Morgunblaðið - 10.12.1959, Page 3

Morgunblaðið - 10.12.1959, Page 3
Fimmtudagur 10. des. 1959 MORGTJWBT, 4ÐIÐ 3 00 0 000000000 í S Islenzk stúlka í 100 I>ÚS. manna bænam Pasadena, sem er áfastur Los Angeles, er nýja árinu fagnað með geysi íburðarmikilli skrúðgöngu. Hver bær í Kali- forníu á þar sinn vagn eða íleka á hjólum og keppast þeir um að hafa sinn fleka sem allra skrautlegastan og glæsi- legastan og spara þá ekkert til. Nú á nýjársdag ætlar Langaströnd að hafa á sínum vagni 6 fegurðardísir frá jafn- mörgum löndum, og þar verð- ur Sigríður Þorvaldsdóttir ein. Óvissa um þátttöku Fœr- eyinga í Fríverzlunar- svœðinu Hún á að standa þar í íslenzk- sigríður Þorvaldsdóttir kemur um skautbúningi og með vík- fram j jsl. skautbúningi. ingaskip að baki. Hinar stulk- urnar hafa einnig tákn frá sínum löndum, sú hollenzka vindmyllu sú gríska forna súlu og sú franska Effelturninn, en hún verður fengin vestur fyrir ársdag, og alltaf hafa stúlkur í sundbolum getað staðið uppi á blómum skreyttum vögnum. Upphaf þessa siðar er að ríkis DANSKA blaðið Dagens Nyhed- er skýrði frá því á sunnudaginn, að Peter Mohr Dam, lögmaður í Færeyjum, dveljist nú í Kaup- mannahöfn og ræði við helztu ráðamenn. — Tilgangur hans sé helzt sá að athuga möguleika á útvegun fjár til frekari stækkun- ar fiskiflota Færeyja, og í öðru lagi að ræða afstöðu Færeyinga gagnvart fríverzlunarbandalagi ríkjanna sjö, sem Danmörk er aðili að. á árinu. Hátt á aðra milljón manna hefur á síðari árum komið til að horfa á skrúð- gönguna, sem er sjónvarpað um Bandaríkin og sýnd í fréttamyndum um allan heim. Á eftir fer svo fram einn stærsti knattspyrnuleikur Bandaríkjanna á íþróttavellin um Rose Bowl og keppa þar beztu lið sem vÖl er á. í Rósaskrúðgöngu á nýársdag þetta tækifæri alla leið frá París. Einnig er ungfrú Kóreu boðið að koma frá sínu heima- landi. 100 flekar, á 2 millj. áhorfendur Vestur-íslendingurinn Skúli Bjarnason, sem búið hefur í Kaliforníu 1 31 ár, veitti í blaðinu upplýsingar um þessa frægu skrúðgöngu Kaliforníu. búa, sem ber heitið Rósaskrúð gangan. Skrúðgangan hefur farið fram í 73 ár, og mun nú orðið aðallega vera hugsuð sem auglýsing fyrir Kaliforníu og þá ekki síst veðurblíðuna þar. í öll þessi ár hefur aðeins þrisvar komið rigning á nýj- 00 0 I menn í Pasadena tóku upp á því árið 1886 að sýna hina fallegu hesta sína og vagna á nýjársdag með því að aka í fylkingu um göturnar. Nú orðið eru um 100 skrautflekar í skrúðgöngunni, sem er um 3 klst. að fara hjá, 20—40 hljómsveitir fara fyrir flek- unum og 100—200 hestar auð- manna ganga á milli þeirra. Fremst í skrúðgöngunni eru venjulega frægir leikarar eða hershöfðingjar, enda er Holly- wood ein af útborgum Los Angeles, og heiður þykir að því að vera beðinn um að vera í Rósaskrúðgöngunni, sem er einn mesti viðburður Færeyingar hafa hingað til ósk að eftir að standa utan við frí- verzlunarsvæðið, því að þeir selja mikinn hluta af saltfiski sínum til Ítalíu, Spánar og Grikklands, en Ítalía er aðili að sexvelda- markaðsbandalaginu, og Grikk- lnd gerist væntanlega þátttak- andi í því. — Færeyingar óttast því, að settar verði hömlur á út- flutning þeirra til þessara landa, ef þeir gerast aðilar að fríverzl- unarsvæðinu. — Áður en endan- leg ákvörðun verður tekin í þessu máli, mun það verða rætt í fær- eyska Lögþinginu. Í00000 000T 0*0-0 0 í leikskóla í Hollywood Sigríður Þorvaldsdóttir var eins og menn muna íslenzki þátttakandinn í fegurðarsam- keppninni á Löngufjöru á þessu ári. Eftir það fór hún í auglýsingaferð fyrir sölumið- stöð Hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum og hefur síð- an dvalið hjá ættingjum í Kaliforníu. Hún er í leikskóla í Hollywood, en hafði áður én hún fór lokið prófi