Morgunblaðið - 26.01.1960, Side 6
6
MORCUNfíLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. jan. 1959
Fréttabréf úr Mývatnssveit
Unglingur, 13 ára,
kirkjuorganisti
GRÍMSSTÖÐUM, Mývatnssveit,
8. jan. — Tíðarfar hefur verið
framúrskarandi gott, frostlítið
og frostlaust flesta daga og hæg
viðri. Allir vegir bílfærir og
hjarnið svo hart að aka má um
allar heiðar á jeppum.
Árið 1908 var kirkjukór
Reykjahlíðarkirkju stofnaður,
fyrir forgöngu Sigfúsar Hall-
grímssonar í Vogum. Síðan hefur
kórinn starfað óslitið og Sigfús
verið söngstjóri hans frá stofnun
og fram á þennan dag, án launa
og látið sér annt um kórinn. Sig-
fús er nú mjög farinn að heilsu,
einkum er sjónin að bila, enda
er hann kominn hátt á áttræðis-
aldur. Það hefur því verið nokk
urt áhyggjuefni fyrir söfnuðinn,
á undanförnum árum, hver tek-
ið gæti við störfum Sigfúsar við
söngstjórnina, þegar hans nyti
ekki lengur við.
Á sl. jólum var Sigfús rúmfast
ur vegna illkynjaðs kvefs sem þá
var að ganga. Sonarsonur Sigfús
ar, Jón Stefánsson, sem aðeins
er 13 ára, tók þá að sér að leika
á orgelið í kirkjunni, við jóla-
messuna, og stjórna söngnum.
Gerði hann það með slíkum á-
gætum að það vakti undrun allra
kirkjugesta. Var öryggi hans og
var að afi hans hafði búið hann
vel undir væntnlegt söngstjóra
starf, og þar með séð vel fyrir
söngmálum Reykjahlíðarsóknar
i framtíðinni.
Nú er verið að byggja nýja
kirkju í Reykjahlið, sem verður
stór og myndarleg. Er það mik-
ið átak fyrir fámenna og fátæk-
an söfnuð. Kirkjan telst nú fok-
held, en mikið er ennþá óunnið
þar til hún verður fullgerð,
enda er áhugi fyrir því að vanda
hana svo sem kostur er á.
Margir hafa veitt góðan stuðn
Asgeir
*
Asmundsson
frá Seli
ÞAÐ er sjónarsviftir að því er
aldraðir bæjarbúar hverfa sjón-
um. Þessi, sem nú er horfinn okk-
ur var einn af þeim er „setti svip
á bæinn“, þó ekki stæði hann hátt
í metorðastiganum.
Nafn hans er ekki í sandinn
skráð, því nokkur barna hans
eru nýtir þjóðfélagsþegnar í þess
um bæ, en önnur uppkomin eru
á undan honum komin yfir móð-
una miklu.
Mér var Asgeir kær, hann var
meira en meðal-greindur, fróður
og minnugur, og gamansamur svo
að af bar.
Ég hefi um fjóra ára-tugi tal-
ið hann meðal vina minna, og vil
því með þessum fáu línum þakka
honum ótaldar ánægjustundir.
Guð blessi þig á þeirri löngu
leið eilífðarinnar, sem hafin er.
Hittumst heilir.
Árni B. Knudsen
ing við kirkjubygginguna með
gjöfum, og töluvert fé hefur
henni borizt í áheitum. Hefur
una. Á sl. hausti barzt kirkjunni
þótt gefast vel að heita á kirkj-
mjög höfðingleg gjöf. Þrír bræð
ur sem búa á Geiteyrarströnd í
Mývatnssveit, Sigurður, Jón og
Jóhannes, Jóhannessynir gáfu
kirkjunni 30. þúsund krónur til
minningar um foreldra sína. J,-
hannes Sigurðsson og Guðrúnu
Jóhannesdóttur. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem þeir bræður sýna
höfðingsskap og skilning þegar
þurft hefur að styðja menn eða
góð málefni. Þá hefur aldrei stað
ið á framlagi frá þeim og hafa
þeir þá ætíð sýnt mikla rausn.
Má með sönnu segja, að þeir hafi
verið sterkar stoðir í sínu sveit-
arfélagi, og víðar hefur stuðning
ur þeirra gætt. Er það mikill
stuðningur öllum góðum málefn
um og hjálparstarfsemi að fá
notið slíkra manna, sem þeir eru.
Aðalfundur Sjálf-
sfæðisfél. Akureyrar
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
lags Akureyrar var haldinn í
Landsbankasalnum, þriðjudag-
inn 19. þ.m_
Á dagskrá voru venjuleg aðal-
fundarstörf.
