Morgunblaðið - 26.01.1960, Qupperneq 15
Þriðjudagur 26. jan. 1960
MOvtcrnvnr 4 ÐIÐ
15
0 0 0-;0.0.0.0^0 0^-^0 1
Yma
Sumac
til
íslands
?
Hal Linker og Halla kona
hans, sem er íslenzk eins og
kunnugt er, höíðu 16. janúar
haft hálf tíma dagskrárlið i
sjónvarpinu í Los Angeles í
hverri viku í þrjú ár sam-
fleytt. Nefnist þátturmn
sonur þeirra hjóna, á ferðalög
um sínum um allan heim. en
Hal Linker kvikmyndar ferð-
irnar og útbýr dagskrárliðinn.
Hafa þau þannig ferðazt um
og útbúið sjónvarpsþætti í 32
iondum.
í tilefni af afmæli þáttar-
ins, tóku þau hjónin á móti
gestum á heimili sínu í Los
Angeles.Meðal ýmissa þekktra
gesta þar, var söngkonan
fræga Yma Sumac. Hafði hún
orð á því að vel gæti verið að
hún kæmi við á íslandi og
héldi þar hljómleika, þegar
hún færi í hljómleikaferð
til Evrópulandanna að noksr-
00 0 0 0 0-00*00000000'.
— Sex Ijóðskáld
Jfrarnh. af bls. 10
in, kastar síðan fyrir borð öllu
sem skyggir á kjarnann og held-
ur honum einum til haga. Eitt
bezta kvæði Sigurðar í þessu
safni er smáljóðið .,Blóna“. Hinn
tæri og svali tónn Sigurðar lit-
ast þar einhverjum hvíslandi
trúnaði, líkt og maður sé að
fylgja vini sínum úr hlaði og
hann segi manni loks að skiln-
aði sitt duldasta leyndarmál.
Stefán Hörður Grímsson er
einkennilegur á köflum, svo það
er öðru nær en ég skilji alltaf
hvað hann er að fara, til dæmis
í kvæðinu „Þrettán gular, ein
svört“, sem kemur mér fyrir
sjónir eins og það hafi verið
ruglað í óráði. En sem betur fer
bráir stundum af skáldinu og
góður andi kemur yfir það og
lætur því þá auðnast að kveða
fögur ljóð og frumleg. Þar vil
ég til nefna „Kvöldvísur um sum
armál“, „Þegar undir skörðum
mána“, „Vetrardagur" og „Van
Gogh í Arles“. Þessi kvæði eru
öll ljúffengur skáldskapur og með
glæsibrag. Svipað vil ég segja
um „Hvíta tjaldið“ — yfir því er
harmræn tign í formi kunnáttu-
samlegra vinnubragða. „Bifreið
sem hemlar hjá rjóðrinu" er at-
hyglisvert kvæði, en í „Dans á
sandi“ brestur boginn í höndum
Stefáns svo ör andagiftarinnar
flýgur skakkt og illa: skáldsýnin
leysist upp í ofsjónir.
Ég er kannski orðinn of marg-
orður um þessa litlu bók, og er
gagnrýnin á ljóðunum þó afar
lausleg og öllum tilvitnunum
sleppt, rúmsins vegna. Þá get ég
búizt við að einhverjum virðist
grunsamlegt hvað aðfinnslurnar
eru veigalitlar í samanburði við
lofið, en því er til að svara, að
allnákvæmur lestur bókarinnar
hefur leitt mig til þess mats á
henni. Bókin er góð. Enda ekki
tekið í hana annað en knappt
úrval, og því hef ég ekki dæmt
um neitt nema það bezta, sem
þessir sex höfundar hafa gert
um dagana. Önnur verk þeirra
koma ekki til álita hér, ég hef
ekki einu sinni lesið þau öll.
Eyrarbakka, 20. janúar 1960.
Guðmundur Daníelsson
Háfíð Sjálfstœðismanno
í Vesfmannaeyjum
VESTMANNAEYJUM, 20. jan. —-
Sjálfstæðisfélögin í Vestmanna-
eyjum héldu sameiginlegan árs-
fagnað sinn laugardaginn 16. jan.
sl. Hófst hann með borðhaldi kl.
