Morgunblaðið - 10.12.1959, Qupperneq 8
8
MORCinvnrjniÐ
Fimmtudagur 10. des. 1959
Þing og þjóð hata meira gagn
af fjárlagsrœðu eftir áramót
Öll skynsamleg rök
mœltu með þingfrestun
Útvarpsrœða Gunnars Thoroddsen
fjármálaráðherra
Þegar ríkisstjórnin var mynduð,
reyndi hún strax að gera sér
grein fyrir því, hvaða stórverk-
efni væru mest aðkallandi og
hver vinnubrögð væru hagkvæm-
ust varðandi lausn þeirra. Fjárlög
ríkisins og róttækar efnahagsað-
gerðir hlutu að verða efst á baugi
Að tilhlutan fyrrverandi stjórnar
höfðu farið fram undirbúnings-
rannsóknir á efnahagsástandi og
horfum. í>að var ljóst, að óhjá-
kvæmilegt yrði að ætla 6—8 vik-
ur til að búa tillögur í efna-
hagsmálum í hendur Alþingis.
Frv. til fjárlaga fyrir næsta ár
lá fyrir fullgert og prentað, ágæt-
lega undirbúið af hæstv. fyrrv.
fjmrh., Guðmundi í. Guðmunds-
syni og starfsmönnum ráðuneytis
ins. En frv. var byggt á þeirri
skipan útflutnings- og innflutn-
ingsmála, sem nú hefur ríkt um
hríð, og þar sem þarf að gerbreyta
því kerfi öllu, verður og að gjör-
breyta fjárlagafrv. Fljótlega var
því horfið að því ráði að semja
nýtt fjárlagafrv., sem lagt yrði
fyrir Alþingi um svipað leyti og
tillögur í efnahagsmálum. Nú
lágu fyrir tvær hugsanlegar leið-
ir um vinnubrögð. Önnur sú, að
Alþingi héldi áfram fundum sin-
um allan þennan biðtíma sýslandi
við einhver Cnnur mál en hin að-
kallandi stórmál. Ráðherrar væru
bundnir við þingfundi, fyrirspurn
ir og málþóf ergilegra stjórnar-
andstæðinga og gætu því ekki
starfað að stórmálum í næði. Hin
leiðin var sú, að Alþ. ákvæði að
fresta fundum sínum þennan
tíma, ríkisstj. gæti þá gefið sig
alfarið að efnahagstillögunum og
þær lægju fyrir tilbúnar ásamt
fjárlögum, þegar þing kæmi sam
an að nýju. Ríkisstj. ræddi þessar
leiðir við alþm., sem styðja har.a.
Allir þm. stjórnarflokkanna og
allir ráðh. voru á einu máli um,
að síðari aðferðin væri fortaks-
laust hyggilegri og hagkvæmari
vinnubrögð fyrir alla aðilja, þjóð
og þing og stjórn.
Áður samþykkt ágrein-
ingslaust
Þegar þetta lá fyrir, lagði
hæstv. forsrh. fram till. til þál.
um samþykki Alþingis til frest-
unar á fundum þess til janúar-
loka, í samræmi við yfirlýstan
vilja meiri hluta alþm. Jafnframl
beitti rikisstj. sér fyrir tveimur
málum, sem nauðsynlegt var að
afgreiða fyrir þingfrestun. Annað
um að heimila venjulegar greiðsl-
ur úr ríkissjóði tvo fyrstu mán-
uði ársins, unz fjárlög væru
samþ., hitt um óbreytta fram-
lengingu á nokkrum tekjulögum,
sem gilda um eitt ár í senn. Sarns
konar frumvörp hafa oft legið
fyrir Alþingi áður og verið sam-
þykkt þar ágreinings- og hljóða-
laust, og öll skynsamleg rök
mæltu svo eindregið með þessurn
vinnubrögðum, að þingreyndir
menn urðu furðu lostnir, þegar
stjórnarandstaðan, í stað þess að
fallast á þessar aðgerðir, reis upp
gegn þeim með slíkum ofstopa,
taugatitringi og rosa, að elztu
menn muna ekki annað eins veð-
ur.
Við skulum nú virða fyrir okk
ur lítillega þessar sápukúlur, sem
þeir hafa blásið upp og kallað
rök gegn frestun funda. í fyrsta
lagi: Þingfrestun heitir á máli
stjórnarandstæðinga ofbeldi, ger-
ræði, þingræðisbrot, ríkisstj. sé
að reka nýkosna þingmenn heim,
senda þá hvern og einn á sina
sveit, svo að ég noti nokkur orða
tiltæki þeirra undanfarna sólar-
hringa. Þar til er því fyrst að
svara, að þingfrestanir með sam-
þykki Alþingis eru tíðar, ýmist
um stuttan eða langan tíma. T.
d. var fundum Alþingis frestað
eitt sinn í sex mánuði eftir till.
forsrh., sem þá var, Hermanns
Jónassonar.
