Morgunblaðið - 16.12.1959, Qupperneq 11
Mlðvikudagur 16. des. 1959
MORCllTSfíhAÐIÐ
11
Mannlýsingar
eftir Einar HjÖrleifsson Kvaran
Tómas Guðmundsson skáld, annast útgáfu ritgerða-
safns þessa öndvegishöfundar íslendinga, sem
framt var einn atkvæðamesti blaðamaður landsins,
lét stjórnmál til sín taka, og skrifaði sæg ritgerða
um hvers konar andleg efni, trúmál, bókmenntir
leiklist og önnur menningarmál. Hann var sífelld-
lega opinn fyrir öllum andlegum straumum sam-
tíðarinnar, heimsborgari í hugsun, víðsýnn og fr jáls-
lyndur, boðberi mannúðar, umburðarlyndis og kær-
ieika.
Mannlýsingar eru mjög skemmtilegar aflestrar, mótaðar af persónu-
legum stíl og bornar upp af sérstæðri og sannfærandi rökvísi.
Dómsdagurinn
í Flatatungu
eftir Selmu Jónsdóttur listfræðing
Þessi bók mun áreiðanlega vekja mikla athygli bæði inn-
anlands og utan. Hún f jallar um útskornar furufjalir frá
Bjarnastaðahlíð í Skagafirði, sem höfðu verið notaðar í
árefti á skemmu þar, en eru nú geymdar í 1‘jóðmynja-
safni. Fjalir þessar komu að Bjarnastaðahlíð frá Flata-
tungu í sömu sýslu og munu vera frá því um 1070, að því
er höfundur bókarinnar færir rök að. Myndirnar á f jölum
þessum hafa valdið mönnum ærnum heilabrotum, en með
bók þessari virðist uppruni þeirra ráðinn. tjt frá efnisatr-
iðum og stíl myndanna færir höfundur rök af menningar-
tengslum, sem vissulega munu koma mönnum á óvart.
Bókin er í stóru broti, 140 bls. að stærð. 1 henni eru 66 glæsilegar myndir, þar
sem myndimar á fjölunum eru bornar saman við erlend listaverk.
Ljósmyndirnar af fjölunum gerði þýzkur Ijósmyndari, en bókin er prentuð í
Sviss.
Heimspekideild Háskóla Islands hefur dæmt ritgerð þessa hæfa til doktors-
varnar, og verður þá Selma Jónsdóttir fyrsta konan, sem ver doktorsritgerð hér.
Bókin er komin út á íslenzku og kemur bráðlega einnig á ansk^.
Bækur A B fást i bókabúdum, en jafnframt er
afgreiðslan oð Tjarnargötu 16 opin félagsmönnum
eins og verzlanir fyrir jólin