Morgunblaðið - 27.10.1959, Síða 2
2
MORCUNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 27. okt. 1959
TaliB verður í þremur
kjördœmum í dag
Úrslit á Vestfjörðum ekki kunn fyrr
a morgun
ÍSAFIRÐI, 26. október: Allvíða
hér á Vestfjörðum mun kjörfundi
eigi hafa verið lokið fyr en í
kvöld. Úm kjörsókn utan ísa-
fjarðar hafa litlar sem engar
fregnir hafa borizt. Hér í bænum
náði hún 92 prósentum, af 1456
á kjörskrá kusu 1333.
Vonir standa til að kjörkassar
verði allir komnir hingað á þriðju
dagskvöld, og verða notaðir bát-
ar og bílar til þess að koma þeim
á leiðarenda. Er ekki enn full-
ráðið hvort byrjað verður að telja
árdegis á miðvikudag eða síð-
degis.
Illfært er orðið yfir Breiðadals-
heiði, sem snjóýtur hafa þegar
rutt að nokkru.
SAUÐÁRKRÓKUR, 26. okt. —
Hér í Norðurlandskjördæmi
vestra lauk kosningu víðast hvar
á sunnudagskvöldið, t.d. lauk
kjörfundi í Skagafirði þá. Aftur
á móti var kosið í dag í tveim
kjördeildum í sitt hvorri Húna-
vatnssýslunni og hafði kjörfundi
eigi lokið þar fyrr en á sjöimda
tímanum. Kjördeildir þessar
voru Sveinsstaðakjördeild og
Kálfshamarskjördeild í austur
sýslunni en Ásbyrgiskjördeild og
Syðrivallakjördeild í vestur sýsl-
unni.
Hér í Skagafirði var kjörsókn
ágæt, t.d. hér í bænum 93,6%.
Af 648 á kjörskrá kusu alls 602.
í einum fjölmennasta hreppi
sýslunnar Lýtingsstaðahreppi
varð kjörsóknin 96,3% og í Seilu-
hreppi 91% og Hofshreppi 85%.
Að því er fregnir úr Húnavatns-
iýslum herma hefur kjörsókn
verið þar ágæt, um og yfir 90%
• ýmsum kjördeildum.
Talning atkvæða í Norðurlands
kjördæmi vestra fer hér fram og
hefst klukkan 2 síðd. á morgun,
þriðjudag.
SEÐISFIRÐI, 26. okt. — Kjör-
fundi lauk hér í bænum þegar á
sunnudagskvöld, en eigi mun
\ Indverjai mót
mæla yfirgangi
Kínverja
NÝJU DELHl, 26. október.
1 (NTB). — Mikil ólga er í
) Indlandi vegna framferðis
Kínverja við norðurlanda-
maerin. Ber nú mjög á and-
úð á Kínverjum hvarvetna
í landinu og var í dag efnt
til mótmælafunda og hóp-
gangna til að mótmæla hern
( aðarofbeldi
kínverskra
kommúnista. Á mótmæla-
fundunum fluttu ræður full
trúar flestra stétta og
flokka nema kommúnista
og var mjög haldið á lofti
kröfunni um það, að Ind-
verjar stæðu fast fyrir og
þyldu engan yfirgang
kommúnista.
Til dæmis er þess getið að
tugþúsundir manna hafi
tekið þátt í kröfugöngum í
Bombay og kröfðust menn
s þess, að indverska stjórnin
i léti hvergi undan kínversk-
( um kommúnistum.
( í Trivandrum, höfuðborg
Kerala-ríkis, mótmælti
manngrúi hinni „kínversku
innrás" og er þess m. a. get-
ið að meðal fólksins í kröfu-
göngum hafi verið hópar
manna sem áður fylgdu
kommúnistum að málum,
en hafa nú sagt skilið við
þá stefnu.
kjörfundum hafa verið að fullu
og öllu lokið í kjördæminu fyrr
en í dag. Hér verða talin öll at-
kvæðin í kjördæminu og hefst
talning þeirra klukkan 2 í dag.
Hér kusu rétt innan við 400
manns, en á kjörskrá voru 438.
AKUREYRI, 26. okt. — Kosn-
ingu lauk í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, í öllum kjördeild-
um á sunnudagskvöldið, nema
að Skógum í Fnjóskadal. Þar
lauk kosningu klukkan 4 í dag.
