Morgunblaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 24
220. tbl. — Miðvikudagur 7. október 1959
Lamb
fátæka
mannsins
í BÆÐU sinni á Allsherjarþing-
inu í fyrradag rifjaði Thor Thors
sendiherra upp söguna um lamb
fátæka mannsins, sem er að
finna í síðari Samúclsbók Gamla
testamentisins, en þar segir af
Þúsundir fá ekki
afgreiðslu hjá
húsnœðismála-
stjórn
Sfjórnendur önnum kafnir við gagn- /
tveim mönnum, ríkum og fátæk-
um. „Hinn riki átti fjölda sauða
og nauta, en hinn fátæki átti ekki
nema eitt gimhralamb . . . Þá
kom gestur til ríka mannsins, og
hann tímdi ekki að taka neinn af
sauðum sínum eða nautum til
þess að matreiða fyrir ferðamann
inn . . . heldur tók gimbrarlamb
fátæka mannsins . . .“
— Fiskveiðarnar eru einasta
lamb okkar litlu þjóðar, sagði
Thor Thors. Við vonum, að hin-
kvæmar glæpsamlegar sakargiftir
SJÁLFSTÆÐISMENN beittu
sér fyrir því 1955, að al-
mennu veðlánakerfi fyrir íbúð
arhúsnæði væri komið upp.
Eftir að V-stjórnin tók við fór
þetta allt skjótlega úr bönd-
um. Þess vegna telja Sjálf-
stæðismenn það nú í kosninga-
stefnuskrá sinni meðal brýnna
Hannes um Sigurð
verkefna „að tryggja fjármagn
tii húsbygginga við sjó og í
sveit“.
Síðustu atburðir sanna, að
í fulit öngþveiti er komið. —
Engum öðnum en Sjálfstæðis-
mönnum er treystandi tii að
kippa þessum málum i lag að
nýju.
ir auðugu Bretar endurtaki ekki
dæmisögu Biblíunnar gagnvart'
okkur. — Sagt hefir verið, að
við gætum ekki með rétti fært
út fiskveiðitakmörkin einhliða.
En hvers vegna skyldum við ekki
geta það, þegar um 30 þjóðir hafa
þegar fært út lögsögulandhelgi
sína — einhliða, Engir — aðrir
en Bretar — sem mótmælt hafa
útfærslunni, hafa talið nauðsyn-
legt að grípa til annarra aðgerða
en „diplómatískra* ‘og kurteis-
legra mótmæla.
Bretar hafa aftur á móti hagað
sér þannig, að það stríðir gegn
stofnskrá S.þ. Við slíkri fram-
komu hefði sízt mátt búast af
ríki, sem talið er bandamaður
Okkar.
,Skirrist ekki v/ð að stela eða láta
stela bréfum og skjölum frá
meðstjórnendum."
„GENGUR AF
HÚSNÆÐISMÁLA-
STOFNUNINNI
DAUÐRI“
„Þú veizt að fjárskortur
byggingarsjóðs og aigert á-
hugaleysi núverandi stjórnar-
valda til að auka f jármagn til
íbúðarlána, veldur ótrúlegum
Kjósendafundur Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavik
kvöld
er i
►JÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
teykjavík halda almennan
:jósendafund í Sjálfstæðis-
íúsinu í kvöld og hefst hann
1. 20,30.
Ræðumenn á fundinum
■erða: Gunnar Thoroddsen,
lorgarstjóri, frú Auður Auð-
uns, Birgir Kjaran, hagfræð-
ingur, Pétur Sigurðsson, sjó-
maður og Bjarni Benedikts-
son, ritstjóri.
Fundarstjóri verður Tómas
Guðmundsson, skáld.
Allt stuðningsfólk D-listans
er hvatt til. þess að mæta
stundvíslega.
Stiórnmálalundir D-listans
Reykjaneskjördæmi
vandræðum hjá þeim mikla
fjölda manna, sem ér að reyna
að eignast þak yfir höfuðið“.
Á þessa leið lýsir Hannes
Pálsson ástandinu hjá húsnæð-
ismálastjórn í grein, sem hann
skrifar í Tímann í gær. Lýs-
ing Hannesar staðfestir það,
sem Sigurður Sigmundsson
skýrði blaðamönnum frá hinn
24. sept. sl., er hann taldi nær
2000 umsækjendur annað
hvort enga eða ófullkomna úr-
lausn hafa fengið hjá húsnæð-
ismálastjórn.
Ástæðan til þess, að svona
er komið, er, að í höndum
húsnæðismálastjórnar hefur
löggjöfin, sem V-stjórnin setti
um íbúðalán hrunið til grunna.
Höfuðsmiður hennar var
Hannibal Valdimarsson og
þess vegna ekki við góðu að
búast.
