Morgunblaðið - 16.12.1959, Síða 24
8
dagar
til jol a
281. tbl. — Miðvikudagur 16. desember 1959
Verðlaun veitt tyrir tillogu um
vatnsgeyma á Öskjuhlíð
NÝLEGA var efnt til hugmynda-
samkeppni um g-erð og útlit vatns
geyma á Öskjuhlíðina, en sérstak
Iega á að vanda tii þeirra. Fimm
lausnir munu hafa borizt en
verðlaunin, 40 þús. kr., hlaut til-
laga, sem fjórir aðilar standa að,
arkitektinn Gunnar Hansson,
verkfræðingarnir Stefán Ólafs-
son og Helgi Árnason og erlent
verkfræðifyrirtæki, Larsen og
Nielsen.
Geymarnir, sem eru fjórir, eiga
að standa á Öskjuhlíðinni, þar
sem Golfskálinn er núna, ekki þó
alveg á háhæðinni. Eiga þeir sam
tals að taka 40 þús. rúmm. af
vatni eða 10 þús. hver. Til saman-
burðar má geta þess að heildar-
vatnsnotkun bæjarins, að með-
töldu Seltjarnarnesi og Kópavogi,
heíur fram að þessu verið talin
um 45 þús. rúmm. á sólarhring.
Nýju geymarnir munu standa 15
m. hærra en gömlu geymarnir á
Rauðarárholtinu, sem aðeins taka
um 2 þús. rúmm. A verðlauna-
teikningunni eru geymarnir 6 m.
á hæð.
1 dómnefnd voru Valgeir
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
félaganna i kvöld:
Bjarni Benediktsson rceð-
: ir stjórnmálaviðhorfið
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík held-
ur aðalfund í kvöld kl. 20,30
í Sjálfstæðishúsinu.
Á dagskrá verða venjuleg
aðalfundarstörf, en að þeim
loknum flytur Bjarni Bene-
diktsson, dómsmálaráðherra,
ræðu um stjórnmálaviðhorfið.
Á eftir verða svo frjálsar
umræður.
Fulltrúar eru hvattir til að
fjölmenna á þennan aðalfund
og sýna fulltrúaráðsskírteini
sín við innganginn.
Ný umferðarljós á
fjórum gatnamótum
Björnsson, hafnarstjóri, Sigurður
Jóhannsson( vegamálastjóri, Jón
Sigurðsson slökkviliðsstj., Agúst
Pálsson, arkitekt, og Sigmundur
Halldórsson, byggingafulltrúi.
Enn ósamið
í Keflavík
SÍLDARSTÚLKUR í Keflavik
hafa enn ekki samið, og er ekki
saltað þar. A sunnudaginn voru
greidd í annað sinn atkvæði um
tillögur Vinnuveitendasambands
íslands um þrenns konar greiðslu
fyrir síldarsöltun, en tillagan var
felld. Ekkert gerðist í málinu í
gser.
Bjarni Benediktsson
Þ E S S I mynd var tekin
um helgina í sjúkrahúsinu
á Seyðisfirði, en þar er nú
rúmliggjandi rússneskur
sjómaður. Hjúkrunarkonan
við sjúkrabeð hans er
Regína Stefánsdóttir. —
Rússinn er nú að jafna sig,
en hann þjáðist af maga-
sári. Standa vonir til þess,
að hann verði aftur ferða-
fær í þessari viku. Hefur
hann verið í matarkúr hjá
lækninum, sem óspart hef-
ur látið hann borða egg og
rjóma. Rússinn talar aðeins
móðurmál sitt og fara sam-
tölin fram við hann á alls
konar fingra- og táknmáli.
Bátarnir lausir
í höfninni
ÍSAFIRÐI, 15. desember: — 1
fyrrinótt strandaði vélbáturinn
Valur frá Súðavík á Kambsnesi,
sem er innan við Súðavík, milli
Alftafjarðar og Seyðisfjarðar.
Fimm manna áhöfn var á bátn-
um og björguðust þeir til lands
í gúmmíbát. Sótti bátur frá
Súðavík þá á strandstað.
Eigandi Vals er Ami Guð-
mundsson, en formaður á bátnum
var Þórður Sigurðsson.
Aðfaranótt mánudagsins fór
að hríða hér um slóðir. >á var
Valur á leið í róður, en sneri við
er veðrið versnaði og strandaði.
Veður er enn vont hér og hefur
báturinn ekki náðst út og er tal-
inn ónýtur. Málið er í rannsókn.
— G. K.
Tvö síldartökuskip slitnuðu
frá bryggju norðanlands
Annað fékk vir i skrúfuna
NÚ stendur til að setja upp um-
ferðarljós á fernum nýjum
gatnamótum, á hornum Snorra-
brautar og Hverfisgöu, Klappar-
stígs og Laugavegar, Tryggva-
götu og Kalkofnsvegar og Nóa-
túns og Laugavegar. Er búið að
gera útboðslýsingu á ljósum
þessum og verið að leita tilboða.
