Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 10.12.1959, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 10. des. 1959 MORGinS KLAÐIÐ 17 Lárus Björnsson Grímstungu 70 ára í DAG lr 70 ára einn af merkustu bændum á íslandi. í>að er Lárus Björnsson bóndi í Grímstungu í Vatnsdal. Hann er fæddur 10. desember 1889 á Réttarhóli í Forsæludals- kvíslum. Þar bjuggu þá foreldrar hans hjónin Helga Sigurgeirs- dóttir og Björn Eysteinsson. Er býli þetta langt fram á heiði og bjuggu hjónin þar um fjögra ára skeið, en fluttu þaðan að Skára- stöðum í Miðfirði. En að Gríms- tungu fluttu þau með börn sín 1899 og hefir Lárus átt þar heima alla ævi síðan, nú í 60 ár. Af foreldrum Lárusar er sagt all rækilega í ævisögu Björns Eysteinssonar er út kom fyrir 2 árum og ætt þeirra þar rakin einkum Björns. Ég sleppi því hér, að rekja ætt Lárusar, en það hygg ég ekki ofmælt, að svo mikill gæfumaður sé hann að hafa það bezta úr 'báðum ættum. Þess vegna hefir hann orðið slíkur úr- valsmaður sem raun ber vitni. Árið 1910 byrjaði Lárus búskap í Grímstungu rétt rúmlega tví- tugur og hefir búið þar alla tíð j síðan með miklum skörungsskap. Konu sinni Péturínu Jóhannsdótt ur giftist hann 5 árum síðar þ.e. árið 1915. — Um krossmessuna á næsta vori á þessi merki bóndi þá 50 ára búskaparafmæli og 45 ára hjúskaparafmæli. Þá ætlar hann að fá til sín vini sína og vandamenn og fresta þangað til, að halda nokkuð upp á sitt 70 ára afmæli. Tilefni heimilishátíðar- innar á næsta vori verður því þre falt og fer vel á því. Hjónaband Grímstunguhjóna hefir verið frábærlega ástríkt og farsælt, enda er konan mikilhæf kona, ósérhlífin, góðgjörn og skyldurækin. Þau eignuðust 8 börn og eru 6 þeirra á lífi, 4 drengir og 2 stúlkur. Allt fullorð ið, efnilegt og gott fólk. Tvö af börnunum eru dáin. Stúlka er dó á 5. ári Helga að nafni, og dreng- ur er dó á 19. ári Helgi Sigurður að nafni. Auk eigin barna hafa þessi mætu hjón alið upp að mestu 3 fósturbörn. Heimilið í Grímstungu hefir um daga þessara hjóna verið hið mesta myndarheimili. Þar hefir ríkt alúð, friður og gestrisni. Þangað hefir komið fjöldi ferða- manna úr héraðinu og utan þess og æfinlega fengið ánægjulegar viðtökur. Mest hefir þó oftast verið um gestafjölda um göngur og réttir. Hafa nokkuð margir lagt leið sína að Grímstungu þegar þeir komu blautir og kald- ir og illa til reika af heiðum ofan. Og allir hafa þeir fengið góðar viðtökur og aðhlynningu hjá húsbændum og heimilisfólki. Þegar Lárus byrjaði að búa vorið 1910 átti hann 80 kindur og var það öll eignin. En hann keypti til viðbótar 27 ær sem Jósep þá stórbóndi á Hjallalandi bauð honum. Þegar hann tók við þeim kom I ljós, að það voru allt fallegar tvævetlur. Lárus undraðist slík- an drengskap, en Jósep sagði: „Ungir menn hafa ekkert að gera með að kaupa gamalær“. Fyrstu 3 árin hafði Lárus ekki nema % Grímstungu móti Þor- steini bróður sínum, en síðan hef- ir hann búið á allri jörðinni. En síðastliðið vor seldi hann sonum sínum Eggerti og Grími, sinn þriðjunginn