Yfirleitt var kjörsókn góð og
dæmi eru þess að hún hafi farið
upp í 95%, í Kelduneshreppi.
Undantekning er þó að í Gríms-
ey kusu allir sem heima voru,
fyrir hádegi á kjördag og var
kjörfundi lokið laust eftir há-
degið.
Yfirkjörstjórnin fyrir kjör-
dæmið, sem hefur bækistöð hér
á Akureyri, telur að öll kjör-
gögn úr öllu kjördæminu verði
komin hingað klukkan 9 í kvöld.
Ekki hefur neitt verið tilkynnt
um breyttan tíma á talningu at-
kvæðanna, en hún á að hefjast
klukkan 2 á þriðjudaginn.
Aðfaranótt sunnudagsins lok-
aðist Öxafjarðarheiði vegna
snjóa Gat því bíll sem sendur
var héðan frá Akureyri til að
safna saman atkvæðakössum allt
frá Hólsfjöllum til Þórshafnar
ekki komizt lengra en í Axar-
fjörðinn. Kemur hann með kjör-
gögn af öllu svæðinu nema um-
hverfi Þistilfjarðar, en þangað
mun varðskip sækja kjörgögnin,
auk þess úr Flatey, Grímsey og
frá Ólafsfirði og eru þessi gögn
væntanleg um klukkan 9 í kvöld.
Hér á Akureyri var kjörsókn
góð og heldur betri en var í vor-
kosningunum. Hér kusu á kjör-
stað 3859, utan kjörstaðar 381 og
varð því kosningaþátttakan alls
4240, en á kjörskrá voru 4892.
Hefur því um 88% kosninga-
bærra bæjarmanna kosið. — Á
kosningadaginn var veður yfir-
leitt gott og engir erfiðleikar fyr-
ir fólk að komast á kjörstað. í
dag er leiðindaveður, norðaustan
átt með rigningu og slydduhríð
og vafasamt hve lengi fjallvegir
haldist opnir. — vig.
ÓLAFSFIRÐI, 26. okt. — Hér á
Ólafsfirði var góð kjörsókn á
kosningadaginn. Á kjörskrá voru
493, en 438 kusu, hér er innifalin
tala utankjörstaðaatkvæða. Þá
höfðu nokkur utankjörstaðaat-
kvæði verið send beint til yfir-
kjörstjómarinnar á Akureyri.
Svo um heildarþátttökuna í kosn
ingunum er ekki vitað. Um kl.
3,30 í dag kom hingað varðskip
og voru kjörkassar fluttir um
borð í skipið, en það hélt síðan
áleiðis til Akureyrar.
HÚSAVÍK, 26. okt. — Kosninga-
þátttakan hér í bænum náði
88%. Voru 778 á kjörskrá, en alls
kusu 683, þar af 38 utan kjör-
staðar.
Atkvœðafalningin
Framh. af bls. 1.
Emil Jónsson, fyrir Framsóknar-
flokkinn Jón Skaftason og fyrir
Alþýðublandalagið Finnbogi Rút
ur Valdimarsson.
VesturlandskjÖrdœmi
Úrslit í Vesturlandskjördæmi
urðu þau að A-listinn hlaut 926
atkvæði og 1 mann kjörinn (700),
Framsóknarflokkurinn hlaut 2236
atkvæði og 2 menn kjörna (2283),
Þvottavélum
stolið
f FYRRINÓTT var framið lnn-
brot í íbúðarhús eitt hér £ Austur
bænum. Þjófurinn lagði leið sína
inn í þvottahúsið og hafði þaðan
á brott með sér Hoover þvotta-
vél.
Samskonar þvottavélaþjófnað-
ur var framinn í öðru húsi í Aust
urbænum fyrir svo sem hálfum
mánuði, • en rannsóknarlögregl-
unni hefur nú fyrst fyrir
skemmstu borizt um það kæra.
Nýr hótelstjóri
á Akranesi
AKRANESI, 23. sept. — Hótel
Akranes verður opnað fyrir al-
menning að nýju í dag, laugar-
daginn. Hafa nú um skeið farið
fram gagngerðar breytingar og
endurbætur á húsinu. Það hefur
verið málað og prýtt hátt og
lágt. Teppi lögð á veitingasali og
forstofu, ný lýsing sett í húsið og
margt fleira verið endurbætt.
Hótelstjórinn er ungur reglusam
ur efnismaður, Bragi Ingason.
