Morgunblaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 10
10
MORCUNnr AÐIÐ
MiðviKudagur 7. okt. 1959
^ SKÁ
í ÁTTUNDU umferð tefldi Frið-
rik við Petrosjan, og beitti Petro-
sjan Ragosin uppbyggingunni, en
Friðrik var vel heima í þessari
byrjun og fékk strax betra tafl
sem hann hélt. í níundu umferð
i I i I
Hvítt: F. Ólafsson
Svart: T. Petrosjan
Ragosin-kerfið.
Petrosjan
ABO DEFGH
ABCDEFG .H
Friðrik
Leikur sem hefur vofað yfir alllengi,
en er nú mjög óþægilegur svörtum.
17..... dxe4 19. d5!
18. Rxe4 Df4
Markmiðið með e4 leiknum, ef við
athugum nú hversu illa hrókarnir á
a8 og b8 standa þá hljótum við að
sannfærast um að 15. leikur svarts sé
rangur.
19 ... Dxe4 20. dxe6 Hd8
Vitaskuld er ekki hægt að leika aér
20 ...Dxe6, vegna Hxc6,og ekki dug-
ar fxe6 vegna Hc4 og vinnur Rc6.
21. exf7f Kxf7 22. Del!
Fallegur leikur og sterkur, sem hótar
í fyrsta lagi Bc4 skák, og vinna drottn-
inguna.
22..... Kf8
Ekki 22... He8 vegna Bc4 skák, Kf8,
Dxe4, Hxe4, Bd5 og vinnur.
23. Hc4 De8 26. Bxf3 Df7
24. Hacl Re5 27. He3!
25. He4 Rxf3
Hótar Bxa8 og ef 27... Hab8 þá Be2!
með hótuninni Hf3.
27..... Bf4!
Bezta vörnin.
28. Bxa8 Bxe3 29. fxe3!
Opnar drottningunni línu til g3 og
tefldi hann gegn Benkö, sem kom
með nýjan leik í byrjun Sikileyj-
artafls og náði Friðrik aldrei að
jafna taflið og á nú tapaða bið-
skák, sem hann mun sennilega
gefa án frekari taflmennsku.
Bobby Fischer hefur verið miður
sín í síðustu umferðum og var
t.d. mátaður mjög léttilega af
Keres og Petrosjan, en Bobby
hefur verið kvefaður að undan-
förnu og hefur það sjálfsagt háð
honum að nokkru. Það er hálf
sorglegt að horfa upp á frammi
stöðu fyrrverandi heimsmeistara
V. Smyslov, sem virðist hafa
komið mjög vel undirbúinn til
keppninnar, því hann er með
nýung svo að segja í hverri skák
og fær því oftast betra tafl upp
úr byrjuninni, en klúðrar því
síðar í skákinni á óskiljanlegan
hátt. Það er mjög hörð „kritik“
að baki víglínunnar á þessu
kandidadamóti, og ef einhver
keppandi leikur veikt eða rangt,
þá getur hann verið viss um að
hann fréttir það í óspurðum frétt
um að skákipni lokinni, en Lar-
sen er tvímælalaust fremstur í
flokki gagnrýnenda, þó Rússarnir
hafi sterku liði á að skipa.
1. c4 e6 5. cxd5 exd5
2. Rf3 Rf6 6. Bg5 h6
3. Rc3 d5 7. Bxf6
4. d4 Bb4
I Porteros lék Friðrik 7. Bh4 gegn
Fischer, en leiðin sem Friðrik velur
er ákallega örugg og gefur hvitum
nokkuð betri vígstöðu.
7...... Dxf6 8. Da4t
Leikið til þess að þvinga riddarann á
c6, en c6 er sennilega ekki góður reit-
ur fyrir drottningarriddarann i svona
stöðu.
8. Rc6 12. Hfcl Bd6
9. e3 0-0 13. Ddl Re7
10. Be2 BeU 14. Ra4 b6
11. 0-0 a6 15. Rc3
14. leikur framkallar veikingu á peða-
stöðu svarts á drottningarvæng, þvi
að öðrum kosti kom Rc5, d3, e5.
15...... Hfb8
Þessi sama staða kom upp í skákinni
Taimanof—Kotaf í Zurich 1953 og lék
Taimanof þá Dfl sem er tæplega eins
góður leikur og a4. Aftur á móti er ég
ekki samþykkur síðasta leik svarts, vil
heldur láta hann leika 15...... Bf5
t.d. 16. Dfl, c6. 17. a4, a5. 18. Bd3, Bg4,
og hvítur verður að tefla varlega
vegna kóngssóknarhættu.
16. a4! Rc6
Þessi leikur er óttalegt neyðarbrauð,
en svartur vill ógjarnan leyfa a5.
17. e4!
Útlitsmynd af húsi því, er B.s.f. Framtak hóf framkvæmdir
við í sumar, að Sólheimum 25.
