Morgunblaðið - 16.12.1959, Page 20
20
MORCVISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. des. 1959
OfiREHA
það ekki? I>ér eruð ekki reiður
við mig, vegna þess hvað ég hag-
aði mér kjánalega og sagði margt
vitlaust í dag?“ Á slíkum augna
blikum vakti sú hugsun mér dul
arfulla undrun, að ég sem ekk-
ert hafði að gefa nema innileg-
ust/u samúð mína, skyldi hafa
svona mikið vald yfir annarri
manneskju.
En það er einkenni hinna ungu
að sérhver ný þekking stígur
þeim til höfuðs. Jafnskjótt og ég
uppgötvaði, að þessi hæfileiki
minn til að vorkenna og finna
til með öðrum, var afl, sem ekki
aðeins æsti mig skemmtilega,
heldur náði lika með gagnlegum
áhrifum sínum út fyrir sjáifan
mig, þá varð einhver gagnger
breyting innra með mér. Frá því
er ég hafði í fyrsta skipti veitt
þessarri samúðarhæfni aðgang
að sjálfum mér, fannst mér lík-
ast því sem toxin (eiturteg.),
hefði komizt inn í æðar mínar og
gert blóðið heitara, rauðara og
blóðrásina hraðari, ákafari. Og
allt í einu gat ég ekki lengur
skilið hina tilfinningalausu
ómennsku, sem ég hafði hingað
til lifað í, eins og í gráu ömur-
legu rökkri. Hundrað hlutir, sem
ég hafði aldrei fyrr veitt nokkra
minnstu athygli, fóru nú að
vekja eftirtekt mína og æsa mig.
Alls staðar umhverfis mig tók ég
nú eftir hlutum, sem drógu að
sér athygli mína, hrifu mig,
hræddu mig, eins og fyrsta inn-
sýn mín í þjáningar annarra
hefði gefið mér nýrri, skyggnari
og skilningsríkari augu. Og
þegar ég var að prófa nýja hesta
fyrir herdeildina, brá svo undar
lega við, að mér var allt í einu
gersamlega ómögulegt að gefa
þrjózkufullum hesti svipuhögg á
lendina, eins og áður, án þess
að finna til samvizkubits, því að
ég skynjaði nú þær kvalir, sem
ég varð valdur að og svipufarið
brann á sjálfs míns hörundi. Og
ég kreppti greiparnar ósjálfrátt
um beizlistaumana, með svo
krampakenndu taki, að hnúarnir
hvítnuðu, þegar hinn stygglyndi
höfuðsmaður okkar sló ungan
ulana beint í andlitið með kreppt
um hnefanum, vegna þess að
hann hafði ekki girt hnakkinn
nægilega fast á einn hestinn og
Jólatrésseríur
- 17 Ijós -
Jólatrésseríurnar
sem fást hjá okkur eru
með 17 ljósum. Það hef-
ir komið í ljós að vegna
misjafnrar spennu sem
venjulega er um jólin,
endast 17 Ijósa-seríur
margfalt lengur en venju
legar 16 ljósa.
NOMA amerískar seríuperur.
Verð kr. 3,50 pr. stk.
Austurstræti 14
Simi 11687
pilturinn stóð teinréttur og hreyf
ingarlaus. Hinir hermennirnir
hlógu tómlátlega, en ég var sá
eini, sem gat séð heitu blygðunar
tárin, sem þrengdu sér út undan
signum augnalokum piltsins. Allt
í einu fann ég líka, að ég gat
ekki þolað hið ruddalega gaman
í liðsforingjaklúbbnum, sem allt
af var á kostnað einhvers
klunnalegs eða klaufalegs fé-
laga. Frá því er ég hafði skilið
þjáningar aflleysisins í brjósti
hinnar varnarlausu, máttarvana
stúlku, hafði ég megnasta við-
bjóð á hvers konar ruddaskap,
en hrærðist til meðaumkunar
með öllu því sem var hjálpar-
vana.