Hefur hann beðið mig fyrir
ávarp þar sem segir m.a.:. Góðir
hótelgestir! Það er sómi og stolt
bæjarfélagsins að gott og vist-
leg hótel sé á staðnum, og hvet-
ur hinn nýi hótelstjóri gesti til'
■ I þess að sýna góða umgengni í
—- hvívetna.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 2123
atkvæði og 2 menn kjörna (2335),
og Alþýðubandalagið hlaut 686
atkvæði og engan mann kjörinn
(542). Auðir seðlar voru 81. Ó-
gildir 15.
Þingmenn Vesturlandskjördæm
is eru þessir: Fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn Sigurður Ágústsson og
Jón Árnason, fyrir Framsóknar-
flokkinn Ásgeir Bjarnason og
Halldór E. Sigurðsson, og fyrir
Alþýðuflokkinn Benedikt Grön-
dal.
gfgi
itf *** A'f * ,í, __
Er þetta atkvæði ógilt? Ingimar Jónasson, fulltrúi Þjóðvarnar-
flokksins, Sigurður Líndal, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Sigur-
jón Sigurðsson, lögreglustjóri, og Kristján Kristjánsson, borg-
arfógeti, formaður yfirkjörstjórnar, skoða vafaatkvæði.
Talning í Reykjavík
TALNING atkvæða í Reykjavík
hófst kl. rúmlega 5 e.h. í gær, og
lauk kl. 11. Gekk talning óvenju
fljótt og var það helzt þakkað
því að nú byrjuðu allir starfs-
menn óþreyttir. Kjörkassarnir 2,
sem geymdu frá því kvöldið áð-
ur atkvæði úr öllum 47 kjördeild
unum, voru þangað til í Austur-
bæjarskólanum, þar eð öruggara
þótti að hafa þá í steinbyggingu
og þar stóðu vörð yfir þeim þrír
lögreglumenn og brunavörður.
I leikfimissal Miðbæjarskólans
hafði borðum verið raðað í hring
og var kjörkössunum komið fyrir
í miðjum hringnum. Lögreglu-
þjónar tóku atkvæðaseðla upp úr
kössunum og réttu þá yfir á
borðið vinstra megin í salnum,
þar sem um 20 aðstoðarmenn
kjörstjórnar kepptust við að
aðgreina þá. Síðan voru seðla-
bunkarnir látnir ganga yfir á
borðið fyrir enda salarins. Þar
sátu umboðsmenn flokkanna,
sem yfirfóru kjörseðlabunkana,
— en auðvitað ekki seðla síns
eigin flokks, heldur hver fyrir
annars flokk. Þá gengu atkvæða
seðlarnir yfir á borðið hægra
megin í salnum, til yfirkjörstjórn
ar, sem leit yfir þá og þá loks
lét Kristján Kristjánsson borgar-
fógeti, formaður yfirkjörstjórnar
þá ganga til teljaranna, en þeirra
borð gekk út frá hans sæti inn í
miðjan hringinn. Teljararnir,
þrír karlmenn og ein kona, öll
starfsmenn í Gutenberg, töldu
Nóbelsverðlaun i
eðlis og efnafræði
STOKKHÓLMl, 26. okt.
— (Reuter) —
í DAG voru tilkynnt Nóbels-
verðlaunaveitingar í eðlis- og
efnafræði.
í eðlisfræði hlutu verðlaun-
in tveir bandarískir vísinda-
menn, Emilio Segre af ítölsk-
um ættum og Owen Cham-
berlain, báðir starfandi við
Kaliforníu-háskóla.
Verðlaunin í efnafræði
hlaut tékkneski vísindamað-
urinn Jaroslav Heyrovsky,
prófessor í háskólanum í
Prag.
„Andeíni“
Bandarísku eðlisfræðingarnir
tveir unnu sér það til frægðar að
finna hið svonefnda „andefni"
(anti-proton), sem er gagnstæð
spegilmynd af efnisögninni pro-
ton. Fundu þeir þetta efni í hin-
um risavaxna kjarnkljúf í Berke
ley. Fundur þeirra staðfestir þá
kenningu að til séu tveir tilveru-
heimar. Sá heimur, sem við lií-
um í er heimur efnisins. En móti
öllu efni kemur jafnmikið and-
efni og getur því annar heimur
andefnis verið til alls staðar inn-
an um heim efnisins án þess við
getum orðið þess varir. Er jafn-
vel ekkert því til fyrirstöðu, að
í heimi andefnisins séu heil sól-
kerfi með hnöttum og lifandi ver
um. Þegar efni og andefni koma
saman eyða þau hvoru öðru og
uppræta.
