Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 2
2
MORWNBIAÐ1Ð
Sunnudagur 13. sept. 1959
Hjó til beggja j
j handa j
j Sydney, 12. sept. (Reuter). (
i EINN lét Iífið og 15 særðust i
< í kvikmyndahúsi hér sl. mið- \
) vikudag, þegar pólskur inn- i
) flytjandi, Bogden Mazurski, j
< 36 ára gamall, hljóp, niður S
$ eftir gangi sýningarsalarins )
í og hjó til beggja handa með (
j; öxi, sem hann hafði tekið sér j
j í hönd. Hann var síðan tek- 5
! inn fastur sakaður um morð, (
\ 10 morðtilraunir og önnur af- S
S brot. 3
Blinda fólkið
þakkar
ÞRIÐJUDAGINN 8. þ. m. buðu
bílstjórar á Hreyfli blindu fólki
í ferðalag. Þátttakendur í ferð-
inni voru blint starfsfólk frá
þeim tveim félögum, sem starfa
að blindramálum hér í bæ,
Blindravinafélagi Islands og
Blindrafélaginu og nokkrir aðrir,
sem ekki starfa hjá félögunum.
Einnig var nokkuð af sjáandi
fólki til fylgdar og leiðbeiningar.
Ekið var að Skálholti og kirkj-
an skoðuð, þótti fólkinu fróðlegt
að skoða líkan kirkjunnar, sem
stendur þar inni.
I kirkjunni rakti Guðni Jóns-
son, prófessor, sögu staðarins í
stuttri ræðu. Frá Skálholti var
ekið að Hveragerði, þar beið
ferðafólksins uppbúið kaffiborð
hjá þeim hjónum Eiríki Bjarna-
syni og Sigríði Björnsdóttur. —
Eftir kaffið var um stund
skemmt sér við söng og dans.
Skemmtu þeir Aage Lorange og
Ólaf ur Magnússon, söngvari,
einnig var rösklega tekið undir.
Hópur barna úr þorpinu kom
beint inn af götunni frá leikjum
sínum. Þau stóðu þarna saklaus
og góð uppi á leiksviðinu í úlp-
um sínum, regnkápum og stígvél-
um og sungu fyrir fólkið undir
stjórn Ólafs. Að lokum kom Ei-
ríkur með nikkuna sína og var
dansað af fjöri. Síðan var haldið
heim.
Blinda fólkið biður blaðið að
færa kærar þakkir bifreiðastjór-
unum á Hreyfli, þeim Helgu og
Gunnlaugi Melsted og Sigríði
Bjömsdóttur og Eiríki Bjarna-
syni, er í sameiningu gáfu veit-
ingar, hljómlistarmönnunum og
öllum hinum, sem hjálpuðu til að
gera daginn ánægjulegan.
Myndin hér að ofan er af einu af málverkum Harðar Ágústs-
sonar, sem hann sýnir um þessar mundir í Listamannaskálan-
um. Myndina nefnir hann Landkul. — Sýningu Harðar lýkur
í kvöld. —
Dæmdur frá ökuleyfi
sveik út leyfi úti á landi
MAÐUR nokkur sem var sviptur
ökuleyfi, og síðan hefur þráfald-
lega verið handtekinn fyrir að
aka bíl, tókst fyrir nokkrum vik-
um að svíkja sér út ökuleyfi í
öðrum kaupstað.
Maður þessi, sem heima á hér
í bænum, hefur mjög komið við
sögu hjá lögreglunni vegna ofsa
aksturs síns. Það var þessi mað-
ur, er ók bílnum á manndráps-
hraða í mikilli umferð á Skúla-
götunni, en lögreglumaður, sem
veitti honu meftirför á mótor-
hjóli slasaðist mjög mikið í
árekstri.
Þessi náungi hafði farið út á
Onassis og Callas
á skemmtisiglingu
FENEYJUM, 12. sept. (Reuter).
