvarlega ástands, sem
skapazt hefir í landinu, að
hinn 74 ára gamli konungur
hefir nú vikið úr hásæti eftir
framt nánu sambandi við Frakk-
land sem meðlimur í franska
ríkjasambandinu. Það gerðist ár-
ið 1949, sem kunnugt er.
25 konur — 38 börn
• Sisavang Vong, sem er af-
komandi þúsund ára gamallar,
suður-kínverskrar konungsætt-
ar, hefir verið merkilegt sam-
bland af hinum „óformlega“
konungi nútímans og austurlenzk
um „ævintýrakóngi", eins og
þeir gerast í sögum og sögnum.
Hann á einar 25 eiginkonur,
og með þeim á hann 38 börn —
að því er vitað er. En aðeins
VONG KONUNGUR —
hrókur alls fagnaðar
s Sisavang Vong, konungur í Laos, hetir |
s ------ - ... s
s
s
s afsalað sér völdum í hendur sonar síns,
\ sem talinn er verðugur arftaki góðs
þjóðhöfðingja
óvenjulanga stjórnartíð — en
hann hefir setið að völdum í
55 ár — heldur er hann sjúk-
ur maður.
Hollusta, góðvilji og vizka
• Sisavang Vong tók við kon-
ungdómi árið 1904, þegar þetta
„land hinna hvítu sólhlífa“ eða
„land hinna mörgu fíla“, eins og
það oft var .nefnt, var frönsk
nýlenda. — í opinberri tilkynn-
ingu í sambandi við valdaafsal
hans nú stóð m. a„ að stjórn
hans hefði markazt af „hollustu,
góðvilja og vizku“. Og það mun
sannast mála, að Vong konung-
ur hefir verið góður stjórnandi
og framfarasinnaður — en þá
sögu má einnig segja um marga
aðra þjóðhöfðingja í hinum lítt
þekktu „ævintýraríkjum“ Suð-
austur-Asíu.
'k
Vong konungur hefir alla tíð
verið tengdur mjög traustum
böndum við Frakkland — fransk-
an anda og frelsishugsjónir. —
Hann fæddist á þjóðhátíðardegi
Frakka, 14. júlí 1885 — og
menntun sina hlaut hann í
frönskum skólum. En hann var
líka sá, sem undirritaði samning
þann, er gerði Laos að frjálsu
og fullvalda ríki — en hélt jafn-
ein af öllum þessum eigin-
kvennaskara er opinberlega „við-
urkennd", og aðeirfs tvö af öll-
um börnunum eiga tilkall til
krúnunnar, krónprinsins, Savang
Vatthana, sem nú hefir tekið við
völdum eins og áður segir, og
Souphantharangsi prins, sem er
titlaður „aðalritari“ konungsins.
Hrókur alls fagnaðar
• Áður en kóngur gerðist
heilsutæpur, var hann oft hrókur
alls fagnaðar í hirðlífinu, tók þátt
í ýmiss konar íþróttum, var hinn
fyrsti út á gólfið á hirðdansleik-
unum og ákafastur allra við
pókerspilaborðin. Hann var einn-
ig liðtækt tónskáld og hljóðfæra-
leikari, og mátti oft sjá hann
standa frammi fyrir hinni kon-
unglegu hljómsveit leikandi af
miklum móði á blásturshljóðfæri
nokkurt, sem er sérstakt fyrir
Laos, en líkist að nokkru orgeli.
Vong konungur dvaldist oftast
í höfuðborg sinni, Luang Prab-
ang, en fór við og við til Frakk-
lands til lengri eða skemmri dval
ar. Hann hélt kyrru fyrir í Luang
Prabang, þegar borgin var í hvað
mestri hættu í Indókína-styrjöld-
inni.
Verðugur arftaki
• Hinn nýi konungur, Savang,
stundaði nám í París, og er því
nákunnugur Frakklandi eins og
faðir hans. Hann hefir oft verið
fulltrúi lands síns á erlendum
vettvangi. Hann er talinn verð-
ugur arftaki föður síns, og hyggja
landsmenn gott til að lúta for-
ystu hans, ef takast má að hrekja
hina kommúnisku innrásarheri
á brott og koma aftur á ró í
„landi hinna hvítu sólhlífa".
