Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 1
24 siðui!
46. árgangur
200. tbl. —* Sunnudagur 13. september 1959
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jónas Bafnar
Magnús Jónsson
Bjartmar Guö'mundsson
Gísli Jónsson
Björn Þórarinsson
Vésteinn Guðmundsson
Friðgeir Steingrímsson
?áll Þór Kristinsson
Árni Jónsson
Baldur Kristjánsson
Baldur Jónsson
Jóhannes Laxdal
Til tunglsins
Rússnesk eldflaug á að hitta tunglið
kvöldið áður en Krúsjeff hittir
Eisenhower
Framboð Sjálfsfœðis-
manna á Norðaustur-
landi ákveðið
SAMTÖK SJÁLFSTÆÐISMANNA á Norðausturlandi hafa nú
ákveðið framboðslista sinn i því kjördæmi við kosningarnar, “sem
fram eiga að fara 25. og 26. okt. nk. — Er listinn skipaður þessum
monnum:
1) Jónas G. Rafnar, alþingismaður, Akureyri.
3) Magnús Jónsson, alþingismaður, Reykjavík.
3) Bjartmar Guðmundsson, hóndi, Sandi, Aðaldal.
4) Gísli Jónsson, menntaskólakennari, Akureyri.
5) Björn Þórarinsson, bóndi, Kilakoti, Kelduhverfi.
6) Vésteinn Guðmundsson, verksmiðjustjóri, Hjalteyri.
7) Friðgeir Steingrimsson, verkstjóri, Raufarhöfn.
8) 'Páll Þór Kristinsson, viðskiptafræðingur, Húsavík.
9) Árni Jónsson, tilraunastjóri, Akureyri.
10) Baldur Kristjánsson, bóndi, Ytri-Tjörnum.
11) Baldur Jónsson, hreppstjóri, Garði, Þistilfirði.
12) Jóhannes Laxdal, hreppstjóri, Tungu, Svalvarðsströnd.
MOSKVU og LONDON,
12. sept. — (Reuter) —*
R Ú S S A R skutu í dag eld-
flaug til tunglsins. Moskvu-
útvarpið skýrði frá þessu ár-
degis og sagði, að „skotið“
hefði heppnazt vel. Eldflaug-
in mundi ná til tunglsins nk.
Sunnudagur 13. september
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Rödd samvizkunnar, eftir sr.
Óskar J. Þorláksson.
— 6: Rætt við Róbert A. Ottósson
um doktorsritgerð.
— 8: Fólk I fréttunum. v
— 10 og 11: Sjálfstæðismenn höfðu for
ystuna um rafvæðinguna, fisk-
iðjuverin og sementsverksmiðj-
una.
— 12: Ritstjórnargreinarnar: Óreiðu-
stjórn Framsóknar á Keflavik-
urflugvelli. — Aflakóngur fær
nýjan bát.
—- 13: Reykjavíkurbréf.
— 15: Sitt af hverju tagi.
mánudag, 5 mínútur yfir mið-
nætti eftir Moskvutíma (kl.
21,05 á ’sunnudagskvöld eftir
ísl. tíma) — Það vekur at-
hygli, að flauginni er ætlað
að vera komin á leiðarenda
daginn áður en Krúsjeff kem-
ur til Bandaríkjanna til við-
ræðna við Eisenhower. •
-k
Moskvuútvarpið sagði, að til-
raun þessi væri liður í geimrann-
sóknum Rússa — og undirbún-
ingi undir flug milli plánetanna.
En einkum væri tilgangurinn að
kanna ástand geimsins á leiðinni
til tunglsins. —
Hér var um margþrepa eld-
flaug að ræða. Síðasta þrepið
vegur um 390 kíló, ásamt kúlu-
laga hylki, sém er áfast við það
og hefur inni að halda ýmiss
konar vísinda- og mælitæki. Það
náði 11,2 km hraða á sekúndu,
og um hádegi var það uppi yfir
eða lítið eitt norðan við Nýju-
Framh. á bls. 2.
Þetta nýja kjördæmi kýs eins
og kunnugt er 6 þingmenn. Ríkir
manna í öllum héruðum þess fyr-
ir að vinna sem ötullegast að
mikill áhugi meðal Sjálfstæðis- sigri lista síns.
Átök Indlands og Kina:
Kínverjar viðurkenna
ekki núverandi landa-
mœri
Fasta nefnd kínverska þingsins rœðir málið
PEKING, 12. sept. (Reuter) —
Fastanefnd þjóðþings kínverska
alþýðulýðveldisins kom saman að
nýju í dag, til þess að halda
áfram umræðum um landamæra-
deiluna við Indland.
í gær lýsti nefndin, sem kemur
fram fyrir þingsins hönd, meðan
það er ekki að störfum, yfir ein-
róma stuðningi við afstöðu Chou
En-Lai, en hann ásakaði Indland
um að beita valdi, til þess að afla
viðurkenningar á Macmahon-
línunni, sem aðskilur Tíbet, er
kommúnistar ráða, og norðaustur
hluta Indlands.
Macmahon-linan
Kínverskir kommúnistar vilja
ekki fallast á þessa skiptingu,
sem ákveðin var af ráðstefnu
Indlands, Kina og Tíbet á árun-
um 1913—14. Og á fundi nefnd-
arinnar lýsti Li Chi-Shen, for-
maður byltingarnefndar Kuom-
Mótmæli Thor
Thors vekja
athygli ytra
FÖR Thors Thors sendi-
herra í utanríkisráðuneytið
í Washington í fyrradag, til
þess að mótmæla atburð-
inum á Keflavíkurflugvelli,
fyrr í vikunni, hefur vakið
mikla athygli úti í heimi.
T. d. var hún í gær annað
af tveim helztu erlendum
fréttaefnum brezka stór-
blaðsins „The Guardian“ —
áður „The Manchester
Guardian“ — en það er sem
kunnugt er eitt af merkustu
blöðum Bretlands.
— Reuter.
ingtang, sem á sínum tíma sagði
skilið við Chiang Kai-Shek, yfir
því, að „við munum aldrei fallast
á hina svonefndu Macmahon-
línu.“
„Þeir byrjuðu"
Málgagn kommúnistaflokksms
helgaði % hluta af forsíðu sinni
í dag fregn um fund fastanefnd-
arinnar í gær og var í þumlungs-
nárri fyrirsögn sagt, að nefndin
hefði „fordæmt and-kínverska
baráttu, sem Indland hefði kom-
ið á fót.“
Ekki er talið að fundarmenn á
umræddum fundum fastanefnd-
arinnar hafi gengið lengra en að
taka undir þá kröfu Chou En-
Lai, að indverskir herir, sem
kommúnistar sögðu að farið
hefðu inn fyrir landamæri ríkis
síns, yrðu kallaðir til baka og leit
azt yrði við að leysa málið í frið-
samlegum samningaumleitunum.