Margs konar smámunir, sem
hingað til höfðu alveg sloppið
við athygli mína, vöktu nú eftir-
tekt á sér, eftir að tilviljunin
hafði gróðursett fyrsta samúðar
fræið í brjósti mínu, smómunir,
sem flestir hefðu kallað einiber-
an hégóma, en sem höfðu þó mátt
til að vekja mig til umhugsunar
og athafna. Ég veitti því nú t. d.
athygli, að konan í tóbaksbúð-
inni, þar sem ég keypti alitaf
vindlingana mína, brá peningun
um, er ég fékk henni, undarlega
fast upp að þykku glerjunum í
gleraugunum sínum og sá grun-
ur gerði mér þegar órótt innan
brjósts, að hún kynni að hafa
vagl á augum. Næsta dag hugs-
aði ég mér að spyrja hana nán-
ar um þetta, að sjálfsögðu með
fyllstu nærgætni og jafnvel biðja
Goldbaum, herlækninn okkar,
að gera svo vel og athuga aug-
un í henni.
I annað skipti veitti ég því at-
hygli, að sjálfboðaliðarnir höfðu
í seinni tíð sniðgengið mjög
greinilega K. litla, rauðhærða
piltinn. Og þá minntist ég þess,
að ég hafði lesið það í blöðunum,
að frændi hans hefði verið dæmd
ur fyrir fjárdrátt og settur í fang
elsi. Hvað gat K. gert að því,
aumingja strákurinn? Ég fékk
mér því, af ásettu ráði, sæti við
hliðina á honum í borðsalnum
okkar og rabbaði lengi og alúð-
lega við hann. Þakklætið, sem
þegar skein úr augum hans,
sýndi mér betur en nokkur orð
hefðu getað, að hann vissi fylli-
lega að ég gerði þetta einfaldlega
til þess, að sýna öllum hinum,
hversu illa og ódrengilega þeir
hegðuðu sér.
Aftur og aftur, dag eftir dag,
fékk ég ný tækifæri til að breyta
samkvæmt þessum tilfinningum
mínum, sem svo skyndilega og
algerlega höfðu gagntekið mig.
Og ég sagði við sjálfan mig: Hér
eftir skaltu veita öllum alla þá
hjálp, sem þér er mögulegt að
veita. Hættu að vera tilfinninga-
sljór og afskiptasamur. Gerðu
þig sjálfan að meiri • og betri
manni, með því að helga öðrum
alla krafta þina. Auðgaðu sjálfan
þig með því, að gera forlög ann-
arra að þínum eigin, með því
að þola og skilja hverja mann-
Tii jólagjafa
HÁRÞURKA
er tilvalin
jólagjöf
Jfekla
Austurstræti 14. Simi 11687.
SKREYTINGAR
GBÓÐRASTÖÐIN v/Miklatorg — Sími 19775.
CTS AL AN Laugavegi.
>ú virðist vita talsvert um úti-
lcgur SirrL
Faðir minn er leiðsögumaður
Súsanna . . . Og Markús hefur
kennt mér mikið.
>á höfum við eitthvað sam-
eiginlegt. Ég lærði mjög mikið
af Markúsi þegar við vorum sam-
an í norðurferðinni.
......áparió yftur hlaup
á mLQi maxgra vta-zlana!
WHWOL
Á ÖllUM
HttUM!
Auafcurslrseti |
SHtltvarpiö
Miðvikudagur 16. desember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05
Morgunleikfimi. — 8.15 Tónleik-
ar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón-
leikar. — 9.10 Veðurfr. — 3.20
Tónleikar).
12.15—13.15 Hádegisútvarp — (12.25
Fréttir og tilkynningar).
12.50—14.00 „Við vinnuna“: Tónleikar
af plötum.
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfr.)
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Utvarpssaga barnanna: „Siskó á
flækingi" eftir Estrid Ott; XIII.
lestur (Pétur Sumarliðason kenn-
ari).