Tilraunir til að bæía mataræði
Cóður árangur í baráttu við bœti
efnisskorfinn
Á SÍÐARI árum hafa bæði
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF), Matvæla- og land-
búnaðarstofnunin (FAO) og Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunin
(WHO) fengizt við tilraunir í
því skyni að bæta mataræðið, og
þá einkum mataræði barna á
uppvaxtarárunum, í löndum, þar
sem bætiefnaskortur í mat er
almennur. Stefnt er að því að
nota þær nytjajurtir, sem fyrir
eru í hverju landi, til að fram-
leiða bætiefnaríka fæðu, sem
falli börnum í geð. Árangurinn
af þessum rannsóknum hefur
reynzt jákvæður: fundizt hafa
ýmis efni, sem hafa talsvert
magn af próteini og öðrum nyt-
sömum næringarefnum og falla
jafnframt börnum í geð.
k
TJmræddar stofnanir Samein-
uðu þjóðanna hafa gert víðtæka
alþjóðlega rannsókn á ýmsum
fæðutegundum, og Barnahjálp
SÞ hefur safnað niðurstöðum
rannsóknanna í skýrslu, sem
verður lögð fyrir stjórn Barna-
hjálparinnar í september. — í
skýrslunni er lögð áherzla á, að
rannsóknirnar hafi sannað það,
að mikilvægar nýjar fæðuteg-
undir séu fyrir hendi á þeim
svæðum, þar sem bætiefnaskort-
urinn er hvað tilfinnanlegastur.
Ákveðin samsetning þeirra jurta-
efna, sem fyrir hendi eru, hefur
sama næringargildi og mjólk, og
framleiðslan er ekki dýrari en
svo, að lægst launuðu stéttirnar
geta veitt sér þennan sjálfsagða
„munað“. Það hefur komið í ljós,
að börn, sem þjást af „kvashiork-
or“ (veiki sem stafar af miklum 1
próteinskorti) þola þessar fæðu-
tegundir og hafa ekki neitt við
bragðið að athuga. — Sérstök
tegund af mjöli úr baðmullar-
fræi, sem hingað til hefur verið
álitið óhæft til manneldis, er
t. d. sérlega hollt fyrir börn.
Loks hefur verið sýnt fram á
það með tilraunum, að efni, sem
eru sjálf óheppileg til manneld-
is sökum próteinskorts, geta orð-
ið tilvalin fæða þegar þau eru
blönduð öðrum próteinríkum
efnum.
k
1 Indónesíu hefur um tveggja
ára skeið verið rekin „mjólkur-
verksmiðja", sem notar soja-
baunir og sesamfræ sem hráefni.
Hún framleiðir árlega 200—300
tonn af þurrmjólk, og eru 150
tonn árlega látin í té börnum og
mæðrum fyrir milligöngu heilsu-
verndarstöðva og sjúkrahúsa.
Það, sem afgangs er, er sent á
markaðinn blandað kakaó- eða
vanilla-bragði og sélt sem eins
konar fljótandi sojamjólk.
Verksmiðjan var reist með tækni
legri og fjárhagslegri aðstoð
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
unarinnar og Barnahjálparinnar,
Með hjálp þessara sömu stofn-
ana og Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar er nú í ráði að
gera tilraun með framleiðslu
svipaðra fæðutegunda í Nígeríu,
Japan, Mið-Ameríku og á For-
mósu. Þá hafa nokkur önnur
ríki, sem hafa áhuga á mál-
inu, sent umræddum stofnun-
um tilmæli um aðstoð.
Daloi Lanta
biður S.Þ. dsjdr
NÝJU DELHI, 31. ágúst —
Dalai Lama, hinn útlægi
trúarleiðtogi Tíbeta, hefur í
orðsendingu beðið Samein-
uðu þjóðirnar að taka upp
mál þjóðar sinnar, sem nú
líði hinar mestu þjáningar
undir oki kommúnista. — I
orðsendingu sinni beinir
hann orðum sínum til allra
friðelskandi þjóða heims og
biður um stuðning við frelsi
og réttlæti.