7 síðdegis.
Meðan á borðhaldi stóð voru
ræður fluttar, svo og fóru fram
skemmtiatriði og fjöldasöngur.
Af ræðumönnum tók fyrst til
máls Guðlaugur Gíslason, alþing
ismaður. Rakti hann í stórum
dráttum ýmsar framkvæmdir á
vegum bæjarins á liðnum árum
og gat um nokkur helztu verk-
efni framtíðarinnar.
Næstur tók til máls Birgir
Kjaran, alþingismaður, en hann
var gestur sjálfstæðisfélaganna
og fulltrúi miðstjórnar flokksins
í hófi þessu. Birgir kom víða við
í ræðu sinni og rakti m.a. sðgu
eyjanna og drap á þær miklu
framfarir, er hér. hefðu orðið á
liðnum árum.
Næst sýndi dansparið Edda
Scheving og Jón Valgeir listdans.
Þá flutti formaður Sjálfstæðis-
félags Vestmannaeyja, Páll
Scheving, ávarp og að síðustu
talaði fulltrúi ungra Sjálfstæðis-
manna, Jón Pálsson, og flutti
hann hvatningarorð til unga
fólksins.
A milli ræðnanna var fjölda-
söngur. Að borðhaldi loknu var
sýnd kvikmynd og að lokum var
dansað.
Hóf þetta var mjög fjölsótt og
munu um 400 manns hafa setið
það. Var þetta í einu og öllu hin
ágætasta hátíð. — B.
llalla Linker með söngkonunni Ymu Sumac (til vinstri) og
leikkonunni Mary Astor (til hægri) i boði sem Halla og
Hal Linker héldu í tilefni af þriggja ára afmæli sjónvarps-
þáttar þeirra. —
um mánuðum liðnum. Yma
Sumac er, eins og kunnugt er,
Indíáni frá Perú, og hefur
alveg einstætt raddsvið.
Milljón áhorfendur.
í sambandi við afmæli
þáttarins veita þau Halla og
Hal Linker áhorfendum sin-
um verðlaun.Hafaþegar borizt
kort með 40.000 nöfnum, sem
dregið verður úr, og fá tveir
fría ferð til Hawaii og viku-
dvöl þar. Talið er að milljón
sjónvarpsáhorfenda horfi á
þátt þennan. Hann hefir verið
seldur til 36 borga í Banda-
ríkjunum og dreifingu til ann
arra landa annast nýtt félag,
sem Bing Crosby rekur, „Cros
by/Brown Production“. Nú í
janúar var þátturinn seldur
til notkunar í Síam.
I dagskrárliðnum „Undur
veraldar", hafa sex sinnum
verið þættir frá íslandi. Nú
síðast 2. desember í sambandi
við fullveldisdaginn. Nefndist
þátturinn „Græna ísland er
ekki ísi þakta Grænland“ og
bar Halla skrautbúning við
það tækifæri.
♦ +
BRIDCE
*¥
♦ *
Pinnum og
bnrknmynd
skilað
FYRIR nokkrum dögum sögðuin
við frá því hér í blaðinu að
krakkar hefðu komizt yfir tré-
pinna, sem notaðir eru í is, eftir
j að brotizt var inn í geymsluskúr
j heildsölu hér í bænum. Sama dag 1
' inn og sagt var frá þessu hér
j í blaðinu komu 20 krakkar og
skiluðu pinnunum, sem þeir
höfðu undir höndum. Hafa þau
sjálfsagt gert sér grein fyrir því
að ekki var heiðarlegt að hirða
pinnana, er þau lásu um hvernig
þeir voru til komnir og foreldr-
1 arnir hvatt þau til að skila þeim.
Enn er samt töluverðu magni ó-
skilað, en sjálfsagt kemur það
fram, er fleiri foreldrar hafa át.t-
að sig á hvað þetta er, sem krakk
arnir eru með.
Einnig sögðum við frá því í
sama blaði að stolið hefði verið
barkarmynd, eftir Arthur Ólafs-
son í veitingahúsinu Rauða
myllan. Sá sem það gerði hefur
guggnað á aðhengjamyndinaupp
hjá sér eða selja hana, og hent
henni á Smiðjustíginn í nánd við
veitingahúsið.