Maria Meneghini Callas og gríski
olíukóngurinn Ariostoteles Onass
is nálgast nú strendur Grikklands
með skemmtisnekkjunni „Christ-
ina“.
Um sólalagsbil
Hin 36 ára gamla söngkona fór
Björgunarsveit
berst höfðingleg
gjöf
NÝLEGA afhenti frú Sonja
Helgason, formanni björgunar-
sveitar Slysavarnafélagsins í Vík
í Mýrdal, Ragnari Þorsteinssyni
bónda að Höfðabrekku, 10 þús-
und krónur að gjöf til björgunar
sveitarinnar í viðurkenningar- og
þakklætisskyrii fyrir veitta aðstoð
við leit að manni hennar, Axel
Helgasyni, kaupmanni er drukkn-
aði í Heiðarvatni.
jEtlar björgunarsveitin að nota
gjöfina til kaupa á auknum og
fullkomnari útbúnaði til björg-
unarstarfa. (Frá S.V.F.Í.).
um borð í snekkjuna í Feneyjum
í gær, en skömmu áður hafði hún
komið þangað frá Milanó í fylgd
með Onassis, 53 ára, sem sótti
hana í flugvél sinni. Þau lögðu
síðan af stað um sólarlagsbilið í
gærkvöldi.
Hundruð fréttamanna, sem
fylgdust með ferðum snekkjunn--
ar í sjónaukum, töldu sig hafa
séð Onassis kyssa söngkonuna
lítinn koss á ennið, eftir að þau
komu um borð.
Laus og liðug
Það var á þriðjudaginn, sem
Maria Meneghini Callas lýsti yfir
því, að lokið væri hjónabandi
hennar og hins 62 ára gamla iðn-
rekanda Giovanni Battista
Meneghini, er staðið hefur yfir í
10 ár. Onassis yfirgaf eiginkonu
sína, 28 ára gamla, í París í gær,
þegar hann hélt til fundar við
söngkonuna.
Fyrr í vikunni sagði Onassis
við fréttamenn, að orðrómur um
að kærleikar væru með honum og
Gallas væri „hlægilegur“ og
bætti við: „Ef Callas tjáði mér
einhvern tíma ást sina, yrði
ég mjög hreykinn, — en það
hefur hún ekki gert“.
land, með vottorð upp á vasann
um það, að hann hefði hvorki
verið sviptur kosningarréfti eða
kjörgengi.
Gegn framvísun þessara vott
orða, tókst manninum að svíkja
út bílpróf og ökuskírteini. En
ekki hafði maðurinn ökuleyfið
nema í 2—3 daga, því að þá mun
vegalögreglan að sunnan, eins og
það er kallað úti á landi, orðið
þess var að maðurinn hafði um-
ráð yfir bíl. Kom þetta flatt upp
á yfirvaldið í þessum kaupstað,
en þar voru þegar gerðar ráð-
stafanir til þess að svipta hinn
ökuleyfislausa hinu nýfengna
ökuleyfi.
Um þessar mundir munu þó
nokkrir ökumenn vora komnir
„á svartan lista“ hjá vegalögregl
unni. T.d. einn sem ekið hafði
með fullan bíl af unglingum á
um það bil hálfri klukkustund frá
Hveragerði til Reykjavíkur, að
því er sagt er.
Um fleiri mun vera álíka statt,
en undir slíkum kringumstæðum
verður lögreglan helzt að standa
ökumennina að verki og reynir
hún að fylgjast með ferðum þess
ara manna úti á vegunum.
Sýning Valgerðar
Árnadóttur Hafstað
VIÐ FREYJUGÓTU stendur sýn-
ingarsalur Ásmundar Sveinsson-
ar. Þar var fyrir nokkrum árum
haldið mikið af listsýniningum,
en nú er þar myndlistarskóli.
Þessa dagana hefur verið opnuð
sýning á verkum eftir Valgerði
Árnadóttur Hafstað í þessum á-
gæta sýningarsal, og það er eins
og andi fersku lofti þar innan' en þegar maður fer að kynnast
veggja.