Framsöguræðu um fjárhags-
áætlun bæjarins flutti Jón G. Sól-
nes bæjarfulltrúi og urðu fjör-
ugar umræður um hana.
Árni Jónsson tilraunastjóri var
endurkjörinn formaður félagsins.
Aðrir í stjórn eru: Baldvin As-
geirsson, Jóhannes Kristjánsson,
Bjarni Sveinsson og Gunnlaugur
Jóhannsson. — mag_
Sjómoksturinn
koslaði 1,3 milljón
í SKÝRSLU bæjarverkfræðings-
ins í Reykjavík árið 1958, er
sagt frá snjóhreinsun á götum
bæjrains það árið. Segir í 'skýrsl-
unni að snjór í bænum þann vet-
urinn hafi kostað bæjarsjóð rúm
lega 1,3 millj. króna. Hafi kostn-
aðurinn verið með meira móti.
En með hverju ári sem líður vaxa
þær kröfur, sem gerðar eru til
snjóheinsunar á götum bæjarins,
segir í skýrslunni.
I Nausti
FYRIR þremur eða fjórum ár-
um var byrjað á því í veit-
ingahúsinu Naustinu að hafa
rammíslenzkan mat á boðstól-
um á þorranum borinn fram í
trogum að gömlum sið. Þetta
mæltist þegar í upphafi mjög
vel fyrir og hafa nú fleiri
veitingahús fylgt því góða for-
dæmi. Það er ekkert vafamál
að þetta framtak Halldórs
Gröndals í Nausti hefur mjög
aukið neyzlu hinna Ijúffengu
íslenzku rétta, sem eru hinir
gimilegustu eins og myndin
sýnir.
— Ljósm. P. Thomsen.
Loffnetssfengur
rifnar af 12 bílum
LOFTNETSSTENGUR voru rifn-
ar af 12 bílum á götum Reykja-
víkur í fyrrinótt. Stóðu fjórir
þeirra við Bjarnarstíginn, en
átta við Grettisgötuna. Auk þess
hefur skemmdarvargurinn brot-
izt inn í einn bílinn við Bjarnar-
stíg og stolið þaðan teppi og
plastkápu. Skemmdarverk þessi
voru unnin á fjórða tímanum um
nóttina, og sást þá til manns á
Grettisgötunni, sem talið er að
sé valdur að skemmdunum,- en
ekki tókst að hafa hendur í hári
hans. Ættu íbúar við götur þess-
ar og aðrir að gefa lögreglunni
allar upplýsingar, ef þeir hafa
orðið varir við skemmdarvarg-
inn. —•
Norðmenn ahyggjutullir
Síldin sein á sér
NORÐMENN eru farnir að
verða áhyggjufullir vegna
þess að ekkert bólar enn á
síldinni, þótt kominn sc
seinni hluti janúar. Þegar góð
síldarár hafa verið í Noregi,
hefur veiðin byrjað snemma
í mánuðinum. Tvö norsk haf-
rannsóknaskip, „G.O. Sars“
og „Johan Hjort“ hafa að
undanförnu leitað síldar með
litlum árangri. Nú á „Johan
Hjort“ að fara í þorskleit, en
skipið „Peder Rönnested“
kemur í staðinn í síldarleit-
ina. —
★
Finn Devold, fiskimálastjóri
Norðmanna, sem hefur verið á
„Sars-inum“ að undanförnu, tel-
ur nú mjög ólíklegt að nokkur
síldveiði verði í janúarmánuði.
Samt er engin ástæða til að ör-
vænta, segir hann. Síldin virðist
nú hafa farið norðar en venju-
lega og kemur því seinna að
landi, en hún kemur örugglega
að landi, sagði Devold.
★
í fyrra kom síldin líka seint.
En þann 20. janúar var hún pó
að koma upp að ströndinni og
veiðin í fullum gangi upp úr 26.
janúar.
Norsku hafrannsóknaskipin
hittu þann 9. janúar stóran,
rússneskan síldveiðiflota, 200
skrifar úr
dagleqq lífinu
]
• Kynningardagur
Landbúnaðarins
Ólafur Gunnarsson skrifar:
í Morgunblaðinu 21. jan.
var smágrein í dálkum Vel-
vakanda, sem hét „Kynningar
dagur landbúnaðarins.“ Höf-
undur þessarar greinar harm-
ar það, að ekki skuli hafa ver-
ið komið á kynningardegi
landbúnaðarins eins og gert
hafi verið að bví er iðnaðinn
snertir.
