Morgunblaðið - 17.09.1959, Page 6
6
MORVUNM AÐÍÐ
Fimmtudagur 17. sept. 1959
SöngskenunfuB Engel Lnnd
FYRIR tíu árum er meistari Ad-
olf Busch var hér ásamt Engel
Lund, sagði hann: Engel Lund er
heimsstærð í sinni listgrein, og á
engan sinn líka. Það eru nú liðin
tíu ár síðan Gagga var hér síðast,
það er of langur tími. Engel Lund
er fædd á íslandi og var hér til
ellefu ára aldurs, enda er hún
mikill fslendingur. Hvar sem hún
hefir farið um lönd og naldið
hundrnð tónleika fyrir flestar
þjóðir heims, endar hún ævintega
með því að.syngja íslenzkt lag.
Svona er tryggð hennar mikil við
bernskustöðvarnar.
Undir söng E. L. er eitt orð,
sem oftast kemur í hug áheyrand-
ans: Stórkostlegt ,og á það jafnt
við um sjálfan sönginn og með-
ferðina á ljóði og lagi. Sérgrein
hennar er túlkun ljóðs og lags,
og til þess að ná sínu háa marki
hlaut hún að nema margar þjóð-
tungur svo vel að hún næði innsta
hugblæ málsins, hjarta fólksins,
sem leitaði uppi orðin í sálar-
stríði sínu og þrengingum. Hið
sama gildir um lögin. Mörg þeirra
þjóðlaga, þar á meðal flést hin
íslenzku, sem hún syngur, eru til
í ónákvæmum og ófullkomrjum
uppskriftum, rituð á hlaupum og
eítir minni alls kotiar fólks. Það
sem skrifað stendur er ekki alltaf
sjálft „orðið“ heldur í bezta lagi
ávísun, sem vísinda- og lista-
menn á borð við E. L. geta sorfið
til svo finna megi dyrnar að völ-
undarhúsi því, sem geymir sjálf-
an hjartslátt aldanna, formaðan
í lítið óljóst stef eða ljóð, af því
engin æfð listamannshönd hafði
dregið útlínur þess svo skýrt að
af tæki öll tvímæli um boðskap
þess til nýrra kynslóða. Hér gild-
ir að nokkru hið sama og um hin
fornu handrit þar sem lesa verð-
ur í langar eyður, þar sem aðeins
fá merki eru til leiðsögu. Þetta
orðar Gagga í lítillæti sínu svo
fallega, er hún biður lagið að
segja sér hvernig það vilji láta
syngja sig, og bíður þangað til
svarið kemur. Og þessi skýring
er líka góð lýsing á listakonunni
sjálfri, þessari miklu, gáfuðu
konu ,sem ferðast hefir um lönd-
in til þess að leita uppi gimsteina,
sem varða sköpun lífsins og þróun
þess, af svo frómum huga að allir
sem henni kynnast hljóta að
spyrja í djúpri aðdáun: Hvers-
vegna er Gagga ekki prófessor
við Háskóla íslands — við alla há-
skóla.
Á tónleikum sínum sl. miðviku-
dag og fimmtudag söng hún flest
uppáhaldslögin sín, sem hún hef-
ir sungið hér áður, og nokkur ný
lög, þar á meðal íslenzk, sem
stækkað hafa fsland til muna í
húgum þeirra, sem meta fleira
en það sem látið verður í aska.
Páll ísólfsson lék undir á tón-
leikunum og var samvinna þess-
ara tveggja listamanna í fullu
samræmi við efnið sem flutt var.
Hefur Páli sjaldan tekizt betur
upp.
Vikar. x
Fréttafrelsi
ógnað
PORT ELIZABETH, S.-Afríku,
15. sept. — (Reuter) — Hendrik
Wannenburg, forseti blaðamanna
félags Suður-Afríku, sagði í dag,
að ýmsar aðgerðir stjórnvald-
anna undanfarið væru „alvarleg
ógnun“ við frjálsa og óháða
fréttaþjónustu í Iandinu.