Út yfir tók í hverra hendur
framkvæmd þessarra mála var
látin. Þar voru helztu ráða-
menn Sigurður Sigmundsson
og Hannes Pálsson. Hannes
segir nú um Sigurð:
„Líklega gengur þú af Hús-
næðismálastofnuninni dauðri‘„
í Morgunblaðinu í gær
mátti lesa lýsingu Hannesar á
starfsháttum Sigurðar. En áð-
ur hafði Sigurður birt „myrk-
fælnis“-bréfið til Hannesar.
Viðureign þeirra félaga held
ur áfram í Tímanum og Þjóð-
viljanum í gær.
„ÚTGRÁTNAR OG
NIÐURBROTNAR"
FRAMBJÓÐENDUR D-list-
ans í Reykjaneskjördæmi
boða til stjórnmálafunda á
eftirtöldum stööum nú í vik-
unni:
Sandgerði.
í samkomuhúsinu í Sandgerði
í kvöld og hefst fundurinn
kl. 8,30. Fundarstjóri verður
Gísli Guðmundsson.
Vatnsleysuströnd.
í barnaskóla Vatnsleysustrand
arhrepps kl. 8,30 í kvöld. Fund-
arstjóri verður Árni Hallgríms-
son.
Grindavík.
f samkomuhúsinu i Grindavik
á morgun og hefst fundurinn kl.
8,30. Fundarstjóri verður Eirík-
ur Alexandersson.
Gerðahreppi.
f samkomuhúsinu í Gerða-
hreppi á morgun kl. 8,30.
Fundarstjóri verður Sigurbergur
Þorleifsson.
Ræður og ávörp á þessum stóð-
um flytja: Ólafur Thors, Matthías
Á. Mathiesen, Sveinn S. Einars-
son, Karlvel Ögmundsson, Axel
Jónsson, Alfreð Gislason, Einar
Halldórsson og Stefán Jónsson.
Ailt stuðningsfólk D-listans
velkomið.
Hannes ávarpar Sigurð m.
a. svo:
„Þú heldur að þér takist með
lognum sakargiftum að láta
þetta fólk trúa því, að sam-
starfsmenn þínir séu vondir
menn, sem noti það litla fé,
sem þeir geta útdeilt, aðeins
til atkvæðakaupa, en hirði
ekkert um ástæður umsækj-
enda. Þú ætlar að reyna að
koma þeirri skoðun inn hjá
almennmgi, að þú sért siðbót-
armaðurinn^ sem aðeins þjónir
réttlætinu, en fáir litlu áork-
að fyrir vondum mönnum og
viðsjálum.
Þú treystir því, að meðstjorn
endur þínir glúpni og leggi
ekki í það þarfaverk að sanna
faríseahátt þinn og fullkomið
siðleysi í opinberu starfi, en
slíkt er misskilningur hjá þér.
Því þú verður að athuga það,
að meðstjórnendur þínir eru
ekki eins og fermingarstelpur,
sem hægt sé að bjóða upp á
smáævintýri í öngstrætum eða
skrifstofubyggingum og skilja
þær svo þar eftir útgrátnar og
niðurbrotnar".
„ÞEKKTU
ÓÞOKKAEÐLI HANS“
Fyrr í grein sinni segir
Hannes:
„Þegar ég las grein þína
„íbúðarlán og atkvæðaveiðar“
kom mér í hug Ketill prestur
í sögu Borgarættarinnar.
Með persónu Ketils bregð-
ur skáldið Gunnar Gunnars-
son upp mynd af hinum ófyr-
irleitna skálki, sem einskis
svífst.
Ketill prestur er látinn
átanda fyrir altarinu og ásaka
vandamann sinn um glæp, sem
hann sjálfur hafði framið. Með
þessu ætlaði Ketill að gera sig
að hinum hreina dýrling í aug-
um safnaðarins. Hann hélt að
með þessu tiltæki myndi hann
geta upphafið sjálfan sig en
svínbeygt venzlamenn sína,
sem hann óttaðist, af því þeir
þekktu óþokkaeðli hans.
Tilræði Ketils heppnaðist
ekki. Boginn brast í hendi
hans, og hann var fyrirlitinn
og smáður. Sá er munur Ketils
og þín, að Ketill iðraðist, leit-
aði í bæn til Guðs síns og gerð
ist meinlætamaður, en senni-
lega munt þú aldrei iðrast
gerða þinna, fyrr en ef það
verður á banasænginni".
Síðar sakar Hannes Sigurð
um „lognar sakargiftir og ó-
viðurkvæmilegar getgátur" og,
að hann
„---------skirrist ekki við
að stela eða láta stela bréfum
og skjölum meðstjórnend-
um, til þess að misnota þau á
Dólitískum vettvangi".