. í húsinu verða íbúðir af tveim gerðum, þriggja og fjögra
herbergja.
Hverri íbúð fylgja tvær geymslur, vanaleg geymsla á sömu
hæð og íbúðin, og köld geymsla í kjallara. Einnig fylgir hverri
íbúð frystihólf.
Hverri íbúð fylgir hlutur í: samkomusal, leikherbergi barna,
tómstundasal unglinga, barnavagnageymslu, reiðhjóla-
geymslu, vélþvottahúsi og húsvarðaríbúð.
Eftir er að ráðstafa nokkrum íbúðum og verður það gert
næstu daga.
Upplýsingar á skrfstofu félagsins að Flókagötu 3 frá mið-
vikudegi til föstudags, kl. 20,30 — 22,00. — Sími 19703.
vinnur peð óverjandi.
29 Hxa8 31. Hxc7 Df6
30. Dg3 Kf8 32. Df2
Hér má hvítur ekki þvinga fram drottn
ingarkaup með 32. Df3, Dxf3. 33. gxf3,
Hd8. 34. Hc2, Hd3, Kf2, og Hb3 og b4.
32 De5 36. Ddl He6
33. Hd7 IIe8 37. Hc3 Hg6
34. Hd3 Ðe4 38. Dc2 Dxc2
35. Dc2 Kh7 39. Hxc2 Hd6!
Afgerandi afleikur. Bezt var 39......
Hg4 40. b3, Hb4. 41. Hc3, a5! 42. Kf2,
b5. 43. axb5, Hxb5. 44. Ke2, Hb4. 45.
Kd3, a4. 46. bxa4, Hxa4 og hvíta frí-
peðið er of nálægt svörtupeðunum til
þess að hægt sé að vinna.
40. Kf2 Hd3 42. Ke4 a5
41. Kf3! Hb3
Hér lék Friðrik biðleik.
43. Kd4 gr5!
Bezta vörnin, en ekki nægilega góð.
T.d. 43.... Hb4 skák. 44. Kd5, Hxa4. I
45. e4, Ha4. 46. e5, a4. 47. e6, a3. 48. !
e7, axb2. 48. e8D, blD. 49. De4 skák og |
mátar.
44. e4 Kg7 45. Hf2!
Nauðsynlegt er að skera svarta kóng-
inn frá.
45........ Hb4f 48. e6 b5
46. Kd5 Hxa4 49. e7 Hdlf
47. e5 Hal
E£ svartur leikur 49.. Hel þá Kdfi
með hótuninni Hf8.
50. Kc6 Hel 51. Kxb5!
Einfaldast og bezt. Mjög hæpið er að
Kd6-d7-e8 dugi til vinnings.
51........ He5t 53. Kxa5 Ha7t
52. Ka4 Hxe7 54. Kb4! Ha8
Hér gat svartur einnig leikið 54._
Ha2 en hvítur leikur einfaldlega Kc3-
d3 He2 og b4.
55. b3 h5 59. Kd7 Hcl
56. Kc5 Hc8f 60. Hb2 Hhl
57. Kd6 Hd8f 61. b4!
58. Kc6! Hc8f
Astæðulaust er að vera að skeyta uni
h-peðið.
61........ Hxh2 64. Ke6 Hd8
62. b5 Hhl 65. b7 Hb8
63. b6 Hdlf 66. Kf5
og Þetrosjan gafst upp.
IRJóh.
„Galdravélarnar",
sem jafnvel hugsa
. GÆR gafst fréttamönnum út-
varps og blaða tækifæri að skoða
hinar margbrotnu vélar, sem
notaðar eru við ýmiss konar
útreikninga og skýrslugerðir,
svo sem fyrir Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar,
skattaframtal og fleira. Vélarnar,
sem eru mjög misjafnlega stór-
ar, eru um 14 að tölu og hefir
hver sitt ákveðna hlutverk við
'hina margvíslegu útreikninga
Er nijög fróðlegt að sjá hvernig
þessar „galdravélar" skila því,
sem í þær er látið og hversu
skamman tíma það tekur þær að
leysa viðfangsefnin. Er ein t. d.
þannig úr garði gerð, að hún allt
að því hugsar Spara þær að
sjálfsögðu mikið mannahald fyr-
ir nú utan það hve þægilegt og
fljótlegt er að vinna með þeim.
Það, sem einkum varð -il þess
að vélar þessar voru fengnar til
landsins, var hversu skýrslu-
gerðir og margs konar útreikn-
ingar eru orðnir stór liður í þjóð-
lífi voru. Það er til dæmis geysi-
mikið starf, sem útheimtist mán-
aðarlega við alla rafmagnsreikn-
inga hér í Reykjavík og Hafn-
arfirði. Þá er t.d. ekki svo lítil
vinna við allt skattaframtalið,
— og fleira mætti nefna. En síð-
an þessar rafeindavélar komu til
sögunnar, er allt slíkt starf stór-
um léttara.
