Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.09.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur 13. sept. 1959 MORCTJHBl 4Ð1Ð 23 % Sláfrarar á námskeiði HINN 8. og 9. þ.m. efndi Sam band ísl. samvinnufélaga til nám- skeiðs og fundar ó Akureyri fyr- ir slátrara og aðra þá, sem að sauðfjárslótrun vinna. Þátttakendur voru um 58, aðal- lega fláningsmenn, sláturhús- stjórar og kjötmatsmenn frá 40 sláturhúsúm víðs vegar að um landið. Öll N kaupfélögin, sem verka dilkakjöt fyrir útlendan markað, nema tvö, sendu þátttak endur einn eða fleiri á nám- skeiðið. Á námskeiðið komu og leiðbeindu yfirkjötmatsmennirn- ir Halldór Ásgeirsson og Sigurður Björnsson. Auk þessa voru flutt erindi á námskeiðinu og leið- beint við verklega kennslu sem hér segir: dr. Halldór Pálsson, sauðfjárræktarráðunautur, flutti erindi um innlendar og erlendar markaðskröfur, Guðm. Knutsén, héraðsdýralæknir, talaði um kröf ur heilbrigðiseftirlitsins um hrein læti og frógang sláturhúsa. Jón- mundur Ólafsson, kjötmatsfor- maður, llutti erindi um meðferð sláturfjár og kjötverkun og með- ferð kjöts í slátiirhúsum og í flutningi. Arnlaugur Sigurjóns- son, eftirlitsmaður talaði um hreinsun og hreinlæti í slátur- húsum og Jón R. Magnússon, efnafræðingur, forstöðumaður námskeiðsins talaði um verkun og pökkun innýfla. Þrjár erlend- ar kvikmyndir voru sýndar, fjöil uðu þær um hinar ströngu kröf- ur, sem gerðar eru erlendis um hreinlæti í sláturhúsum og heil- brigðisskoðun kjöts. Báða dagana fór fram verkleg kennsla. Vegna námskeiðsins var leyft að slátra rúmlega 100 dilkum í sláturhúsi K.E.A., þar sem námskeiðið var haldið. Jón Pétursson, Borgar- nesi, Gunnbjörn Arnljótsson, Akureyri, Jóhannes Þórarinsson, Stefanía Kristjáns dóttii* 70 ára Kópaskeri og Ingimar Magnúss- on, Fossvöllum, leiðbeindu um fláningu sauðfjár. Ingvar Krist- jánsson, Stykkishólmi, sýndi svo kallaða gálgafláningu. Akureyr- ingarnir Gestur Jónsson, Harald ur Skjóldal og Karl Kristjánsson sýndu skotaðferð, fyrirristu og innanúrtöku. Stórgripaslátrun var og sýnd. Erindi voru flutt fyrir hádegi á námskeiðinu báða dagana og spunnust um þau miklar umræð- ur og var fjölmörgum fyrirspurn um beint til frummælenda. Námskeiðið, þótti takast vel og hafa orðið il mikils gagns. NÝLEGA opnaði ungur listamað- ur, Alfreð Flóki Nílssen, mynd- listasýningu í bogasal Þjóðminja safnsins. Alfreð Flóki er tvítug- ur Reykvíkingur og hefur undan- farin ár stundað myndlistarnám, fyrst hjá Jóhannesi Briem, list- málara, síðan í Handíða- og mynd listarskólanum, hjá Sigurði Sig- urðssyni, listmálara, og nú síðast í Konunglega fagurlistaskólanum í Kaupmannahöfn. Á sýningunni eru á annað hundrað tússmyndir og tvær tréristur. Aðsókn að sýn- ingunni hefur verið mjög góð, og hafa 17 myndir selzt. Sýningin verður opin í dag frá kl. 1—10. STEFANlA Kristjánsdóttir frá Hellissandi verður 70 ára á morg un mánudaginn 14. sept. Stefanía er fædd að Miðhúsum á Vatns- leysuströnd 1889, dóttir hjónanna Kristjáns Kristjánssonar og Helgu Jónsdóttur. Niu áia gömul missti Stefanía föður sinn, var hún þá send í fóstur til Jóns Skúiasonar og Ingibjargar Berg- steinsdóttur í Fagurey á Breiða- firði. Þar ólst hún upp, en árið 1908 giftist hún Edvarð Einars- syni frá Stykkishólmi. Hófu þau búskap á HeUissandi sama ár og þar hefur Stefanía verið bú- sett siðan. Varð þeim hjónum 8 barna auðið og eru 5 þeirra á lífi. Mann sinn missti Stefanía 1934. Hví ekhi nð virkja Glym i Botnsó? HVÍ ekki að taka skrefið til hags- bóta fyrir allt