AÐ 8 umferðum loknum í sveita-
keppni Bridgefélags kvenna er
röð 6 efstu sveitanna þessi:
Sv. Þorgerðar Þórarinsd. 929 st.
— Dagbjartar Bjarnad. 911 —
— Júlíönu Isebarn 888 —
— Vigdísar Guðjónsd. 887 —
— Eggrúnar Arnórsd. 887 —
— Sigríðar Jónsd. 851 —
Níunda umferð verður spiluð
mánudaginn 25. þ. m.
★
í þriðju umferð sveitakeppni
meistaraflokks hjá Ta »1 - og
bridgeklúbbnum urðu úrslit
þessi:
Sv. Aðalsteins Snæbjörns-
sonar v. sv. Svavars
Jóhannssonar 63:47
— Þórðar Elíassonar v.
sveit Zophusar Guð-
mundssonar 59:53
— Þóris Sigurðssonar v.
sv. Hákonar Þorkelss. 57:50
— Gísla Hafliðasonar v.
sv. Agnars Ivars 86:58
— Hjalta Elíassonar v.
sv. Björns Benediktss. 89:13
Orslit í 4. umferð:
Sv. Svavars v. sv. Hjalta 51:41
— Gísla vann sv. Björns 84:40
— Zophusar v. sv. Aðalst. 54:45
— Hákonar j. sv. Agnars 64:65
—■ Þórðar jafnt. sv. Þóris 58:53
Að fjórum umferðum loknum
er röð efstu sveitanna þessi:
1. sv. Gísla Hafliðasonar 8 st.
2. — Hjalta Elíassonar 6 —
3. — Svavars Jóhannss. 6 —
4. — Þórðar Elíassonar 5 —
★
Spilið, sem hér fer á eftir er
gott dæmi um það, að svolítil
hugkvæmni getur gert spil, sem
við fyrstu athugun virðist unn-
ið, að óvinnandi spili:
♦ 7 5 4 2
V K D G 5
♦ D G
♦ Á D 3
* 10 8 3
¥ 8 7 6
* 5 2
* 9 7 6 4 2
* A 9
¥ 10 2
* Á K 9 7
6 4 3
* 8 5
A K D G 6
¥ A 9 4 3
♦ 10 8
* K G 10
Suður er sagnhafi og spilar 4
spaða. Vestur tekur fyrstu tvo
slagina á ás og konung í tígli.
Síðan spilar Vestur lágum tígli,
sem er trompaður í borði, en
Austur trompar yfir með tíunni
og Suður drepur með spaðagos-
anum. Suður lætur nú út spaða-
konung, sem Vestur drepur með
ás og enn lætur Vestur út tígul,
sem er trompaður í borði, en
Austur trompar yfir með átt-
unni og nú er sama hvað Suður
gerir, Vestur fær slag á hæsta
tromp, spaða 9, og spilið tapast.
— Samtal við
Cisla Alfreðsson
Framh. af bls. 10
skóli er hann aðeins 10 ára gam-
all.
— Skólalífið og kennsluhættir
— það er vinna og aftur vinna.
Skólinn hefst kl. 8 að morgni,
með leikfimi og síðan er stanzlaus
kennsla í öðrum greinum til kl.
7 að kvöldi, með stuttum matar-
hléum.
Kennarar eru um 20, allir start-
andi og þekktir leikarar, en þýzk-
ir leiksviðsleikarar eru eðlilga
ekki mikið þekktir hér á landi.
Meirihluti námsins er byggður á
svokallaðri tekniskri kennslu,
talþjálfun, öndun, hreyfingum.
með leikfimi, skilmingum og fl.
í þá átt, þá er leiklistarsaga, bún-
ingasaga, leikbókmenntir og leiit
sviðstækni og svo að sjálfsögðu
leikæfingar og leikkennsla — en
mikill hluti þeirrar kennslu fer
fram í einkatímum hjá kennur-
unum. Grundvallarregla Otto
Falckenberg, stofnanda skólans,
sem að verulegu leyti er farið eft-
ir, var sú að leikarar verði fyrst
og fremst að vera nægjanlega
teknisk þjálfaðir til að geta leyst
af hendi erfið hlutverk — það er
ekki talið nægjanlegt að hafa leiK
hæfileika eina saman — heldur
þjálfun og úthald.