úr Þjóðleikhússkólanum hér. Það hjálpaði henni m. a. til að komast í einkaskóla til mjög þekkts leikkennara, auk þess STAKSTIINAR Lauslegur uppdráttur af Löngufjöru-flekanum, með 2,5 m. hárri styttu af Venus frá Milo í miðjunni og út frá henni standa 6 erlendar stúlkur með tákn síns lands að baki. 100 þús. orkideur 6 þús. rósir skreyta flekann. Rauði kross íslands 35 dra í dag „Afmælisgiafir'7 renna til bágstaddra í Frejus I D A G eru 35 ár liðin, síðan Rauði kross íslands var stofnaður hér á landi. — Dr. Gunnlaugur Þórðarson, ritari Rauða krossins, skýrði blaðamönnum frá því í gær, að mjög algengt væri að honum bærust gjafir frá ýmsum velunnurum starfseminnar á þess um degi og hefði þegar fyrsta gjöfin borizt, sem væri frá Elli- heimilinu, að upphæð kr. 500.00. Að þessu sinni hefði stjórn Rauða krossins ákveðið, að allt það fé, er safnaðist saman í tilefni 35 ára afmælisins skyldi renna til hjálp- ar hinu bágstadda fólki í bænum Frejus í Suður-Frakklandi, en eins og kunnugt er af fréttum, ríkir þar nú neyðarástand eftir hið mikla flóð, sem skall á að- faranótt föstudagsins 4. desem- ber. Stjórn Rauða krossins hefur þegar gengið á fund franska ambassadorsins á íslandi og vott- að Sonum samúð sína og tilkynnt honum þessa ákvörðun. Dr. Gunnlaugur sagði enn- fremur, að á þessum 35 árum, sem Rauði krossinh hefði starfað, hefði hann haft fórgöngu um eða tekið þátt í söfnun til 19 þjóða, síðast til Egyptalands, Japans og Indlands. Einnig hefði hann ann- azt alla fyrirgreiðslu júgóslav- nesku flóttamannanna á sl. vetri, ungversku flóttamannanna eftir byltinguna þar í landi haustið 1956, en söfnun vegna alþjóða- flóttamannaársins, sem nú stend- ur yfir, hefur verið frestað til vorsins, þar sem Lúterska heims- sambandið hefði beitt sér fyrir söfnun í því skyni í haust. Undanfarin ár hefur Rauði krossinn haft forgöngu um að koma íslenzkum börnum til dval- ar yfir sumartímann og sl. 4 ár hafa 1000 börn verið á þeirra vegum í sumardvöl. Ráðgert væri að auka þessa starfsemi mjög, og hefði ýmislegt komið til tals í því sambandi. í Rauða krossi íslands eru nú 15 deildir víðs vegar um land og mun meðlimatalan vera eitthvað í kringum 3000. Formaður er Þorsteinn Scheving Thorsteins- son og framkvæmdastjórnina skipa 7 menn. — Ég veit alveg hvaða blóm verður valið á stall Sigríðar, sagði Skúli að lokum. Það verður auðvitað Iceland Poppy, sem er eins og holta- sóley, nema með miklu lengri legg. En ráðgert er að skreyta fleka erlendu stúlknanna með 100.000 orkideum og 6000 rósum. Mér þykir reglulega gaman að heyra að Sigríður skuli eiga að taka þátt í þessu. Skrúðgangan er góð auglýsing fyrir Kaliforníu og það að Sigríður skuli vera þar með, er góð auglýsing fyrir ísland. sem hún hafði staðið sig með' afbrigðum vel er hún kom«] fram í sjónvarpi í sambandi.j við keppnina. Segir Skúli Bjarnason að þar hafi hún haldið beztu ræðuna af 80, að allra dómi. Fyrsta dag í jólaföstu kom Sigríður fram með jólasvein- inum í skrúðgöngu, sem jafn- an fer fram í Hollywood þann dag. Er jólunum þar með hleypt af stokkunum í leikara- borginni. Og nú verður hún eins og áður er sagt í Rósa- skrúðgöngunni í Pasadena á nýjársdag. » 0 00T0*0.0 000 00 0 0~0 , Jólablöðin milli jóla og nýárs — Tregari bóksala LÁRUS BLÖNDAL, bóksali, skýrði Mbl. svo frá í gær, að hin svokölluðu jólanúmer hinna vin- sælu dönsku vikublaða, Hjemmet og Familie-Journal, myndu lík- lega ekki koma til landsins fyrr en milli jóla og nýárs. Þegar Gullfoss kemur á þriðju- daginn úr jólaferð sinni til Kaup- mannahafnar, munu ekki koma þrjú númer, svo sem verið hefur, heldur aðeins eitt númer af hinum fyrrnefndu dönsku viku- blöðum. Ástæðan til þessa er sú að ekki fékkst nú fyrir jólin yfir- færsla