Morgunblaðið - 26.01.1960, Page 13

Morgunblaðið - 26.01.1960, Page 13
Þriðjudagur 26. Jart. 1959 MOnc.TJNnT.AfílÐ 13 Uavíð ölafsson fiskimálastJóri: Sjávarútvegurinn 1959 ENDA þótt árið 1959 hafi að ýmsu leyti orðið ríkt að ytri við- burðum í landihelgismálinu og þeirri deilu, sem reis út af því máli milli Breta og íslendinga á árinu 1958 mun það ekki rætt hér, heldur minnzt á nokkur at- riði, sem máli skipta um fram- vindu málsins. Bretar héldu enn áfram hern- aðaraðgerðum sínum til verndar brezkum togurum, er veiðar stunduðu innan hinna nýju fisk- veiðilandhelgi. Augljóst var þó, að þeir töldu þessa aðferð ekki ýkja vænlega til árangurs til langframa úr því sú von brást þeim, að hún gæti leitt til skjótra úrslita þeim í vil. Aðrar þjóðir viðurkenndu enn sem fyrr í verki aðgerðir íslend- inga með því að láta skip sín stunda veiðar utan fiskveiðiland- helginnar. Er ekki ástæða til að ætla að á því verði breyting. Fróðlegt er að sjá mismunandi viðbrögð þj óðanna við þeim vanda, sem hér mætti þeim. — Bretar héldu dauðahaldi í fiski- miðin næst ströndum íslands og skeyttu þá hvorki um skömm né heiður. Höfðu þeir þó fyrir all- löngu átt að vera búnir að átta sig á að til þessa mundi draga og því átt, eins og hyggnum mönn um hæfir að búa sig undir það, sem verða vildi og leita sér fanga annars staðar, svo þeir yrðu ekki jafn háðir fiskimiðunum við ís- land eiijs og áður. En jafnvel nú, nær einu og hálfu ári eftir að at- burðirnir gerðust, er ekki kunn- ugt um, að Bretar hafi gert nein- ar alvarlegar tilraunir til að leita nýrra fiskimiða á öðrum slóðum til þess þannig að auð- velda sinni útgerð þær breyting- ar, sem óhjákvæmilegar eru ef hún á að halda velli í sam- keppninni á Norður-Atlantshafi. Þýzka sambandslýðveldið var eitt þeirra ríkja, sem mótmælti aðgerðum íslendinga en létu við það sitja. Þjóðverjar sneru sér hinsvegar að því af kappi að bæta sinni útgerð eftir föngum það tjón, sem þeir töldu að hún hefði orðið fyrir í bili a. m. k., vegna þessara aðgerða. Hófu þeir þegar undirbúning að víðtækri fiskimiðaleit á vestanverðu Norð ur-Atlantshafi. Hafa þeir á liðnu ári varið stórum fjárhæðum í þessu skyni og séð árangurinn koma í ljós. Þær fjárhæðir, sem hér er um að ræða eru þó án alls efa ekki nema dálítið brot af þeim fúlgum, sem Bretar hafa kastað á glæ með hernaði sínum við ísland á þessum tíma og má þá gera sér í hugarlund hvert gagn þeir hefðu getað gert út- gerð sinni með skynsamlegri ráð- stöfun þess fjár. Þær raddir hafa heyrzt á þessu ári sem og fyrr, að aðgerðir Is- lendinga væru ekki réttlætanleg- ar vegna ofveiði eða hættu af ofveiði við ísland. Okkar vísinda menn hafa þó margoft sýnt fram á þá uggvænlegu þróun, sem hér hefur átt sér stað og þá hættu sem yfir vofir. Skal það ekki frekar rætt hér. En ofveiðivandamálið er ekki bundið við fiskistofnana við ís- land. Nýjustu niðurstöður rann- sókna sýna að þessi hætta er einn ig yfirvofandi á austanverðu Norður-Atlantshafi, bæði að því er snertir síld og þorsk. Hlýtur þetta að vekja nokkurn ugg hér á landi því ein af afleiðingum þess ef fiskur gengur til þurrð- ar annars staðar á þessu svæði hlyti óhjákvæmilega að verða sú, að sóknin á fiskimiðin um- hverfis ísland ykist. Gæti slíkt orðið örlagaríkt fyrir íslenzku fiskveiðar. Skipastóllinn Samkvæmt skipaskrá, sem sam in er síðla hausts 1959, var heild- ar rúmlestatala íslenzka skipa- stólsins orðin 117.987 en tala skipa 765. Er hér um að ræða viðbót frá fyrra ári sem nemur 17 skipum og 4631 rúmlestum, Samkvæmt sömu skrá skiptist skipastóllinn eins og segir í töflu 1. svo um allar aflatölur í yfirliti þessu fyrir árið 1959. Er hér um að ræða aukningu frá fyrra ári, sem nemur um 10%. Þessi aukn- ing hefur þó komið mjög mis- | jafnt niður bæði að því er snertir togara og báta og einnig með til- TAFLA L 1959 1958 Tala Rúml. Tálh Rúml. Togarar 43 28.367 44 29.024 Önnur fiskiskip yfir 100 rúml. .. 