Morgunblaðið - 26.01.1960, Síða 1

Morgunblaðið - 26.01.1960, Síða 1
24 síoui 47. árgangur 20. tbl. — Þriðjudagur 26. janúar 1960 Prentsmiðja Mrrgunblaðsins Sýður upp úr í Algeirsborg Flogið var inn yfir Grímsvötn á sunnudag og tók Magnús Jóhannsson þessa mynd vestan til ofan í vötnin, við Vatnshamar. Sprungurnar fremst á myndinni sýna hvað yfirborð vatnanna hefur sigið, sem er sennilega 20—30 m. Á miðri myndinni er eyja, sem komið hefur upp síðan hlaupið byrjaði. — Sjá nánar á bls. 3. Forseti Túnis segir Frökkum að hypja sig ALGEIRSBORG og PARÍS, 25. jan. (Reuter/NTB/AFP). — 1 gær sauð upp úr í Alsír. — Urðu þá hörð átök á aðal- torgi Algeirsborgar, þar sem þeir atburðir gerðust fyrir tveim árum, sem leiddu til valdatöku de Gaulles í Frakk- landi. — Þúsundir hægri- sinnaðra franskra landnema og stuðningsmanna þeirra söfnuðust saman til þess að mótmæla stefnu de Gaulles í Alsírmálinu, og að hann hefir svipt Massu hershöfðingja herstjórn í borginni og mein- að honum að halda aftur til Alsír. — A útifundi þessum heyrðust hróp eins og: „Alsír er franskt land“ — „Við heimtum Massu aftur“ — og „Hengjum de Gaulle“. — Til harðra átaka kom milli herliðs og þeirra, er fundinn sóttu. Lézt þar 21 maður og nær 150 særðust. De Gaulle ósveigjanlegur if Franska stjórnin hélt 2 klst. fund í dag til þess að ræða hið uggvænlega ástand í Alsír, og var de Gaulle þar í forsæti. Áður hafði hann rætt einslega við Debré for- sætisráðherra. Eftir fundinn var gefin út yfirlýsing, þar sem segir, að stjórnin muni gera allt sem unnt er til þess að binda endi á uppreisnar- ástand það, sem ríki í Alsír — og: „forseti og ríkisstjóm eru staðráðin í því að halda fast við stefnuna í Alsírmál- Götuvígi reist ★ í gervöllu Frakklandi ríkir mikil spenna meðal fólks vegna þessara atburða, en ekki hefir komið til neinna átaka eða ó- eirða. Stjórnin bannaði í gær alla útifundi og kröfugöngur í Frakk- landi. — í Alsír var lýst um- sátursástandi og sett á útgöngu- Framhald á bls. 2. Ný bandarísk eldflatig ' WASHINGTON, 25. jan. • /Bandaríkin hafa nú yfir að) )ráða nýrri gerð eldflauga, sem) ihægt er að skjóta frá þotum,(j \er fljúga hraðar en hljóðið. . Nefnast flaugar þessar „Sky- ; boat“. Varaforseti herforingjaráðs) )lofthersins sagði í dag, að með) )þessari eldflaug og sprengju- i þotunni B-58, sem nú er veriðC íað framleiða, en hún flýgur/ 'hraðar en hljóðið, hefði Banda/ /ríkjunum bætzt hernaðartæki,) )sem væri fljótvirkara og) „hreyfanlegra“ en áður hefði'j kþekkzt. TÚNIS, 25. jan. — (Reuter). — Habib Bourguiba forseti krafðist í dag brottflutnings franska herliðsins í flug- og flotastöðinni í Bizerte og kom af stað kröfugöngu tug- þúsunda Túnisbúa til franska sendiráðsins í Túnisborg. Á Burt fyrir 8. febrúar Bourguiba tilkynnti um 250 þús. áheyrendum á útifundi á Casbah-torginu í Túnisborg, að hann krefðist þess að Frakk ar flyttu burt herliðið fyrir 8. febrúar n. k., að öðrum kosti yrði gripið til þeirra ráða, sem dygðu til að losa Túnis við sérhvern franskan hermann. Þá óskaði hann eftir því að fundarmenn færu hópgöngu til sendiráðs Frakka í mót- mælaskyni gegn fyrirætlunum um kjarnorkusprengingu á Sahara-eyðimörkinni. Lögreglulið með stálhjálma varði sendiráðið, er kröfugang- an kom þar að og eftir stutta viðdvöl hélt gangan áfram að fundarstað 30 Afríkuríkja, sem sitja um þessar mundir ráðstefnu Afríkuþjóða í Túnisborg. Óskaði Bourguiba eftir því að fulltrúarn- ir tækju þátt í kröfugöngunni. — „Við viljum að þetta merka spor í baráttu Túnisbúa verði stigið í viðurvist fulltrúa frá bræðraþjóð um okkar í Afríku.“ Framh. á bls. 23. Námu- slysið Coalbrook, 25. jan. (Reuter). S T Æ R S T I demantsbor Suður-Afríku hélt í dag áfram að bora 200 metra djúp göng niður til 435 námumanna, sem hafa ver- ið innilokaðir síðan á fimmtudagskvöld. Borinn, sem var fluttur um 500 kílómetra leið til að reyna að koma vistum til námumannanna, var kom- inn rúma 30 metra niður í gær, þegar hann varð að hætta vegna sandroks. — Borun hófst aftur í dag og vonir stóðu til að unnt yrði að ná niður til mannanna innan 17 klukkustunda. Hér sjást námumenn í Suður-Afríku í atvinnu leit. Mikið framboð er á vinnuafli og kemst ekki nema einn af hverjum fimmtíu að. Launin eru um 80 aurar á klukkustund. Samkvæmt fregnum brezka útvarpsins mun þó vart unnt að reikna með því, að bor- unin gangi svo fljótt, og hugs- anlegt ,að henni verði ekki lokið fyrr en á miðvikudags- kvöld, þegar mennirnir hafa verið innilokaðir í sex sólar- hringa. Borholan er tæplega 35 cm í þvermál og niður um hana verða send matvæli, vatn og lyf, ef einhver hinna innilokuðu er á lífi. •k Mánaðarbið 1 dag var svo hafin vinna við ný göng niður til mann- anna, og verða þau rúmlega 3Yi metri í þvermál. Eru þessi nýju göng ætluð til að bjarga monnunum upp ur namunm og hófst vinna við þau, vegna þess að ókleift reyndist að grafa eftir námugöngunum vegna grjóthruns, eiturlofts og vatns, sem flóði inn í göng- in. Er búizt við því, að lokið verði við þessi nýju göng inn- an mánaðar. Framhald á bls. 23. '■* 0 *** * * * **,*■-***?.*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.