til kaupa nema á þessu eina númeri og koma hin eigin- legu jólablöð því ekki með skip- inu, sagði Lárus. — En varðandi ýms önnur dönsk jólahefti, sem bókabúðir hafa keypt, þá er þess að geta, að ýms þeirra munu ekki fást nú fyrir þessi jól. — En hvað er annars um bók- söluna að segja? — Enn sem komið er virðist bókasalan vera tregari í ár en um þetta leyti árs í fyrra, þrátt fyrir eins mikið, ef ekki meira úrval bóka. Enn sem komið er, sagði Lárus Blöndal, hefur engin ein bók náð hreinni forustu, en þeir hafa fengið nokkurt forskot Kristmann með sína ísold og Björn Th. með sinn Virkisvetur. Allt bendir og til þess að bók Valtýs Stefánssonar, muni sem fyrr vera meðal söluhæstu jóla- bókanna. Vildu el ki landsverzlun með olín I þann mund, sem vinstri stjóm in var mynduð, fluttu kommún- istar tillögu um það í Sjómanna- félagi Reykjavíkur, að sett skyldi á stofn landsverzlun með olíu, i stuttu máli sagt, að verzltun með þessa vöru skyldi þjóðnýtt. Þegar þessi tillaga var rædd í Sjómannafélaginu, reyndist hún eiga þar fáa formælendur. Til- lagan var kolfelld og hefur ekki verið sýnd þar síðan. Munu sjó- menn vafalaust hafa haft í hugn reynsluna af hinni fyrri lands- verzlun með olíu og fleiri einka- sölum hér á landi, svo sem síld- areinkasölunni sálugu, sem lögS var niður, eftir að hún hafði bak- að íslenzkri útgerð og sjómönn- um stórkostlegt tjón. Þegar á það er iitið, hverjar undirtektir tillaga kommúnista um landsverzlun með olíu fékk á sínum tíma í Sjómannafélagi Reykjavíkur, sætir það nokkurri furðu, að Alþýðublaðið skuli fyr- ir nokkrum dögum einmitt tæpa á þvi, að eðlilegt kunni að vera að setja hér á stofn olíueinka- sölu, þ. e. að þjóðnýta olíuverzl- unina. Þjóðnýtingarstefnan er nú all- staðar á undanhaldi, eins og mjög hefur borið á góma undanfarið. Síðast hefur norski Verkamanna- flokkurinn lýst því yfir, að hann hyggi ekki á frekari þjoðnýtingu í Noregi. Er ekki ólíklegt að sú yfirlýsing muni hafa mikil áhrif um öll Norðurlönd þar sem það er vitað, að norski Verkamanna- flokkurinn hefur tengstum verið róttækastur allra jafnaðarmanna flokka á Norðurlöndum. Hótanir kommúnista Öllum almenningi er nú að verða það ljóst, að kommúnistar eru byrjaðir að hóta því, áður en hin nýja ríkisstjórn hefur lagt fram viðreisnartillögur sinar í efnahagsmálunum, að þær skuli rifnar niður og að engu gerðar, ef kommúnistum falli þær ekki í geð. Þetta kom greinilega fram í ræð<u Eðvarðs Sigurðssonar á Dagsbrúnarfundi fyrir skömmu, þegar hann lýsti því yfir, að verkalýðshreyfingin væri þess reiðubúin að láta höggið ríða og taka upp harðsnúna baráttu gegn viðleitni ríkisstjórnarinnar til þess að leggja grundvöll að heilbrigðu efnahagsástandi í land inu. Af framkomu Framsóknar- manna undanfarnar vikur er heldur varla hægt að draga aðra ályktun en þá, en að þeir séu fyllilega samferða kommúnist- um í ábyrgðarleysi þeirra. Verða dregnir til ábyrgðar En kommúnistar og Framsókn- armenn verða að gera sér það Ijóst, að þeir verða einnig að standa ábyrgir gerða sinna, ekki síður en þeir flokkar, sem með völdin fara og forystuna hafa um nauðsynlegar viðreisnarráð- stafanir. Allur almenningur veit, að það var undir forystu vinstri stjórnarinnar, sem þeir erfiðleik- ar fyrst og fremst sköpuðust, sem nú ógna afkomu þjóðarinn- ar. Það kenmr hins vegar í hlut núverandi ríkisstjórnar að byggja upp það sem vinstri stjórnin reif niður. í því mikilvæga verki verða allir ábyrgir og þjóðhollir íslendingar að styðja hana. Ef skemmdarverkamönnum tækist nú að koma í veg fyrir fram- kvæmd lífsnauðsynlegra ráðstaf- ana, væri stefnt út i ófæru og upplausn, sem hlyti að hafa ófyr- irsjáanlegar afleiðingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.