Alþingi ákveður
En auk þess er það ekki stjórn-
in, heldur Alþingi sjálft, sem
tekur endanlega ákvörðun um
frestun, ef hún á að standa leng-
ur en tvær vikur. Ásakanir stjórn
arandstæðinga um þingræðis-
brot og gerræði, ef þingi er frest-
að án samþykkis þeirra, þýða
því grímulaust þetta: Vér, Fram
sóknarmenn og kommúnistar, 27
að tölu, eigum að ráða, en ekki
33 þm. í stjórnarliðinu. Meirihluti
Alþingis og ríkisstjórnin skal
beygja sig undir vilja minnihlut-
ans. Á annan veg verður afstaða
þeirra ekki skýrð, þegar búið er
að afklæða hana stóryrðum og
blekkingum. í öðru lagi: Ég ætla,
að flestir, ef ekki allir þm. við-
urkenni, að eðlilegt og óhjá-
kvæmilegt sé að fresta afgreiðslu
fjárlaga fram yfir nýjár.
Afleiðing þess var auðvitað
sú, að samþykkja þurfti nú lög
um fjárgreiðslur úr ríkissjóði
fyrstu tvo mánuði ársins. Hvort
tveggja þetta hefur iðulega kom-
ið fyrir áður, t.d. oftlega í ráð-
herratíð hv. 1. þm. Austurlands.
En þótt þessi frestur sé nauðsyn
legur nú, vegna þess hve seint
á árinu stjórnin var mynduð og
efnahagsaðgerðir framundan, ber
vitaskuld að stefna að því sem
meginreglu, að fjárlög séu af-
greidd fyrir áramót. En hvert er
þá ádeiluefnið í þessu sambandi?
Það, að fyrsta umræða fjárlaga
fer ekki fram nú, fyrir þingfrest
un, heldur þegar þing kemur
saman að nýju.
Við 1. umr. fjárlaga heldur
fjmrh. venjulega ýtarlega ræðu,
fjárlagaræðuna, og skal henni
útvarpað samkv. þingsköpum.
Þar gerir hann grein fyrir frum-
varpinu, almennt og í einstök-
um atriðum, rekur fjárhagsaf-
komu ríkisins á liðnu ári og því
ári, sem er að líða, ræðir ástand
og horfur í efnahags- og fjár-
málum og höfuðstefnu stjórnar-
innar í þeim málum.
Gleggra yfirlit í janúar
Með hliðsjón af því, að sam-
ið verður nýtt fjárlagafrv. og
efnahagsráðstafanir enn á undir-
búningsstigi, má það öllum mönn
um ljóst vera, að ólíkt gleggri
skil er hægt að gera þessum mál-
um í janúarlok en í desember-
byrjun og að þing og þjóð hafa
miklu meira gagn af fjárlaga-
ræðu, sem flutt er mánuði eftir
áramót en mánuði fyrir áramót.
Þessa ákvörðun um 1. umr. fjár-
laga hafa stjórnarandstæðingar
kallað ýmist óvenjulega aðferð
eða einsdæmi eða brot á þing-
venju eða lagabrot eða jafnvel
stjórnarskrárbrot, allt eftir því
á hvaða stigi geðshræringar þeir
hafa verið staddir.
Stjórnarskráin segir, að frv. til
fjárlaga skuli lagt fyrir regxu-
legt þing, þegar er það er sam-
an komið. Þetta var gert. En
hvergi í stjórnarskrá né lögum
stendur eitt orð um það, hvenær
víkur er 60 ára í dag, en stofn-
fundur félagsins var haldinn
í Iðnaðarmannafélagshúsinu
10. des. 1899. Þar var kosin
fyrsta stjórn félagsins og
skipuðu hana eftirtaldir
menn: Sveinn Sveinsson, for-
maður, Hjörtur Hjartarson,
skrifari, og Einar J. Pálsson,
féhirðir. Á þessum fundi og
framhaldsstofnfundi, er hald-
inn var 17. des. s. á. undirrit-
uðu 51 maður félagslögin og
eru þeir taldir stofnfélagar.
Auk húsasmiða voru skipa-
smiðir og húsgagnasmiðir
lengi í Trésmiðafélagi Reykja
víkur. —
FYRSTU drög að stofnun Tré-
smiðafélags Reykjavíkur munu
hafa verið lögð um áramótin
1893—’94. En þá var haldinn fund
ur trésmiða í Reykjavík. Á þeim
fundi var kosin nefnd manna til
þess að vinna að þessu máli.
Nefndin var skipuð 8 mönnum
og voru þeir þessir: Einar Páls-
son, formaður og með honum
þeir: Hjörtur Hjartarson, Sigurð-
fjárlagaræðan skuli haldin og 1.
umr. fara fram. Engin þingvenja
er heldur til um þetta. í reynd
hafa liðið af þinghaldinu ýmist
nokkrir dagar eða vikur, jafn-
vel upp í fimm vikur, til 1. umr.
fjárlaganna. Að þessu sinni mun
ur saman að nýju, m.ö.o. áður en
þrjár vikur eru liðnar af þing-
haldinu.
