Morgunblaðið - 17.09.1959, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 17. sept. 1959
MORGUNBLAÐIÐ
11
Með lögum skal
land byggja
ÞANN 15. ágúst s.l. birtist í Tím-
anum grein undir íyrirsögninni
„Kunna þessir menn að tapa?“
Greinarhöfundur er Sigurgeir
Hannesson, bóndi í Stóradal, sem
jafnframt er einn af vörðum laga
og réttar í Húnaveri. Það er auð-
séð, að Sigurgeir hefur smeygt
sér úr einkennisbúningnum á
meðan samning greinarinnar fór
fram.
Ennfremur er það athyglisvert,
að ritstjóri Tímans birtir hana á
þriðju síðu, en hún er eins og
kunnugt er sorptunnusíða Tím-
ans. Sýnir ritstjórinn greinarhöf-
undi með þessu verðskuldaðan
heiður.
Þar sem greinarhöfundur virð-
ist finna hjá sér þörf til að troða
iiisakir við mig, þykir mér skylt
að svara honum með nokkrum
línum í Morgunblaðinu. Þessi rit-
smíð hans er að nokkru leyti um
kæru Sjálfstæðisflokksfélaganna
í A.-Hún. Hinn hlutinn er per-
sónulegt níð um nokkra af for-
ustumönnum Sjálfstæðisflokks-
ins í Austur-Húnavatnssýslu.
Sýnir Sigurgeir í þessu, sem öðru
sitt rétta innræti.
„Með lögum skal land byggja“.
Segja má að þetta séu kjör-
orð íslenzkrar löggæzlu, enda
skráð á lögreglumerkið, sem allir
lögreglumenn bera. Nú skrifar
einn af þeim mönnum, sem falið
hefur verið að sjá um að lögum
og reglum ríkisins sé hlýtt grein
í víðlesið blað og gefur eftirfar-
andi yfirlýsingu:
„Því það er ekki svo lítil til-
breyting í því fyrir mann, sem
enn býr norður í landi, að vera
einn góðan veðurdag eltur uppi
af tveimur lögregluþjónum og
kallaður fyrir rétt . . .“
Það þarf ekki fleiri orð til að
sýna „moralinn“ hjá Sigurgeir í
Stóradal. Það er tilbreyting og
ánægja fyrir hann að vera eltur
uppi eins og strokufangi frá
Litla-Hrauni, dæmdur og aug-
lýstur, sem sakamaður í blöðum
og útvarpi.
Á öðrum stað stendur: „Hér
var í engu brugðið venju á kjör-
staðnum'. Með öðrum orðum. Ef
maður væri handtekinn og sak-
aður um t. d. þjófnað, væri eftir
þessari kenningu Sigurgeirs nóg
fyrir hann að segja, að hann hefði
í engu brugðið venju sinn. Hann
hefði alltaf verið þjófur. Hér
kemur til dæmi um mótsagnirnar
hjá greinarhöfundi. Er hann þar
að ræða um Guðbrand ísberg
sýslumann, sem óskaði eftir setu-
dómara, þar eð hann hefði verið
alþingismaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Þar stendur: „En þar
brást hann, þ. e. sýslumaður, að
sjálfsögðu trausti flokksbræðra
sinna og hraðaði málinu svo að
því var lokið áður en þing kom
saman. Ekki framkvæmdi sýslu-
maður sjálfur rannsóknina . . .“
Þannig eru mótsagnirnar. í
annari línunni stendur, að sýslu-
maður hafi hraðað málinu, en
í hinni, að hann hafi ekki sjálf-
ur haft með málið að gera.
Níffhöggur
„Ágætustu mennirnir verða
jafnan fyrir ásókn níðhögganna,
eins og fuglarnir sækjast mest
eftir að kroppa beztu ávextina.“
Mér komu í hug þessi orð eftir
Lord Bacon, þegar Sigurgeir í
Stóradal tók til að níða Jón
Pálmason, fyrrverandi alþingis-
forseta. Sigurgeir þarf ekki að
kynna Jón Pálmason fyrir ís-
lenzku þjóðinni. Allir vita, að
Jón Pálmason er einn af ágæt-
ustu sonum Húnabyggðar og al-
þingismaður Austur-Húnv. hefur
hann verið í meir en aldarfjórð-
ung. Jón Pálmason hefur gegnt
ábyrgðarmiklum störfum innan
þings og utan. Hann hefur notið
trausts og vináttu fólks úr öllum
stjórnmálaflokkum, sem hefur
kunnað að meta drengskap hans
við póiitíska andstæðinga, sem
aðra.
Að sjálfsögðu kunna Austur-
Húnvetningar vel að m'eta störf
Jóns Pálmasonar, og hafa þeir
sýnt honum margan sóma.
„Sér grefur gröf þótt grafi."