61 10.316 49 7.561 önnur fiskiskip undir 100 rúml. 619 21.776 614 21.213 Önnur skip 42 57.528 41 55.558 Alls: 765 117.528 748 113.356 Eftir að gengið var frá skránni komu hins vegar allmörg skip til landsins fyrir árslok óg voru það alls 12 skip um 1800 rúml. Var þar af einn togari, en einn fiski- bátur, 12 rúml., smíðaður innan- lands á þessu tímabili. A sama tímabili komu tvö ný kaupskip til landsins 1224 rúml. Var því skipastóllinn í árslok orðinn 121.023 rúml. og voru þar af fiski skip 62.271 rúml. Mun láta nærri, að hrein viðbót við fiskiskipastól inn hafi á árinu orðið um 3400 rúml. Alls bættust 32 skip við fiskiskipastólinn og var rúmlesta tala þeirra 4398. Var þar af einn togari 640 rúml., keyptur í Vestur Þýzkalandi, en byggður þar árið 1950. Alls voru byggðir 26 fiski- bátar 3604 rúml. erlendis og inn- anlands 5 bátar, samtals 154 rúml. Enn er það því bátaflot- inn, sem fengið hefur nær alla endurnýjunina, en togaraflotinn stendur í stað. Þó hefur sú breyt- ing á orðið, að samið hefur ver- ið um byggingu 5 togara í Vest- ur-Þýzkalandi og mun þeirra vera von á þessu ári. Verður von- andi haldið áfram með þá endur nýjun togaraflotans, sem hér hef ur verið hafin enda brýn nauð- syn á því, þar sem sá floti er nú tekinn að eldast en nýbyggð skip mun hagkvæmari til reksturs vegna betri vélakosts m. a. Fiskaflinn Á þessu ári kom meiri fiskur á land úr íslenzkum skipum en nokkru sinni fyrr. Alls mun afl- inn hafa orðið rúmlega 556 þús. smál. Ekki er það endanle'g tala, þar sem nákvæmar upplýsingar um aflann í desember liggja enn ekki fyrir og verður því að áætla desember-aflann að nokkru. Er liti til fisktegunda, svo sem sjá má í töflu 2. TAFLA H. langt árabil hafa verið svo lítill. Má að sjálfsögðu rekja það til aukinnar sóknar á karfamiðin, og þar af leiðandi minni sókn eftir þorski en sóknin á karfamiðin hefur þó eins og áður segir gefið miður góða raun. En einnig mun þó ástæðunnar til þessarar þróun ar að leita í þeim breytingum, sem leiddu af útfærslu fiskiveiði- lan'dhelginnar á árinti 1958. Á því ári hafði þetta lítil áhrif, þar sem togararnir stunda lítið þorskveið ar hér við land eftir 1. sept. Hins vegar virðast áhrifin koma í ljós á árinu 1959 á vetrarvertíðinni, þó hæpið sé raunar að draga ályktanir af reynzlu eins árs. — .Augljóst er þó, að þorskaflinn Davíð Ólafsson skipin stærri en áður hefur tíðfc azt hér. Afli bátaflotans hefur stórauk- izt á árinu eins og áður segir og á það einkum við um síldina, sem síðar verður getið. En aukning hefur einnig orðið á þorskafla bátaflotans, sem nemur yfir 13% frá fyrra ári. Hefur hluti bátaafl ans, í öðrum afla en síldinni num FISKAFLINN (sl. fiskur m. haus, nema síidin, sem vegin er upp úr sjó) ■ 9 — 5 — 9 1—9—5—8 Fisktegundir Togarar Bátar Samtals Togarar Bátar Samtals smál. % smál. % smál. % smál. % smál. % smál. % Þorskur 43.000 28.2 183.400 45.5 226.400 40.7 73.410 36.8 162.038 53.0 235.448 46.0 Síld 120 0.1 182.880 45.3 183.000 32.9 1.700 0.9 105.618 34.5 107.318 21.2 Karfi 97.500 63.8 1.300 0.3 98.800 17.8 109.452 54.9 468 0.2 109.920 21.8 Ýsa 3.100 2.0 15.000 3.7 18.100 3.3 3.753 1.9 15.000 4.9 18.753 3.7 Ufsi 6.250 4.0 5.000 1.3 11.250 2.0 6.667 3.3 5.224 1.7 11.891 2.4 Steinbítur 1.200 0.8 7.500 1.9 8.700 1.6 2.579 1.3 6.968 2.2 9.547 1.9 Keila 115 0.1 2.600 0.6 2.715 0.5 147 0.1 4.468 1.5 4.615 0.9 Langa 270 0.2 1.800 0.4 2.070 0.3 324' 0.2 2.980 1.0 3.304 0.7 Flatfiskur 525 0.3 2.400 0.6 2.925 0.5 576 0.3 1.541 0.5 2.117 0.4 Annað 800 0.5 1.500 0.4 2.300 0.4 538 0.3 1.487 0.5 2.125 0.4 Samtals: 152.880 403.380 556.260 Í99.146 305.892 505.038 Þannig hefur afli togaranna minnkað um 46 þús. smál. eða um 23%, en bátaflotinn hins veg- ar aukið sinn afla um 31% eða 97 þús. smál. Er togaraaflinn orð- inn