18.55 Framburðarkennsla í ensku.
19.00 Tónleikar. — Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Daglegt mál (Arni Böðvarsson
cand. mag.).
20.35 Með ungu fólki (Guðrún Helga-
dóttir).
21.00 Tónleikar: Þjóðlög og dansar frá
Júgóslavíu (Þarlendir listamenn
flytja).
21.20 Framhaldsleikritið: „Umhverfis
jörðina á 80 dögum", gert eftir
samnefndri sögu Jules Verne; VL
kafli. Þýðandi: Þórður Harðarson.
Leikstjóri: Flosi Olafsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Leikhúspistill (Sveinn Einars-
son).
22.30 Djassþáttur á vegum Jazzklúbbs
Reykjavíkur.
23.10 Dagskrárlok*
Fimmtudagur 17. desember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. •—
8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón-
leikar. — 8.30 Fréttir. 8.40 — Tón-
leikar. — 9.10 Veðurfregnir.
9.20Tónleikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
12.50—14.00 „A frívaktinni" — sjó-
mannaþáttur (Guðrún Erlends-
dóttir).
15.00—16.30 Miðdegisútvarp. — (16.00
Fréttir og veðurfregnir).
18.30 Fyrir yngstu hlustendurnar (Mar-
grét Gunnarsdóttir).
18.50 Framburðarkennsla í frönsku.
19.00 Tónleikar. — Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Vísitölur vínguðsins (Bald
ur Johnsen læknir).
20.55 Einsöngur: Sigurveig Hjaltested
syngur lög eftir Bjarna Böðvars-
son. Undirleik annast Fritz Weiss-
happel.
21.15 Upplestur: Ævar R. Kvaran leik-
ari les ljóð eftir Vilhjálm frá
Skálhloti.
21.30 Músíkkvísindi og alþýðusöngur;
VI. erindi (Dr. Hallgrímur Helga-
son).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Smásaga vikunnar: „Ætli Björn
bóndi sé heima?" eftir Kolbein
frá Strönd (Njörður P. Njarðvík
stud. mag.).
22.25 Sinfónía nr. 4 í Es-dúr eftir
Anton Bruckner (Ríkisóperu-
Ifljómsveitin í Dresden leikur;
Karl Böhm stj.).
23.35 Dagskrárlok.
Föstudagur 18. desember
8.00—10.00 Morgunútvarp (Bæn. —•
8.05 Morgunleikfimi. — 8.15 Tón-
leikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tón-
leikar. — 9.10 Veðurfregnir.
9.20 Tónleikar).
12.00 Hádegisútvarp. — (12.25 Fréttir
og tilkynningar).
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00—16.00 Miðdegisútvrap. — (16.00
Fréttir og veðurfregnir).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Mannkynssaga barnanna: „Oli
skyggnist aftur í aldir" eftir
Cornelius Moe; VI. kafli (Stefán
Sigurðsson kennari).
18.50 Framburðarkennsla í spænsku.
19.00 Tónleikar. — Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Gísla saga
Súrssonar; VII. (Oskar Hall-
dórsson kand. mag.).
b) Söngur frá móti austfirzkra
kirkjukóra á Reyðarfirði 15.
ágúst s.l.
c) Frásöguþáttur: „Landsskuld af
Langavatnsdal" eftir Jón Helga
son ritstjóra (Dr. Kristján Eld-
járn þjóðminjavörður flytur).
d) Upplestur: Böðvar Guðlaugs-
son les frumort kvæði.
e) Utilegumannasaga: „Sagan af
Sveini sterka", skráð af Hall-
grími Jónassyni kennara (Hö-
skuldur Skagfjörð).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Upplestur: „Vilma", smásaga eftir
Sandor Hunyady (Guðmundur
Frímann skáld þýðir og les).
22.40 Islenzkar danshljómsveitir:
Hljóm Arna Elfars leikur.
23.10 Dagskrárlok.