Morgunblaðið - 13.09.1959, Síða 24

Morgunblaðið - 13.09.1959, Síða 24
I fáum orðum sagt Sjá grein á bls. 8. Cosper og Mogensen MORGUNÐLAÐIÐ birtir í dag teiknimyífdir eftir tvo fræga skopmyndateiknara, Danana Cosper Cornelius og Jörgen Mogensen. Nafn Cospers er orðið mjög þekkt á Norðurlöndum og víðar, því að myndir hans þykja afbragð. Hann byrjaði að teikna gamanmyndir íyr- Cospcr við teikniborðið ir blað í Kaupmannahöfn, l þegar hann var aðeins 14 ára i að aldri — og vegur hans hef- HeyiS á floti ) EINS og kunnugt er hafa miklir óþurrkar gengið yfir \ Suðurland að undanförnu. í í fyrradag stytti loks upp og | mun það fyrsti þurrkadagur- ' inn í langan tíma. Víða var ! þá hey í vatni, jafnvel á tún- 1 s S um. Her getur að líta tvær | myndir, sem tíðindamaður i blaðsins tók úr flugvél í fyrra $ dag á suðurbökkum Hvítár } skammt frá Hvanneyri. Á S stærri myndinni sjáum við | hvar galtarnir eru umflotnir S vatni, en á hinni minni tún- • blett, þar sem tjörn er á hon- S um miðjum og standa galtarn- \ ir þar í vatninu. Víða gat að j líta hrakið hey og gulnað á • ' túnum þótt ekki væri svo illa S komið að það væri á kafi i | vatni. Þess munu dæmi að j meðfram Hvítá hafi heyið flot s ið á brott þegar rigningarnar • voru mestar. , í Ljósm. vig. 1 ur stöðugt vaxið á þessu sviði æ síðan. Hann er jafnframt þekktur jazzleikari, en skop- myndirnar hafa aflað honum mestrar frægðar, enda hafa þær jafnan verið hans aðal- starf. „Skáldið og mamma litla“ heita gamansögur Jörgen Mogensen um litlu fjölskyld- una, sem lifir og hrærist 1 heimi skáldskaparins. Það er margt sem drífur á daga skáldsins og mömmu litlu“, þvi um Mogensen má segja . það sama og Cosper, að j hnyttni hans hefur flogið viða S Him lönd og vakið almenna athygli. i Rússneskir blaðamenn í Keffavík í gær kom til Keflavíkurflug- vallar rússnesk farþegaflugvél af gerðinni 11-18, sem var á leið frá Moskva til Washington. Vél- in flutti 41 blaðamann, sem eru á vesturleið til þess að fylgjast með ferðalagi Krúsjeffs um Bandaríkin. Flugvélin hafði nokkra viðdvöl í Keflavík, en hélt síðan í einum áfanga vest- ur um haf. — Sjá nánar á síðu 22. Atburðirnir á Keflavikurflugvelli: Viðrœðum sendiherrans við ríkis- stjórnina lýkur nœstu daga í GÆRMORGUN birti utanríkis- ráðuneytið fréttatilkynningu um viðræður sendiherra íslands í Washington við ríkisstjórn Bandaríkjanna út af atburðun- um á Keflavíkurflugvelli. Er þess getið í fréttatilkynningu, að viðræðum um málið mundi ljúka næstu daga en tilkynningin er svohljóðandi: „Þriðjudaginn 8. sept. s.l. áður en Thor Thors ambassador fór héðan af landi til Washington, var honum falið að ganga á fund ríkisstjórnar Bandaríkjanna og í framhaldi af fyrri orðsending- um ríkisstjórnar íslands, að gera henni grein fyrir hve alvarlegum augum ríkisstjórnin liti á at- burði þá í einstökum atriðum og í heild, sem gerzt hafa und- anfarið í sambúð íslendinga og varnarliðsmanna. Var sendiherr- anum jafnframt falið að bera fram kröfu um, að ráðstafanir yrðu gerðar hið bráðasta til þess að koma í veg fyrir að slíkir at- burðir endurtækju sig. Seint í gærkvöldi barst til- kynning frá sendiherranum um að hann hefði í gærdag gengið á fund ríkisstjórnar Bandaríkj- f FYRRAKVÖLD um kl. 21,21 ók herjeppi, VL 3553, sem var að koma úr Reykjavík, á gangandi mann á Reykjanesbraut, nálægt Innri-Njarðvík. Var maðurinn fluttur á sjúkrahús í Keflavík, og reyndust meiðsli hans ekki vera alvarleg, þó mun hann vera tals- vert marinn og skorinn á höfði og í andliti, en óbrotinn. anna. Má gera ráð fyrir, að við- ræðum milli ríkisstjórna íslands og Bandarikjanna um þessi mál ljúki næstu daga og að árangur þeirra geti legið fyrir mjög fljót- lega“. Morgunblaðið birtir þessar ( myndir á bls. 15 í blaðmu í i dag — og fyrst um sinn birt- ^ ast þær á sunnudögum. \ Tveir km. ólagðir af Vestfjarðarvegi VEGAMÁLASTJÓRI skýrði Morgunblaðinu frá því í gær, að að- eins tveir kílómetrar myndu nú ólagðir af hinum nýja Vestfjarða- vegi, sem liggur úr Barðastrandarsýslu yfir í Arnarfjörð. Ef tíð helzt sæmileg ætti þessari þýðingarmiklu vegagerð að verða lokið á næstueinni eða tveimur vikum eða svo. Miklar rigningar undanfarið hafa tafið framkvæmdirnar nokk uð. En þeim er þó haldið áfram af fullum krafti og fjármagn hef- ur verið tryggt til þess að ljúka þeim á þessu hausti. Vegagérðin meðfram fsafjarð- ardjúpi hefur einnig gengið vel undanfarið. Hefur vegagerðinni meðfram Mjóafirði áleiðis út í Ögur miðað vel áfram. Voru fyr- ir nokkrum dögum um það bil tveir km óruddir út að Látrum í Mjóafirði. Vinna tvær jarðýtur að þessum vegaframkvæmdum. Verður þeim haldið áfram eftir því sem veður leyfir í haust. —. Þykir nú öruggt að akfært verði út í Ögur á næsta sumri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.