Hann vísaði sérstaklega til
máls Henry Barzilay, sem hefur
starfað hér sem fréttaritari NBC-
útvarpsstöðvanna bandarísku, en
hónum hefur verið skipað að
hverfa úr landi fyrir nk. laugar-
dag. — Wannenburg sagði, að
það bæri vissulega vott um yfir-
vofandi hættu á þessu sviði, að
stjórnvöldin skyldu gera frétta-
mann landrækan, án þess að gefa
nokkra skýringu á slíku athæfi
— og án þess að manninum væri
gefið nokkuð sérstakt að sök.
Prestar S-Þingeyjarpró-
fastdœmi rceða um
veiting prestsembœtta
HÚSAVÍK, 11. sept. — Héraðs-
fundur Suður-Þingeyjarprófasts-
dæmis var haldinn á Húsavík í
gær. Fundurinn hófst með messu
og prédikaði hinn nýkjörni prest-
ur að Laufási, séra Birgir Snæ-
björnsson. Kl. 16 setti prófastur,
Friðrik A. Friðriksson, fundinn
með ávarpi, en aðalmál fundar-
ins voru umræður um afnám
prestkosninga í því formi, sem
þær nú eru.
Frummælendur voru séra
Stefán Lárusson, Vatnsenda, og
séra Sigurður Haukur Guðjóns-
son, Hálsi. Miklar umræður urðu
um málið og lauk þeim með því
að felld var með 7 atkv. gegn 6
svohljóðandi tillaga:
„Héraðsfundur Suður-Þingeyj-
arprófastsdæmis, haldinn 13.
steptember 1959 á Húsavík, lýsir
vanþóknun sinni á ríkjandi fyrir-
komulagi á veitingu prests-
embætta, og því ófremdarástandi
sem það skapar. Skorar iundur-
inn því á hið háa Alþingi að af-
nema prestkosningar. Telur
fundurinn að heppilegri lausn á
veitingu prestsembætta væri
þannig: Umsækjendur sendu um-
sókn sína til biskups og þegar
umsóknarfrestur er úti sendir
biskup»umsóknina til hlutaðeig-
andi héraðsprófasts, er í samráði
við sóknarnefndir mælir með
einhverjum umsækjanda og send
ir síðan aftur biskupi. Þar sem
um fleiri sóknir er að ræða, gildi
atkvæði hvers sóknarnefndar-
manns í hlutfalli við fjöida
atkvæðisbærra sóknarbarna við
komandi sóknar“.
Fundinn sátu allir prestar og-
safnaðarfulltrúar prófastsdæmis
ins. — Fréttaritari.
Mikið fjölmenni v/ð vígslu
Reynivallakirkju
MIKIÐ fjölmenni var samankom-
ið við hina 100 ára gömlu Reyni-
valiakirkju er biskup landsins
próf. Sigurbjörn Einarsson gekk
til kirkjunnar í fylgd með fimm
hempuklæddum prestum, og
sóknarnefndarmönnum
Ekki rúmaði kirkjan nærri alla
kirkjugesti og var gjallarhorni
komið fyrir utan á kirkjunni.
Veður var hiðákjósanlegasta,logn
og skýjað svo sólar naut ekki.
Velflest sóknarbörn voru við at-
höfnina, en auk þess ýmsir komn-
ir lengra að, t.d. af Kjalarnesi,
Mosfellssveit, Reykjavík og
lengst sótti hátíðarguðsþjónust-
una kona austan úr Grímsnesi.
Vígsluathöfnin fór virðulega
fram. Að vígsluræðu biskups lok
inni, sté í stólinn Kristján Bjarna
son sóknarprestur, og einnig tal-
aði í kirkjunni Garðar Þorsteins-
son prófastur. Við guðsþjónust-
una skírði sóknarpresturinn son
sinn og meybarn dóttur Engil-
bjargar og Gísla hreppstjóra
Andréssonar á Neðra Hálsi.
