Morgunblaðið - 27.10.1959, Blaðsíða 22
22
MORCTINRL4Ð1Ð
Tn-iðiVdaenr 27. okt. 1959
Næstum allir drengir í Mos-
tellssveit komu á fundinn
Starfið fyrir unglingana etlir félögin
SL. miðvikudagskvöld brá ungl-
inganefnd KSÍ sér upp að Hlé-
garði í Mosfellssveit og hafði þar
fund með nær 80 ungum og efni-
legum knattspyrnumönnum. Þar
var eins og á fyrri fundum nefnd
arinnar rætt við drengina um þýð
ingu hæfnisþrauta KSÍ, sem ein-
um lið í knattspyrnuþjálfuninni.
Þá voru sýndar kvikmyndir af
spennandi knattspyrnukappleikj-
um og fleiru.
Ungmennafélagið Afturelding
sá um boðun til fundarins og má
segja, að að því hafi verið geng-
ið með oddi og egg, því til fund
arins mættu nær allir unglingar
í Mosfellsveit. Þetta er táknrænt
fyrir þann dugnað og þá bjart-
sýni sem einkennir starf forystu-
manna knattspyrnunnar innan
Aftureldingar, en þar hefur Jón
Guðmundsson á Reykjum verið
aðal driffjöðrin um árabil.
Þrátt fyrir þá erfiðleika, sem
því eru samfara að halda uppi
æfingum og keppni innan félaga
í dreifbýlinu. Þá hefur Aftureld-
ingu tekist að senda marga flokka
og einstaklinga til kappmóta í
ýmsum íþróttagreinum, en á
seinni árum hefur þó mest kveð-
ið að þeim í handknattleiknum.
Með tilkomu hins nýja knatt-
spyrnuvallar, sem Afturelding
hefur komið upp í námunda við
Félagsgarð hið vistlega félags-
heimili, hefur færzt nýtt líf í
knattspyrnuíþróttina og tók Aft-
urelding þátt í landsmóti IX. deild
ar í fyrsta sinn á sl. sumri.
Jóni Guðmundssyni og öðrum
forráðamönnum knattspyrnumál-
anna í Mosfellssveit er það vel
ljóst að undirstaðan að öflugu
knattspyrnustarfi er blómlegt fé-
lagslíf og mikil starfsemi í yngri
flokkunum. Þeir eru framtíðin og
að þeim verður vel að búa. Áhugi
er mikill meðal hinna yngri, sem
æfa sig mikið sjálfir og hafa
keppni milli liða úr hinum ýmsu
hverfum þar efra. En hér endur-
tekur sagan sig að því leyti að
leiðbeinendur er nær ómögulegt
að fá. Menn hafa annaðhvort
ekki tíma eða getu til að sinna
æfingum unglinganna. Þessu er
því miður víða svona farið cg
forustumenn þessara mála standa
uppi alveg ráðþrota.
Leiðbeinendastarf í íþróttum
meðal hinna yngstu er verulega
skemmtilegt, ef menn hafa á ann
að borð gaman af að umgangast
unglinga. Áhugann hjá hinum
yngri vantar ekki, ef þeir finna
að vel er fyrir þá gert. Árangur-
inn lætur sjaldnast á sér standa,
ef vel er unnið og hefir ánægju
og uppörvun í för með sér fyrir
leiðbeinandann.
Það er vonandi að forustumönn
um knattspyrnunnar í Aftureld-
igu og öðrum þeim félögum, sem
eins er ástatt fyrir í þessu efni,
takist að finna einhverja góða
menn, sem vilja fórna svohtlum
tíma og fyrirhöfn fyrir hina
yngstu, svo að þeir geti fengið
að njóta hinnar skemmtilegu
knattspyrnuíþróttar í sem ríkust-
um mæli. — Knattspyrnusam-
band íslands kveðst jafnan reiðu-
búið til þess að veita leiðbeinend
um alla aðstoð, sem á færi þess er.