hvorum. Sjálfur heldur hann eftir beitarhúsum og þriðjungi af beitilandi. Lengst af hefir Lárus Björns- son verið fjárríkasti bóndi í Húnavatnssýslu og greitt hæst út svar allra Vatnsdælinga. Umbæturnar á jörðinni eru stórkostlegar. Túnið var tæpir 8 hektarar þegar hann byrjaði. Nú 30 hektarar heima og 10 á beitar- húsum. Byggingar allar eru úr steinsteypu og þær eru þessar: íbúðarhús mjög stórt. Fjárhús yfir 830 fjár. Fjós yfir 20 naut- gripi. Hlöður og votheysgryfjur fyrir 3000 hesta af heyi. Auk þess hesthús og geymslur. Gefa þessar byggingar hugmynd um bústærð og heyskapar möguleika. Grenjaskytta hefir Lárus verið yfir 50 ár bæði á heiðum og í heimalöndum. Vafasamt að nokk ur núlifandi íslendingur hafi út- mennings hefir Lárus talsvert unnið og alltaf til góðs. Hann var lengi í Hreppsnefnd Áshrepps. í í stjórn Búnaðarfélags Áshrepps í 40 ár og í Skólanefnd Áshrepps í 30 ár. Auk þess hefir hann ver- ið mjög oft fulltrúi á fundum Kaupfélags Húnvetninga og Slát- urfélags AusturHúnvetninga, og margt fleira mætti nefna. Lárus í Grímstungu hefir aldrei lært í öðrum skóla en skóla lífsins. En honum hefir gengið námið afburða vel, enda er maðurinn framúrskarandi vel greindur og glöggskyggn. Hann hans og drengskapur þegar vanda ber að höndum er frábært. Ef Lárus í Grímstungu getur eigi bjargað vinum sínum þá mun mörgum þeirra þykja næsta lítil von í öðrum áttum. Á því eru heldur aldrei nein tvímæli að Lárusi er óhætt að treysta, sem heilsteyptum og öruggum heiðurs manni, sem aldrei fer með rangt mál, eða notar sér veikleika annara manna til hagnaðar. Þess vegna hefir hann alla tíð verið gæfumaður og margir aðrir hafa notið gæfu af því, að fara að ráðum hans ög komast á ann- an hátt í náin kynni við hann. Lárus Björnsson er einbeittur í skoðunum, fastur fyrir og fer sínar eigin götur, en þó samn- ingslipur við góða drengi. Hann hefir haft og hefir enn frábært vinnuþrek og er svo mikill ferða- maður að fágætt mun. Einkum er þetta undravert nú síðustu árin eins og aldri hans er komið. Hann fer enn í göngur og aðrar heiða- ferðir, grenjaferðir og hvað sem er eins og ungur væri. Meðal annars þótti mörgum furðu gegna í sumar sem leið, þegar Húnvetn- ingar úr Reykjavík og heima héraði héldu mót á Hveravöllum, þá fór Lárus í Grímstungu á hest- um sínum þessa leið, sem er 9—10 tíma reið. Flestir aðrir fóru á bifreiðum. Lárus er mjög vel skapi farinn. glaðvær og skemmtilegur í vina- hóp. Hefir mikila ánægju af Ijóð- um, kvæðamaður ágætur og get- ur verið hrókur alls fagnaðar þegar svo ber undir. Hann er myndarlegur maður og aðlað- andi. Öllum Húnvetningum þyk- ir hann góður gestur. Á þessum tímamótum þegar þessi ágæti maður er 70 ára, þá þakka ég honum fyrir langa og trausta vináttu og margvíslegan drengskap. Ég óska honum, konu hans, börnum og öllu tengdafólki til hamingju með gæfuríka ævi, sem liðin er og óska þess, að hans megi enn lengi við njóta. Það er öllu venzlafólki og sveitinni og héraðinu mikilsvert. Jón Pálmason, Nýjar bækur: Tvœr ,,stríðsbœkur44 frá Ægisútgáfunni Péturína Jóhannsdóttir og Lárus Bjarnason. rýmt fleiri tófum en hann, og geta flestir bændur gert sér í hugarlund hvílíkt nytjaverk það er. Þar hefir líka verið að verki hin fágæta fórnfýsi og dugnaður þessa manns, með óteljandi næt- urvökum og óhemju ferðalögum um fjöll og firnindi. Lárus var í öndverðu heiðarinnar barn og hann hefir líka verið lengur en flestir aðrir yfirmaður og stjórn- arí um að allt það er afréttirnar heimta. í göngum, vorleitum, eftirleitum o. s. frv. Hefir hjá honum aldrei verið skortur á fórn fýsiinni með þeirri alkunnu at- orku, fyrirhyggju og afburða dugnaði og þrautseigju sem hann hefir einkennt. Að öðrum störfum í þágu al- hefir haft á því gott lag, að not- færa sér rök reynslunnar frá fyrri og síðari timum. Og í gegn um sitt örðuga og tilbreytinga- sama starfslíf, hefir hann komizt á þá leið, að hann er elskaður og virtur af öllum sem honum eru kunnugastir. Sem húsbóndi á sínu heimili hefir hann verið sérlega vinsæll og vel metinn, enda hefir sumt af hans hjúum verið langdvölum hans heima- menn, og ekki kosið fremur aðra staði meðan ekki var breytt um stöðu. Á sama hátt er Lárus mjög vinsæll í sveit sinni og sýslu. Hvar sem hann velst til stjórnar, hvort sem er á heiðum eða í byggð, þá hefir hann gott lag á því, að allt fari vel. Hjálpfýsi TVÆR nýjar bækur eru komntr á markaðinn frá Ægisútgáfunni í Reykjavík. Báðar bækurnar geyma frásagnir úr heimsstyrj- öldinni síðari, lýsa ógnum stríðs- ins á ljósan hátt og fela raunveru lega báðar í sér hina hörðustu ákæru ' gegn hernaðaranda og striðsæði. Bækur þessar eru: „Hersveit hinna fordæmdu", eftir Danann Sven Hassel (De fordömtes Leg- ion). — Hassel var neyddur til að ganga í þýzka herinn, vegna þess að faðir hans var þýzkur. Hann barðist með Þjóðverjum á Austurvígstöðunum, en fylltist viðbjóði á stríðinu og tilgangs leysi þess og strauk úr hernum. Hann lenti í hinum mestu hörm ungum, og segir frá því öllu á hinn hispurslausasta hátt í þess- ari bók, sem hlotið hefir mikla útbreiðslu og verið þýdd á mörg tungumál. — Sumir hafa jafn- vel borið bókina saman við stríðs sögur þeirra Hemingways og Remarques. Hin bókin er „Að sigra eða deyja“ (Getreu bis in den Tod), eftir Will Berthold. Þýðandi er Stefán Jónsson fréttamaður. Frá- sögn þessi fjallar um örlög þýzka orustuskipsins Bismarcks fyrst og fremst, viðureign þess viS brezka bryndrekann Hood, sem það sökkti vestur af íslandi 1941 og endalok þess, er brezk flota- deild yfirbugaði það suðvestur af írlandi í hinni sömu ferð. í átökum þessum létust um eða yf- ir 4000 manns. Þessum hrikalega hildarleik segir höfundur frá á mjög hlutlausan og áhrifaríkan hátt. Báðar eru bækurnar prýddar mörgum sögulegum myndum, og er vel frá þeim gengið. Þær eru prentaðar í Prentsmiðjunni Hól- um. Pillsbuiys ((BESX ...ollar húsmæður þekkja (Pillsburys BEST hveiti Pillsbury’s Best er efnabætt hveiti í endurbættum pakka og gæðunum er alltaf hægt að treysta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.