Það var árið 1950, sem fyrstu
vélarnar komu til landsins, og
voru þær þá fyrst notaðar við
úrvinnslu verzlunarskýrslna árs-
ins 1949 og síðan úrvinnslu
manntalsins 1950. En síðan var
farið að nota þær af ýmsum að-
ilum, og hafa nú t.d. unnið og
vinna fyrir þessi fyrirtæk::
Rafmagnsv. R-víkur og Hafn-
arfj., Brunabótafélagið, Hag-
stofuna, Landssímann, Samband-
ið, Bæjarsjóð R-víkur, Skatt-
stofuna, Tollstjóraskrifst.oíuna,
Þjóðskrána og fleiri og fleiri.
Vorið 1957 fluttu Skýrsluvél-
ar, en svo nefnist fyrirtækið,
starfsemi sína í núverandi hús-
næði, efri hæð Ræsis h.f. við
Skúlagötu, og starfa þar nú 7
manns. Var þá bætt við vélum,
sem nær tvöfölduðu afkastagétu
frá því, sem áður var. Miðað
við verkefnin, sem nú iiggja
fyrir, er vélakostur meir en
nógur. Hins vegar er húsnæðið
fullþröngt og starfsmenn of fáir.
Vélarnar eru, sem hér segir: 3
útskriftar- og töfluvélar, 3 rað-
arar, 2 samraðarar, 2 reiknivél-
nr, 2 áritunarvélar, 2 markalest-
ursvélar og sjálfvirkir gatarar,
auk venjulegra skrifstofuvéla.
Stjórn Skýrsluvéla sKipa:
Klemenz Trygvason hagstofu-
stj., formaður; meðstjórnendur
dr. Sjgurður Sigurðsson berkla-
yfirlæknir og Steingrímur Jóns-
son rafmagnsstjóri. Eru vélarnar
sameign ríkis og Reykjavíkur-
bæjar.
„I blíðn og stríðu" á Akronesi
AKRANESI, 30. okt.: — Sl. mið-
vikudagskvöld var frumsýndur
hér í bíóhöllinni á Akranesi gam
anleikurinn „í blíðu og stríðu’-,
eftir Arthur Wattkyns, fyrir fuilu
húsi.
Höfundur er fljótur að komast
að efninu, því tjaldið hefur naum
ast verið dregið upp, er elskend-
urnir, sem eru höfuðpersónur
leiksins og allt snýst um, sitja í
faðmlögum og sæluvímu. Hún,
Eiríkur Hreinn
Fiimbogason for-
stöðumaður Náms
flokkanna í vctur
A FUNDI bæjarráðs, er haldinn
var á föstudaginn, var lagt fram
bréf forstöðunefndar Námsflokka
Reykjavíkur, varðandi ráðningu
forstöðumanns í fjarveru Agústs
Sigurðssonar nú á komandi skóla
ári. Meirihluti nefndarinnar
hafði lagt til að ráða til starf-
ans Eirík Hrein Finnbogason
cand. mag. — Samþykkti bæjar-
ráð, með meirihluta atkvæða, að
fallast á tillöguna un ráðningu
Eiríks Hreins. Guðmundur Löve
hlaut 2 atkvæði í bæjarráði.
heimasætan, dóttir efnaðra for-
eldra, nýkomin heim úr fjarlægð,
og hann, fátækur biðillinn, ást-
fanginn frá hvirfli til ilja. Þau
eru leikin af Sigurborgu Sigur-
jónsdóttur og Júlíusi Kolbeins.
Nú hefst gamla sagan að fá sam-
þykki foreldra stúlkunnar til
ráðahagsins. Það tekst og nú
leigja þau sér herbergi með
áfastri herbergiskytru og fá hús-
gögn á leigu.
Leikstjórinn, Jónas Jónasson,
þulur, er vandvirkur, því hvergi
virðist ofleikið, og er leikurinn
hraður og fjörugur. Hámarki nær
■hann,~er allt steðjar í senn að
frúnni, önnum kafinni í húsverk-
unum, þvottakona kemur úr ann-
ari íbúð, segjandi kjaftasögur um
náungann, önnur kona, sem þarf
að fá að hringja, blokkflutuóm-
ar og gauragangur úr næsta her-
bergi og vatnsleki ofan af loftinu.
Allt þetta reynir óskaplega á
taugar frúarinnar og eiginmanns-
ins, sem kemur þreyttur heim úr
vinnunni og ofan á þetta bætist,
að nú á að taka af þeim hús-
gögnin, en ungu hjónin sigra gegn
um „blítt og strítt".
Leikendur eru 12 og gera hlut-
verkunum góð skil og sumir ágæt
skil. Leiknum var vel tekið og
bárust leikendum blóm.
Þirðja sýning var á föstudags-
kvöld. —Oddur.