Ekki greiðsluhalli á
þessu ári
Varðandi afkomu ríkissjóðs á
árinu 1959 vil ég taka það fram
nú, eins og hæstv. fyrrv. fjmrh.
sagði í útvarpsræðu í október og
einnig segir í grg. fjárlagafrv.,
sem liggur fyrir Alþingi, að ekki
er ástæða til að óttast greiðslu-
halla á yfirstandandi ári.
Þá er í þriðja lagi frumvarpið
um bráðabirgðabreytingu og
framlengingu nokkurra tekju-
laga, þ.e. að framlengja óbreytt
ákvæði, sem staðið hafa árum
saman varðandi ýmis gjöld til
ríkissjóðs. Þessi lög hafa Fram-
sóknarmenn framlengt ár eftir
ár og enginn teljandi ágreining-
ur um þau lengi, en nú hafa þeir
allt á hornum sér. Það er kallað
óviðeigandi og óþinglegt að hafa
þessar framlengingar í einu frv.
nú í stað fimm áður. En það er
á alla lund hagkvæmara að hafa
ur Árnason, Þorkell Gíslason,
Sveinn Sveinsson, Magnús Ólafs-
son, Magnús Árnason og Helgi
Thordersen.
í febrúar 1894 hélt nefndin
fund og er sú fundargjörð enn
varðveitt. Þar segir m.a.: „að
nefndin hafi samið verðlista“ og
að umræður hafi verið um ýmis
Sveinn Sveinsson, 1. formaður
T. R. var fæddur á Staðarbakka í
Miðfirði 1846. Sveinn var for-
maður félagsins til ársins 1903.
Hann lézt 1918.
1. umr. fjárlaganna fara fram
í fyrstu viku eftir að þing kem-
þennan hátt á, og sízt situr það
á Framsfl. að gagnrýna það, því
að hann beitti sér á sinni tíð fyr-
ir frv., sem breytti tuttugu lög-
um í einu lagi, án þess að ég sé
að vitna til þess frv. sem fagurr-
ar fyrirmyndar. En nú má ekki
framlengja þessi lög til eins árs,
eins og jafnan hefur verið gert
áður undir forystu hv. 1. þm.
Austurl., heldur aðeins til
tveggja mánaða. Ef rannsókn
efnahags- og fjármála leiðir til
breytinga á þessum tekjustofn-
um geta þær breytingar að sjálf
sögðu komið til framkvæmda
hvenær á árinu sem er.
Einn liður þessara framleng-
inga er söluskatturinn. Sá skatt-
ur er gallaður í núverandi mynd
á marga lund, og er hafin endur-
skoðun á honum frá grunni.
Stjórnarandstæðingar hafa í
þessu sambandi tekið upp fyrri
tillögur mínar um, að fjórðung-
ur söluskattsins renni til bæjar-
og sveitarfélaga. En um leið
flytja þeir tillögu um, að þessi
skipan skuli aðeins gilda í tvo
mánuði, janúar og febrúar næsta
árs. Ég er þeirrar skoðunar nú,
sem fyrr, að sveitarfélögin þurfi
nýja tekjustofna, þ.á.m. óbeinan
skattstofn eins og söluskattinn,
en ekki um tveggja mánaða
skeið, heldur þurfi varanlega
lausn. Það var því eitt af fyrstu
verkum rmínum í rfkisstj. að
hefja undirbúning að nýrri lög-
gjöf um tekjustofna bæjar- og
sveitarfélaga, og munu tillögur
um þau mál„ a.m.k. suma þætti
þeirra, koma fyrir Alþingi síðax
í vetur.
atriði í honum, en var þó að
síðustu samþykktur". Þá voru
kosnir 7 mehn í nefnd til þess
að semja lög fyrir félagið og voru
það allir þeir sömu, er áður höfðu
starfað.
Að því sem að framan er sagt
má sjá að trésmiðir hafa þegar
árið 1894 haft hug á því að stofna
með sér félagssamtök, þótt þessi
viðleitni bæri ekki árangur að
sinni.
Þegar félagið var stofnað var
tímakaup 35 aurar á klst. og
vinnutíminn 11—12 klst. dag-
vinna.
í fyrstu lögum þess voru
ákvæði um „sveinapróf“ og var
það nýmæli. Lét félagið mjög til
sín taka menntun og fræðslu
iðnaðarmanna og hefir svo verið
alla tíð.
Á árunum 1910—1917 var dauft
yfir Trésmiðafélaginu. En á ár-
inu 1917 færist mikið fjör 1 fé-
lagsstarfið og hefir svo verið alla
tíð síðan. 1931 opnaði félagið
skrifstofu með öðrum iðnfélög-
um. En frá 1937 hefir félagið rek-
ið eigin skrifstofu. 1951 keypti
félagið húsið Laufásveg 8 í félagi
við Landssamband iðnaðarmanna
og hefir skrifstofan verið þar
síðan. 1953 var höfð allsherjar-
atkvæðagreiðsla innan félagsins
um skiptingu þess í meistara- og
sveinadeild og var þá fellt að
Framh. á bls. 23.
Núverandi stjóm Trésmið aféiags Reykjavíkur
Trésmiðafélag Reykjavíkur 60 ára
Félagsrnenn um 600 og starfsemi blómleg
TRÉSMIÐAFÉLAG Reykja-