Við þetta tækifæri bárust
Reynivallakirkju margar gjafir
og margar blómakveðjur. Að lok-
inni vigsluguðþjónustunni var
haldið í Félagsgarð og voru þar
bornar fram veitingar í boði
kvenfélagsins. Voru þar ræður
haldnar og töluðu biskupinn,
sóknarpresturinn, Hannes Arnórs
son í Hækingsdal og Steini Guð-
mundsson á Valdastöðum. Veizlu-
stjóri var Oddur Andrésson
hreppstjóri á Hálsi.
Aðalfundur Sambands
austfirzkra kvenna
AÐALFUNDUR Sambands aust
firzkra kvenna var haldinn á Hall
ormsstað dagana 30. og 31. ágúst
sl.
Formaður Sambandsins, frú
Sigríður F. Jónsdóttir setti fund-
inn og bauð fulltrúa og gesti vel-
komna. Fundarstjórar. voru frú
Ingunn Ingvarsdóttir og frú Þór-
ný Friðriksdóttir
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa voru þessi mál tekin fynr
og rædd: Heilbrigðismál, garð-
yrkjumél, námskeið og ráðunaut-
ar, skólamál og orlóf húsmæðra.
Hallsteinn Larsen flutti erindi
um garðrækt og Ingunn Björns-
dóttir kennari um húsmæðra-
fræðslu. Frk. Halldóra Bjarna-
dóttir sýndi ullariðnað og talaði
um heimilisiðnað og félagsstöri,
en frk. Halldóra er heiðursfélagi
sambandsins. Sýnd v'oru sýnis-
horn af handavinnu nemenda
húsmæðraskólans og kynnti Ás-
dís Sveinsdóttir skólastjóri sýn-
inguna.
Á aðalfundinum komu fram og
voru samþykktar eftirfarandi
ályktanir:
1) Að fara þess á leit við Bún-
aðarsamband Austurlands að það
hafi á sínum vegum ráðunaut til
leiðbeiningar við matjurta- og
skrúðgarðarækt að vorinu.
2) Að öll kaupfélög á landinu
hafi ætíð á boðstólum síld í átt-
ungum. Jafnframt þakkar fund-
urinn Sambandi ísl. samvinnu
félaga fræðslustarfsemi þeirra
undanfarin sumur í þágu heimil-
ana.
3) Að mynda sjóð, sem styrki
eldri deildar nemendur við Hús-
mæðraskólann á Hallormsstað
-
1 ■ skrifar úr daglega lífínu ,
Velvakandi gramur
ÞAÐ hefur ekki sjaldan valdið
Velvakanda gremju og óþæg
indum, hve erfitt er að komast
áfram á gangstéttum höfuðstað-
arins, þegar margir eru á ferh.
Naumast er hægt að komast
lengd sína, án þess að rekast a
einhvern sem á móti kemur. —
Ástæðan til þess arna er, etns
og öllum má vera ljóst, að fóik.
sem ætlar í gagnstæðar áttir,
gengur sömu megin á gangstétt-
inni og þarf því stöðugt að sæta
lagi, til þes að .smjúga fram nja
þeim, sem á móti koma.
Er hægt aff bæta um?
ER hægt að gera eitthvað, til
þess að bæta úr þessu? Já:
Og hvað er það, sem hægt er að
gera? Það er einfaldlega það, að
gangandi fólk fari eins að og á
ganstéttunum og ökutækin á göt
unum,' haldi sig vinstra megin
og víki til vinstri. Ef vegfar-
endur gerðu þetta, yrði niður-
staðan sú, að þeir, sem færu f
aðra áttina, gætu gengið ótrauð-
ir áfram á öðrum helmingi gang
stéttarinnar, en hinir, sem væru
á leiðinni í gagnstæða átt, hefðu
svo hinn helming gangstéttarinn-
ar fyrir sig. Með þessu móti væru
báðir aðilar lausir við þær tafir
og margskonar leiðindi, sem af
sífelldum árekstrum hafa hlot-
izt og alltaf á að gera ráð fyrir,
meðan þetta ófremdarásand
helzt.