FORMAÐUR VÍKI SÆTI
Þá birtir Hannes bókun í
fundarbók ' Húsnæðismála-
stjórnar, þar sem Eggert Þor-
stetosson segir m.a.:
„Hins vegar liggur sú stað-
reynd ljós fyrir, að formaður,
sem á að vera nm leið höfuð-
forsvarsmaður stofnunarinnar
hefur uppvakið þessar opin-
beru deilur, er óhjákvæmilega
hljóta að rýra stórum álit stofn
unarinnar í heild. Af þessum
ástæðum og öðrum. sem fyrr
eru eftir mér bókaðar í fund-
argerðum stofnunarinnar varð
andi störf formanns, þá skora
ég á formann, að hann víki
sæti og láti varamann sinn
taka sæti sitt“.
Á þessum sama fundi lét full
trúi Landsbankans í Húsnæðis
málastjórn, uppi þá skoðun, að
hann teldi framkomu for-
manns vítaverða og mjög ó-
heppilega, þó að hann léti ekki
bóka neina yfirlýsingu um þau
efni“.
Sigurður um Hannes:
„Misnotað afstöðu sina sem opinber
trúnaðarmaður á herfilegasta hátt
til njósna og skoðanakúgunar".
„NJÓSNASTJÓRI
FRAMSÓKNAR"
Ekki er Þjóðviljinn mildari
í garð Hannesar. Þar segir í
gær:
„Hannes Pálsson frá Undir-
felli, njósnastjóri Framsókn-
arflokksins í sambandi við út-
hlutun íbúðarlána, skrifar
grein í Tímann í fyrradag um
bréf það sem hér hefur verið
birt frá einum hinna fjöl-
mörgu agenta hans. f grein
þessari játar Hannes Pálsson
skilyrðislaust — — — á sig
skipulagðar njósnir um stjórn-
málaskoðanir þeirra manna,
sem sótt hafa um lán til íbúða-
bygginga:
Hannes segist hins vegar
ætla að kæra til lögreglunnar,
út af því að afbrot hans hafi
komizt upp! Hann heldur því
fram að bréfinu og njósnalist-
unum hafi verið „stolið úr
skjalatösku" sinni — og reyn-
ir að gera Það að aðalatriði!
Afbrotið er ekki aðalatriðið,
heldur hitt hvernig í ósköp-
unum standi á því að hægt
skuli að sanna afbrotið á hann!
Þessi viðbrögð eru mjög ljóst
dæmi um siðferði Hannesar
Pálssonar og skilning hans á
réttu og röngu.
Á AÐ HEIÐRA
SKÁLKINN?
Og hvað gerist næst? Á
Hannes Pálsson að fá að sitja
kyrr í starfi sínu eftir að það
hefur verið sannað upp á hann
og eftir að hanti hefur játað
skilyrðislaust að hann hafi mis
notað aðstöðu sína sem opin-
ber trúnaðarmaður á herfileg-
asta hátt til njósna og skoð-
anakúgunar? Óhætt mun að
fullyrða að slíkt myndi ekki
geta gerzt i nokkru náiægu
landi — nema þá helzt í Suð-
ur-Ameríku. Ef siík vinnu-
brögð sönnuðust t.d á em-
bættismann í Skandinavíu
myndi hann tafarlaust neydd-
ur til að segja af sér störfum
og síðar yrði höfðað mál á
hendur honum fyrir að hafa
brugðizt trúnaði almennings
og misnotað aðstöðu, sem hon-
um var fengin til að úthluta
almannafé.
Hannes á auðsjáanlega ekki
von á neinu slíku. Hann treyst-
ir á það að ráðamenn Fram-
sóknarflokksins, þeir sem
fólu honum að skipuleggja
njósnirnar og létu flokkskerf-
ið aðstoða hann í þeirri iðju,
muni halda yfir honum vernd-
arhendi“.
ÓÞOLANDI ÁSTAND
Erfitt er að sjá, hvors hlut-
ur er lakari. Hitt getur engum
dulizt, að óþolandi er að láta
þessa menn deginum lengur
fara með stjórn húsnæðismál-
anna.
Ærið er erfitt fyrir þúsund-
ir manna að standa nú uppi
hjálparlausir eftir að hafa
treyst gylliloforðum V-stjórn-
arinnar, þó að þeir þurfi ekki
að sækja mál sín undir gap-
uxa, sem kunna þau úrræði
ein að saka hvorn annan um
þjófnað og njósnir, svo að fátt
eitt sé talið. Óneitanlega er
eðlilegra að lögreglan hafi tal
af þeim piltum heldur en að
þeir séu áfram látnir sitja yfir
hlut. þúsunda manna, sem
neyðst hafa til þess að leita
til þeirra í góðri trú.