nær því hinn sami og 'hann var árið 1957 en það var talið slæmt aflaár fyrir togarana. — Þessi breyting til hins verra, að því er togarana snertir á sér tvær megin skýringar. í fyrsta íagi varð breyting á karfaveið- unum við Nýfundnaland. Árið áður hafði verið afbragðs góður afli á þeim miðum allan síðari helming ársins og varð til þess, að karfaaflinn á því ári jókst um 60%. Þessi aflahrota stóð nær óslitið fram í febrúar 1959. Þeg- ar svo togararnir hófu veiðar á þessum miðum aftur um vorið var þar að vísu enn góður afli en eftir skamma hríð tók að draga úr honum og síðari hluti ársins varð mönnum mikil vonbrigði hvað aflabrögðin snerti. Varð karfaafli togaranna um 11% minni en árið áður. í öðru lagi og ískyggilegri er þó jafnvel hversu þorskafli togaranna hefur minnkað stórum eða um 41.5% frá fyrra ári og mun ekki um minnkaði stórum á þeim tíma vetrarvertíðarinnar, sem vana- rega hefur gefið beztan afla þ. e. marz og apríl. Varð hann í heild nær þriðjungi minni en árið áð- ur en bátaflotinn jók þorskafla sinn um 13%. Árið 195T hafði þorskafli togaranna að vísu ver- ið aðeins lítið eitt meiri en nú varð, en þá voru almennt frem- ur léleg aflabrögð. Þegar á þess- ar staðreyndir er litið virðist vart vera um nokkra aðra skýr- ingu að ræða en þá, sem að ofan getur. Enda mátti sjá þaðfyrir, að togararnir mundu missa, innan hinnar nýju fiskveiðilandhelgi, fiskimið, sem höfðu gefið þeim góðan afla og nokkuð árvissan. Þennan missi er vart hugsanlegt að togararnir geti bætt sér að svo stöddu með meiri afla á miðum hér við land en að sjálfsögðu er það von manna, að þegar frá líð- ur og fiskigöngur aukast þá geti togararnir einnig notið góðs af því. Sókn togaranna á fjarlæg mið á því væntanlega enn fyrir sér að aukast og hefur það aug- sýnilega ráðið þeirri ákvörðun togaraútgerðarmanna, sem nú hafa nv skio í byggingu, að hafa vertíð í Reykjavík. — Fiski landað á Verbúðabryggjunni. ið um 59% en að síldinni meðtal- inni verður þessi hluti 72.6% og mun ekki hafa orðið svo mikill áður, a. m. k. ekki um langt ára- bil. Breytingar á magni annarra fisktegunda í bátaaflanum en. þeirra sem hér var getið, hafa ekki orðið teljandi og engar, sem neina þýðingu hafa. Hagnýting aflans á þctrskveiðunum I töflu 3 er að finna yfirlit ytfap hagnýtingu aflans á þorsk- og síldveiðum. Að því er aflann á þorskveiðunum snertir hat» breytingar orðið sára-litlar. Kf litið er á heildartölurnar kemur i Ijós, að lítið eitt minna hefur fafið til frystingar en árið áður og sama gildir um það, sem f<Mr til söltunar en hins vegar er um lítils háttar aukningu að ræða, að því er herzluna og ísvarða fiskinn snertir svo og þann fisk, sem fór til vinnslu í fiskimjöls- verksmiðjur. Var þar aðallega um að ræða karfa, sem reyndist óhæfur til frystingar. Nokkur munur er á því hvem- ig togara- og bátafiskur er hag- nýttur. Yfirgnæfandi meirihluti togarafisksins hefir farið til frystingar enda er mikill hluti hans karfi, sem ekki verður hag- nýttur á annan hátt, nema það litla, sem flutt er út ísvarið. Svipaður nluti togaraaflans hef- ir farið til herzlu og á fyrra áil en hins vegar hefir sá hluti, sem til söltunar fór ekki náð helm- ingi þess, sem þá var. Voru saltfiskveiðar togaranna með allra minnsta móti á þessu ári og nær eingöngu fyrrihluta ársins. GrænVandsveiðar í salt, sem undanfarin ár hafa verið allmikið stundaðar síðari hluta sumars og fram á haustið urðu nú nær engar, enda var afli venju fremur rýr þar á þess- um tíma. Isfiskveiðar voru hins vegar með meira móti um haustið, m. a. vegna þess hversu afla- brögðum var háttað en einkum þó fyrir það, að verðlag á ís- fiskmörkuðunum í Bretlandi og Þýzkalandi var með allra bezta móti. Aukning sú, sem varð á afla bátaflotans á þorskveiðunum fór að mestu til hinna þriggja verk-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.