Landsliðið vann
8 gegn 2
LUNDÚNUM, 16. okt. _ Enska
landsliðið sem leika á landsleik
gegn Svíum í Lundúnum á mið-
vikudaginn lék í dag æfingaleik
við Arsenal og fór leikurinn fram
á velli Arsenal, Higbury. Lands-
liðið sigraði með 8 mörkum gegn
2. Bobby Charlton og Eddie
Holliday skoruðu mörk landsliðs
ins en Alec Herd bæði mörk
Arsenal.
Sænska landsliðið kom til
Lundúna í dag. Vegna sjónvarps-
sendinga frá leiknum hefur liðið
skipt um landsliðsbúning. í stað
bláhvíta landsliðsbúningsins
leikur liðið í bláum skyrtum og
hvítum buxum.
^rlingur Gíslason og Einar Guðmundsson í hlutverkum sínum.
,Tilraunaleikhúsið' tekur
til staría á miðvikudag
Frumsýnir ,,Steingestinn" eftir Pusjkin
N. K. MLÐVIKUDAG verður
frumsýnt í Sjálfstæðishúsinu leik
ritið „Steingesturinn“ eftir
rússneska skáldið Pusjkin. Leik-
rit þetta er sýnt á vegum Til-
raunaleikhússins og er það fyrsta
verkefnið, sem það hefur tekið til
meðferðar.
Eg hlakka til
Einkaskeyti til Mbl.
Frá fréttaritara Mbl.
ÞAÐ eru fáir hér | Belgrad,
sem búazt við því að einhver
annar en hinn kornungi Rússi
Mihail Tal fari með sigur af
hólmi í kandidatamótinu í
skák — og setjist við skák-
borðið andspænis heimsmeist-
aranum Botvinnik til að tefla
um heimsmeistaratitilinn.
Það eru að víeu tvær umferð
Ir eftir af mótinu — og því dá-
lítið taugastríð óyfirstaðið hjá
hinum kornunga skákmanni.
Einn landa hans á mótinu Paul
Keres, er einn keppinauta
hans í „kallfæri við” Tal — en
nokkuð löngu þó. Heill vinn-
ingur skilur að. Tal á eftir að
tefla við Benkö og Fischer.
Keres á eftir skákir við Gligor
ic og Friðrik Ólafsson. En með
vinning í forskot efast fáir um
„vinningsstöðu” Tals í mót-
inu.
Eftir nokkra daga eða 9.
nóvember heldur Tal upp á
afmæli sitt. Þá eru 23 ár liðin
frá því hann fæddist í Riga í
Lettlandi. 1 föðurlandi sínu
vann hann sína fyrstu skák-
sigra, en taflmennsku hóf hann
11 ára gamall.
Síðar fluttist Tal til Sovét-
ríkjanna og varð skákmeistari
þeirra 1957 og 1958. Milli þess
sem hann teflir hefur hann
lagt stund á blaðamennsku.
Tal er ísl. skákunnendum
að góðu kunnur. Hann er mörg
um þeirra í fersku minni frá
stúdentaskákmótinu hér 1957
— en ýmsir taktar hans við
skákborðið urðu þá monnum
minnisstæðir.
Glaðlyndi Tals er frægt á
öllum skákmótum, en á slíkum
mótum vinnur hann hugi
flestra manna. Við skákborðið
sjálft er hann einbeitlur mjög
og mönnum finnst öðru hvoru
bera á taugaæsing hjá honum.
Oft þegar hann hefur leikið,
þeytist hann um skáksviðið,
meðan hann bíður eftir leik
andstæðingsins.
— Mér finnst þetta kandi-
datamót hafa verið erfitt og
óþarflega Iangt, sagði Tal á
segir hinn 23 ára skák-
meistari, Tal, sem er lík-
legastur til sigurs ■
áskorendamotinu
sunnudaginn við fréttamann
Morgunblaðsins.
— Hvað um andstæðingana?
— Erfiðastir viðureignar
fyrir mig hafa þeir verið Ker-
es, Petrosjan og Fischer.
— Hvað vilt þú segja um
Friðrik?
— Hann hefur vaxið við
hverja raun og teflir bezt nú
hér í síðustu lotunni í Belg-
rad.
