Morgunblaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 16
16 MOnCVlSM. AÐ1Ð Miðvikudagur 7. okt. 1959 Mognea Vilborg Magnúsdóttir Minningarorð Iðnaðar- eða verzlunarhúsnæði til leigu nú þegar. Ca. 100 ferm. að stærð. Jarðhæð Góð aðkeyrsla. Tilboð merkt greinilegu heimilisfangi og síma sendist í póstbox 341. * Sæígætisgerðarmaður Ungur maður 17—20 ára óskast til starfa í verk- smiðjuna nú þegar. Einnig viljum við ráða mann eitthvað vanan sælgætisgerð. Sælgætisgerðin Opal h.f. Skipholti 29 Framboðslistar í Norðurlandskjördæmi vestra eru skipaðir þessum frambjóðendum: A. Listi Alþýðuflokksins I. Jón í*orsteinsson, lögfræðingur, Bugðulæk 12, Rvík 2. Albert Sölvason, járnsmiður, Eiðsvallagötu 28 Akureyri 3. Björgvin Brynjólfsson, verkam, formaður V.L.F. Skagastrandar. 4. Jóhann G. MöIIer, verkamaður, ritari V.M.F. Þróttar. 5. Þorsteinn Hjálmarsson. oddviti, Hofsósi. 6. Ragnar Jónsson, verkam., form. verkalýðsfé- lagsins á Blönduósi. 7. Regína Guðlaugsdóttir, frú, Hvanneyrarbraut 29, Siglufirði. 8. Björn Kr. Guðmundsson, verkamaður, Hvammstanga. 9. Magnús Bjarnason, kennari, Knarrarstíg 4, Sauðárkróki. 10. Kristján Sigurðsson, verkstjóri, Eyragötu 6, Siglufirði. B. Listi Framsóknarflokksins 1. Skúli Guðmundsson, alþingismaður, Laugarbakka. 2. Ólafur Jóhannesson, prófessor, Aragötu 13, Rvik. 3. Björn Pálsson, bóndi, Ytri-Löngumýri. 4. Jón Kjartansson, forstjóri, Grenimel 7, Rvík. 5. Kristján Karlsson, skólastjóri, Hólum. 6. Guðmundur Jónasson, bóndi, Ási. 7. Magnús H. Gíslason, bóndi Frostastöðum. 8. Sigurður J. Líndal, bóndi Lækjamóti. 9. Jóhann Salberg Guðmundss., sýslumaður, Sauðárkróki. 10. Bjarni M. Þorsteinsson, varaformaður V.M.F. Þróttar, Siglufirði. D. Listi Sjálfstæðisflokksins 1. Síra Gunnar Gíslason, bóndi, Glaumbæ, Skagafirði. 2. Einar Ingimundarson, bæjarfógeti, Siglufirði. 3. Jón Pálmason, bóndi, Akri. 4. Guðjón Jósefsson, bóndi, Ásbjarnarstöðum, V.-Hún. 5. Hermann Þórarinsson, hreppstjóri, Blönduósi. 6. Kári Jónsson, verzlunarstjóri, Sauðárkróki. 7. Óskar Levý, bóndi, Ósum, V.-Hún. 8. Andrés Hafliðason, forstjóri, Siglufirði. 9. Jón ísberg, fulltrúi, Blönduósi. 10. Jón Sigurðsson, bóndi Reynistað, Skagafirði. G. Listi Alþýðubandalagsins 1. Gunnar Sigurður Jóhannsson. aiþingismaður, Hólavegi 10, Siglufirði. 6. Hólmfríður Jónasdóttir, frú, Ægisstíg 10, Sauðárkróki. 7. Óskar Garíbaldsson, 2. Jón Haukur Hafstað, bóndi, Vík, Skagafirði. 3. Lárus Þ. Valdimarsson, útgerðarmaður, Grund, Höfðakaupstað. 4. Þóroddur Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Lauga- vegi 7, Siglufirði. 5. Skúli Magnússon, verkstjóri, Víðigerði, Hvammstanga. skrifstofum., Hvanneyrarbr. 25, Siglufirði. 8. Bjarni Pálsson, póstmaður, Blönduósi. 9. Guðmundur Helgi Þórðarson, héraðslæknir, Hofsósi. 10. Tómas Sigurðsson, verkamaður, Hvanneyrarbr. 