Seinnihluta námsins, eru nem-
endur skyldaðir til að taka að ser
smáhlutverk í leikhúsum og kvik
myndum.
— Félagslif í skólanum? Nei,
það er eiginlega ekkert eða þvi
sem næst. Það er enginn tími til
þess. Kvöldin fara til undirbún-
ings næsta dags og stöku sinnum
er hægt að skreppa í leikhús.
— Jú, leiklistarlíf í borginni
er mikið. í Múnchen eru fjölda-
mörg leikhús og tvö þeirra 1
flokki fremstu leikhúsa. í öðru
þeirra, Stáatstheater, er skóla-
stjóri minn Gerd Brúdern, einn al
aðalleikurunum. Hann missti ann
an fótinn í stríðinu, en leikui
samt Faust, Fíeskó, Kreon kon-
ung í Antigona og fleiri þess hátt-
ar hlutverk.
í þeim leikhúsum, þar sem ég
kom aðallega, hafa verið sýnd að
undanförnu Fíeskó ,eftir Schiller,
Antigona eftir Sófókles, Leocadia,
eftir Anouilh. Rétt fyrir jól var
flumsýnt The Matchmaker, sem
mun verða með næstu verkefnum
Þjóðleikhússins hér. Við sáum
einnig A touch of a Poet, eftir
O’Neill og kómedíur eftir Moli-
ére. í vetur hefur ekkert Shaks-
pare-leikrit verið sýnt í borginni
og telst það til undantekninga,
því venjulega eru mörg þeirra á
ferðinni í einu.
Leikhús í Þýzkalandi eru vel
sótt — yfirleitt alltaf full. Aðal
ástæðan mun vera góð leikrit og
góð meðferð — einnig eykur að-
sóknina að fólki er gefin kostur
á að kaupa afsláttarmiða, sem
gilda allt árið og er það mikið
notað. Tvær óperur og ein óper-
etta eru í borginni og er hvort-
tveggja mjög vel sótt.
— íslendingar í Múnchen? —
Þeir munu vera um 35, sem
stunda þar margskonar nám, en
flestir þó í verkfræði. Við list-
nám eru nokkrir, til dæmis Sig-
urður Björnsson í söng, Ásdís
Þorsteinsdóttir 1 fiðluleik og
Bragi Ásgeirsson í málaralist. —
Félagslíf meðal íslendinga er
mjög gott, samkomur og fundir
haldnir og samheldni góð.
— Afkoma og líf fólksins í
landinu? — Það hafa svo margir
svarað þessari spurningu bæði i
riti og ræðu og flestir á einn veg.
Mér virðist aðaleinkenni Þjóð-
verja vera spersemi og dugnað-
ur. Mörgum hættir til að telja
einstaklingnum það til lasts, en
ég tel það fremur til kosta. Undra
vert er að sjá hve uppbyggingin
eftir stríðið hefur gengið fljótt og
vel. Ég er ekki nægjanlega kunn-
ugur efnahagsafkomu Þjóðverja
til að dæma um það á einn eða
annan hátt.
— Ég á eftir 15 mánuði í skól-
anum. Lokapróf á ég að taka I
apríl 1961. Eina fríið, sem nú er
framundan er leikhúsfríið, sem er
4 vikur, í sumar.
★
Gísli Alfreðsson er ungur mað-
ur og merkilega orðvar um sjálf-
an sig og aðra. Greinilega hefur
honum gengið vel að komast inn
á þennan þrönga leikskóla og er
það fagnaðarefni að eiga von á
nýjum straumum með nýjum
mönnum inn í leiklistarlíf okkar
hér heima.
Aðallega hafa námsleiðir, á
sviði leiklistar, legið til Dan-
merkur og Englands, en þýzfc
áhrif munu engu síður samþýðast
íslenzkum staðháttum, og verða
leiklisth.ni nýr vaxtarmáttur.
Hsj.