Valgerður hélt fyrstu sýningu
sína hér í Reykjavík ekki fyrir
löngu og er þetta í annað skipt-
ið, sem okkur gefst tækifæri til
að sjá verk frá hennar hendi.
En listakonan er búsett erlend-
is, og er það gleðilegt, að hún
skuli koma með myndir sínar í
heimsókn við og við. Þegar Val-
gerður sýndi hér fyrst, vöktu
verk hennar athygli fyrir það
hve látlaus og samstæð þau voru.
Ég held, að ég hafi tekið svo til
orða þá, að gaman yrði að sjá
hennar næstu sýningu. Ef þetta
er rétt, þá verð ég að segja, að
ég hef ekki orðið fyrir vonbrigð-
um að þessu sinni. Þessi sýning
er í beinu áframhaldi af því er
hún var seinast að vinna að.
Nú hefur henni tekizt að gera
verk sín nokkru einfaldari í lit-
byggingu og enn mýkri og við-
kvæmari en áður. Hún notar að
vísu heldur einhliða litatóna, og
það er ekki mikið átak í sjálfri
litameðferð hennar, en það er
einkennilega aðlaðandi hrynjandi
og hárfín tilfinning í þessum
verkum. Það er auðséð, að Val-
gerður vinnur að list sinni af
mikilli einlægni og að hún er
listakona í stöðugum vexti. Hún
hefur enn sem komið er ekki
skilið við þau impressionistisku
áhrif, sem svo mjög voru áber-
andi í verkum hennar síðast, er
hún sýndi. En nú virðist hún
ráða betur við þann stíl, er hún
hefur unnið úr þessum áhrifum.
Litameðferð hennar hefur einn-
ig þroskazt, og hún vinnur nú
betur úr myndfletinum en áður.
Þetta er mjög látlaus sýning,
og ef til vill lætur hún ekki
mikið yfir sér við fyrstu sýn,
þessum verkum nánar, kemur í
ljós, að þau verða meira og meira
aðlaðandi. Svo er það eitt, sem
er sérstætt við þessa sýningu
Valgerðar: Ég veit ekki til, að
nokkur annar listmálari á íslandi
hafi sýnt málverk, sem gerð eru
í þeim stíl, sem Valgerður not-
ar, og hún hefur einnig sérstaka
litameðferð. Formin eru lítil og
mörg, en skapa samspil í stærri
heildum, litirnir sérstaklega létt-
ir og mjúkir, oftast takmarkaðir
þannig, að hver verk er byggt
upp á fáum litatónum.
Heildarsvipur sýningarinnar er
mjög samstæður og jafnvel um
of. Flest_ eru þetta verk unnin í
olíuliti, en einnig eru nokkrar
Gouachemyndir á sýningunni.
Sumar þeirra eru áð mínum dómi
með þv£ allra bezta á þessari
sýningu. Ég hef áður haldið' þ ví
fram, að þeir litir eigi sérlega
vel við hæfileika og vinnubrögði
Valgerðar, en ég skal játa það,
að sumar olíumyndir hennar hafa
nú fengið þann svip, að fyllilega
jafnast á við hið fyrrnefnda.
Að lokum þetta: Ég vil hvetja
sem flesta til að sjá þessa sýn-
ingu Valgerðar, og ég veit, að
margir munu hafa ánægju af
að skoða þau verk, sem nú hanga
á veggjunum í sýningarsal Ás-
mundar Sveinssonar við Feyju-
götu.
Valtýr Pétursson
UnglingaliB keppir við
landsliðið trá 1949
í DAG verður háður síðasti „stór-
leikur" ársins í knattspyrnu á
Laugardalsvellinum. Mætast þar
landsliðið frá 1949 og unglinga-
landsliðið eins og unglinganefnd
KSÍ hefur valið það.
Unglingarnir ættu að sjálf-
sögðu að hafa meiri sigurmögu-
leika, en öruggt má þó telja að
„gömlu“ mennirnir veiti þeim
harða keppni.