78, Siglufirði. HINN 7. sept. sl. andaðist Magnea Magnúsdóttir húsfreyja í Höfða- borg 47, hér í bænum. Hún var fædd í Sklidinganesi og voru foreldrar hennar Helga Jónsdótt- ir og Magnús Harðarson, en hún ólst upp hjá móður sinni og fóst- urföður, sem hét Eyjólfur Sím- onarson. Minntist Magnea jafnan bernskuheimilis síns í Skildinga- nesi með virðingu og kærleika. Um tvítugsaldur kynntist Magnea eftirlifandi manni sínum Þórði Jónssyni, vélstjóra frá Norð urbæ í Hlíðarhúsum hér í Vestur- bænum, mesta myndarmanm eins og hann á ætt til. Reyndist Magnea í einu og öllu hin mesta mannkostamanneskja og um- hyggjusöm móðir og húsfreyja öll þeirra samvistarár, sem urðu fjór ir áratugir. Börn þeirra eru öll búsett hér og myndarfólk í sjón og raun. Þau eru: Helga; Þórður; Magnea; Guðlaug; Ágústa; Hörður og Mjöll. Frú Magnea var gestrisin kona, örlát, gjafmild og svo góðgjörða- söm, að hún gat tekið sinn síðasta bita öðrum til handa og hugsaði aldrei um eigin þægindi og stund arhag. Aldrei komu mannkostir henn- ar betur í ljós en í allri þeirri al- úð og nærgætni, sem hún sýndi manni sínum, eftir að hann veikt- ist í erfiðum sjúkleika, sem hon- um tókst undrunarlega að sigr- azt á með hennar hjálp og ástúð. Hún breiddi báðar hendur móti hverjum boða erfiðleika og rauna, sem yfir þau féll og sýndi í öllu fórnfýsi og kærleilcslund. Magnea er nú dáin og fór út- för hennar fram í kyrrþey. Það var henni bezt að skapi. Þannig hafði hún lifað og starfað ást- vinum sínum til heilla í sínum verkahring. Síðasta kveðjan til hennar skal hér mótuð í þeim orðum, sem Mjöll yngsta dóttirin orðaði að mestu fyrir munn hinna syst- kinanna á þessa leið: „Hjartans elsku mamma, svo hlýtt við kveðjum þig, og horfum grátnum sjónum á dauðans fölva stig. En góður Guð það veitir að glöð við hittumst aftur. í orðum hans og heitum býr huggun, von og kraftur. Með hljóðri bæn við biðjum og beygjum þögul kné svo bljúg í trú og auðmýkt við lífsins gullna tré. Við felum framtíð alla og frama Drottins vilja Hann greiðir göngu okk'ar og gefur þrek að skilja. Ég heyri mömmu hvísla: „Ó, hjartans Mjöllin mín, með blíðu brosi af hæðum ég blessa sporin þín, þar bind ég brúðarkransinn og hugsa um hópinn minn og signi sælugeislum sólskmsdrengmn þinn. • Ég fell að fótskör Drottins og fel þar öll mín tár. Og bið að Guð þig gleðji og græði ykkar sár“. Við kveðjum frú Magneu með scknuði og þökk og öiðjum Guð að blessa allt, sem hún unm og gaf henni gleði og frið æðri heima. Á. Samkomur Kristniboðssambandið Æskulýðssamkoma í kvöld kl. 8,30 í Kristniboðshúsinu Betanía, Laufásvegi 13. Felix Ólafsson kristniboði talar. Frjálsir vitnis- burðir. — Fórn. Allir hjartanlega velkomnir. I. O. G. T. St. Einingin nr. 14 Fundur í kvöld kl. 8,30. Kosn- ing og innsetning embættis- ; manna. — Framkvæmaanefnd l sér um skemmtiatriðin. — Æ.t. F. h. yfirkjörstjórnar Norðurlandskjördæmis vestra, Guðbr. ísberg. Saumaskapur Óska að ráða konu vana saumaskap. Einnig konur sem gætu tekið að sér heimasaum. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld, merkt: „Saumaskapur — 8961“. Til sölu við Miðbæinn 4ra herbergja hæð í smíðum 105 ferm. Svalir — Sér hiti. RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR, hrl. Laufásvegi 2 — Sími 19960 Verkamenn óskast strax. Byggingafélagið Brú h.f. Sími 16298. Hörpu-japaniakk í vel hlýju herbergi er auðvelt að lakka með Hörpu-japanlakki. Horpu-japanlakk er mjög sterkt Hörpu-japanlakk gljáir vel. Hörpu-japanlakk í öllu litavali. <gp ™rrnni Bankastræti 7 Laugavegi 62 Rennibrautir LINDARGOTU 25 SIMI13745 Edwin Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.