Þar eð greinarhöfundur virð
ist rugla saman heiti starfs-
fræðsludaganna og „iðn-
fræðsludags" þykir mér rétt
að benda á, að síðan starfs-
fræðsludagarnir hófust fyrir
fimm árum hafa þar alltaf
verið fulltrúar frá öllum
helztu starfsgreinum landsins
til þess að veita unglingum,
sem fræðast vilja um fram-
haldsnám og störf sem gleggst
ar upplýsingar. Meðal annars
hafa frá upphafi verið 6—7
fulltrúar fyrir landbúnaðinn
og á síðasta starfsfræðsludegi
var glæsilegri myndasýningu
komið upp í sambandi við
landbúnaðardeildina og mun
svo einnig verða á næsta
starfsfræðsludegi þann 27.
marz næstkomandi.
♦ Starfsfræðsludagar
Starfsfræðsludagarnir hafa
frá upphafi verið í Iðnskol-
anum í Reykjavík sem er
vafalaush bezt í sveit settur
allra stórbygginga bæjarins
til þess að Ijá slíkri fræðslu
húsaskjól. Hafa allar stéttir
notið þar jafnra fræðslumögu
leika og ýmis konar fyrir-
greiðsla verið veitt af starfs
fólki Iðnskólans án endur-
gjalds en sá litli beini kostn-
aður sem af dögunum hefur
hlotizt verið að mestu greidd-
ur af Iðnfræðsluráði.
Starfsfræðsla hefur á seinni
árum rutt sér mjög til rúms
hvarvetna um heim og er víða
orðin skyldunámsgrein í ungl-
ingaskólum þótt svo sé ekki
hér á landi. Markmið hennar
er að veita unglingum hlut-
lausa fræðslu um sem flest
störf, sem unnin eru í þjóð-
félagi þvi sem þeir alast upp
í. Á þann hátt hefur fræðsian
einnig verið veitt hér í
Reykjavík og á því mun eng-
in breyting verða meðan ég
ræð nokkru um framkvæmd
hennar.
fiskiskipa, á milli Islands og
Færeyja. Norsku skipin leituðu
síldar á veiðisvæði Rússanna en
fundu mjög lítið, enda sáu þeir
að afli í reknet Rússanna var
sáralítill eða ekki meira en hálf
tunna í net.
Eldur í mannlausu
húsi
HÓLMAVÍK, 22. jan. — Á ellefta
tímanum í gærkvöldi kom upp
eldur í húsinu Dalur í Hólmavík.
Húsið er einlyft íbúðarhús úr
timbri, múrhúðað. Slökkviliðið
kom fljótt á vettvang svo og
fjöldi þorpsbúa er aðstoðuðu við
sllökkvistarfið. Erfitt var að kom
ast að eldinum, sem var mikill
í tróði í lofti hússins. Innan-
stokksmunum tókst að mestu að
bjarga út, en töluvert skemmd-
ist.
Bráðlega tókst að ráða niður-
lögum eldsins, en miklar
skemmdir urðu á húsinu. Bæði
hús og innanstokksmunir var vá-
tryggt. Eigendur hússins eru Guð
finnur Sveinsson, sem nú er á
vertíð á Suðurlandi og Þórunn
Benediktsdóttir, er nú starfar
sem hjúkrunarkona hér við
sjúkrahúsið.
Húsið var mannlaust er eldur-
inn kom upp. Eldsupptök eru ó-
kunn.
Fréttaritari.
A F M Æ L I
Ólöf Jónsdóttir, Byggðarholti í
Eyjum er 85 ára í dag.
100000 0 00000*00001
Fuglalíf á Græn-
landi í hæltu
ÞÓRSHÖFN, Færeyjum,
19. janúar.
NÚ ER talið að fuglalíf á
Grænlandi sé í mikilli
hættu, og fuglar muni
jafnvel deyja þar út, ef
ekkert verður að gert. Er
hætta þessi talin stafa af
því, að á síðari árum hafi
hið gegndarlausa dráp á
fuglum aukizt mjög ískyggi
lega. Aðeins við vestur-
strönd Grænlands séu til
dæmis skotnir um milljón
fuglar árlega. Einnig eru
nú skemmd á ári hverju
fleiri hreiður en áður.
t þessu samhandi er bent
á, að mikill f jöldi báta bæt-
ist nú árlega í fiskiflota
Grænlendinga — og svo
einnig það, að nú eignast
æ fleiri Iandsmenn byssur.
\.0 000000 0 00000001