Þau tíðindi gerðust á framboðs-
fundi á Blönduósi s.l. vor, að Sig-
fús Þorsteinsson, ráðunautur
Framsóknarmanna réðist með
ruddaskap á mig í ræðu, sem
hann hélt á fundinum. Virtist
hann hafa meiri áhuga á því,
hvemig ég verði tómstundum
mínum, heldur en því, hvernig
hann sinnti störfum sínum sem
ráðunautur. Hvernig stóð á því,
að Sigfús Þorsteinsson gleymdi
öllum drengskap og mannasiðum
og hugsaði um það eitt, að níða
pólitískan andstæðing sinn í skrif
aðri og þaulhugsaðri ræðu Því
er fljótsvarað. Eins og kunnugt
er vann ég á kosningaskrifstofu
Sjálfstæðisflokksins á Blönduósi
um þetta leyti. Var skrifstofan
mikill þyrnir í augum Framsókn-
armanna. Sigurgeir í Stóradal,
flokksbróðir Sigfúsar Þorsteins-
sonar, þarf einnig að sýna í verki
sitt pólitíska ofstæki. Hann send-
ir mér tóninn £ grein sinni og
segir meðal annars: „Við vit-
um öll að mönnum, sem hafa átt
við langa líkamlega vanheilsu
að búa . . .” Sigurgeir í Stóradal
og Sigfús Þorsteinsson þurfa ekki
að minna mig á, að ég veiktist
sem barn og ber þess menjar, en
að, fólk noti sér veikindi ann-
arra, sem árásarefni í pólitískri
blaðagrein sýnir, að Sigurgeir
Hannesson hefur ekki úr miklu
að moða. Hjá honum birtist
Framsóknareðlið í sinni ljótustu
mynd, og sjálfsagt er hann að
þakka fyrir það, að tengdafaðir
hans, sá ágæti bændaleiðtogi og
alþingismaður, Jón Jónsson í
Stóradal, var rekinn úr Fram-
sóknarflokknum, af því að hann
þótti ekki nógu undirgefinn og
þægur.
Guffmundur Klemenzson.
Aðstoðarstúlka
á tannlækningastofu óskast strax.
Til'boð með upplýsingum sendist Mbl. fyrir helgi
merkt: „Aðstoðarstúlka — 9177“.
Heildverzlun sem selur
fatnað og metravöru óskar að ráða sölumann.
Þeir eða þær sem áhuga hefðu fyrir slíku starfi,
gjöri svo vel að senda nafn og heimilisfang í póst-
hólf 506.
Stórt geymslu- og iðnaðarpláss í kjaliara
í miðbænum er
til leigu
nú þegar, ásamt einu eða tveimur rúmgóðum íbúðar-
herbergjum og litlu eldhúsi, gegn góðri húshjálp á fá-
mennu heimili. Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins
fyrir 20. þ.m. merkt: „Eftir samkomulagi — 4424“.
Skrifsfoíusfúlka
Dugleg skrifstofustúlka óskast strax. Bókhalds- og
enskukunnátta nauðsynleg. Mjög hátt kaup. Tilboð
sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag merkt: „Bókhald
— 4216“.
Verkaíólk
Okkur vantar fólk til starfa í verksmiðjunni nú
þegar. Um framtíðarstarf getur verið að ræða. Ungl-
ingar yngri en 15 ára ekki ráðnir.
Hampiðjan hf.
Stakkholti 4.
SunnleaBdinsjar
Haustefnin komin.
Úrval af enskum dragta og karlmannafataefnum,
að ógleymdu euska reiðfataefninu eftirsótta, einnig
íslenzkt efni í skólaföt drengja.
DANlEL ÞOBSTEINSSON, klæðskeri,
- Selfossi.
Á þessu ári eru liðin 25 ár síðan fyrsta
stúdentaheimili á íslandi, Stúdentagarður-
inn, tók til starfa.
Tilhlýðilegt þykir að minnast þessa afmf lis með
nokkrum hætti, og hefir því verið ákveðið að efna til
afmælishófs
laugardagskvöldið 10. okt. n.k.
Skorað er á alla stúdenta, sem dvalið hafa á
Gamla Garði á undanförnum aldarfjórðungi, að koma
til þessa samkvæmis til þess að eiga glaða stund
og rifja upp gömul kynni.
Nauðsynlegt er þeir sem geta komið því við, að
sækja afmælishóf þetta, tilkynni þátttöku sína
í skrifstofu Gamla Garðs, sími 1-64-82 kl. 2 til 5
síðdegis, eigi síðar en 25. þ.m.
Reykjavík, 14. sept. 1959.
Jóhann Hafstein, bankastjóri,
Gunnlaugur Pétursson, borgarritari,
Ragnar Jóhannesson, bókavörður,
Þórarinn Sveinsson, læknir,
Þorvaldur Þórarinsson, lögfræðingur.
Handíða- og Myndlistaskólinn
Kennsla hefst 1. október næstkomandi.
Dagdeildir: Teiknun, listmálun, pastelteiknun, sáld-
þrykk, steinprent, trérista, mosaik, litasaga, mynztur-
teiknun, tauþrykk, batik, almennur vefnaður, mynd-
vefnaður, vefnaðarfræði. — Sérmenntun teiknikennara
og vefnaðarkennara.
Síðdegis- og kvöldnámskeið: Teiknun og föndur fyrir
börn. Teiknun og málun fyrir unglinga og fullorðna.
Bókband. Steinprent. Mosaik. Stílsaga. Tauþrikk, sáld-
þrykk og batik. Leiksviðstækni og leiktjaldamálun.
Skrifstofan, Skipholti 1, sími 19821, opin í september
alla virka daga nema laugardaga kl. 6—7 síðdegis.
Starfsskrá skólans fæst í bókabúðum Lárusar Blöndals.
Fjölbreytt úrval af
snyrtivörum
fyrir dömur og herra
Nýkomið fyrir dömur: Nýkomið fyrir herra:
Louis Philippe varalitur
fjölbreytt litaúrval
Tveet Baðolía
— Baðpúður
— Baðsalt
— Varalitur
(áfyllingar)
Ennfremur nýkomið
Lenthréic rakspritt
— hárspritt
— raksápa
— After shave
stick o. m. fl.
and dry Foot Povvder.
Snyrfivörudeildin
Vesturgötu 3.