Morgunblaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.10.1959, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 7. okt. 1959 MORCVTSÐLAÐÍÐ 11 „Listrænum leikarakostum leit ég snilling beita" SÍÐASTLIÐIÐ mánudags- kvöld þann 5. okt. var Silfur- lampahátíðin haldin í Tjarnar café. Hátíðin hófst með því, að veizlustjórinn, Ólafur Gunn- arsson, minntist látins félaga, Axels Helgasonar, forstjóra, er drukknaði í Heiðarvatni í Mýr dal hinn 17. júlí sl. Vottuðu allir viðstaddir minningu hans virðingu sína með því að rísa úr sætum. Þá kynnti veizlustjóri nýja styrktarfélaga Silfurlampaus, en þeir voru að þessu sinni Bárður Daníelsson, verkfræð- ingur, Haraldur Kröyer, for- setaritari, Jóhannes Elíasson, bankastjóri og Sigurjón Sig- urðsson, lögreglustjóri. í veikindaforföllum Karls ísfelds, formanns Félags ísi. leikdómenda, afhenti Ásgeir Hjartarson, ritari félagsins. Brynjólfi Jóhannessyni Silfur lampann fyrir túlkun hans á Joe Keller í leikriti Arthurs Millers, Allir synir mínir. 4.s- geir vitnaði í ýmsa leikdóma, sem einróma töldu leik Brynj- ólfs í Öllum sonum mínum, eitt mesta afrek hans og jafn vel það bezta síðan hann iék síra Sigvalda í Manni og konu. Ásgeir kvað það fátítt, að leiK- meðferð yrði skáldum yrkis- efni, en þess væru dæmi um Brynjólf, því Guðmundur Frið jónsson hefði ort snjalla vísu um leik hans í Manni og konu á leikárinu 1933—34. Vísan er þannig: Undirhyggju anda aldarfars, rifja kaldan loddara, Brynjólfur leiddi leikkvöld fyr’ opnum tjöldum. Listrænum leikarakostum leit ég snilling beita, Gríma, á leiksviði gaman gerði skáldi, Sigvalda. Brynjólfur _ Jóhaniiesson þakkaði verðlaunin, sem hann fékk tilkynningu um meðan hann dvaldi í Kaupmanna- höfn. Gat hann þess til gam- ans, að gistihússtjórinn á hótel Richmond, herra Kesby, hefði látiö í ljós mikla ánægju yfir því að hafa tvo fræga menn á gistihúsi sínu, sem sé Brynjólf Jóhannesson og Albert Schweitzer. Brynjólfur var að enda mikið ferðalag, þegar honum barst tilkynn- ingin um Silfurlampann, hafði verið í mörgum löndum og séð næri 40 leiksýningar. Taidi hann það mjög lærdómsríkt og gagnlegt leikurum og þá ekki síður leikstjórum.Ánægju legt taldi Brynjólfur það, að hann hefði gengið úr skugga um að margir erlendir atvinnu leikarar tækju ekki fram ýms- um leikurum hér, sem hafa haft leiklistina að aukastarf:. Við Silfurlampanum kvaðst Brynjólfur taka með þakklæti en jafnframt mikilli auðmýKt, því hann teldi, að aðrir leik- arar, sem léku í Öllum sonurn mínum, hefðu eins vel átt hann skilið eða jafnvel leik- stjórinn Gísli Halldórsson. Valur Gíslason, formaður Félags ísl. leikara, talaði síð- astur og ræddi nokkuð um starf leikara almennt og þyð- ingu leikdómenda fyrir leiK- listina. Hann rifjaði upp noKKr ar gamansögur, sem sýndu að leikarar áttu ekki upp á pall- borðið hjá yfirvöldum t. d, hefði yfirbiskup Parísar banrt- að að greftra sjálfan Moliére í vígðri mold. Hér á landi voru leikarar á árunum eftir 1930 aðalskopmyndaskotspæn- ir Spegilsins. Að loknu borðhaldi var stig- inn dans til kl. 1. Hátíðin var öll hin ánægjulegasta og voru allir sammála um, að Brynj- ólfur Jóhannesson væri vel að verðlaununum kominn og Val- ur Gíslason sagði, að