Er það álit vísindamanna, að
við þann samruna myndist marg
fallt meiri orka en við vetnis-
sprengingar.
Efnagreinfng
Tékkneski prófessorinn Heyr-
ovsky hlýtur verðlaun fyrir mjög
þýðingarmikla efnagreiningarað-
ferð, sem er nefnd á vísindamáli
„Polarography". Hún þýðir það,
það hægt er á örskammri stund
að efnagreina ýmsar flóknar
efnablöndur, og er hún fólgin í
því, að öll efni bregðast mismun-
andi við því, þegar rafstraumi
er hleypt gegnum þau. Þetta not-
færði Heyrovsky sér og smíðaði
sérstaka vél sem sjálfritar efnis-
róf blöndunnar.
hratt og örugglega, enda þaulvön
slíku starfi. Staflarnir fimm, sem
raðað var í stafrófsröð, hækkuðu
á borðsendanum hjá þeim mið-
bunkinn greinilega hraðast, enda
D í miðjunni. Loks gefur borg-
arfógeti bendingu, kjörseðla-
bunkarnir eru látnir ganga yfir
til hans aftur, yfirkjörstjórnin
hópast í kring, tölur eru stað-
festar og lesnar upp. Fyrstu at-
kvæðatölur: Alþýðuflokkur 900,
Framsóknarflokkur 300. Sjálf-
stæðisflokkur 2600, Þjóðvarnar-
flokkur 200 og Alþýðubandalag
600.
Allir líta upp og þögn ríkir í
salnum meðan lesið er, síðan
grúfa starfsmenn sig aftur yfir
atkvæðaseðlana. — Ahorfendur,
sem aðeins eru 6—7 framan við
kaðalinn við dyrnar, stinga sam-
an nefjum. Þetta virðist ekki
mikill áhugi í 70 þús. manna
bæ, en flestir bíða heima við út-
vörp sín, því fréttamaður útvarps
ins situr úti í horni og hefur
beint samband við fréttastofuna,
sem útvarpar tölum jafnóðiun.
Alltaf jafnspennandi
Nú gerist eitthvað óvenjulegt.
Sigurður M. Þorsteinsson, lög-
regluvarðstjóri, leyfir frétta-
manni blaðsins að koma inn á
bannsvæðið, til að sjá hvað er
um að vera. Yfirkjörstjóm sting-
ur saman nefjum yfir nokkrum
atkvæðaseðlum. Á einn hefur
verið strikað stórt X yfir einn
listann og yfir í næsta dálk og á
annan hefur verið skrifað x og
síðan q og það meira að segja á
rangan stað. Kjörstjómarmenn
horfa spekingslega á þessi fyrir-
brigði og lýsa skoðun sinni á því
hvað eigi að gera við svona seðla.
Borgarfógeti hlustar á, málið er
til lykta leitt. í yfirkjörstjórn
eru Kristján Kristjánsson, borg-
arfógeti, Einar Arnalds, borgar-
dómari, Jónas Jósteinsson, kenn-
ari, Sveinbjörn Dagfinnsson, full
trúi og Þorvaldur Þórarinsson,
héraðsdómlögmaður.
— Alltaf er þetta jafnspenn-
andi, hve oft sem maður er við
þetta, segir Sigurjón Sigurðssorl,
lögreglustjóri, en hann er þarna
mættur og fylgist með, ásamt
fulltrúa sínum, Ólafi Jónssyni og
nokkrum lögregluþjónum.
Enn eitt bifreiðar-
slysið
HAFNARFIRÐI — A fjórða tím-
anum á laugardaginn varð alvar-
legt bifreiðarslys hér á Strand-
götunni. Fjögurra ára drengur
til heimilis að Vesturgötu 27 B
varð fyrir fólksbíl og slasaðist
mikið, fótbrotnaði og meiddist
á höfði. Var hann fluttur í Landa
kotsspítalann, þar sem gert var
að meiðslum hans.
Mun litli drengurinn hafa
hlaupið út á götuna í sama mund
og bílinn bar að, og lenti hann
framan til á honum. — G. E.