Landsliðið frá 1949 er þannig
skipað; Hermann Hermannsson,
Val, Karl Guðmundsson, Fram,
Helgi Eysteinsson, Víking, Óli B.
Jónsson, KR, Sigurður Ólafsson,
Val, Sæmundur Gíslason, Fram,
Ólafur Hannesson, KR, Ríkarður
Jónsson, Akranesi, Hörður Ósk-
arsson, KR, Sveinn Hplgason og
Ellert Sölvason.
í unglingaliðinu eru þessir
menn: Þórður Ásgeirsson, Þrótti,
Helgi Hannesson, Akranesi, Þor-
steinn Friðþjófsson, Val, Gunnar
Feíixson, KR, Rúnar Guðmunds-
son, Fram, Ingvar Elíasson, Akra
nesi, Örn Steinsen, KR, Hólm-
bert Friðjónsson, Keflavík, Þór-
ólfur Beck, KR, Guðjón Jónsson,
Fram og Ellert Schram, KR.
Leikurinn hefst kl. 5 e. h.
Ástralskar þotur koma
við á Keflavíkurtlugvelli
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 11.
sept. — I dag lenti hér Boeing
707 — 137 farþegaþota frá
ástralska f lugfélaginu Qantas
og var þetta fyrsta viðkoma
þessa flugfélags á Keflavíkur-
flugvelli, eftir að það hóf reglu-
bundið farþegaflug umhverfis
jörðina með 707 þotum. Áður
notaði Qantas Constellation flug-
vélar á þessari leið og lentu þær
oft í Keflavík.
Flugleiðin, sem Quantas flýg-
ur, er frá Sidney í Ástralíu um
Calcutta, Cairó, Londoii, Kefla-
vík, New York, San Francisco og
þaðán um Havaii um Kyrrahafið
til Ástralíu. Leið þessi er flogin
tvisvar í viku og er ætlunin að
Keflavík verði fastur viðkomu-
staður á leiðinni yfir Atlants-
haf.
Qantas hefur þegar fengið af-
hentar fjórar 707 þotur af 12,
sem félagið á í pöntun. 100 far-
þegar voru með flugvélinni í
dag, er hún lenti á Keflavíkur-
flugvelli. 707 — 137 er nokkru
minni en sú gerð af 707 þotum,
sem Pan American notar til
flugs milli Evrópu og Banda-
ríkjanna og gerir þetta það að
verkum, að Qantas þarf frekar
að hafa viðkomu í Keflavík.
— B. Þ.
— 7/7 tunglsins
Framhald af bls. 1.
Gíneu — og var þá komið I
78.500 kílómetra hæð.
I hylkinu er útvarpsstöð, sem
sendir stöðugt margs konar upp-
lýsingar til jarðar. Stöðin sendir
út á tveim bylgjulengdum, 20.003
og 19.997 megariðum. — Sam-
kvæmt fregnum Moskvuútvarps-
ins búast Rússar við að fá ýmsar
mikilsverðar upplýsingar um
segulskaut jarðar og tungls við
þessa tilraun, sömuleiðis um
geislun umhverfis jörðina og um
geimgeisla og mismunandi styrk-
leika þeirra.
'k
Þetta er önnur tilraun Rússa
til þess að skjóta eldflaug til
tunglsins. Fyrri tilraunin var
gerð í janúar sl. og var ætlunin
að eldflaugin kæmist á braut um
tunglið, en hún „hitti" ekki —-
hélt áfram út í geiminn og geng-
ur nú á braut um sólu — fyrsta
„pláneta“ gerð af manna hönd-
um. — Ætlunin mun vera, eftir
því sem ráðið verður af tilkynn-
ingu Moskvuútvarpsins, að eld-
flaugin hitti nú tunglið, en fari
ekki á braut um það.
Bandaríkjamenn gerðu fjórar
tilraunir á sl. ári til þess að
skjóta eldflaug til tunglsins, en
mistókst í öll skiptin.
'#