hann hefði raunar átt þau skilið á hverju ári. ★ Blaðamaður Morgunblaðs- ins hafði sem snöggvast tal at Brynjólfi í gær og spurði hann, hvernig honum væri innanbrjósts í tilefni þessara verðlauna. BrynjólfuF sagði: Vissulega þykir leikurum a'.lt af gaman að fá viðurkeningu fyrir unnin afrek, en þessi verðlaun fyrir leik minn í „Allir synir mínir“, höfðu eiginlega þau áhrif á mig, að mér fannst ég jafnvel vera að taka þau frá einhverjum öðr- um, því allir meðleikendur mínir leystu hlutverk sín fram úrskarandi vel af hendi, en þó sérstaklega leikstjórinn, Gísli Halldórsson. Heildarleikurinn fékk mjög góða dcma og aðsókn, þó um sorgarleik væri að ræða, er. það eru beztu verðlaunin, sem leikurum getur hlotnast. Ég álít, að þessi Silfurlampa verðlaun séu nikils virði og gætu orðið lyftistöng fyrir hina ungu og vaxandi leikara okkar, og hvatning til að vinna jafnvel enn b etur að öllum þeim hlutverkum, sem þeim eru falin. Ég hef mikla trú á okkar ungu leikurum og mikla ánægju af að vinna með þeim, sagði Brynjólfur að lokum. Margir bœndur eiga mikið hey úti enn MYKJUNESI, 29. september. — Hér hefur verið stöðug rigningar- tíð síðan um höfuðdag. Og þótt ekki hafi rignt alla daga hetur aldrei komið þurrkur og oft hafa verið stórrigningar. Og víst er um það að telja má á fingrum sér sólskiusstundirnar á þessum mánuði. Það má því segja að eftir mjög erfitt heyskaparsumar hafi kömið ennþá verra haust það sem af er. Heyskaparlokin urðu að líka eftir því, því ennþá eiga margir hey úti og má jafnvei telja sumt af því ónýtt með öllu. Svo erfitt hefur verið að fást við heyskapinn að nær ógerningur hefur oft á tíðum verið að koma heyi í votheysgryfjur sökum bleytu. Almennt mun heymagnið vera meira en í meðallagi að vöxtum en talsvert af því er illa verkað, þótt ekki sé almennt um mjög hrakin hey að ræða. Fles’.ir hafa lokið við að taka upp úr görðum og mun kartöfluuppsker- an víða vera í meðallagi en bó sums staðar lákari. Eftir er svo að vita hvernig uppskeran geym- ist végna hinna miklu rigninga, því. að sjálfsögðu komu kartöfl- urnar blautar og forugar upp úr görðunum. Slátrun hófst 16. þ. mán. og er ráðgert að hún standi fram að veturnóttum. Yfirleitt reyndust lömbin létt og flokkast víða illa, sums staðar jafnvel lakar en í fyrra. Er sjálfsagt margt sem veldur, m. a. að víða mun vera orðið fullþröngt í högum og svo óhagstætt tíðarfar í sumar. Jörð- in er nú mjög sölnuð og mýrar og láglendi allt ljótandi í vatni. Til sölu tæplega 2ja tonna trilla. Bát- ur og vél í góðu lagi. Sími 24060 frá kl. 1—7. Kjósendahandbók Sjálfstæðismanna kemur út á fimmtudaginn. Bókin flytur allan tölulegan fróðleik i sambandi við kosning- arnar settan upp á mjög handhægan og greinilegan hátt. 1 bókinni eru auk þess myndir af frambjóðendum, æviágrip og margt fleira. Bókin er mjög ódýr og smekkleg og kostar aðeins tuttugu kr. Vegna gæða hefir Ötker lyftiduft í meira en 42 löndum- fengið hrós og verið eftirsótt af húsmæðrum Baksturinn heppnast vel ötker lyftiduft, bæði í kökur < smákökur. Hafið ávallt við hendina auka dó af Ötker lyftdufti, þá komist þ UM ÞETTA SNÝST ÞAD aldrei í vandræði með baksturinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.