Stöðvunarmerki
Nýlega hafa verið sett upp aðal
brautarstöðvunarmerki á 15 stöð-
um og telja lögreglumenn að þau
muni draga verulega úr áreksr-
um, þ.e.a.s. ef menn hlýða því að
•tanza alveg við gatnamótin, þar
sem þessi skilti eru. Er gengið
rikt eftir að það sé gert og er
lögreglan farin að kæra fyrir brot
á þessu. Verða skilti þessi sett
ORÐSENDING /
FRÁ HEIMDALLI
T Þeir félagsmenn, sem geta lán-
■C bíla á fimmtudag, vinsamlega
hafið samband við skrifstofu fé-
lagsins, í Valhöil, simi 17102.
upp á fleiri stöðum, ef þörf kref-
ur.
Eftir áramótin verða svo sett
upp biðskyldumerki og munu
þau sums staðar koma í staðinn
fyrir Stanz-stop merkin.
Aukin stefnuljósanotkun
Notkun stefnuljósa hefur auk-
izt mjög mikið á skömmum tíma,
enn eru þó margir sem ekki nota
þau og aðrir nota þau rangt. Er
lögreglan farin að senda saka-
dómara kærur fyrir slíkt.
í FYRRADAG og í gær var
versta veður sums staðar á ann-
nesjum norðanlands, NA-storm-
ur og þó nokkur sjór. Tvö skip,
sem voru að lesta síld til út-
flutnings á Siglufirði og Dalvík,
slitnuðu frá bryggju. Italska
skipið Naiade fékk auk þess vír
í skrúfuna, en var aftur komið
að bryggju á Siglufirði í gær-
kvöldi. Hvassafellið lá i vari
við Hrísey. Hlýtur þetta óhjá-
kvæmilega að tefja síldarútflutn-
ing, en ekki var í gærkvöldi séð
hve mikið.
Milli kl. 5 og 6 síðdegis á
sunnudag var Hvassafellið hálfn-
að að lesta síld, sem fara á til
Finnlands, við bryggjuna í Dal-
vík. Var þá kominn talsverður
sjór og sleit skipið af sér alla
vxra. Sigldi Hvassafellið þá í var
við Hrísey og var þar enn í
gærkvöldi. Þá var veðrið að
lægja, en ekki var vitað hvort
skipið færi inn til Siglufjarðar
Afgreiðslutími sölubúða
um hátíðirnar
til að bíða þar eða legðist aftur
að bryggju á Dalvík.
Fréttaritari blaðsins á Siglu-
firði skýrði svo frá að þegar
ítalska skipið Naiade var að
taka síld til útflutnings við innri
hafskipabryggjuna á Siglufirði í
fyrradag, hafi skipið slitnað írá.
Ætlaði það þá að bakka út fjörð-
inn, en fékk vír í skrúfuna. Var
Kolka hættir hér-
aðslæknisstörfum
Á FUNDI ríkisráðs í gær var
Páli V.G. Kolka veitt lausn frá
héraðslæknisembætti í Blönduós
héraði frá 1. júní 1960 að telja,
samkvæmt eigin ósk.
þá varpað akkerum. 1 gærkvöldi
var búið að ná skipinu upp að
bryggju, en kafari hafði ekki enn
getað farið niður til að losa hann,
vegna veðurs.
Flóabáturinn Drangur gat
hvorki laggst að bryggju á Dal-
vík né í Hrísey í gær vegna veð-
urs. —.
Þr jjár togarasölur
í Þýzkalandi
SÖLBORG frá ísafirði seldi í
Grimsby í morgun 128 lestir fyrir
8975 sterlingpund. Akurey á
Akranesi seldi 136 lestir í Brem-
erhaven fyrir 78 þús. mörk, Röð-
ull frá Hafnarfirði seldi 1 Cux-
haven í morgun 95 lestir af eigin
afla og tæplega 50 lestir af síld
fyrir 101.117 mörk. Er þetta ann
ar togarinn sem selur síld í
Þýzkalandi. Keilir seldi í fyrra-
dag og var sá fyrsti.
Nýjar málverkaeftirprentanir
SÖLUBUÐIR í Reykjavík, Akra-
nesi, Hafnarfirði og Keflavík og
nágrenni verða opnar um hátíð-
arnar eins og hér segir:
Næstkomandi laugardag, 19.
des., verður opið til kl. 22, á Þor-
láksmessu, 23. des., til kl. 24, á
aðfangadag, 24. des., til kl. 13 og
á gamlársdag, 31. des til kl 12 á
hádegi
Aðra daga verður opið eins og
venjulega en laugardaginn 2. jan.
verður lokað vegna vörutalning-
ar.
Fösudaginn 8. jan. verða sölu-
búðir opnar til kl. 19, en laugar-
daginn 9. jan. il kL 13 og verður
svo það, sem eftir er vetrar, eða
til 30. apríl.
Mjólkurbúffir Iokaffar jóladag
og nýjársdag
Afgreiðslutími mjólkurbúða
um hátíðarnar verður svo: A að-
fangadag kl. 8—14. Lokað allan
jóladag. Opið annan jóladag kl.
10—12, á gamlársdag kl. 8—14
og lokað allan nýjársdag. Aðra
daga verður opið eins og venju-
lega.
Samkvæmt þessu þurfa hús-
mæður að hugsa fyrir mat, öðr-
um en mjólk, til hálfs fjórða dags
fyrir hádegi á aðfangadag svo og
fyrir hádegi á gamlársdag.
Helgafell hefir nú Iátiff gera nokkrar nýjar málverkaeftir-
prentanir. Myndin hér aff ofan er af einni þeirra, málve>
eftir Kristínu Jónsdóttur. — Sjá nánar á bls. 6. —