Ringulreið effa skipuleg
umferð.
EN er þetta framkvæmanlegt,
mundi máske' einhver viljá
spyrja. Jú, hví ekki það. Þetta
hefur t. d. verið óhjákvæmilegt
úti á götunum, — og þar gefist
einstaklega vel. Eða hvernig yrði
ástandið í umferðinni, ef bifreið-
arnar hættu að halda sig hver
á sínum götuhelmingi? Það þarf
ekki aS hugsa um það mál lengur
en í hálfa mínútu, til þess að
öllum verði ljóst, að allt myndi
lenda í hinni örgustu ringulreiö
og enginn komast neitt áfram. En
það er aldeilis ekki fjarri því,
að þannig sé ástandið á gangstétt
unum nú, a. m. k. þegar verst
lætur.
Víkiff til vinstri.
GÓÐIR Reykvíkingar. Hugsum
nú dálítið ufn þetta mál
Og ef þið komist að sömu nið-
urstöðu og Velvakandi, takið þá
höndum saman við hann um aö
halda ykkur jafnan vinstra meg-
in á gangstéttunum. Víkið til
vinstri — og sjáið hvað skeð-
'ur! Þá fyrst myndi Velvakanda
reka alveg í rogastanz, ef þetta
brygðist! En það mega ekki
margir svíkjast undan merkjum,
til þess að árangurinn láti á sér
standa. Minnumst því öll þess,
sem ráðherrann sagði í bernzku:
— Það er bezt að hver passi sjálí-
an sig.
með lánum eða beinum fjárfram-
lögum.
4) Að raforkumálastjóri hlut-
ist til um, að skólanum verði sem
fyrst komið í öruggt samband
við rafveitukerfi Austurlands,
svo starfsemi skólans truflist ekki
af þeim sökum.
5) Að fá upplýsingar hjá Fé-
lagsmálaráðuneytinu um Orlofs-
sjóð húsmæðra, sem á undánförh-
um árum hefur verið á fjárlög-
um. Sambandið hefur gert ítrek-
aðar tilraunir til að fá upplýsing-
ar og hlutdeild í sjóðnum, en
enga aheyrn fengið, og telur fund
urinn það freklega móðgun við
aðalsamtök kvenna á Austurlandi
og óskar eftir skýlausum svörum.
6) Að félagsdeildirnar hefji
áróður á sínu svæði fyrir aukhu
hreinlæti, snyrtilegri umgengni á
almannafæri, kringum hús og bæi
til sjávar og sveita
Stofnaður var heilbrigðismála-
sjóður til styrktar sjúkrahúsi
Egilsstaða fyrst um sinn, en á sl.
ári var afhentur ríflegur sjóður
til fjórðungssjúkrahúsS Austur-
lands í Neskaupstað.
Húsmæðraskólinn hélt fundin-
um kvöldboð á sunnudag og voru
þar yfir 40 konur.
Að fundinum loknum hófst or-
lof húsmæðra í Húsmæðraskól-
anum og tóku þátt í því konur
frá 5 félagsdeildum.
Stjórn sambandsins skipa: Sig-
ríður F. Jónsdóttir, Egilsstöðum,
formaður, Bergþóra Guðmunds-
dóttir, Karlsskála, ritari.
Styrkur
til háskólanáms
EINS og undanfarin ár veitir
British Council eins árs styrk til
háskólanáms í Brezka samveld-
inu. Umsækjendur rr.ega vera
konur eða karlmenn frá 25 til 35
ára og verða að hafa lokið há-
skólanámi eða hafa sambærilega
menntun. Umsækjendur í læknis
fræði verða að auki að hafa lokið
tveggja ára reynslutima eftir
próf. Umsækjendur verða að
hafa gott vald á enskri tungu.
Umsóknareyðublöð eru fáanleg
hjá brezka sendiráðinu að Lauf-
ásvegi 49, og verða að útfyllast
og hafa borizt fyrir 1. desember
1959. —