— Hefurðu í huga að breyta
skákstíl fyrir einvígið við Bot-
vinnik heimsmeistara?
— Nei, það ætla ég ekki
að gera, þrátt fyrir hrakspár
frægra meistara — t. d. Smys-
Mihail Tal
lovs og Keresar — ef ég eklti
geri svo.
— Er einvígið þér tilhlökk-
unarefni eða kvíðaefni?
★
— Ég hlakka beinlínis til
þess einvígis. Botvinnik hefur
staðið af sér ásókn allra skák-
meistara frá 1948 ef undan er
skilið eitt ár. Það verður gam-
an að mæta slíkum meistara.
— Hvað er framundan?
— Ég keppi á stórmóti í fæð
ingarborg minni Riga í janúar
mánuði, en einvígið við Bot-
vinnik hefst í marzmánuði.
Það er því enginn hvíldartími
framundan.
★
Og þegar hér var komið
ætlaði fréttamaður Mbl. að
slíta samtalinu, en þá bætti
Tal því við, að hann hefði
mikinn hug á að koma til ts-
lands.
að mæta Botvinnik
ic Aðalpersónan kvennabósi
„Steingesturirtn" er ljóðaleikur
og stendur sýningin aðeins yfir
í um það bil 45 mínútur. Leikrit-
ið er því tilvalið skemmtiatriði á
samkomum ýmissa félagasam-
taka, sem'hafa hug á að meðlim-
ir þeirra kynnist verkum sígildra
leikritaskálda, en „Steingestur-
inn“ er gamalt leikhúsefni, sem
hefur verið sýnt víða um heim.
Aðalpersónan er hinn alkunni
kvennabósi Don Juan og fer Er-
lingur Gíslason með hlutverk
I hans, en hann annast jafnframt
leikstjórn fyrst með aðstoð
Þorgeirs Þorgeirssonar og nú
Jónasar Jónassonar. Onnur stór
hlutverk hafa: Reynir Oddsson,
Einar Guðmundsson, Guðrún
Högnadóttir og Katrín Guðjóns-
dóttir, en alls koma fram 10 leik-
endur. Kristján Árnason hefur
þýtt verkið en tónlistina ; leik-
ritinu hefur Katrín Guðjónsdótt-
ir samið. Leiktjöld eru næsta
engin en búningar aftur á móti
mjög skrautlegir. Ljósameistari
er Hafsteinn Austmann.
w Æfingar hófust í vor.
Erlingur Gíslason skýrði frá
því í viðtali við fréttamenn í
gær, að mikill áhugi ríkti meðal
leikara að setja upp ýmiskonar
leikrit á vegum Tilraunaleikhús-
ins, en tilraun með tilraunaleik-
hús hefur ekki áður verið gerð
hér á landi. Tilgangur með starf-
seminni væri sá, að gefa ungum
leikurum kost á að stunda leik-
störf, en þeir ættu oft í erfiðleik-
um með að fá hlutverk fyrst í
stað.
Tilraunaleikhúsið hóf æfingar
á ofangreindu leikriti rétt eftir
s.l. áramót og stóðu æfingar
fram á vor. Úr sýningu varð
samt ekki, þar sem veikindi og
ýmsir aðrir erfiðleikar trufluðu
starfsemina en nú í haust toku
þeir aftur upp þráðinn þar sem
frá var horfið, með örlítið breytt
um starfskröftum.
Erlingur sagði að lokum, að
þeir hefðu helzt hug á að svið-
setja bókmenntaleg leikrit,
gömul og ný, sem ekki hefðu ver
ið sýnd hér áður, ennfremur ís-
lenzk leikrit með öðru sniði en
veiið hefur. Einnig hefði komið
til tals að ferðast um landið. En
við marga erfiðleika væri að etja
leikfélagið væri enn á byrjun-
arstigi og hefði m. a. ekkert visst
húsnæði til æfinga og sýninga.
Þakkaði hann forráðamönnum
þeirra veitingahúsa. sem leikhús
aðstæður hefðu, fyrir að lána
þeim sali sína til æfinga, og góð-
an skilning á þessari tilraun Til-
raunaleikhússins.
j