Vesturlandskjör- dæmið og virkja hæsta foss lands ins Glym í Botnsá í Hvalfirði, sem sagður er hafa 200 m fali- hæð. Áin fellur úr Hvalvatni á Botnsheiði, 160 m djúpu, sem er meira dýpi en mælt hefur verið í nokkru öðru vatni á landinu. Nokkru norðar á heiðinni er Reyð arvatn 57 m djúpt og nokkuð stórt um sig. ^Samkvæmt ályktun Þorvaldar heitins Thoroddsen er jarðvegsmyndun á einn veg á svæði þessara vatna. Ekki ætti að vera örðugleikum háð að gera samband á milli vatnanna með hinum stórvirku tækjum sem nú tíðkast. Botnsárvirkjun og Anda- kílsárvirkjun ættu í sameiningu að geta séð íbúunum á Suðvestur landssvæðinu fyrir nægri raf- orku, til heimilisnotkunar og iðn- aðar. Það mun verða íbúunum til góðs að geta búið þarna að sínu, því það er augljóst mál að raf- orkuþörf Reykjaneskjördæmis og Suðurlands er og verður gífur- leg. Hins vegar tel ég að með betri skipan mála en nú er, mætti takast að nýta betur það vatn sem völ er á til handa Anda- kílsárvirkjun, án þess að hækka Skorradalsvatn um 10 metra og gera þar með óbyggilegan feg- ursta dalinn á öllu Suðvestur- landssvæðinu. — Oddur. Einbýlishús við Álfholsveg Til sölu er húseignin Álfhólsvegur 38 Kópavogi. Húsið er um 80 ferm. hæð og ris. Upplýsingar í síma 18175 eða 17582. Ung og barnlaus hjón óska eftir 2-3 herb. íbúð helzt í Vesturbænum. Upplýsingar gefur séra Kristinn Stefánsson í síma 19405 og 16197 í dag og Stefanía verður á morgun stödd að heimili dóttur sinnar og tengda sonar að Linnetj.tíg 12, Hafnar- firði. næstu daga. Keflavík Suðurnes SKEMMTUN að Vík í kvöld kl. 9. Góð hljómsveit. — Hvað skeður kl. 12? ALÞÝÐUFLOKKSF&LÖGIN. Skrifsfofustúlka óskast Vön almennum skrifstofustörfum og með góða vélritunarkunnáttu. y Tilboð sendist í pósthólf 869 Skrifstofumaður oskast Maður, vanur bókhaldi og vélritun óskast strax til iðnfyrirtækis. Væntanlegir umsækjendur sendi upp- lýsingar um aldur og fyrri störf merkt: „Framtíðar- starf — 9043“ til Mbl. fyrir 16.-þ.m. Innilegt þakklæti til allra skyldmenna og kunningja sem glöddu mig með hlýjum handtökum, heimsókn, gjöf- um, blómum og skeytum á 80 ára afmæli mínu 31. ágúst s.l. Guð blessi ykkur öll. Tryggvi Jóhannsson, Hrísey. Hjartans þakkir til allra sem sýndu mér ógleymanlega vináttu á 80 ára afmæli mínu 5. sept. s.l. Guð blessi ykkur öll. María Magnúsdóttir, frá Litlalandi, Ölfusi. Maðurlnn minn, ÞÓRHALLUR SIGTRYGGSSON, fyrrverandi kaupfélagsstjóri, andaðist í Landspítalanum 11. þ.m. Kristbjörg Sveinsdóttlr Sonardóttur mín, HELGA SIGURÐARDÓTTIR lézt,ll. september að Hnappavöllum, Fagurhólmsmýri. Jarðarförin ákveðin síðar. Gísli Sigurðsson, Óðinsgðtu 16 og ættingjar. Útför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður stefAns dagfinnssonar skipstjóra, fer fram frá Fríkirkjunni þriðjudaginn 15. september kl. 2 e.h. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er vinsamlega bent á líknarstofnanir. — Athöfninni verður útvarpað. Júníana Stefánsdóttir, börn og tengdaböra. Konan mín, ÓLÍNA ANDRÉSDÓTTIR THORODDSEN frá Vatnsdal, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. þ.m. kl. 13,30. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpaS. Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu minn- ast hinnar látnu, bent á líknarstofnanir. Ólafur E. Thoroddsen Hjartans þakkir til allra, nær og fjær, er sýndu okkur hluttekningu og vinarhug við andlát og jarðarför konu minnar og móður okkar GUÐRlÐAR GUÐBRANDSDÓTTUR Gamalíel Jónsson og börn, Stað, Grindavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.